Þjóðviljinn - 09.02.1939, Page 4
ap í\íy/a Tó'ió sg
Grænt IJös
Alvöruþrungin og athygl-
isverð amerísk stórmynd
Warner Bros samkvæmt
hinni heimsfrægu sögu
með sama nafni éftir Lloyd
C. Douglas.
Aðalhlutverkin leika:
Erroll Flynn,
Margaret Lindsay,
Anita Louise og
Sir Cedric Hardwicke
Or bopginni
Næturlæknir: Axel Blöndal,
Mánagötu 1, sími 3951.
Næturvörðiur ier í Ingólfs-pg
Laugavegs-apóteki.
Otvarpið í dag:
10.00 Veðurfregnír.
12.00 Hádegisútvarp.
15.00 Veðurfregnlr.
18.15 Dönskukennsla.
18;45 Enskukennsla.
19,10 Veðurfregnir.
19.20 Lesio dagskrá næstuviku
Hljómplötur: Létt’ lög.
19.40 Auglýsingar.
19.50 Fréttir.
20.15 Erindi: Brennisteinsnám á
íslandi, dr. Jón Vestdal efna-
fræðingur.
20.40 Einleikur á celló, Þórhall-
ur Árnason.
21.00 Frá útlöndum .
21.15 Otvarpshljómsveitin leikur
22,00 Fréttaágrip.
22.15 Dagskrárlok.
Skipafréttir: Gullfioss er á leið
til útlanda frá Vestmannaeyjum,
Goðaíoss tefr, í Hamborg, Brúar-
fbss ier á leið til Vestmannaeyja
frá Leith, Dettifoss fór frá ísa-
firði í jgær áleiðis til Akureyr-
ar, Lagarfoss var á Djúpavogi
í gær, Selfoss er á leið til lands-
ins frá Grimsby, Dr. Alexand-
rine er á leið til Kaupmanna-
hafnar frá Vestmannaeyjum.
Alfkonan í Selhamri verður
Jeikin í dag kl .5 síðdegis, í Iðnót
til ágóða fyrir starfsemi Vetr-
arhjálparinnar.
Jón E. Vestdal efnafræðingur
flytur lerindi í útvarpiðj í kvöld,
sem hann nefnir „Brennisteins-
nám á lslandi“.
Leikfélag Reykjavíkur sýnir
rússneska gamanleikinn, „Flétt-
uð reipi úr sandi“, í kvöld kl.
8 í Iðnó. Aðgöngumiðar seldir
eftir kl. 1 í dag.
Surprise fór í fyrradag með
afla sinn um 3000 körfur til
Englands.
Frá höfninni: Varðskipið Pór
kom frá Vestmannaeyjum í gær-
morrgun, Brimir kom með slas-
aðan mapn í gærmiorgun. í gsei)
kom hingað kolaskip með kol
til O. Johnaon & Kaaber.
Kariakór Vierkamanna. I. og
II. tenor æfing í kvöld kl. 8,30.
Áríðandi að allir mæti.
Árshátíð Æskulýðsfylkingar-
ínnar í Reykjavík verður næst-
komandi sunnudagskvöld í Odd-
fellow-húsinu. Verður þarmargt
til skemmtunar.
blÓÐVIUINN
pjófnaðir. Undanfarið hefur
borið allmikið á því að farið
væri inn í hús pg stolið þar
ýmsu, einkum smávegis. Hef-
ur lögreglan haft þessa þjófn-
aði til meðferðar og handsamað
5 pilta á fermringaraldri. Hafa.
piltar þessir verið valdir að
ýmsum þessarra þjófnaða, bæði
einir sér ogj í sameiningu.
þingeyingamóí verður haldið
að Hótel Borg á föstudaginn.
Verður mótið hið fjölbreyttasta
og skemmta menn sér viðræð-
ur, söng og dans.
Farþegar með Gullfossi í
fyrrakvöld til Leith og Kaup-
mannahafnar: Guðm. Vilhjálms-
son, framkv.stj. pg frú, Jóhann
Jósefsson alþ.m. og frú, Ingi-
björg Bjarnadóttir, Guðm. Pét-
ursson útgerðarm., Þórður Guð
johnson, Garðar Gíslason stór-
kaupm., Margrét Árnadóttir,
Magnea Hjálmarsdóttir, Eiríkur
Halldórsson, Haukur Thors fr,-
kv.stj., Birgir Kjaran, Margrét
Jónsd., Hólmfríður B. Björns-
dóttir, Guðm .Arnlaugsson, Ed-
vin A. Hansen, Jens Karrman,
Karin Andersen, Ragnar Blön-
dal kaupm., Sig. Sigurrðsson.
