Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1995, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1995
51
í slendingar mæta
Japönum tvívegis
Islendingar mæta Japönum í
fyrsta leiknum af tveimur í Smáran-
um í Kópavoginum í kvöld klukkan
20. Síðari leikur þjóðanna verður á
skírdag á ísafiröi og verður þetta í
fyrsta skiptið sem opinber landsleik-
ur fer fram þar vestra. Það hljóta að
teljast tímamót fyrir Vestfirðinga að
fá í heimsókn handboltamenn í
fremstu röð og því líklegt aö þeir fjöl-
menni á leikinn í sínu glæsilega
íþróttahúsi.
Þorbergur Aðalsteinsson landsliðs-
þjálfari reynir hvað hann getur til
að tefla fram sterkasta liðinu en þó
er ljóst að Sigurður Sveinsson og
Héðinn Gilsson verða fjarri góðu
gamni vegna meiðsla. íslenska liðið
hefur æft af kappi síðan íslandsmót-
inu lauk en þegar leikimir við Jap-
ani verða að baki tekur liðið þátt í 4
landa móti í Danmörku.
Japanirtöldu
mikilvægt að koma hingað
Erfitt er að gera sér grein fyrir
hvar Japanir standa í undirbúningi
sínum fyrir heimsmeistarakeppnina.
Ekkert hefur frést af þeim en þeir
töldu samt mjög mikilvægt að koma
hingað og kynnast aðstæðum fyrir
heimsmeistarakeppnina. Eftir leik-
ina við íslendinga heldur japanska
liðið af landi nu til Evrópu þar sem
lokaundirbúningur liðsins fer fram.
ísland og Japan hafa nokkra hildi
háð á handboltavellinum og hafa ís-
lendingar oftast haft betur. Þjóðum
Asíu hefur hins vegar á síðustu árum
fariö mikið fram í íþróttinni og
skemmst er aö minnast framfara
nágranna þeirra frá S-Kóreu.
Bjarki Sigurðsson verður i eldlínunni með íslenska landsliðinu í handknattleik sem mætir Japönum í tveimur landsleikjum í kvöld og á morgun. Fyrri
leikurinn verður í Smáranum í kvöid en á morgun halda liðin til ísafjarðar og þetta verður í fyrsta skiptið sem opinber landsleikur í handbolta fer þar fram.
Kaffileikhúsið:
Hlæðu, Magdalena, hlæðu
Annan í páskum frumsýnir Kaffi- hans. þær og láta sig dreyma um liðna tíma stund, forna fegurð lífsins. Leikkon-
leikhúsið í Hlaðvarpanum tvíleikinn Tvíleikurinn Hlæðu, Magdalena, og fornar ástir. Kliður frá glaumi urnar Halla Margrét Jóhannesdóttir
Hlæðu, Magdalena, hlæöueftir Jökul hlæðu fiallar um tvær konur sem fortíðarinnar berst inn, þær skipta og Sigrún Sól Ólafsdóttir leika hlut-
Jakobsson. Verkið samdi JökuU árið muna mega fífil sinn fegri. Til að um ham, taka á sig nýjar myndir, verkin en leikstjóri er Ásdís Þór-
1975 og var það eitt af síðustu verkum breiða yfir tilgangsleysi lífsins sitja bresta í söng og upplifa, um skamma hallsdóttir.
Menningardagar á Sigló
Filapenslarnir ásamt þeim sem taka þátt í sýningunni.
Öm Þóiaiinsson, DV, njótuiru
Siglufiarðarkaupstaður gengst fyr-
ir menningardögum um páskahelg-
ina þar sem ýmislegt verður á dag-
skrá til afþreyingar og skemmtunar.
Hinir góðkunnu Fílapenslar (sem
eru álíka hópur og Spaugstofan var)
halda sínar árlegu skemmtanir þar
sem þeir troöa upp með söng ásamt
því að gera grín að þeim sem verið
hafa mest áberandi í bæjarlifinu
undanfarið ár. Fílapenslarnir frum-
sýna í bíóinu að kvöldi skírdags.
