Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.1995, Síða 12
FIMMTUDAGUR 23. FEBRÚAR 1995
26_____
llmDmyndir
SAGA-BÍÓ Sími 78900
Pabbi óskast * *
Steve Martin framleiðir, skrifar handritið og leikur aðalhlutverkið
í mynd um einstæðing sem ættleiðir litla stúlku. Martin hefjr
oftast verið betri og það á ekki almennilega vió hann að taka
hlutunum með ró. -HK
Konungur Ijónanna * * *
Enn einu sinni tekst snillingunum hjá Disney að gera hina
„fullkomnu“ teiknimynd. Sagan er ljúf og skemmtileg og íslenska
raddsetningin tekst mjög vel. -HK
BÍÓBORGIN Sími 11384
Léon **l/2
Enn einn stílfærður tryllir eftir hinn franska Luc Besson um
góðhjartaðan leigumorðingja í New York sem tekur að sér að
kenna tólf ára stúlku fagið svo hún geti hefnt foreldra sinna. -GB
Viðtal viö vampiru * *
Blóðsugur meó mannlegar tilfinningar eru litlausar blóðsugur.
Þessi vampírumynd sem skartar stórstjömum er frekar langdregin
en mörg góð atriði bjarga henni fyrir horn.-HK
BÍÓHÖLLIN Sími 78900
Afhjúpun **l/2
Afhjúpun er fín skemmtun þrátt fyrir nokkra hnökra í
atburðarásinni. Michael Douglas er í sömu sporum og í Fatal
Atraction og Basic Instinct og Demi Moore er svöl. Atrióið sem allir
vita um er sterkt í mynd og í tali.
Wyatt Earp * *
Efnismikil stórmynd úr smiðju Lawrence Kasdans um goðsögnina
Wyatt Earp. Of löng mynd sem á góða spretti en missir flugið í
lokin. Athyglisverður leikur hjá Dennis Quaid í hlutverki Doc
Holliday. -HK
Ógnarfljótið ***
Vel heppnuð spennumynd þar sem Meryl Streep fer á kostum í
hlutverki, sem er ólíkt flestu því sem hún hefur gert áður. Góð
kvikmyndataka gerir fljótið ógnvekjandi, auk þess er spennan í
sögunni vel uppbygð. -HK
HÁSKÓLABÍÓ Síml 22140
Hálendlngurinn 3 - Seiökarlinn *l/2
Vandamálið með þriðja hlutann í sögunni um Hálendinginn eilífa
er það sama og var í númer 2, það er enginn flötur á framhaldi.
Það sem áður var frumlegt er leiðigjarnt en hugmyndarík
kvikmyndun lappar upp á.
Ekkjuhæð *l/2
Meinleysisleg gamanmynd um kjaftagang og svik í samfélagi
kátra ekkna í litlum bæ á írlandi. Góðar leikkonur en efniviðurinn
er þeim varla samboðinn.-GB
Kllppt og skorlö ***
Robert Altman segir okkur níu sögur úr borgarlífmu í Los Angeles
og bregður upp myndum af fólki sem velkist um í lífsins ólgusjó.
Meistarataktar. -GB
Skuggalendur ***
Heillandi og vel gerð kvikmynd urri ástir tveggja ólíkra manneskja
sem áttu það sameiginlegt að vera rithöfundar. Richard
Attenborough á rólegum nótum í þetta skiptið. Frábær Ieikur
Antonys Hopkins og Debru Winger.
-HK
Prlscllla ***
Leiftrandi skemmtileg mynd um þrjár drag-drottningar á
ævintýralegu ferðalagi yfir eyðimörkina á Ástralíu, fyndin og
hrífandi. -GB
Þrír lltlr: Rauöur * * *
Frábær endir á þríleik Kieslowskis
um fánalitina frönsku og einkunnarorð
byltingarinnar, frelsi, jafnrétti og bræðralag. -GB
Forrest Gump * * *
Einstaklega ljúf og mannleg kvikmynd sem lætur engan ósnortinn.
Undraverðar tæknibrellur og stórleikur Toms Hanks er það sem
hæst ber. -HK
LAUGARÁSBÍÓ Sími 32075
Corrina, Corrlna *l/2
Corrina, Corrina er gamanmynd sem höfðar meira til barna en
fullorðinna. Megingalli hennar er mattlaus samleikur Whoopi
Goldberg og Ray Liotta. Þá er stundum langt í gamanið og verður
myndin því langdregin.
Tlmecop **
Jean-CIaude van Damme fær mýmörg tækifæri til að sýna hæfni
sína í bardagalist í spennandi framtíðarmynd með söguþráð sem
er ekki fyrir heilbrigðan mann að fá botn í.- HK
Skógarlíf **i/2
Sannkölluð ævintýramynd, spennandi og skemmtileg, um árekstur
hins frumstæða og siðmenningarinnar, um ást, græðgi og margt
fleira. -GB
Gríman ***
Snilldarbrellur, sem samlagast skemmtilegum tilburðum hjá Jim
Carey, gera Grímuna nánast að leikinni teiknimynd. Góð
skemmtun fyrir alla. -HK
REGNBOGINN Sími 19000
Barcelona ***
Bandrískir frændur kynnast því í lok kalda stríðsins að þeir eru
ekki hátt skrifaðir hjá ungu fólki í Barcelona. Vel skrifuð,
skemmtileg og innihaldsrík kvikmynd.
Litbrigöl næturinnar *
Bruce Willis bregður sér í hlutverk sálfræðings sem eltist við
morðingja vinar síns í heldur langdreginni og spennulausri mynd
þar sem bert hold bjargar því sem bjargað verður. -GB
Reyfarl **i/2
Töff og smart Tarantino um undirheimalýó í Los Angeles, ískalt en
ekki nógu gott. -GB
STJÖRNUBÍÓ Sími 16500
Á koldum klaka **l/2
Nýjasta mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar um japanskan mann í
andlegum erindagjörðum til íslands veldur nokkrum vonbrigðum
en hún á þó góða spretti og kvikmyndatakan af íslandi um vetur
er gullfalleg. -GB
Frankenstein ***
Kenneth Branagh og leikarar hans fara á kostum í þessari nýju og
stórbrotnu útgáfu hinnar sígildu sögu um doktor Frankenstein og
tilraunir hans til að taka að sér hlutverk skaparans. -GB
Jafnvel kúrekastúlkur veröa einmana *
Heimsmeistari í puttaferðalögum, stúlka með óvenjulanga þumla,
lendir í slagtogi með lesbískum kúrekastúlkum í uppreisnarhug á
heilsubýli kynskiptings. Hljómar forvitnilega en er skelfing
leiðinlegt.- GB
■J'Uím.P s
DV
Jack Lemm-
on sem stríðs-
glæpamaður
Jack Lemmon leikur ekki
mikið nú orðið, lætur sér nægja
eina mynd á ári. Þessa dagana
er hann að leika í Getting away
with Murder. Leikur hann
vinalegan einstæðing. Einn ná-
granni hans, sem leikinn er af
Dan Aykroyd, telur þó að undir
yfirborðinu leynist stríðsglæpa-
maður nasista sem lengi hefur
verið leitað að. Harvey Miller
leikstýrir og aðrir leikarar eru
LOy Tomlin, Bonnie Hunt og
Brian Kerwin.
Reiður leik-
...BEAM US UPSC0T7Y!
stjóri
Nýju Star Trek myndinni Star Trek Generation var frumsýnd víöa um
Evrópu í síðustu viku og þegar upp var staðiö var hún vinsælasta
myndin í siöustu viku. Mynd þessi mun fljótlega veröa tekin til
sýningar hér á landi og þá í Háskólabíói. Á myndinni eru William
Shatner sem hefur leikiö Kirk kaptein í öllum myndunum og Patrick
Stewart, sem leikur í sjónvarpsþáttaseríunni Star Trek, Next
Generation, en í Star Trek Generation hittast þeir í fyrsta sinn.
Evrópulistinn er unninn upp úr aðsóknartölum í Þýskalandi,
Frakklandi, Ítalíu, Spáni, Bretlandseyjum og í Svlþjóö, en í þessum
löndum er um það bil 80% af bíóaðsókn í Evrópu.
l(-) Star Trek Generations 10
2 (1) Dlsclosure 7,6
3 (-) Gazon Maudit 4
4 (2) Stargate 3,5
5 (3) Elisa 3,4
Á síðasta ári var frumsýnd
svart/hvíta myndin Federal
Hill sem er frumraun leikstjór-
ans Michael Corrente. Myndin
fékk góðar viðtökur. Corrente
hélt því að hann væri að gera
góð kaup þegar hann seldi
myndbandsréttinn til Trimark
Picture. Hann fékk högg í andlit-
ið þegar Trimark tilkynnti að
myndin yrði lituð. Corrente varð
brjálaður og sagði að myndin
ætti aðeins að vera i svart/-
hvítu. TU málamiðlunar bauð
Trimark að gefa myndina út í lit
og svart/hvítu en Corrente hefur
ekki enn sæst á þetta.
Woody Allen
fær uppreisn
æru
í Bandaríkjunum
- helgina 10. til 12. febr. í millj. dollara -
1 (-) The Brady Bunch Movie 14,8
2 (-) Just Cause 10,8
3 (1) Billy Madison 6,1
4 (-) Heavyweights 6,0
5 (2) The Quick & the Dead 4,4
6 (3) Legends of the Fall 4,1
7 (4) Boys on the Side 3,8
8 (-) Forrest Gump 3,0
9 (-) Pulp Fiction 2,8
10 (6) Nobody's Fool 2,5
Eins og kunnugt er fær
nýjasta mynd Woody Allens,
Bullets over Broadway, sjö til-
nefningar til óskarsverðlauna.
Mynd frá AUen hefur ekki vakið
jafti mikla athygli síðan Hannah
and Her Sisters fyrir níu árum.
AUen hefur átt við erfiðleika að
stríða í einkalífmu og erfitt hef-
ur verið að fjármagna kvik-
myndir hans, má segja að hann
hafi nú komist aftur á þann staU
sem hann á skUið en Woody
AUen sjálfur er bæði tilnefndur
sem besti leikstjóri og fyrir besta
handrit.
Leikritahöf-
undur í
vanda
Þrír leikarar fá tUnefningu
fyrir leik sinn í Bullets over
Broadway, Chazz Palminteri,
Jennifer TUly og Dianne Wiest,
öU fyrir leik í aukahlutverki, en
Dianne Wiest fékk einmitt ósk-
arsverðlaun fyrir leik sinn í
Hannah and Her Sisters. Aðal-
leikari myndarinnar er John
Cusack. Leikur hann leikritahöf-
und sem fær stuðning mafíufor-
ingja tU að setja á svið eitt leik-
rita sinna með því skUyrði að
ástkona hans, sem er vonlaus
leikkona, fái stórt hlutverk.
Missterkir
flokkar
Það var fyrirfram vitað að tU-
nefningar tU óskarsverðlauna í
flokknum besti leikari í aðalhlut-
verki yrðu óvenjusterkur í ár og
þar verður keppnin hörð. Á móti
var vitað að lítið var um afrek
hjá leikkonum á síðasta ári og
eru margir á því að fyUt sé upp í
tilnefningar með meðaUeik
þekktra leikkvenna. Jessica
Lange þykir líklegust tU að
hljóta verðlaunin og sumir
ganga svo langt að segja að hún
sé í rauninni sú eina sem kemur
tU greina.