Aflasölur: Tryggvi gamli
seldi afla sinn: í fyrrradag, 1774
vættir fyrir 865 stpd.. 1 gær
seldi Gulltoppur í Hull 2197
vættir fyrir 825 stpd. Hannes
ráðherra seldi afla sinn í Grims-^
by fyrir 909 stpd.
Iðnaðarmannafélagið hefur.
sótt um leyfi til bæjarráðs til
þess að fá Miðbæjarskólann lán-
laðan í sumar undir iðnsýningu,
sem félagið ætlar að gangast
fyrir.
Fjðldaafíökur
á Spání
Framhald af 3 síðu.
settra spánskra liðsforingja, er,
verða að lúta erlendum, log
hrokafullum yfirboðurum. Fran-
qo sjálfur er orðinn mjög óvin-
sæll, vegna þess að hann á allt
sitt undir Pjóðverjum og Ítöl-
um og verður að hlýða þeim
til hvers sem ier“.
! Tíinii líður!
f*
Isvcsfía"
Frh. á 4. síðu.
pólitík sinni og þykir mikils
um vert að ná samvinnu annara
ríkja um varðveizlu friðarins.
Sovétstjórninni er ljós sú stað-
reynd að Ungverjaland hefur
undanfarið, öðrum ríkjumfrem-
ur, látið að vilja bandalags frið-
rofanna, allt frá því að viður-
kenna Mandsjúkúó, en það var
þvert bnot á sáttmála Þjóða-
bandalagsins. Undirgefni ung-
verskra stjórnmálamanna fyrir
leiðtogum Berlín-Róm-ássins
hefur keyrt úr hófi síðan Csaky
greifi varð utanríkismálaráð-
herra.
Afstaða Sovétríkjanna gagn-
vart þeirri staðreynd að Ung-
verjaland hefur misst sjálfstæði
sitt í íutanríkismálum, sýnir öll-
.um heimi hvert ungverska
stjórnin stefnir. Örlög Ungverjá
lands og Mandsjúkúós sýna
hvað bíður þeirra ríkja, er ger-
ast háð bandalagi friðnofanna.
Hjá slíkum örlögum er einungis
hægt að komast með því að
setja sanna þjóðarhagsmuni
hærra en vafasamastundargróða
von af sambandi við árásarrík-
in.
Gerið áætlanir fyrir vorið
um ræktun og rekstur,
f\unið að panta
fílbúna áburðínn
í tæka tið.
Sóslalísfafclag Rcyfejavífeuif
7. deild
(Grímsfaðah. og Skcrjafjörður)
heldur fund á fímmtudagínn. 9. febr,, hl. 8.30 e. hád.
í Hafnarstrætí 21.
DAGSKRÁ:
1. Félagsmál.
2. Þjóðviljasöfnunín
3. Upplestur.
Sfjórnín.
i
i
Gamia I3io %
Sjómannalif
Heimfræg amerísk kvik •
mynd, tekin af- Metno-
Goldwyn-Mayer samkv.
hinni góðu sjómanna-
sögu Rudyard Kipling,
og sem birst' hefur í ís-
lenzkri þýðingu Þorsteins
Gfsíasonar. Aðalhlutverk-
in eru frarnúrskarandi vel
leikin af hinum ágætuleik-
urum:
Spencer Tracy,
Freddie Bartholomew,
Lional Barrymiore.
Skemmfíklúbburínn „Kvöldsfjarnan
tt
DANSLEIKUR
í kvöld hl. 9.30 að Koyal. Aðgangur aðeíns^hr. 1.50
Góð músíh. Dansíð á Royal í hvöld.
Leikfél. Reykjagikar
„Fíéffud reípí
ilr sandí"
{’ gamanleikur í 3 þáttum eftir
VALENTIN KATAJEV
Sýning í kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir eftir kf.
1 í dag.
Reiðhjóla-
verkstæðftð
Laugavcg 64
tekur að sér viðgerðir á reið-
hjólum, mótorhjólum, bama-
vögnum og ýmsum fleiri mun-
um.
Vönduð
og ódýr vínna.
f\ikki f\ús
lendir í æfinlýrum.
Saga i myndum
fyrir bömin.
71.
Loðinbarði settist á konginn
og lumbraði duglega á honum.
Svertingjarnir taka saman ráð
sín.
Mikki biður Loðinbarða að
leysa sig, en nú koma svertingj-
arnir —
Púsundum saman ráðast þeir
á apana, og sjálfur Loðinbarði
fellur. —
liansKirk: Sjómenn
24
með sjálfri sér, að aldrei bar hún kala til'neins
nema sakir Jesú. En presturinn huggaðti hana.
— Ég veit vej, að þið eruð gott og rúað fólk-
Ég meina ekki neitt slæmt með því, sem ég segi.
En ef trúnni á að verða ágengt hér, þá er það
fyrst og fremst einn, sem getur verið verkfæri, og
það er Tómas. Það hef ég sagt við Lárus, og það
segi ég við ykkur, að þið skuluð ekki gera neitt
án hans ráða. Það getur hæglega orðið klofning-
ur og ósamlyndi, ef ekki er einn, sem stjórnar. Á
meðan þið hafið ekki trúaðan prest í sókninni,
skuluð þið skoða Tómas sem þjón Drottins og
bara reiða ykkur á hann. Sjáið, þetta getum við
frelsaðir gert, af því að við erum sem bræður og
systur og keppum ekki eftir að ráða hvert yfir
öðru.
— Já, sagði Tea andleg á svip og draup höfði.
Tómas er langhyggnastur af okkur, og hann hefur
Ölmu við hlið sér, og hún er líka dugleg og skyn-
söm kona.
Svona var Tea, hún gat vel séð dyggðir annara,
ekki að tala um, að hún spillti fyrir neinum. En
það var eitt sem hana langaði til að biðja prest-
inn um. Það var kannske allt of mikið og yrði
ekki hægt að koma því við, en það lá henni þungt
á hjarta. Mundi presturinn ekki vilja fala bara ör-
fá orð við Maríönnu. Og Tea sagði hreint út,
hvernig Maríanna var; Agætis manneskja. hjálp-
söm og góðhjörtuð, en heiðingi og guðlastari, og
það var hart að vita til þess, að hún tortímdist.
Og hún hélt aftur af Páli, svo að hann gat hvorki
í trúnni eða öðru átt hjartans samleið með sveit-
ungum sínum.
— J tú ú jr-sturinn. Það er fallegt af þér
Tea, að þú berð umhyggju fyrir vinum þínum. Og
ég hafði áður ákveðið að líta inn ti! Páls. Ég hef
þekkt hann frá barnæsku. Hann var skikkanlegur
náungi, en komst snemma að heiman og út á
hættulegar brautir. En við skulum tala saman,
Maríanna og ég.
Tea fylltist innilegri gleði. Nú mundi Maríanna
fá að finna, að það var nú til fólk, sem var gáf-
aðra en hún. Teu langaði til þess að spyrja, hvort
hún mætti ekki koma með, — en það náði víst
engri átt. Já, ef Marianna fengi hróflað við sjálfs-
traustinu. það væri unaðslegt. í sameiningu skyldu
þær syngja lof og prís, ef hún fyndi friðinn.
Presturinn kvaddi og fór. Það stóðu tár í augum
Teu, þegar garðshliðið lokaðist á eftir honum.
Þetta var nú prestur! Blátt áfram og vingjarnleg-
ur og með huggunarorð til þeirra sem með þurftu
En líka með strangar áminningar handa þeim sem
þess þurftu með. Og tvo bolla af kaffi hafði hann
drukkið og borðað kökurnar hennar með ærlegri
velþóknun. Æ, það mundi víst líða á löngu, áður
en hún lifði slíka gleðistund í annað sinn- Og allt í
einu stóð fátækt þeirra og volæði fyrir hugskots-
sjónum hennar eins og afturganga. Hún settist
niður kjökrandi.
— En Tea, Tea, sagði Jens undrandi.
— 0, við erum svo vesöl, grét hún. Hvar á
þetta að enda. Þú skalt fá að sjá, Jens, við endum
á sveitinni, og enginn vill líta við okkur framar.
Nei, ég hefði aldrei haldið, að það mundi sverfa
svona að okkur.
Jens beygði kantaða höfuðið sil t í meðvitund
um sekt sína, því að hans var sökin. Það var
ekkert gæfulegt við hann. Hann var lélegur verk-
maður, sem ekki gat séð fyrir fjölskyldu sinni.
Börnin sátu þögul og hnuggin. Nú sagði Níels litli
með sínum hæga og barnslega talanda;
— Vertu ekki að gráta, mamma. Við getum
talað við Jesú.
Tea leit upp með tárvott andlitið og heyrði aftur
raust forsjónarinnar og sannleikans af munni sak-
leysingjans. Já, þar var Jesús! Hvaða þýðing
hafði daglegt brauð og af ,oma í þessu stutta jarð-
lífi? Fram undna beið sælan á ströndum eilífðar-
innar.
í piparsveinsíbúð Antons var bara einn stóll
og rúm. Presturinn settist á harðan stólinn, Anton
tók sér sæti á rúmínu og sökk djúpt niður í mjúka
sængina. Honum var dálítið þungt fyrir hjartanu
og vissi ekki almennilega hvernig hann ætti að
byrja samræðurnar. En presturinn kvað upp úr
með það: