Þjóðviljinn - 22.05.1937, Qupperneq 2
Laugardagurinn 22. maí 1937.
ÞJOÐVILJINN
»Bypgið hana, liúii ei* oí
björt, helyítið a’tana®
Rógsherferð mannanna, sem leitt hafa yfir alpýðuna atvinnu-
leysi, fátækt, ófrelsi — gegn ríki verkalýðsins — sem
hefir útrýmt atvinnuleysinu og skapað fólkinu frelsi og vel-
megun sósíalismans.
Morgunblaðið .herðir nú á
rógsherferðinni gegn Sovétríkj-
unumi. Dagiega birtast í því lyg-
ar um. ríki sósíalismans, ýmist
eftir »fyrirskipunum frá Kaup-
mannahöfn« eða heimatilbúnar.
Morgunblaðsmennirnir vita
hvað þeir fara. Þeir óttast að al-
þýðan fái að vita sannleikann
u,m Sovétríkin og beri hann sarrv
an við ástandið, sem þeir hafa
skapað hér heima. Þessvegna
reyna þeir að dylja árangra
sósíalismans með því að þyrla
upp rykskýjum lyginnar um þá.
Herrar Morguriblaðsins —
Thorsararnir, Magnús Sigurðs-
son, Eggert Claessen, Ölafur
Johnsen etc. hafa ráðið þessu
landi síðustu áratugina. Undir
þeirra yfir-ráðum .hefir togara-
flotinn minkað úr 47 skipum
niður í 37. Undir þeirra yfirráð-
um hefir atvinnuleysi aukist og
dýrtíð færst í vöxt. Fyrir þeirra
tilstilli er landið meir og meir of-
urselt erlendum auðhringum. Og
sakir þess skipulags, sem þeir
ber jast fyrir að viðhal,da,, hrynja
markaðirnir saman og öll lífsaf-
koma verður erfiðari — fyrir al-
þýðuna. — En sjálfir byggja
þessir herrar sér því fleiri
skrauthýsi, sem togurunum
fækkar meir. Sjálfir leggja þeir
því Jnjngri skatta á þjóðina (5
miljón króna verslunargróðann!)
þvi meir sem atvinnuleysið og
örbyrgðin eykst. Sjálfir leggja
þessir herrar auð sinn i versl-
unarokrið og óhófið, en láta
þjcðarauðinn, sem þeir fá lán-
aðan, tapast í framleiðslunni. Og
svo koma þeir og segjast al,t,af
vera að, bjarga landinu og fórna
sér fyrir þjóðina!
En á meðan þessir herrar
hafa reynt með nokkrum ár-
angri að kæfa atvinnujíf og lífs-
vonir Islendinga í helgreipum
banka- og hringavalds síns, —
þá hafa gerst undursamlegustu
hlutir veraldarsögunnar í þeim.
hluta heiirns, sem áður átti við
mest,a kúgun og harðstjórn að
búa.
Allar þjóðir hins fyrrum rúss-
neska keisaradæmis hafa undir
forustu Kommúnistaflokksins
risið frá einhverri verstu niður-
lægingu, sem veraldarsagan.
þekkir, — og til þess fullkomn-
asta skipulags frelsis og menn-
ingar, sem, mannkynið enn .hefir
skapað, — scsíalismans.
Þar sem áður ríkti hin arg-
asta launakúgun og atvinmdeysi
er olli liungurdauða í stórum
stil, — þar er nú atvinnuleysinu
gersamlega útrýmt, 6—7 tíma
vinnudagur er kominn á og Iaun-
in hækkað um 71,9% á síðustu
5 árum,
En á Islandi Thorsaranna
'lirópar íhaldið á launalækkun,
sem eina ráðið til að bjarga
landinu! —
Þar sem áður ríkti menning-
arleysi, svo að 85% þjóðarinnar
voru hvorki læs né skrifandi, —
þar er nú risin upp mesta bóka-
þjóð veralda-mnnar, þar sem. all-
ir kunna að lesa og skrifa. —
En á því fslandi, sem áður var
frœgt fyrir menningu sina,
hrakar alþýðumentuninni undir
fargi auðvaldsins.