Bergþór Pálsson einsöngvari held-
ur einsöngstónleika við píanóundir-
leik Önnu Guðnýjar Guðmundsdótt-
ur í Tónlistarskólanum á annan í
páskum kl. 20.30. Á efnisskránni
verða íslensk einsöngslög, þýskur
ljóðasöngur og ítalskar óperuaríur. í
Ráðhúsinu verður málverkasýning
Örlygs Kristfinnssonar opin alla
daga frá kl. 14-18. Sýningunni lýkur
annan í páskum. Þá verða dansleikir
á Hótel Læk og Bíócafé. Meðal hljóm-
sveita sem skemmta eru Miðalda-
menn, Blackmail, Concrete og Plá-
hnetan. Þess má að lokum geta að
skíðasvæði Siglfirðinga verður opið
alla páskahelgina.
Páskaferðir Ferðafélags íslands
verða famar á Hveravelli, Haga-
vatn, Geysi og Kjöl. Þann 12. apríl
verður ekið áleiðs aö Hveravöll-
um og gist þar fyrstu nóttina. Síö-
an veröur gengið sem leið liggur
á milli sæluhúsa að Geysi. Sömu
daga verður Laugavegurinn
genginn á gönguskíðum og lagt
veröur af stað kl. 18 á miöviku-
dag. Á skírdag verður farið á
Snæfellsjökul og SnæfeJlsnes.
Gist verður að Lýsuhóli og í ferð-
inni veröur gengið á jökulinn.
Á skírdag stendur Ferðafélagið
einnig fyrir skíðagönguferð í
Landmannalaugar og Hrafn-
tinnusker. Lagt verður af stað kl.
9 um morguninn, ekið að Sigöldu
og gengiö þaðan á skíðum til
Landmannalauga. Gist verður í
sæluhúsi Ferðafélagsins í Laug-
um. Farið verður daglega í skíða-
gönguferðir, meðal annars í
Hrafhtinnusker.
Á skírdag verður einnig faríð á
vegum Ferðafélagsins í Mývatns-
sveit í skíða- og gönguferðir. Gist
verður á Hótel Reynihlíö og farið
i gönguskíðaferðir daglega. Á
laugardag verður farið á vegum
Ferðafélagsins i páskaferð í Þórs-
mörk en það er tilvalin fiölskyl-
duferð. Gist verður í Skagfiörðs-
skála og farið i gönguferðir um
Mörkina.
Tónleikar í
Víðistaða-
kirkju
Tónleikar verða haldnir í Víði-
staöakirkju á miðvikudag kl. 20.
Leikin verður tónlist af trúarleg-
um toga. Þórunn Guðmundsdótt-
ir, sópran, Kristinn Örn Kristins-
son, píanó, og Eydís Franzdóttir,
óbó, flytja tónlist eftir Ralph
Vaughan Williams, Samuel Bar-
ber, Jón Leifs og Johannes
Bralims.
Hveragerði:
Pastel- og
vatnslita-
myndir
Listamaðurinn Hans Christ-
iansen opnar málverkasýningu í
safnaðarheimili Hveragerðis-
kirkju á föstudag kl. 14. Á sýning-
unni verða aðallega pastel- og
vatnslitamyndir. Sýningunni
lýkur annan í páskum.
Skíðavika á
ísafirði
Skíðavika verður haldin á
ísafirði um páskana. Á daginn
unir fólk sér í brekkunum en á
kvöldín verða ýmsar kvöld-
skemmtanir. Á fimmtudag verö-
ur skíöacross og brettamót. Vél-
sleðamenn rúnta með börnin yfir
daginn. Einnig verður garpamót
í göngu og skotfimi á skíðum. Á
föstudag verða furöufatadagar
fyrir börnin og um kvöldið verð-
ur farið í gönguferðir á skíðum
með fararstjóra.
Á laugardag verður faríð i æv-
intýraferð til Suðureyrar á snjó-
bil. Einnigverðurfarinsafai-íferð
á skíðum, dorgkeppni í Miðdals-
vatni, Shellmót í vélsleðaakstri
svo eitthvað sé nefnt. Björgunar-
sveitin Emir í Bolungarvík
stendur fyrir ferð á Galtarvita.
Öll kvöld dymbilvikunnar veröa
pöbbakvöld nema fóstudaginn
langaog páskadag. Á föstudaginn
langa leikur hfiómsveit Páls Osk-
ars og Milljónamæringarnir i
Krúsinni og hljómsveitin Tweety
leikur í Sjallanum. Á páskadag
veröur dansleikur S Krúsinni og
PáU Öskar og MiIIjónamæring-
amir leika í Sjallanum. Einnig
verðui- dansleikur í Vikurbæ og
Finnabæ.