Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.1995, Qupperneq 2
30
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ 1995
Ferðir
París svíkur ekki
Hér má sjá hina frægu kirkju, Notre Dame, sem stendur við ána Signu.
Frá götulifinu i Latínuhverfinu. DV-myndir Gísli Þór Guðmundsson.
Gísli Þór Guðmundsson, DV, fórís:
París er stórborg, litrík og fjöl-
skrúðug, þar sem erfitt er fyrir ferða-
langinn að láta sér leiðast. í íjögurra
daga helgarferð til Parísar neyðist
maður til þess að velja og hafna.
Borgin skiptist í 20 hverfi sem hvert
og eitt hefur upp á ýmislegt áhuga-
vert að bjóða. Fyrir þá sem lifa fyrir
kaffihús eða góðan mat og góð vín
er París gósenland. í fyrstu tilraun
fór ég á matsölustaði sem auglýstir
eru í ferðabæklingum og eru mið-
svæðis og varð fyrir vonbrigðum.
Daginn eftir labbaði ég hins vegar á
eftir Frakka inn á veitingastað í út-
hverfi borgarinnar og þá fyrst fóru
bragðlaukarnir af stað, enda ekki
hægt að fá betri meðmæli með þeim
stað en þau að heimamaður skuli
venja þangað komur sínar. Matsölu-
staðir og kaffihús eru hins vegar á
hverju götuhorni í París og oft spenn-
andi að láta kylfu ráða kasti hvar
maður lendir.
Dáðst að dauðum
Áhugamál fólks eru misjöfn.
Kirkjugarðar heilla mig og þess
vegna varð „Cimetierf du Pere Lac-
haise“ í 20. hverfi einn af áfangastöð-
um mínum. Heimsóknin í þennan
sögufræga garð olli mér ekki von-
brigðum. Þar uppgötvaði ég líka aö
fjöldi fólks deilir með mér þessu
áhugamáli. Sum leiðin voru þó
greinilega vinsælli en önnur. Þannig
laðaði Jim Morrison, fyrrum söngv-
ari Doors, aö sér hóp af síðhærðum
Ameríkönum sem létu aðdáun sína
óspart í ljós og litlu myndavélarnar
voru notaðar til þess að skapa heim-
ildir um nærveruna við goðið. Aðdá-
endahópur Edith Piaf var heldur
eldri og virðulegri.
Flottar byggingar
Frakkar hafa alltaf reist stór minn-
ismerki og skiptir ekki máli hvort
um kirkj ugarða eða hallir er aö ræða.
Eiffelturninn er án efa eitt frægasta
tákn borgarinnar og sennilega er
hvergi betra útsýni en þegar komið
er upp á efstu hæðir hans. Nýja
óperan í Bastilluhverfinu er sögð
vera minnisvarði Mitterands, fyrr-
verandi Frakklandsforseta, á sama
hátt og Pompidousafniö er minnis-
varði Pompidous forseta.
Fyrir þá sem hafa mikinn áhuga á
nútímabyggingarlist hggur leiðin til
La Défense sem er eitt af úthverfum
Parísar. Þar njóta róttækar hug-
myndir arkitekta samtímans sín og
hverfið er í stöðugri uppbyggingu.
Latínuhverfið er eitt af rótgrónari
hverfum borgarinnar. Þar er htríkt
mannlíf, mikið af litlum áhugaverð-
um galleríum og skemmtilegum
kaffihúsum. Café Mouffetard við 116
rue Mouffetard er eitt þeirra. Kaffi-
húsið lætur htið yfir sér en hefur
nýlega verið skráð á spjöld kvik-
myndasögunnar þar sem það kom
fyrir í mynd Kieslowski, Blue.
Skammt frá, á Place du Puits-de-
I’Ermite, gefst kostur á að skoða
stærstu mosku í Vestur-Evrópu sem
er mjög falleg bygging.
Bjórinn „dýrari"
en á íslandi
Næturlífið í París er fjölskrúðugt
og margt í boöi. Á mörkum 9. og 18.
hverfisins, í Pigalle, hefur kabarett í
Moulin Rouge alltaf aðdráttarafl fyr-
ir ferðamenn. Þótt hverfið sé þekkt
fyrir vændishús og klámsýningar
hefur þar myndast góður kjami
skemmtilegra næturklúbba og tón-
leikastaða. Verðlag á skemmtistöð-
um er meö tvennum hætti. Annars
Mikið er um markaði í Latinuhverf-
inu og víðar.
vegar borgar maður aðgangseyri og
veitingar eru þá seldar á hóflegu
verði. Hins vegar eru klúbbar þar
sem hleypt er inn frítt en þá getur
verð á veitingum veriö svimandi
hátt. Það sannreyndi ég á Sattelht’
Café sem er stúdentabar í 11. hverfi.
Þar eru oft á boðstólum framandi
tónlistaruppákomur. Það sem kom
hins vegar mest á óvart var þegar
barþjónninn rukkaði 800 krónur fyr-
ir einn bjór. Það getúr þvi borgað sig
að kanna verðlagið áður en pantað
er.
Stórborg eins.og París verður seint
fullkönnuð. Kosturinn við það er sá
að mann langar til þess að koma
þangað aftur og aftur og aftur...
LÆGSTA VERÐ
Á BÍLALEIGUBÍLUM
1 EVROPU! frá
Alicante 11.200
Bretland 13.020
Danmörk 18.900
Frakkland 20.160
Grikkland 15.960
Holland 18.900
Irland 01/07.30/0» 48.oookr 19.800
ísland 34.650
Ítalía 20.580
Kanaríeyjar 11.760
Kýpur 15.400
Jersey 8.750
Noreg 28.900
Portugal 11.060
Sviss 16.660
Þýskaland 15.260
Innifalið I verði er: JSlníÉilíIjfin kr/vika
kaskótrygging, lakkun (jálfsábyrgðar, ivy rr^rSA' ■ Sími:
trygging f. stuld og alla staðbundna skatta. 588 35 35
Hótel Áning og Golfklúbbur Sauðárkróks:
Golf og gisting í einum pakka
Hótel Aning á Sauðárkróki og
Golfklúbbur Sauðárkróks hafa gert
með sér samstarfssamning sem gild-
ir til ágústloka. Hann felst í því aö
bjóða kylfingum um aht land ferða-
pakka til Sauöárkróks undir heitinu
„Golf og gisting”, auk þess sem Hótel
Áning styrkir vikuleg innanfélags-
mót hjá golfklúbbnum í sumar.
í ferðapakkanum er boðið upp á
ódýra gistingu ásamt kvöldverði og
morgunverði og ótakmörkuðum að-
gangi að fallegum 9 holu golfvelh
Golfklúbbs Sauöárkróks að Hlíðar-
enda. Vöhurinn er spölkom frá hót-
elinu sem rekið er á sumrin í hús-
næði heimavistar Fjölbrautaskólans
á Sauðárkróki.
Vigfús Vigfússon, hótelstjóri Án-
ingar, og Björn Steinn Sveinsson,
formaður golfklúbbsins, undirrituðu
Frá Hliðarendavelli Golfklúbbs Sauðárkróks þar sem má sjá vitt og breitt
um fagran Skagafjöröinn. Hótel Áning er spölkorn frá vellinum.
samninginn. Þeir sögðu við DV að
markmiðið með samstarfinu væri að
stuðla að auknum ferðamanna-
straumi til Sauðárkróks, auk þess að
efla golfíþróttina og kynna glæsileg-
an golfvöll að Hlíðarenda.
Hótel Áning hefur undanfarin sjö
ár verið starfrækt í heimavist fjöl-
brautaskólans og í fyrra bætti hótehð
við sig gisti- og veitingaaðstöðu í
Varmahlíð. Hótel Áning á Sauðár-
króki býður gistingu í 71 herbergi,
þar af 66 með baði. Á hótelinu er
opin koníaksstofa viö arineld og
matargestum er boðið upp á lifandi
tóna og söng. í Varmahlíð eru 22
herbergi og svefnpokapláss. Starf-
semin á þessu ári fer einmitt af stað
nú um helgina. Hótehð verður með
„suðrænt steikarkvöld" þar sem
gestakokkur er Sigurður L. Hah.