Þjóðviljinn - 17.02.1939, Side 3

Þjóðviljinn - 17.02.1939, Side 3
ÞJÓÐVILJINN Föstudaginn 17. febrúar 1939. Hvað atlar Skjaldborgln að ganga langt i ðheiðarlegnm mðlailntnlngl Skjaldbotrgín „vínnut" kosningu á ScyðisL mcd cáns aibv. nmn. En víd íalníngn fannsf cánn afkvæðascðáfil nmfiram föfiu þciirra cr afkv, grcíddu Svio djúpt er nú Alþýðublaðið sokkið, að það virðist ekki geta skýrt frá einföldustU atrið- um í starfi verklýðsfélaganna, án þess að krydda þær frásagnir með tilhæfulausum ósannindum. Nýtt dæmi um trú þessa blaðs á mátt lýginnar í útbreiðslu- starfi sínu fyrir Skjaldborgina er frétt þess um stjórnarkosning una í verkamannafélaginu „Fram“ á Seyðisfirði. í þeirri frétt er nálega ekkert iorð satt. Blaðið segir að á kjörskrá í „Fram“ hafi verið 200, að sex konur, sem séu löglegir með- limiiir í verkakvennafélaginú „Brynja“ hafi greitt atkvæðiog af þeim hafi 5 kosið með kom- múnistum. Öll þessi atriði, sem tekin eru upp eftir frétt Alþýðu- blaðsins eru ósönn. Og til þess að fólk geti áttað sig á því hverju Alþýðublaðið skrökvar í þetta skipíi, skal hér rétt og, hlutdrægnislaust skýrt frákosn- ingunni í „Fram“. Þegar stjcrnarkosningunni í »Fram« lauk voru á kjörskrá félagsins 227. Af þe m höfðu kos- ið 185. Sex af þeim konurn, sem ranglega voru sviftar atkva ðis- rétti í félaginu í haust, kærðu sig nú inn á kjörskrá og var kæra þeirra tekin til greina af meirihluta félagsst 'órnar, enda var sú ástæða er notuð var gegn rétti þeirra í haust fallin úr gildi, þar sem þær voru allar gengnar úr »Brynju«. Áður hafði verkamannafél. »Fram« samþykt, að þær konur sém fremur kysu að vera í »Fram en »Brynju« skyldu hafa leyfi til þess og njóta fullra félagsrétt- inda. Þá leyfir Alþýðublaðið sér að fullyrða. hvernig þessar kon- ur hafi kosið 1 leynilegri at- kvæðagreiðslu cg hlýtur sú full- yrðing blaðsins að vekja alveg sérstaka eftirtekt og jafnvel vekja upp þá spurningu, hvort blaðið sé með henni að gefa í skyn að Skjaldborgin á Seyðis- firði hafi framið einhver svik við leynd l osningarinnar. Um flokkslega afstöðu þessara kvenna er það að segja, að tvær eru meðlimir í Alþýðuflokksfé- lagi Seyðisfjarðar, ein er ó- flokksbundin og þrjár eru félag- ar í Sameiningarflokki alþýðu. En er það ekki ömurlegt fyrir Skjaldborgina að lýsa sjálf van- trausti á málstað sínum í verka- lýðsfélögunum með því að full- yrða að jafnvel meðlimir hennar greiði atkvæði gegn honum? En það sem Alþýðublaðið varast að nefna í frásögn sinni er að upp úr stjórnarkjörkassanum lom e nn atkvæðaseðill umfram tölu þeirra er atkvæði greiddu í fé- iaginu. 1 stað þess lætur blað:ð cér sæma að blekkja sjálft sig og skrökva því að lesendum sín- um, að Alþýðuflokkurinn (þ. e. ■ Skjaldborgin) hafi unnið kosn- inguna. Hér á við að segja aö l'tlu verður Vcggur feginn. Þar sem aðeins munaði einu atkvæði á listunum er augljcst að kosn- ingin var ólögmæt og engin kjör- stjórn gæti úrskurðað slíka kosningu gilda, enda hefir það ekki verið gert. Og þótt Alþýðu- blað:ð hafi fáar sigurfréttir að flytja Skjaldborg sinni um þess- ar mundir í sambandi við verka- lýðsfélögin, hefði blaðinu verið hollara að fresta gleði sinni yf- ir »s;gri«, sem byggist á, einu gerfiatkvæði sem óvíst er um hvernig hefur komizt framhjá kjörstjórn Skjaldborgarinnar niður í kjörkassann. Eins og sjá má af því, sem hér er sagt hefur Alþýðublaðið logið ekki aðeins helmingi held- ur öllu, sem það hefur sagt frá kosningunni í »Fram«. Sumt af ósannindum blaðsins eins og t. d. tala félagá á kjörskrá eru að vísu ekki mikilvæg eða saknæm, en þau sýna kanske bezt hve fýkn blaðsins, í að segja ósatt er sterk. Skýringin á því að Alþ.