Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1995, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 1995
25
Regnboginn - Dolores Claibome
Leyndarmál koma upp á yfirborðið
Hver man ekki eftir Kathy Bates í Misery. Sannfærandi leikur hennar í
hlutverki bijálaðs aðdáanda rithöfundar lyfti myndinni hátt yfir meðallag og
hlaut hún óskarsverðlaun fyrir. Það mætti halda að Stephen King hefði
hrifist svo af leik Bates að hann heíði hreinlega skrifað Dolores Claibome
með hana í huga, því að persónan er eins og sköpuð fyrir Bates og fer hún
með miklum glans í gegnum hlutverkið og er síst síðri en í Misery þótt fátt
sé líkt með þessum tveimur konum. Dolores Claibome á ekki að baki
hamingjusama ævi. I byrjun lítur út fyrir að hún sé reiðubúin að drepa
vinnuveitanda sinn, gamla konu sem hún hafði þjónað í tuttugu ár, en gamla
konan deyr áður. Lögregluforingi staðarins grunar Claiborne samt um morð.
Sá getur ekki gleymt því að fyrir fimmtán árum gat hann ekki sannað að
Dolores Claiborne hefði orðið manni sínum að bana. Hann er því ákveðinn í
að bæta fyrir mistökin. Til að auðvelda játningu Claibome sendir hann eftir
dóttur Dolores, en hún hafði horfið á braut þegar faðir hennar dó.
Það er ljóst strax að ævi Dolores hefur verið dramatísk og leyndarmálin sem
hún felur era mörg. En hún hefur byggt um sig harða skel, sem aðeins
dóttirin getur komist inn fyrir. Þetta veit lögreglumaðurinn og því etur hann
þeim saman. Leyndarmálin koma smátt og smátt upp á yfirborðið hvert af
öðra og eins og vænta má er ekki allt sem sýnist.
Stephen King er með eindæmum hugmyndaríkur rithöfundur. Það má segja
að í hinum löngu hryllingsdoðröntum sínum fari hann oftar en ekki fram úr
sjálfum sér. En þegar hann heldur sig við jörðina, eins og í Dolores
Claiborne, kemur frá honum góður skáldskapur með sterkum persónum,
skáldskapur, sem er eins og skapaður fyrir kvikmynd.
Það er ekki aðeins Kathy Bates sem skapar eftirminnilega persónu, Jennifer
Jason Leight, Christopher Plummer, David Strathairn og sérstaklega Judy
Parfitt ná miklu út úr sínum hlutverkum. Styrk leikstjóm Taylors Hackford
gerir síðan Dolores Claiborne að heilsteyptri og spennandi kvikmynd.
Leikstjóri: Taylor Hackford. Handrit: Tony Gilroy. Tónlist Danny
Elfman. Aðalieikarar: Kathy Bates, Jennifer Jason Leigh, Christopher
Plummer og David Strathairn.
- Hilmar Karlsson
kvi
Jón Leifs (Þröstur Leó Gunnarsson) ásamt dóttur sinni, Lrf (Bergþóru Aradóttur).
Tár úr steini frumsýnd 15. september:
Átakasaga Jón Leifs
Tár úr steini er ný kvikmynd eft-
ir Hilmar Oddsson sem frumsýnd
verður 15. september. í myndinni er
stiklað á dramatísku og átakamiklu
lífi Jón Leifs tónskálds í Þýskalandi
á fjórða áratugnum. Þetta er saga ís-
lensks tónskáld á framabraut og
ungrar konu af gyðingaættum í
landi sem óðfluga er að breytast í
helvíti á jörð. Jón Leifs stendur
frammi fyrir því að þurfa að velja
milli ástar sinnar á tónlist og ástar
á fjölskyldu sinni, val sem kostar
baráttu upp á líf og dauða.
Tár úr steini hefur verið sex ár í
smíðum og á þeim tima þróast úr
formi heimildarmyndar í leikna bíó-
mynd í fullri lengd. Myndin er tekin
á íslandi og Þýskalandi og er ís-
lensk/sænsk/þýsk ffamleiðsla.
Hilmar Oddsson er jafnframt
handritshöfundur ásamt Sveinbirni
I. Baldvinssyni og Hjálmari H.
Ragnarsyni sem jafnframt er tónlist-
arstjóri. Sigurður Sverrir Pálsson er
kvikmyndatökumaður að undan-
skildum útitökum, sem eru í hönd-
um Slawomir Idziak, sem verið hef-
ur kvikmyndatökumaður Krzystof
Kieslowskis. Tónlistin í myndinni
er flutt af Sinfóníuhljómsveit ís-
lands og er hún væntanleg á geisla-
plötu.
Það er Þröstur Leó Gunnarsson
sem leikur Jón Leifs, Rut Ólafsdótt-
ir, sem er hálííslensk leikkona, bú-
sett í Los Angeles, leikur Annie
Riethof, eiginkonu Jóns, Bergþóra
Aradóttir leikur Líf, yngri dóttur
þeirra hjóna, og Sigrún Lilliendahl
þá eldri, Snót. Þýski leikarinn Heinz
Bennent fer með hlutverk tengdafóð-
ur Jóns og Ingrid Andree tengda-
móðurina. Þá má nefna Jóhann Sig-
urðarson sem leikur Pál Isólfsson.
Tár úr steini er önnur kvikmynd
Hilmars Oddssonar í fullri lengd, sú
fyrri var Eins og skepna deyr sem
gerð var 1986. í millitíðinni hefur
hann gert fjölda sjónvarpsþátta og
sjónvarpsleikrita.
Háskólabíó, Sam-bíóin, Borgarbíó:
Congo
Háskólabíó, Sam-bíóin og Borgar-
bíó á Akureyri munu frumsýna á
morgun ævintýramyndina Congo.
Myndin er gerð eftir skáldsögu
Michaels Chrictons (Jurassic Park,
Rising Sun, Disclosure). Leikstjóri
er Frank Marshall. Handritið skrif-
ar John Patrick Shanley sem fékk á
sínum tíma óskarsverðlaun fyrir
handrit sitt að Moonstruck. Shanley
hefur áður starfað með Frank Mars-
hafl en hann skrifaði handritið að
hinni ágætu mynd Alive.
Frank Marshall hefur í gegftum
árin verið einn helsti samstarfsmað-
ur Stevens Spielbergs og var stofn-
andi Amblin Entertainment ásamt
Spielberg og Kathleen Kennedy sem
er annar ffamleiðandi Congo. Congo
er þriðja myndin sem hann leikstýr-
ir. Fyrst gerði hann ævintýramynd-
ina Arachnophobia og síðan hina
ágætu Alive sem segir frá afdrifum
fótboltaliðs sem lendi í flugslysi í
Suður-Ameríku. Marshall hefur kos-
ið að vera með engar stórstjömur í
Congo og er með nánast óþekkta
leikara, Dylan Walsh og Lauru
Linney, í aðalhlutverkum. Þekktir
leikarar, Ernie Hudson, Joe Don
Baker og Tim Curry, leika einnig í
myndinni.
Congo fjaflar um átta manna leið-
angur á vegum demantafyrirtækis
sem fer inn í myrkustu Afríku í leit
að demantanámu. í gegnum gervi-
hnött lætur leiðangurinn vita af því
í sjónvarpssendingu að fundist hafl
týnda borgin Zinj og þar sé stór fjár-
sjóður. í næstu útsendingu frá hópn-
um sjást aðeins limlest lík leiðang-
ursmanna og ógurleg hljóð heyrast
og á skjánum sést óljóst form ein-
hverrar skepnu. Það er því ljóst að
það þarf að senda annan leiðangur.
Leiðangursfólk i Congo ásamt einum innfæddum. Dylan Walsh, Laura Linney og Ernie Hudson í hlutverkum sinum.
Major Payne (Damon Wayans) reynir að gera hörkutól úr ungum drengjum.
Laugarásbíó:
Major Payne
Það verða heldur betur svipting-
ar í lífi hörkutólsins Major Bensons
Winifreds Paynes þegar hann tekur
að sér að þjálfa unga drengi sem
vilja kynnast hermennsku. Hann
hafði barist í írak, Panama og
Kúveit og verið heiðraður. En ekk-
ert verkefni á eftir að reynast hon-
um jafn erfltt og að þjálfa þessa
ungu stráka.
Major Payne er fjörug gaman-
mynd með Damon Wayans í aðal-
hlutverki og er hann einnig einn af
handritshöfundum myndarinnar.
Wayens er hæfileikaríkur leikari
sem fyrst vakti verulega athygli
þegar hann var með sjónvarpsþátt-
inn In Living Color. Meðfram því
lék hann nokkur smáhlutverk í
kvikmyndum en fékk stóra tæki-
færið þegar hann lék á móti Bruce
Willis í The Last Boy Scout, síðan
hefur hann leikið í Mo’ Money og
Blankman. Þá mátti heyra rödd
hans í Look Whoos Talking Too.
Leikstjóri Major Payne er Nick
Castle en áður en hann gerði Major
Payne leikstýrði hann Denna
dæmalausa. Eins og svo margir aðr-
ir byrjaði Castle feril sinn sem
handritshöfundur og skrifaði meðal
annars handritið af Hook og Escape
to New York. Aðrar kvikmyndir eft-
ir hann eru The Last Starfighter,
The Boy Who Could Fly og Tap.