Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1995, Qupperneq 6
22
FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1995
Sýningar
Ásmundarsafn
Þar stendur yfir samsýning á verkum
Asmundar Sveinssonar (1893-1982)
og Jóhannesar Sveinssonar Kjarvals
(1885-19721 undir yfirskriftinni „Nátt-
úra/náttúra" þar sem sýnt er fram á
sérstaeð tengsl þeirra við íslenska nátt-
úru í verkum sínum. Sýningin stendur
til 14. maí og er opin daglega kl. 13-16.
Café Mílanó
Faxafeni 11
Garðar Jökulsson sýnir 15 oliu- og
vatnslitamyndir af islensku landslagi.
Sýningin stendur fram I miðjan maí og
er opin kl. 9-19 mánudaga, kl. 9-23.30
þriðjud., miðvikud. og fimmtud., kl. 9-1
föstud. og laugard. og kl. 9-23 sunnud.
Gallerí Art-Hún
Stangarhyl 7, Rvik
Þar stendur yfir sýning á verkum Erlu
Axelsdóttur, Helgu Ármannsdóttur, El-
ínborgar Guðmundsdóttur, Sigrúnar
Gunnarsdóttur og Margrétar Salome.
Galleriið er opið alla virka daga kl.
12-18.
Gallerí Fold
Laugavegi 118d
Þar stendur yfir sýning á olíumálverkum
Sossu, Margrétar Soffíu Björnsdóttur.
Þá stendur einnig yfir kynning á verkum
Grétu Þórsdóttur I kynningarhorni
Foldar. Sýning Sossu og kynning Grétu
stendur til 14. maí. Opið er alla daga
kl. 10-18 nema sunnudaga kl. 14-18.
Galleri Greip
Hverlisgötu 82
Á morgun kl. 17 opnar Sigríður Sigur-
jónsdóttir sýningu sem ber yfirskriftina
„Aörir kostir" og er sýning á húsgögn-
um. Sýningin stendur til 2T. maí og er
opin alla daga nema mánudaga kl.
14-18.
Gallerí Guðmundar
Ánanaustum 15, sími 21425
Galleríið er opið virka daga kl. 10-18.
Gallerí List
Skipholti 50b
Galleríið er opið alla daga kl. 11-18
nema laugardaga kl. 11-14. Sýningar
I gluggum á hverju kvöldi.
Galleri Regnbogans
Þar stendur yfir sýning á verkum
Tryggva Ólafssonar. Á sýningunni eru
málverk Tryggva auk frummynda af
myndskreytingum hans I Ijóðabók
Thors Vilhjálmssonar, Snöggfærðum
sýnum. Gallerí Regnbogans er ávallt
opið þegar kvikmyndasýningar standa
yfir.
Galleri Sólon Íslandus
„Margs er að minnast" er heiti á sýn-
ingu sem tileinkuð er minningu Stefáns
V. Jónssonarfrá Möðrudal sem lést 30.
júlí á sl. ári. Verkin eru til sýnis og sölu
næstu daga. Sýningin stendur til 11.
mal.
Gallerí Úmbra
Amtmannsstig 1, Rvík
Þar stendur yfir sýning bandarísku lista-
konunnar Marcia Widenor. Þar sýnir
hún það sem hún kallar pappírssam-
setningar eða Paper Quilts. Sýningin
stendur til 10. mai og er opin þriðju-
daga til laugardaga kl. 13-19, sunnu-
daga kl. 14-19.
Hafnarborg
Þar stendur yfir sýning á verkum norska
listamannsins Patricks Huse. Sýningin
ber yfirskriftina Norrænt landslag og á
henni veröa oliumyndir, myndir unnar
með blandaðri tækni og litaþrykk. Sýn-
ingin stendur til 8. mai og er opin frá
kl. 12-18 alla daga nema þriðjudaga.
Kjarvalsstaðir
Á Kjarvalsstöðum standa yfir þrjár sýn-
ingar. I vesturforsal er sýning sem ber
heitið I hlutarins eðli þar sem starfandi
arkitektum og hönnuðum er boðið að
sýna verk sln á hliðstæðum forsendum
og listamönnum I öðrum greinum sjón-
lista. I miðsal verður sýning á verkum
Magnúsar Tómassonar og í vestursal
sýningin Islensk abstraktlist - endur-
skoðun. Sýningarnar standa til 7. mai
og eru opnar kl. 10-18.
Listasafn Einars Jónssonar
Njarðargötu, simi 13797
Safniö er opið laugardaga og sunnu-
daga kl. 13.30-16. Höggmyndagarður-
inn er opinn alla daga. Inngangur er frá
Freyjugötu.
Listasafn íslands
A efri hæð Listasafns Islands stendur
yfir sýningin Náttúrustemningar Nlnu
Tryggvadóttur 1957-1967. Sýningin
stendur til 7. mal og er opin daglega
nema mánudaga kl. 12-18.
Listasafn Kópavogs
Leifur Breiöfjörð sýnir verk sln I Lista-
safni Kópavogs, Gerðarsafni. Leifur
hefur valið verk frá slðustu 15 árum og
nefnir hann sýninguna Yfirsýn. Sýning-
in stendur til 21. maí og er opin frá kl.
12-18 alla daga nema mánudaga.
Sýning Gunnellu í Listhúsinu er önnur einkasýning hennar.
Iisthúsið í Laugardal:
Fólk og form
„Þetta eru olíumyndir, myndir
sem eru flestar unnar á síöustu
tveimur árum. Þaö sem ég er með
núna eru mestmegnis myndir af fólki
en þarna eru líka tvær landslags-
myndir. Ég hef aðallega verið að fást
við formin," segir myndlistarkonan
Gunnella eða Guðrún Elín Ólafsdótt-
ir sem á morgun opnar einkasýningu
á verkum sínum í Listhúsinu í Laug-
ardal.
Á sýningu Gunnellu, sem lauk
námi frá Myndlista- og handíðaskóla
íslands 1986, eru um 30 myndir en
listamaðurinn hefur áður tekið þátt
í nokkrum samsýningum, m.a. á
Kjarvalsstöðum og Gallerí Borg.
Þetta er hins vegar önnur einkasýn-
ing hennar, sú fyrsta var í Hvera-
gerði fyrir meira en áratug.
Sýning Gunnellu stendur til 21. maí
en við opnun sýningarinnar á morg-
un leika gítarleikaramir Rúnar Þór-
isson og Hinrik Bjamason, öðm
nafni Duo De Mano.
Aðrir kostir
Sigríðar
Sigriður Sigurjónsdóttir opnar
sýningu í Gallerí Greip á morgun.
Þetta er fyrsta einkasýning lista-
mannsins en Sigríður lærði í Eng-
land. Verk hennar verða sýnd til 21.
maí en yfirskrift sýningarinnar er
„Aðrir kostir".
Margs að minnast
Á Gallerí Sólon íslandus var í gær
opnuð sýningin „Margs að minnast"
og er hún tileinkuð minningu Stefáns
V. Jónssonar frá Möðrudal. Á sýn-
ingunni, sem stendur til 11. maí, gef-
ur að líta nokkrar myndir eftir Stef-
án og eru þær jafnframt til sölu.
Sýning Þóru heitir Bollar og bagall.
Nytjahlutir
og skúlptúrar
Leirlistarkonan Þóra Sigurþórs-
dóttir opnar sýningu (Bollar og ba-
gall) í verslun Jens Guðjónssonar
guRsmiðs að Skólavörðustíg 26 á
morgun. Hún útskrifaðist úr leirlist-
ardeild Myndlista- og handíðaskóla
íslands 1990 og hefur undanfarin ár
rekið eigin vinnustofu að Álafossi í
MosfeUsbæ.
Þóra hefur haldið allmargar sýn-
ingar á verkum sínum á undanföm-
um ámm, bæði heima og erlendis.
Listakonan vinnur jafht nytjahluti
og skúlptúra úr leir og vísar nafnið
á sýningu hennar tíl þess.
Olíuverk
á pappír
Guöbjörg Lind Jónsdóttir opnar á morgun málverkasýningu á vinnustofu
sinni að Suðurlandsbraut 26. Á sýningu hennar eru oliumálverk og olíu-
verk unnin á pappír á siðastliðnum tveimur árum.
ísafjörður:
Við minnumst þeirra
Ljósmyndasýning „Viö minnumst
þeirra“ verður í Slunkaríki á ísafirði
6.-13. mai. Sýningin var sett upp á
kaffihúsinu Mokka í marsmánuði og
fór svo til Vopnafjarðar en er nú
komin tU ísafjarðar eins og fyrr segir.
Sýningin, sem er minning um þá
27 íslendinga sem látist hafa úr al-
næmi, er unnin í tengslum við sjóð-
inn „ísland gegn alnæmi".
Farandsýning í
Norræna húsinu
Sýning á graflkverkum eftir
sænsku Ustakonuna Hjördísi Jo-
hansson-Becker verður opnuð í and-
dyri Norræna hússins á morgun.
Yfirskrift hennar er „í biðsal" en
þetta er farandsýning sem áður hefur
verið sýnd í Svíþjóð og Finnlandi.
Listakonan hefur haldið margar
einkasýningar og tekið þátt í sam-
sýningum. Hún hefur áður komið tU
íslands en þetta er í fyrsta skipti sem
verk hennar eru sýnd hér.
Tvær sýningar á Akureyri
Tvær sýningar verða opnaöar í
Listasafninu á Akureyri á morgun
og eiga erlendir Ustamenn hlut að
þeim báðum. Bandarikjamaðurinn
Peter HaUey sýnir sjö siUdþrykk í
vestursal og í miðsal og austursal
sýnir norska veflistarkonan Else
Marie Jakobsen verk sín.
Sýningar
Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar
Laugarnestanga
Sýning á völdum andlitsmyndum eftir
Sigurjón Ólafsson, „Þessir kollóttu
steinar". Verðlaunamyndband með
sömu heiti einnig til sýnis. Fram til 1.
júní er safnið opið laugardaga og
sunnudaga kl. 14-17. Kaffistofan opin
á sama tíma. Tekið á móti hópum utan
opnunartímans.
Listasetriö Kirkjuhvoll
Merkigeröi 7, Akranesi
Páll á Húsafelli sýnir verk sín i Listasetr-
inu Kirkjuhvoli. Á sýningunni eru högg-
myndir, oliumálverk, vatnslitamyndirog
teikningar. Sýningin stendur til 7. maí
og er opin daglega frá kl. 16-18 og
um helgar kl. 15-18.
Listhúsið í Laugardal
Engjateigi 17, simi 680430
Þar stendur yfir myndlistarsýning á
verkum eftir Sjofn Har. Sýningin ber
yfirskriftina „Islensk náttúra, íslenskt
landslag". Sýningin er opin virka daga
kl. 13-18 og laugardaga kl. 11-16. Þá
opnar Guðrún E. Ólafsdóttir málverka-
sýningu á morgun kl. 15. Á sýningunni
eru um 30 olíumyndir, flestar unnar á
sl. tveimur árum. Sýningin stendur til
21. mai og er opin mánudaga til laugar-
daga kl. 13-18 og sunnudaga kl.
14-18.
Mokka kaffi
Skólavörðustig
Myndlistarsýning Steinunnar G. Helga-
dóttur „Eins konar kyrralíf" stendur yfir
á Mokka. Á sýningunni eru málverk,
myndbandsmálverk og innstillingar.
Sýningin stendur til 7. mai.
Messtofusafn
Neströð, Seltjarnarnesi
Safnið opið samkvæmt samkomulagi.
Upplýsingar í sima 611016.
Norræna húsið
Sigrún Eldjárn sýnir oliumálverk. Þetta
eru um það bil 30 verk, máluð á slð-
ustu þremur árum. Sýningin stendur til
14. maí og er opin daglega kl. 14-19.
I anddyri Norræna hússins verður opn-
uð á morgun kl. 15 sýning á grafíkverk-
um eftir sænsku listakonuna Hjördis
Johansson-Becker. Sýninguna kallar
hún I biðsal, I vántans rum. Sýningin
er opin alla daga kl. 9-19 nema sunnu-
daga kl. 12-19.
Nýlistasafnið
Vatnsstig 3b
Myndlistarsýning SteinunnarG. Helga-
dóttur „Eins konar kyrralíf" stendur yfir
í neðri sölum safnsins. Á sýningunni
eru málverk, myndbandsmálverk og
innstillingar. Sýningin stendur til 7. maí.
Póst- og símaminjasafnið
Austurgötu 11, Hafnarf., simi 54321
Opið sunnud. og þriðjud. kl. 15-18.
Safn Ásgríms Jónssonar
Bergstaðastræti 74
Sýning á vatnslitamyndum Asgrims
Jónssonar. Sýningin stendur til 7. maí
og er opin laugardaga og sunnudaga
frá kl. 13.30-16.
Snegla
Listhús við Klapparstíg
Þar stendur yfir sýning á handgerðum
leirvösum. Að sýningunni standa sex
af fimmtán listakonum Sneglu. Sýning-
in stendur til 13. mai og er opin mánu-
daga til föstudaga kl. 12-18 og laugar-
daga kl. 10-14.
Guðbjörg Lind Jónsdóttir
sýnir í vinnustofu sinni
Guðbjörg Lind Jónsdóttir opnar mál-
verkasýningu á vinnustofu sinni að
Suðurlandsbraut 26 á morgun kl. 14.
Á sýningunni eru oliumálverk og oliu-
verk unnin á pappír á sl. tveimur árum.
Opið kl. 14-16 virka daga nema mánu-
daga og frá kl. 14-18 um helgar. Sýn-
ingunni lýkur 21. maí.
Þóra Sigurþórsdóttirsýnir
hjá Jens
A morgun opnar Þóra Sigurþórsdóttir
leirlistarkona sýningu i verslun Jens
Guðjónssonar gullsmiðs að Skóla-
vörðustig 20, Reykjavík. Sýningin verð-
ur opin á verslunartima tii 28. mai.
Listasafn Akureyrar
Á morgun kl. 16 verða opnaðar tvær
sýningar í Listasafninu á Akureyri. Sýn-
ing norsku veflistakonunnar Else Marie
Jakobsen og sýning á 7 silkiþrykkjum
eftir bandaríkjamanninn Peter Halley.
Slunkaríki
isafirði
Ljósmyndasýningin „Við minnumst
þeirra" verður opnuð á morgun. Sýn-
ingin er minning um þá 27 islendinga
sem látist hafa úr alnæmi. Hún sam-
anstendur af 27 táknrænum myndum
eftir Sólrúnu Jónsdóttur Ijósmyndara.