- blaðið minnist ekki á gerfiat- kvæðið er helzt sú að það sé þáttur í vonlítilli sjálfsvörn, þar sem áherslan er lögð á að dylja i lenvstu l'c'g vesaldóm og ósigur fylgiliðs þess á Seyðisfirði, þar sem hin flokkspólitíska rifrildis- og e;nokunars,tefna Skjaldborg- arinnar var vegin og léttvæg fundin af ótvíraðum meirihluta »Fram«félaga, er atkvæði greiddu. Með ósannindavaðli sínum um stjórnarkcsninguna í »Fram« hefur Alþýðiublaðinu tekizt vilj- andi e3a cviljandi að staðfesta það, sem flestir raunar vissu áður að »stjórn« Alþýðusam- * bandsins þykist hafa rétt til þess að grípa inn í sérmál verka- iýðsfélaganna og svifta, þau frelsi um innri mál sín.,Svo langt gengur þessi .pólitíska csvífni grgnvart verkalýðsfélcgum, að hún þykist hafa rétt 11 þess að ráða því hverjir skuli njóta rétt- ar í félögum sínum og hverjir ekki. Alþýðublaðið segir að það stríði á móti Fgum Alþýðusam- bandsins að fyrnefndar sex fé- lags'onur í »Fram« greiddu at- kvæði, þótt þær hefðu til þess skýlausan rétt samkvæmt fé- lagslögum, samþyktum, félags- fun a cg félagsstjórnar. Þessar konur, sc-m hé^ um ræðir hafa iengi veriö í »Fram« cg aldrei úr því gergið enda ekki í neinu cðru verka’ýðsfélagi. Það sama verour ekki sagt um þá Skiald- borgara, sem eru í mörgum sam- bandsf l'.'gum cg 1 afa oft greitt atkvæði í Ireim öllum. Annars er »stjórn« Alþýðusambandsdns velkomið að úrskurða hvað sem henni þóknast en hún getur ekki búist við því, að verkamenn á Seyðisfirði fremur en annars- staðar taki þá til greina fram- vegisi. En það er augljcsit af öllu framferði sambandsstjórnar, ao Skjaldborgin hefir týnt trú hins gamla og sanna Alþýðuflokks á heiðarlegan málflutning og lýð- ræðisleg vinnubrögð og örfar í stað hennar nýja trú á mátt ó- sanninda, blekkinga og valdbeit- ingar, þar sem hún enn. kemur l því við. Meðal Islendinga mun það því enga undrun vekja, þótt flest snúist á cgæfuhlið fyrir Skjald- borginni í verkalýðshreyfing- unni meðan hún beitir þeim vopnum sér til framdráttar, sem íslenzka þjóðin hefur fordæmt frá landnámstíð. En, hvað ætli stjórnendur Skjaldborgarinnar þurfi að sökkva djúpt í almer.ningsálit- inu 11 þesis að skilja það að póli- tisk vinnubrögð þeirra eiga ekki he:ma í félagsmálabaráttu ís- lensku þjóðarinanr? Arrd Ágústsson. Kosningar fasta- nefnda Alþingis Nýi -—= Blái borðinn éviðlaluanlega bmgf qóðnr Rcynið að baka úir tiomsm og þcif fiaf~ id aldrcí bragðad aðra cins kðkti — mm^m^mmmu^miímmmmmrm K fundum Sameinaðs þings og deilda í gær fóru fram kosningar í fastanefndir þings- ins. Sameínad þín$: F j ár ve i tin gan e fn d: Bernharð Stefánsson. Bjarni Bjarnason. Haraldur Guðmundsson. Helgi Jónasson. Jakob Möller. Jón Pálmason. Jónas Jónsson. Pétur Ottesen. Þorsteinn Þorsteinsson. U taairí kismálanefnd: Ásgeir Ásgeirsson. Bergur Jónsson. Bjarni Ásgeirsson. Garðar Þorsteinsson. Jóhann Jósefsson. Jónas Jónsson. Ólafur Thórs. Til vara í jiefndina: Bjarni Snæbjörnsson. Gísli Guðmundsson. Haraldur Guðmundsson. Magnús Jónsson. Páll Zóphóníasson. Pálmi Hannesson. Thór Thórs. AHsherjarmeind: Einar Árnason. Finnur Jónsson. Jörundur Brynjólfssoin. Magnús Jónsson. Páll Zóphóníasson. Thór Thórs Þorsteinn Briem. Efrí deilds Fjárhagsnefnd: Erlendur Þorsteinsson. Magnús Jónsson. Bernharð Stefánsson. Samgöngumálamefmd: Árni Jónsson. Páll Hermannsson. Páll Zóphóníasson.' Landbúnaðamefnd: Erlendur Þorsteinsson. Páll Zóphóníasson. Porsteinn Þorsteinsson. Sjávarútvegsnefnd: Ingvar Pálmason. Jóhann Jósefsson. Sigurjón Á. Ólafsson. Iðnaðarnefnd: Bjarni Snæbjörnsson. Erlendur Þorsteinsson. Páll Hermannsson. Menntamálanefnd: Árni Jónsson. Jónas Jónsson. Sigurjón Á. Ólafsson. AHsher jamefnd: Ingvar Pálmason. Magnús Gíslason. Sigurjón Á. Ólafsson. Neðtrí deild: Fjárhagsnefnd: Ásgeir Ásgeirsson. