Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1995, Síða 5
FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ1995
Dansstaðir
AmmaLu
Hljómsveitin Karma ieikur fyrir dansi
á föstudags- og laugardagskvöld.
Blúsbarinn
Lifandi tónlist á föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Café Amsíerdam
Hljómsveit leikur á föstudags- og laug-
ardagskvöld.
Café Royale
Hafnarfirði
Hljómsveitin Árstíðirnar leikur ,á
föstudags- og laugardagskvöld.
Danshúsið í Glæsibæ
Danssveitin, ásamt Evu Ásrúnu, leik-
ur á föstudag- og laugardagskvöld.
Duus-hús
v/Fischersund, s. 14446
Opið kl. 18-1 v.d., 18-3 föstud. og
laugard.
Hafnarkráin
Lifandi tónlist á hverju kvöldi.
Hótel Saga
Mímisbar: Stefán og Arna sjá um fjör-
ið á föstudags- og iaugardagskvöld.
Súlnasalur: Laugardagskvöld: Úrslita-
dansleikur Háskóla fslands.
Jazzbarinn
Lifandi tónlist um helgina
LA-Café
Laugavegi 45, s. 626120
Um helgina: Matur kl. 18-22.30 með
léttri tónlist, síðan diskótek til kl. 3.
Hátt aldurstakmark.
Leikhúskjallarinn
Dansleikur föstudags- og laugardags-
kvöld.
Naustkjallarinn
Sunnan tveir leika fyrir dansi á föstu-
dags- og laugardagskvöld.
Næturgalinn
Smiðjuvegi, Kópavogi
Garðar Karlsson ieikur á föstudags- og
laugardagskvöld.
Rauða Ijónið
Hljómsveitin „SÍN* leikurá föstudags-
og laugardagskvöld.
Skálafell
Mosfellsbæ
Hljómsveitin „66" leikur á föstudags-
og laugardagskvöld.
Tveir vinir
Bubbi og Rúnar, ásamt félögunum úr
GCD, leika á föstudagskvöld. Á laug-
ardagskvöld leikur Richard Scobie
ásamt félögum.
Ölkjallarinn
Lifandi tónlist um heigina.
Ölver
Glæsibæ
Karaoke um helgina. Opið alla virka
daga frá kl. 11.30 til 1 og til 3 á föstu-
dag.
Staðurinn
Keflavík
Hljómsveitin Hljóp á snærið leikur á
föstudags- og laugardagskvöld.
Kántrýbær
Skagaströnd
Hljómsveitin Kol leikur á laugardags-
kvöld.
Hótel Borgarnes
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar
skemmtir að kvöldi þjóðhátíðardags.
Hótel Mælifell
Sauðárkróki
Bubbi og Rúnar, ásamt félögunt í GCD,
leika á laugardagskvöld.
Hótel KEA
Akureyri
Bítlahljómsveitin Sixties leikur á
föstudagskvöld og á laugardagskvöld
leika þeir á Ráðhústorginu.
Sjallinn
Akureyri
SSSól leikur á föstudagskvöld.
Njálsbúð
Vestur-Landeyjum
SSSói leikur á laugardagskvöld.
Dansleikur á Súgandafirði
Hijómsveitin Galíleó verður með
stórdansleik á föstudagskvöld.
Sjallinn
ísafirði
Galíleó leikur á laugardagskvöld.
Höfðinn
Vestmannaeyjum
Sálin hans Jóns rníns leikur á föstu-
dagskvöld.
Hljómsveitin N-Trance hefur nýlokið tónleikaferðalagi um Evrópu.
Kolaportið:
Stórtónleikar
Stórtónleikar meö dans- og
technosveitinni N-Trance verða
haldnir í Kolaportinu í kvöld. Undan-
famar vikur hefur hljómsveitin verið
á tónleikaferðalagi um alla Evrópu til
þess að fylgja eftir vinsasldum lagsins
Set You Free. Auk þess var N-Trance
að ljúka við upptökur á hljómplötunni
Electronic Pleasure sem væntanleg er
í sumar.
Hinn þekkti jungle-isti Doc Scott
mun einnig koma fram á tónleikun-
um og leika listir sínar en hann er einn
af frumkvöðlum Jungle-stefnunnar í
Bretlandi. Húsið verður opnað kl. 20
með Party Zone Rave með Grétari,
Margeiri, Robba rapp og Magga Leó
en N-Trance byrjar að spila kl. 22.30.
Tónleikarnir verða kvikmyndaðir
sem hluti af mynd sem Heimsendir
A/R, í samvinnu við Kvikmyndafélag
Islands hf., er að gera og verður frum-
sýnd í desember nk.
Forsala aðgöngumiða er í Japis, X-
tra búðinni, Þrumunni, Smash og
Músík og myndum. Miðaverð er 2000
krónur en 1800 í forsölu.
Vestfirðir:
Galíleó og Rabbi
Hljómsveitin Galíleó verður með
stórdansleik á Súgandafirði í kvöld.
Þetta er í sjötta sinn sem hljómsveit-
in leikur á þessum árlega dansleik.
Gestur kvöldsins verður hinn kunni
hljómlistarmaður Rabbi. Það var afi
Rabba sem byrjaði á því að halda
þennan árlega dansleik um miðja öld-
ina en þetta var einmitt afmælisdag-
urinn hans.