Þar semi smáþjóðirnar áður
voru beittar hinni verstu þjóð-
erniskúgun og bannað að mæla
móðurmál sitt, ríkir nú íull-
komnasta frelsi hverrar þjóðar.
— En á Islandi færa erlendir
auðhringar sig meir og meir
upp á skaftið í skjóli .hinna
valdamiklu innlendu leppa
þeirra,
1 Sovétríkjunum horfir glöð
æska fram. á örugga framtíð.
Hver ungur maður eða kona fær
að afloknu ókeypis námi, sem.
stendur til 16, 18 eða 21 árs ald-
urs, stöðu, í framleiðslunni. —
En á Islandi auðvaldsins liggja
helfjötrar rotnandi skipulags á
framtíðarvonum æskumannsins,
sem er útilokaður frá atvinnu og
framhaldsmentun og verður að
lifa á framfæri foreldra sinna
eða sveitarinnar, þó starfslöng-
un hans og starfshœfileikar séu
hinir bestu.
Framhald á 3. síðu.
-fc 1 (Tajr eru liðin 20 ár, siðan
bolsévikkarnir rússnesku gáfu út &-
varp til sósíaldemókrata í öllum
löndum, um að mótmæla þvi að for-
ingi jafnaðarmanna í Austurríki
Friedrich Adler yrði tekinn af lífi.
■ff Nýlega voru þeir Del»Vayo og
Prieto staddir í París. Ræddu þeir
þar við frönsku stjórnina um afstöðu
hennar til Spána,rmála,nna.
Vf Frönsku verklýðsfélögin hafa
nýlega seift mikið af matvörum ti.l
Spánar, þar á meðal 200,000 dósir af
niðursoðinni mjólk.
Sendilierra Japnna i Shanghai
hefir farið þess á leit við kinversku
stjórnina, að Japan verði látið fá
miklar ívilnanir í ýmsum héröðum
landsins og að þeim verði fengið tii
fullra umráða héraðið Chonkiu.
Glöð og örugg horfir æskan í ríki verkalýðsins mót framfAðinni.
orúMf-Sjiáiiii í liæftai!
Dolores Ibarurri (Passionaria) eggjar alla andstæðinga
fasismaus lögeggjan til ad frelsa Bilbao
Erfiðleikamir á Norður-
Spáni hafa nú dregið. t.il sín at-
hygli allra andstæðinga fasism-
ans.'
Kommúnistaflokkur Spánar
hefir gert alt sem í hans valdi
stóð til að afstýra þeirri hættu,
sem þa-r vofir yfir.. Landbúnað-
arráðherrann, kom.múnistinn
Uribe er kominn til Bilbao fyrir
meira en mánuði síðan.
Og umhyggja flokksins fyrir
hinu nýja sjálfstjórnarlýðveldi
Baska, sem nefnist á basknesku
Euzkadi, verður ekki betur lýst
en með því að birta ávarp,, er
Passionaria (Dolores Ibarruri)
hin vinsæla kvenhetja spánska
verkalýðsins, flu.tti í nafni
flokksins.
Ávarp þetta var flutt fyrir
mánuði síðan,, seint í apríl. Það
sem síðan hefir gerst, sýnir ljós-
ast að ástæða var tál að óttast
um norðurvígstöðvarnar. En
þefcta hefir verið erfiður mánuð-
ur fyrir spönsku stjórnina. Enn
hefir ekki orðið af sókn Kata-
lóníumanna, sem átti að bjarga
Baskalandi (Euzkadi). Trotsk-
istarnir, flugumenn fasismans í
verklýðshreyfingunni, átrúnað-
argoð og heimildarmenn Morg-
unblaðsins og Alþýðublaðsins,
notuðu, tækifærið á þessari
hættustundu, til þess að vega
aftan að lýðveldishernum. Upp-
reisnin í Barcelona, framin af
trotskistum og anarkistum ein-
mitt þegar mest reið á að veita
Böskum lið„ sýndi öllum heimi
þeirra sanna innræti.
Fer hér á eftir ávarp Passion-
ariu:
• »Úr iðnaðarhéruðum Euzkadi
koma nú alvarlegar fréttir, óvin-
irnir reyna nú af öllum mætti
að ná Bilbao á sitt vald, stjórn-
arborginni ósigrandi sem að
varðist með mestri prýði umsátr-
inu á tímurn Carlistastyrjald-
anna. Bil.bao er í alvarlegri
hættu. Erlendar flugsveitir láta
nú stöðugt sprengjum rigna yf-
ir höfuðstað. Euzkadis, eyði-
leggja fagrar byggingar og
myrða konur og börn.
Varnarlið borgarinnar, námu-
mennirnir, er ritað hafa ógleym-
anlegustu síðurnar í baráttu-
sögii spánska öreigalýðsins,
verksmiðjufólkið, fiskimennirn-
ir, bændurnir, hafa sýnt tak-
markalausa hreysti og ,het,ju-
skap, en þ ó e iga þeir erfitt, með
að standast sóknina., því óvin-
irnir hafa nú dregið sitt besta
lið. til norðurvígstöðvanna, þar
eru fjölm.ennustu flugsveitirnar,
þar er nú saman komið mest af
drápstækjum þeim, er óvinirnir
hafa yfir að ráða.
Verkamennirnir á Norður-
Spáni vita, hverja þýðingu, Bil-
bao hefur. En við verðum einnig
að gera okkur það Ijóst. Við
verðum að gera okkur ljóst, hví-
lík alvara er þarna á, ferðum..
Eg vil ekki trúa því, að Bilbao
fallj, ég veit að Bilbao bætir enn
nýju blaði við hetjusögu, sína.
Hið hetjulega varnarlið Bilbao-
bcrgar mun læra af vörninni í
Madrid, skapa einhuga her, með
eldheita foringja í fararbroddi,
sem leggja alt í sölurnar fyrir
málstað fciksins, og pólitíska
ráðgefendur, þessa menn er
nefna má sál lýðveldishersins,
og munu, leiða þjóðina til sig-
urs. Eg er sannfærð um, að þeir
muni-í nú láta niður falla allar
innbyrðis andstæður, sem skilja
Baska frá öðrum þjóðum Spá.n-
ar„ og mynda einhuga her á öll-
urr, norður-vígstöðvumum, — her,
sem setti sér það takmark, að
frelsa Bilbao, vinna Oviedo og
kom,ast inn í Kastilíu. »
En Bilbao getur ekki varið sig
ein. Fyrst þegar sóknin hófst á
þessum vígstöðvum, þegar Och-
andiano féll, þá lamaði sókn
stjórnarhersins við Madrid
framrás uppreisnarmanna, og
gaíst, þá tóm, til að tryggja víg-
stöðvarnar. Að vísu er Bilbao
Jangt í bu,rtu„ en við getum samt
tekið þá,tt í vörn hennar, með
því að berjast á öllum vígstöðv-
um. Ég er þess viss, að alt muni
verða gert til þess að bjarga Bil-
bao. ... En enginn tími má fara
til ónýtis.
Þið, bræður í Madrid! Euzk-
adi mun alcirei gleyma hjálp
ykkar! Euzkadi hefir aldrei leg-
ið eins á hjálp ykkar!
Bræður á Suður-Spáni, við
Teruel, á öllum' vígstcövum! Ef
Bilbao fellur í hendur fasist-
anna og þar með ein þýðingar-
mestu iðnaðar- og námuhéruð
Spánar, þá, yrðu Astúríubúar
illa settir,, og aðstaðan á öllum,
vígstöðvum erfiðari. Það mundi
lengja styrjöjdina að verulegu
leyti.
Björgum Bilbao, og þá björg-
um við um leið Astúríul Björg-
um Madrid, og þá björgum við
um leið Spáni. Kjör íbúanna í
Bilbao hafa versnað mjög vegna
hins íglæpsamlega hafnbanns.
Við verðum að bæta úr þvi með
því að senda stjórninni matvæli,.
föt,, skófatnað læknisvörur, alt
það sem hún þarfnast, alt það
sem hið hrausta varnarlið vant-
ar. Hjálpum Eiuzkadi með því að
hefja sókn á öllum vígstöðvum!
Lá.tum herhvötina hljóma um
allan Spán. Övinurinn sækir
fram! Bilbao er í hættu! Hjálp-
um varnarliði hennar! Varðveit-
um Euzkadi fyrir spájiska lýð-
veldið!«