Þjóðviljinn - 28.12.1937, Side 2

Þjóðviljinn - 28.12.1937, Side 2
ÞJÖÐVILJINN Ingnnn Jónsdóttir: Minningar Þessa.r minningar Ingunnar frá Kornsá eru góð viðbót við Bókina mína, sem. kom> út fyrir nokkrum árum og hlaut vinsæld- ir allra þeirra, er vel rituðum þ'jóðlífslýsingum unn.a. Eins> og áður hjá þessum, höf- undir, er það hinn hlýi, kyrláti andi mæðra vorra, ,sem svífur yfir þessari bók, — m.anni verð- ur einkennilega notalegt í skapi, eins oig hin aldna kona sitji við hlið manns í skajmmdegisrökkr- inu og dragi dýrgripi reynslu sinnar upp úr djúpi liðinnar æfi. Bókin hefst á alllöngum for- mála eftir dóttur höfundarins, frú Guðrúnu A. Björnsdóttur, og bregður hún upp skemtilegum myndum. af æskuheimili sínu, svipuðum þeim, er við mörg könnumst við, sem alin erum upp á fátækum heimilum í sveit. Það eru þessar myndir af hinni undarlegu gáfu öreigan,s og barna hans, sem kann að gera sér heila hátíð úr lítilf jörlegustu aðstæðum, jafnvel einum súkku- laðimiða, — enn hugsum vér til slíkra st,unda með angurblíðum. söknuði, og þó — og þó .er ekk- ert fjær oss en að óska börnum vorum hins sama hlutskiftis. Að formálanum loknum hefj- ast svo minningar frú Ingunn- ar, .serni skiftast í þrjá aðalkafla: Móðurætt mín, Endurminningar úr Hornafirði og Á víð og dreif. En aftur á móti skiftist, síða.sti kafiinn \ allmarga stutta þætti: Gleymska,, Björn sýslumaður Blöndal, Þorsteinn í Kjörvogi, Þorbergur Björnsson, Foreldr- ar Guðmundar Magnússonar prófessors, Magnús »blessaði« og Konan við búrborðið. Eins og þetta yfirlit sýnir, er hér ekki um samfelda heild að ræða, heldur einungis brotasilf- ur, sem ekki er ráðrúm til að skýrgreina nánar. En, skemst er það af brotum þessum að seigjai, að þar glitrar margt, sér- kennilegra persóna, og atburða og fer saman margvíslegur fróð- leikur og látlaus lifandi frásögn, sem endurspeglar t.rúlega hin frumlægu, dulrænu blæbrigði þess lífs, er íslensk sveitaalþýða hefir átt við að búa á liðnum tímum, þar sem náttúrubernsk- an eir svo sna,r þáttur, að þjóð- sagain vefst inn í hversdagslega viðburði eins og eðlilegur og sjálfsagður hlutur. Líf.sskoðun höfundar er í flestu samgróin þessari liðnu tíð, og enda þótt margt kunni á milli að bera, á það ekki við að fara,' að deila við frú Ingunni, né aðrar slíkar kon- ur um núverandi raungildi þess- ara skoðana. — Það, sem oss ber að gera, er að þakka þeim í ást og virðingu þá ómetanlegu stoð, sem þær hafa veitt; menningu vorri með gáfu, sinni, elju og ást- ríki. Öyndi ungu konunnar í Grímstungu hefir vafalaust ver- ið allþung raun, en konur þær, er æðrulaust hafa sigrað slíkar raunir og þaðan af þyngri, hafa löngum verið unnendur. og verj- endur þeirrar lífsþrár, sem. svo oft hefir átt harla örðugt upp- dráttar hér norður á íslandi. Enda þótt, frú Ingunn hafi staðið í tengslum við yfirráða- stétt þessa lands, er hún alþýðu- kona í s,inni instu gerð, enda hef- ir menningarkjarni hinna bestu embættismanna út um sveitir landsins verið mjög af þeirri rót runninn alt fram á vpra daga. Hún lítur jafn vingjarnlega til beggja, Blöndals sýslumanns og Magnúsar »blessaða,«, og því verður öll frásögn hennar svona hugnæm, að æðasláttur hins stríðandi lýðs niðar þar á bak við. Minningar Ingunnar Jónsdótt- ur ber ekki að vega á mæli- kvarða hinnar ströngustu lisitar, en þær eru óbrotjnn, og væntan- lega óbrotgjarn steinn í þann varða, sem margt gott alþýðu- fólk hefir undanfarið verið að reisa á leiði hins liðna tíma. Kennarinn: Hvernig beygist sögn- in að valda,? Pilturinn: Valda, valdaði, hef vald- að. Kennarinn: önei, góði minn. Valda, ollaði, hef ollað; við þurfum að ta,ka okkur fram í mððurmálinu. • • Sfærðfi'íeðitíini. (Margir piltar voru veikir og nokkrir höfðu beðið um frí). Kennarinn (litur yfir bekkinn): Jú, helmingurinn er veikur. Um hm, og helmingurinn biður um frí, það er víst ekki nema þriðjungurinn, sem getur gengið upp! • • Dr. von Eicken heitir einn fræg- asti sérfræðingur í augna-, eyrna- og nef-sjúkdómum. Meir en helmingur- inn af öllum iæknisverkum hans sið- asta ár, var að taka, burt aukaliði & nefjum ungra Þjóðverja. • • öllum meðlimum nasistaflokksins þýska er bannað að vinna á nokkurn hátt að útbreiðslu Esperanto eða nema alheimsmálið. • • A: Þetta er alveg óþolandi hiti. B: Hve mörg stig er hann? A: 24 stig. B: Hvaða ósköp, ekki kalla ég það mikinn hita í svona, stóru herbergi, • • »Skiftir um hver á heldur«, sagði kerlingin, »í gær var bliðalogn, en í dag er versta veður«. • • Lord Halifax, sem nú er mikið tal- að um, hét áður Lord Irvin og var þá jarl Breta, á Indlandi. Þar áður hét hann Edwa.rd Wood og var um tíma landbúnaðarráðherra. ymsir enskir yfirstéttarmenn skift* álíka oft nöfnum og elstu togararnir hér heima. Jóhannes úr Kötlum. Aðalfundup Slysavarnafélags Islands. verðnr haldinn í Reykjavík laugardaginn 26. febrúar 1938. Dagskrá samkv. félagslögum. Fuudarstaður og fundartími auglýst- ur síðar. Stjórnin. Ramsay Mac »Hann var maður, sem unnið hafði landi sínu mikið og þakk- látt starf«, sagði enska blaðið »Daúy Maih, sean. þekt er að saxnúð ,sinni með fasismanum!, í forystugrein, er það flutti 9. nóv. síðastliðinn í tilefni af dauða Ramsay MacDonalds, sem tvisvar hafði verið forsætisráð- herra og einu sinni foringi Al- þ'jóðasambands jafnaðarmanna. Það er ekki unt að lýsa því bet- ur með öðru en þessu lofi hins fasistavinsamlega blaðs, hversu djúpt þessi maður var sokkinn. MacDonald var sonur vinnu- ma,nns í sveit. Hann hafði sér til ágætis myndarlegt útlit, leik- araróm og hégómagirnd sína. Hann héltí sig vera vel mentaðan, mann, en hafði þó ekki snefil af þekkingu á marxismanum. Þess vegna bjóst hann \ herferð til þess að útrýma marxismanum úr verklýðshreyfingunni. Fáum vikum fyrir dauða sinn hafði hann látið svo um mælt, að hann væri enn sósíalisti, og það , gaf einum skynugum blaða- manni auðvaldsins tilefni til þeirrar athugasemdar, að hann væri að minnsta kosti engu minni sósíalisti nú en í upphafi síns pólitíska ferils. I byrjun stríðsins mikla skildi Donaid. milli MacDonalds og annara for- ingja enska Verkamannaflokks- ins, þar sem honum, virtist það nauðsynlegt, vegna tvítungu- leiks þess, er hann lék, að tengja hina »föðurlandssinnuðu« starf- semi, er hann rak í kjördæmi sínu, við hinar friðarsinnuðu skoðanir öháða verkamanna- flokksins, ,sem um þær mundir var aðalbækistöð hinna borgara- legu friðarsinna. Þetta gerði borgarastéttinni mögulegt að hafa MacDonald að skotspæni allra árása sinna á hið stríðs- fjandsamlega hugarfar verka- lýðsins, og á þennan hátt jókst lýðhylli MacDonalds geysilega. Hann tók þátt í hinni »sósíal- demókratisku verkamannaráð- stefnu« '\ Leeds 1917, sem lýsti yfir fylgi sínu við febrúarbylt- inguna í Rússlandi. Aftur á móti gerðist hann harðvítugur and- stæðingur októberbyltingarinn- ar, hinnar sósíalistisku bylting- ar í Rússlandi. Hann hóf nú bar- áttu gegn kommúnismanum, sem. náði hámarki ,sínu 1920. Þessari baráttu átti hann það að þakka að hann var aftur tekinn upp í forystu Verkamanna- flokksins. Þegar fyrsta Verka,manna- ílokksstjórn Englands var mynduð eftir kosningarnar 1923, tók MacDonald við forsætisráð- herra; og utanríkisráðherra-em- bætti. Þegar samningarnir voru teknir upp við Sovétríkin, beitti hann sér gegn því, að England veitti Sovétríkjunum lán. Þegar samningum þessum hafði verið slitið, var það aðeins gremja meðlimafjöldans \ Verkamanna- flokknum, .sem komi því til leið- ar, að samningarnir voru aftur upp teknir og að hætt var við réttarfarsofsóknirnar gegn. kommúnistaforingjanum J. R. CampbeU. Hið hóflausa hatur MacDon- ald á marxismanum og bolsé- vismanum var orsökin að ósigri Verkamannaflokksins í kosning- unum 1924. Blaðið »Daily MaiU birti hið alræmda, falsbréf »rcmða bréfið« eða Sinovéffbréf- ið«, sem átti að hafa innhaldið fyrirmæli frá Moskva til enskra kommúnista. Flestir meðlimir Verkamannaflokksins viður- kendu, að hér væri um að ræða falsbréf frá einni af fölsunar- verksmiðjum Mið-Evrópu. En Mac-Donald sendi samt sem áð- ur harðort mótmælaskjal til Moskva, krafðist »skýringa« og viðurkendi þar með, að hann liti á falsbréfið sem góða heimild. 1 hinu mikla allsheirjarverk- fajli 1926 hafði MacDonald und- irbúið svik þau, sem framin voru og hann notaði óisigur þann, sem hin endurbótasinnaða forysta hafði valdið, til þess að hafa frokari áhrif á flokkinn í »end- urbótasinnaða« (reformistiska) átt. Mac Donald varð aftur for- sætisráðherra 1929, og nú tók hann að fjarlægjast flokk sinn æ meira, Þegar fjármálaauð- valdið tók að gera stjórninni erf- iðleika með vel skipulögðum, fjárflótta, framdi hann opinber svik við flokk sinn og lét fela sér að mynda »þjóðstjórn«, án þess að hafa áður borið það und- ir samflokksmenn sína. Aðeins tveir foringjar Verkamanna- flokksins — Thomas og Snowden — tóku þátt í þessum svikum á- samt MacDonald. Á þennan hátt stofnaði hann til nýs kosningaósigurs Verka- mannaflokksins og kom því til leiðar, að kosið var þing, þar sem sátu 500 afturhaldsfulltrúar, en aðeins 60 andstæðingar aftur- haldsins. En um hríð sýndist í- haldsmönnum, ráð a,ð nota Mac- Donald sem auglýsingaspjald fyrir sína afturhaldssömu, verk- lýðsf jandsamlegu pólitík. En þessi hégómagjarni, fáfróði og málugi maður, varð hinum nýju vinum. sínum til æ meiri byrði, og þeir létu hann því fara 1935 til þess að setja Baldwin í em- bætti hajis. Við kosningarnar 1935 tapaði hann þingsæti sínu við kosning- ar í fátækrahverfinu í Seaham, en komst þó á þing við aukakosn- inga,r í íhaldskjördæmi. Á þingi var hann algerlega áhrifalaus eftir þetta. Hinir gömlu vinir hans í Verka mannaflokknum hötuðu hann, og hinir nýju vinir han,s innan burgeisastéttarinnar áttu ekkert eftir annað en fyrirlitningu hon- um til handa. I augumi ijöldans var hann löngu hættur að vera annað en hlægileg »fígúra,«. Þýska fasistablaðið »Deutsche Allgemeine Zeitung« hældi hon- um fyrir það í, dánarminningu, að hann hefði sem sósíalisti ávalt- verið ,svarinn óvinur marxism- ans. Þetta lof úr munni, örgustu óvina verkalýðsstéttarinnar, fullkonar mynd þessa veiklynda, hégómagjarna manns, sem þjón- aði bresku drottinstefnunni og sveik verklýðsstéttina án þess að sýna iðrunarvott. Lenin hafði í upphafi séð í gegnum Mac Donald og kallað hann »meistara í áheyrilegri, klingjandi, innihajdslausri slag- orðafræði, sem virst gæti sósíal- istísk, en þjónar í rauninni í öll- um auðvaldslöndum því, hlut- verki að dylja pólitík burgeisa- stéttarinnar innan verklýðs- hrey,fingarinnar«.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.