Galíleó mun halda uppi miklu fjöri
eins og venja er á þessum degi en á
morgun, 17. júní, leikur hljómsveitin
í Sjallanum á ísafirði. Þess má geta
að lag frá hljómsveitinni, sem nefn-
ist Einn, kemur út á safnplötunni Is
með dýfu sem kémur út um næstu
mánaðamót.
Hljómsveitina Galfleó skipa Birgir
Jónsson, trommur, Sævar Sverris-
son, söngur, Þórður Guðmundsson,
bassi, Jón Elvar, gítar, og Jósep Sig-
urðsson, hijómborð.
Hljómsvertin Galíleó verður á Súgandafirði og ísafirði um helgina.
Páll Óskar og
Millj ónamæririgarnir
Söngvarinn Páll Óskar.
Páll Óskar og MiUjónamæringam-
ir ætla að skemmta gestum á Ömmu
Lú í kvöld. Hljómsveitin mun skjóta
upp kollinum á „Ömmunni" með
jöfnu bfllibili í sumar eða til mánaða-
móta júlí/ágúst. Annað kvöld ætla
þeir félagar síðan að leggja leið sína
upp í Hreðavatnsskála í Borgarfirði
en kunnugir segja að það sé afltaf mik-
ið fjör á Hreðavatnsböllunum.
Páll Óskar og Milljónamæringam-
ir eiga tvö lög á safnplötunni ís með
dýfu sem væntanleg er innan
skamms. Lögin eru Cuanto Le Gusta,
sem er mjög vinsælt þessa dagana, og
Skrímslið.
Reykjavíkurborg:
Tónleikar
17. júní
Hluti af hátíðahöldum Reykja-
víkurborgar í tilefni af þjóðhátíð-
ardeginum eru tónleikar sem
haldnir verða á Ingólfstorgi og í
Lækjargötu. Tónleikamir verða
sem hér segir:
Lækjargata
kl. 20.30, Botnleðja
kl. 21.00, Lipstikk
kl. 21.30, In Bloom
kl. 22.00, Sálin hans Jóns míns
kl. 23.00, Unun
kl. 24.00, Vinir vors og blóma
kl. 1.00, Tweety
kl. 2.00, Lok
Ingólfstorg
kl. 20.30, Stórsveitin Perlu-
bandið
kl. 21.30, Hljómsveitin Neistar
kl. 22.30, Stórsveitin Perlu-
bandið
kl. 23.00, Hljómsveit Hjördís-
ar Geirs
kl. 24.00, Aggi Slæ og Tamla-
sveitin
kl. 2.00, Lok
Sálin hans
Jóns míns
Sálin hans Jóns míns skemmt-
ir fram undir morgun á Höfðan-
um í Vestmannaeyjum í kvöld.
Annað kvöld byrjar hún að spila
í miðhæ Reykjavíkur um kl. 22 en
síðan brunar hún á Selfoss og tek-
ur þar upp þráðinn á stórdansleik
á Hótel SeÚossi. Sálarmenn ætla
að spila efni af nýju plötunni sem
væntaleg er í verslanir þann 26.
júní, í bland við eldri og þekktari
Sálarsmelli.
Sólbruni
SSSól
■ Hljómsveitin SSSól leikur í
Sjallanum á Akureyri í kvöld.
Hljómsveitin ætlar að leika bæði
gömul og ný lög og trylla allt og
alla sem leið eiga hjá. Hljómsveit-
in er í mjög góðum gír þessa dag-
ana og þess vegna mega norðan-
menn eiga von á góðu þegar sveit-
in mætir á svæðið. SSSól hefur
tekið upp tvö ný lög, annað í ró-
legri kantinum sem heitir Mér var
svo kalt og hitt lagið, Fullorðinn,
er SSSól-lag út í gegn.
Sixties á
Akureyri
Bítlahljómsveitin Sixties, sem
hefur hlotið fádæma viðtökur um
allt land, leggur leið sína til Akur-
eyrar um helgina. I kvöld leika
þeir félagar á Hótel KEA en ann-
að kvöld munu þeir skemmta á
Ráðhústorginu þar í bæ. Hljóm-
plata Sixties, Bítilæði, er uppseld
enn á ný hjá útgefanda og er næsta
sending væntanleg von bráðar.
Hljómsveitina skipa Rúnar Örn
Friðriksson, söngur, Þórarinn
Freysson, bassi, Guðmundur
Gunnlaugsson, trommur, og
Andrés Gunnlaugsson, gítar.
Hljómsveit
Geirmundar
Hljómsveit Geirmundar Val-
týssonar skemmtir á Hötel Borg-
amesi að kvöldi þjóðhátíðardags
17. júní. Eitt ár er síðan hljóm-
sveitin lék í Borgarnesi en hún
hefur leikið þar á þjóðhátíðar-
dansleikjum mörg undanfarin ár.
Sætaferðir verða úr uppsveitum
Borgarfjarðar, sumarbústaða-
svæðum og frá Akranesi. Hljóm-
sveitina skipa auk Geirmundar
þeir Eiríkur Hilmisson á gítar,
Kristján Baldvinsson, trommur,
og Steinar Gunnarsson sem leik-
ur á bassa.