Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1995, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1995, Side 11
FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 1995 25 -fjpwniNN-- u irw'i i' %... — [ ■ iJW|| tp « r " • { 11, \ 1 * - 9 ' v i í •* V P ' • *** - ?. Fjölskyldan fer i bíó í Bíódögum. Bíódagar í keppni barna- mynda í Cannes - hlaut aðalverðlaun á barnamyndahátíð í Laon Blódagar, kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, hefur verið val- in til þátttöku í keppninni um bestu barnamyndina á kvikmyndahátíð- inni í Cannes sem hefst í maí, en stutt er síðan önnur íslensk barna- mynd, Skýjahöllin, var valin í bamamyndakeppni á kvikmyndahá- tíðinni í Berlín. Undanfarið hefur Bíódagar verið sýnd á kvikmyndahátíðum í Evrópu og hefur verið gerður góður rómur að henni. Má nefna að hún fékk að- alverðlaunin á bamamyndahátíð- inni í Laon í Frakklandi og fylgir þessum verðlaunum 50.000 franka styrkur til dreifingar á myndinni í frönsk kvikmyndhús og verður hún markaðssett eftir að kvikmyndahá- tíðinni í Cannes lýkur. Þá hlaut Bíódagar nýverið áhorfendaverð- launin á evrópsku kvikmyndhátíð- inni Mamers en Mars í Frakklandi. Bíódagar er um þessar mundir sýnd í kvikmyndahúsum í tíu borgum í Þýskalandi og hefur hún fengið af- bragðs dóma hjá gagnrýnendum; er sögð allt frá því að vera látlaust meistaraverk til þess að vera nor- rænt svar við Radio Days Woddy Allens. Þá kallaði tímaritið Cinema Friðrik Þór hinn íslenska Fellini. í Journal Frankfurt segir gagnrýn- andinn meðal annars: „Friðriksson nær fram nýstárlegum blæbrigðum í mynd sinni. Hún hefur norrænt yfirbragð sem er okkur framandi en hrífur okkur jafnframt. Á þessum norðlægu slóðum er skapgerð fólks- ins hrein og bein. Samskipti eru einlæg, án fals og hégóma og dregin er upp mynd af lífi íbúa sem er jafh hrein og hrjúf og tært íslenskt fjallaloftið. Fögur og einlæg mynd.“ Nýverið var Bíódagar frumsýnd í Japan, en þar völdu kvikmynda- gagnrýnendur Börn náttúrunnar eina af tíu bestu myndum siðasta árs. Robert Altman hefur allan sinn feril átt sínar hæðir og lægðir og það er óhætt að segja að í síðustu tveimur myndum hans, The Player og Short Cut, reis kvikmyndasköpun hans einna hæst, en fall hans er einnig nokkurt í Pret-a-Porter, mynd sem margir bjuggust við að myndi jafnvel verða hans besta kvikmynd. En það er engin ástæða til að örvænta um Robert Altman þótt Pret-a-Porter valdi nokkrum vonbrigðum, hann á örugglega eftir að kæta kvikmyndaáhugamenn einhvern tímann aftur þótt það verði ekki á næstunni. í Pret-a-Porter tekur Robert Altman ekki með neinum silkihönskum á hinni hörðu veröld sem tískan í París er. Sjálfur hefur hann sagt að þegar hann sá tískusýningu fyrst í París þá hafi honum fundist sem hann væri í sirkus og var hann strax ákveðinn eftir þá reynslu að gera kvikmynd um tískuna. Það er greinilegt að það er ekki fatnaðurinn sjálfur, sniðin og hvernig tískan á að vera, sem fær Altman til að gera kvikmynd um tískuna, heldur hvernig kaupin á eyrinni ganga fyrir sig og þá ekki síður allur kjaftagangurinn og baktalið sem á sér stað. Og víst er að Altman hefur að nokkru leyti náð að sýna þessa gerviveröld í réttu ljósi. Gallinn er að hann nær ekki að tengja sögumar sem hann er að segja nógu vel saman og hefði að ósekju alveg mátt sleppa til að mynda þætti Juliu Roberts og Tim Robbins. Fyrir bragðið hefði myndin orðið mun heilsteyptari og ekki eins ruglingsleg. Best hefur heppnast umljöllun Altmans um tískukóngana og svo er kostuleg sagan af tískuritstjórunum þremur og samskiptum þeirra á milli og við ljósmyndarann sem allar vilja ráða í vinnu. Mest er dvalið við þátt Marcello Mastroianni, sem leikur ítalskan kaupanda tískuvara, sem býr í Rússlandi. Á meðan á tískuhátíðinni stendur er leitað að honum vegna hugsanlegs morðs á tískukóngi. Er virkilega góður húmor í þessari sögu en hún missir marks í öllum látunum og verður þreytandi, eins og raunar myndin er þegar á heildina er litið. Leikstjóri: Robert Altman. Lelkarar: Marcello Mastroianni, Sophla Loren, Tim Robbins, Stephen Rea, Julia Roberts, Anouk Aimee, Kim Basfnger og Tracey Uliman. Hilmar Karlsson Sam-bíóin: Shame einkaspæjari Andre Shame, söguhetjan í A Low Down Dirty Shame hefur verið rek- inn úr lögreglunni eftir mistök í starfi. Hann vinnur nú sem einka- spæjari og selur sig hæstbjóðanda. Ekki er hægt að segja að hann hafi of mikið að gera og því tekur hann oft umtalsverða áhættu fyrir lítinn pening. Hann hefur þó haft efni á að fá sér einkaritara, sem kölluð ér Peaches, og reynist hún honum vel þegar þarf á nýjum kúnnum að halda og einnig sem aðstoðarmaður og ekki veitir honum af aðstoð þeg- ar hann fær það verkefni í hendurn- ar að hafa uppi á tuttugu milljónum dollarar sem hafa horfið. Þetta eru eiturlyfjapeningar, sem margir vilja eigna sér, svo líf Shames er harla lítils virði í viðskiptum hans við glæpamenn af öllum gerðum. Keenen Ivory Wayans heitir leik- arinn sem leikur Andre Shame og leikur hann ekki aðeins aðalhlut- verkið heldur skrifar hann handrit- ið og leikstýrir myndinni. Auk hans leika stór hlutverk Charles S. Dutton, Jada Pinkett, Salli Richard- son og Andrew Divoff. Keenan Ivory Wayans er ekki þekktur hér á landi, en í Bandaríkj- Keenan Ivory Wayans leikur einkaspæjarann Andre Shame í A Low Down Dirty Shame. unum er hann mjög þekktur sem höfundur og stjarna margverðlaun- aðrar gamamyndaseríu í sjónvarp- inu sem heitir In Living Color. Hann hlaut þó eldskím sína í kvik- myndinni Hollywood Shufile, þar sem hann skrifaði handritið og lék á móti Robert Townsend. Áður en Hollywood Shuffle kom til hafði hann aðallega starfað sem skemfmti- kraftur á klúbbum og lék gestahlut- verk í mörgum sjónvarpsseríum. Stjörnubíó tekur til sýningar um helgina Odauðlega ást (Immortal Beloved). Myndin byggir á atviki í ævi Beethovens sem bæði sagnfræðingar og leikmenn hafa velt fyrir sér, en stuttu eftir lát tónskáldsins fannst ástarbréf frá honum til konu sem enginn vissi deili á. Á myndinni er Gary Oldman í hlutverki Beethovens og Isabella Rossellini, sem leik- ur Önnu Marie Erdödy. Regnboginn: Leiöin til Wellville í The Road to Wellville er sagt á gamansaman hátt frá lífi og starfi Dr. John Harvey Kellogg, sem var allt í senn skurðlæknir, uppfmningamaður, rithöfundur og talsmað- ur þess að lifa heilsusamlega. Var hann meðal annars einn sá fyrsti sem varaði fólk við tóbaksreykingum og áfengisneyslu. Ef einhverjir kannast við eftirnafns hans þá er það vegna þess að það hefur sést á komflögupökk- um, en hann fann kornflögumar upp. Keflogg setti á stofn heilsuhæli í byrjun aldarinnar og þar gerist myndin að mestöllu leyti og segir frá Kellogg og nokkmm sjúklingum hans, sem allir eiga við skrýtin vandamál að etja, en stofnun Kelloggs tekur meðal ann- ars á móti áfengissjúklingum og offitusjúklingum. Það er breski stórleikarinn Anthony Hopkins sem leikur Kellogg, en auk hans koma fram margir þekktir leikarar, má nefna Bridget Fonda, Matthew Broderick, John Cusack, Dana Carvey, Lara Flynn Boyle og John Neville. Leikstjóri myndarinnar er Alan Parker sem á að baki margar ágætar myndir. Ef það er eitthvað eitt sem ein- kennir Parker þá er það fjölbreytni. Hann hóf sinn feril með Bugsy Malone árið 1975 og vakti strax athygli. Næsta mynd hans var verölaunamyndin Midnight Ex- press og hlaut hann óskarstilnefningu fyrir leikstjóm. Margar myndir sem Alan Parker hefur leikstýrt hafa orðið vinsælar, má nefha Fame, Shoot the Moon, Angel Heart, Mississippi Buming og The Commitments. Hann hefur verið ráðinn til að leikstýra Evitu, en ekki er enn búið að fastráða leikara í aðalhlutverkin. Anthony Hokins leikur lækninn, uppfinningamanninn og frumherjann á sviði heilsusamlegs lífernis, John Har- vev Kellooo.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.