Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1995, Síða 2
16
FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 1995
•Ibönd
ISpeed
Aðdlhlutvcrk: Keanu Reeves, Sandra
Bullock, DennisHopperog JeffDaniels.
Sérsveitarmaöurinn Jack Traven er kallaður á
vettvang þegar glima þarf viö brjálæðing sem
komið hefur fyrir sprengju í lyftu í háhýsi. Jack
og félögum tekst að koma 1 veg fyrir meiri háttar
hryðjuverk en brjálæðingurinn sleppur. Stuttu
síðar er hann aftur á ferðinni og nú hefur hann
komiö fyrir i strætisvagni sprengju sem verður
virk ef vagninn fer niður fyrir 50 milna hraða.
Btjálæöingurinn vill glíma við Jack og gerir hon-
um kleift að komast í vagninn.
ZBIownaway
Aðalhlutverk: JeffBridgesogTommy Lee
Jones
Jeff Bridges leíkur sprengjusérfrasðinginn
Jimmy Dove sem stýrir sérsveit manna í Boston.
Þeir hafa það forgangsverkefni að aftengja
sprengjur sem hryðjuverkamenn og aðrir mis-
ruglaðir menn hafa komið fyrir í vafasomum til-
gangi. Einn góðan veðurdag verður ægileg
sprenging i borginni og þeim veröur Ijóst að
þama er á ferðinni einhver sem tekur öllum fram
í sprengjugerð. Engan í sveitinni grunar hvað
tilræðismanninum gengur til nema Jimmy sem
telur að hér sé kominn draugur úr fortíð sinni.
3Color of Night
Aöa Ihlutverk: BruceWillis og Jane March
Bruce Willis leikur sálfræöinginn Bill
Kapa sem stendur á tímamótum á ferli sínum.
Einn af sjúklingum hans hefur framið sjálfsmorð
og hann ákveður aö flytja frá New York til Los
Angeles. Fljótlega eflir komu hans þangað er vin-
ur hans og starfsbróðir myrtur á hrottalegan
hátt og Kapa leiðir getum að því að þar sé bijálað-
ur sjúklingur á ferð. Hann kynnist ungri konu
sem er afar kynþokkafull og hún hefur algjöra
stjórn á honum i algleymi fullnægju og kynlífs-
óra. Um leið færistBill nær lausn morðgátunnar.
4Clearand PresenlDanger
Aðalhlutverk: Harrison Ford, Wiilem
Dafoe og James Earl Jones
Þegar vinur Jacks Ryans, aðmírállinn James
Greer, verður alvarlega veikur er hann skipaður
einn af aðstoðarforstjórum bandarísku leyni-
þjónustunnar, CIA, Fyrsta verkefni hans er að
rannsaka morð á einum af nánustu vinum forset-
ans, stöndugum kaupsýslumanni með leynileg
sambönd við kólumbíska eiturlyfjahringi. Án
vitundar Ryans hefur CIA þegar sent stórhættu-
legan herforingja til að stjórna leynistríði gegn
eiturlyfjabarónunum.
The Flintstones
AðaJhlutverk: John Goodman, Rick Mor-
anls, Elizabeth Perkins. RosieO'Donnel
og ElizabethTaylor.
Fred þykist hafa himin höndum tekiö þegar
haim er skyndilega hækkaður í tign og gerður
að framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Það sem
hann veit ekki er að stöðuhækkunin er liður í
svindli og hugmyndin er að kenna Fred um
svindliö. En auðvitað eru ekki allir eins grunlaus-
ir og Fred og einn af þeim sem telja aö hér hljóti
að vera maökur f mysunni er hinn trausti vinur
hans, Bamey.
17. - 23. apríl ‘95
SÆTI FYRRI VIKUR" titiii j VIKfl fl LISTfl 111ILL j ÚTGEF. : TEG. i’
| l' 1 i 2 Speed Sam-myndb. J Spenna
2 CM J. J j Blown Away j . . j í Warner-myndir j Spenna J
J 8 i 2 Color of Night Skífan J Spenna i .!
4 J , r-.-y'.- f 3 j 5 » m I 1 J Clear and Present Danger ClC-myndir Spenna
5 1 6 i 2 Flintstones ClC-myndir j Gaman
6 J : j 2 i 4 h J i TheMask | Myndform j 1 Gaman J
7 i 7 j 5 jWhen a Man loves a Wo.J Sam-myndb. 1 Drama
8 i 10 j 4 J : : J . [jHwÍiniíSiffiHnÍÍI ) : { j Næturvörðurinn j . j IIMWBsaBMHMMMMMli i Háskólabíó ■JV fj y y ‘ J Spenna J ÖM9H
9 j 9 j 3 Baby's Day Out Sam-myndb. j Gaman
10 Éu|. 'sf.! Sil J - ’ J j Clean Slate j j ! I pSSSIIIIÍlSS^SS^IiiÍlllÉÍlg Sam-myndb. ÉM| J J Gaman mseat
11 5 U. 8 True Lies ClC-myndir Spenna
12 ;j j J fli f 3 i • j ||||g|g|pgg VvVyyy" V Major League 2 J Warner-myndir 1 j Gaman
§13 15 ) 7 City Slickers 2 Skífan J Gaman
B1 ný i i j j Good Man in Africa j ! Myndform J Gaman
15 J 14 j 9 Wolf Skífan J Spenna
1 fi | Ný j' 1 Night of The Running Man Skífan Spenna J
| 17 i 13 18 ! Four Weddings and... Háskólabíó j Gaman
18 Lk J, . J ) 11 1 15 ,J J Ace Vebtura Warner-myndir Gaman
19 Ai j 2 Þrír litir: Rauður Háskólabíó Drama
20 J" : J 16 9 j Getting Even With Dad Warner myndir J Gaman
íslenskir tví-
burar og Eliza-
beth Taylor
Þær hörmungar sem hafa dunið
yfir íbúa í Oklahoma City, þar sem
brjálæðingur sprengdi upp nokk-
urra hæða hús með þeim afleið-
inmgum aö talið er að hátt í þrjú
hundruð manns hafi farist, haifa
ekki látið neinn ósnortinn. Á þetta
er minnst vegna þess að tvær efstu
myndimar á vinsældalistanum
þessa vikuna, Speed og Blown
away, íjalla báðar um baráttu lög-
reglunnar við brjálaða sprengjus-
érfræðinga. En eins og oft hefur
sannast er sannleikurinn óhugn-
anlegri heldur en skáldskapurinn.
í myndunum er hægt aö koma í veg
fyrir ætlunarverk brjálaðinganna
en í Oklahoma var engin aðvörun
gefin.
í þriðja sæti er svo sálfræðitryll-
irinn Color of Night með Bruce
Willis í aðalhlutverk og í fimmta
sæti er gamanmyndin The Flint-
stones sem byggð er á einhverri
alvinsælustu teiknimyndaseríu
sem gerð hefur verið. Mynd þessi
hefur nokkra sérstöðu meðal okkar
íslendinga því að í hlutverki Bam-
Bam, sonar Bameys vinar Fred
Flintstones, eru íslenskir tvíburar,
Hlynur og Marinó Sigurðssynir.
Voru þeir valdir til að leika þetta
hlutverk úr hópi íjölda tvíbura sem
prufaðir voru. Tvíburarnir, sem
búa í Kalifomíu, komu heim til ís-.
lands þegar The Flintstones var
frumsýnd í Sam-bíóum í fyrra. Þá
hefur það vakið athygli aö Eliza-
beth Taylor leikur í myndinni en
þessi dáða kvikmyndastjarna hefur
ekki leikið í kvikmynd í mörg ár
og er vafasamt að hún leiki í fleyri
myndum því að hún hefur átt við
þrálát veikindi að stríða.
Aðeins tvær nýjar myndir koma
inn á listann. í fjórtánda sæti er A
Good Man in Africa. Í aðalhlut-
verkum eru Sean Connery, Colin
Bruce Willis er ekki feiminn við að sýna sig án fata i Color of Night sem
er í þriðja sæti vinsældalistans.
Friels, Johanna Whalley-Kilmer,
Louis Gosset jr. og John Lithgow.
Mynd þessi, sem leikstýrt er af
Bruce Beresford, olli nokkrum
vonbrigðum en fyrirfram var búist
við að hún gæti orðið góð. Laugar-
ásbíó sýndi hana fyrir stuttu. í
sextánda sæti kemur svo mynd
sem ekki var sýnd í kvikmynda-
húsum, Night of the Running Man,
spennumynd með Scott Glenn og
Andrew McCarthy í aöalhlutverk-
um.
Nú er að færast líf í myndbanda-
útgáfuna en fremur rólegt var í
útgáfumálum í kringum páskana.
Meðal eftirtektarverðra mynda
sem eru að hta dagsins ljós má
nefna La Vie Boheme, sem leikstýrt
er af Ari Kaurismaki, og meistara-
verk Peters Bogdanovic, The Last
Picture Show. Þá eru væntanlega
nokkrar myndir sem örugglega
eiga eftir að setja svip á vinsælda-
hstann. Má þar til dæmis nefna It
Could Happen to You, The Cowboy
Way og Corrina, Corrina.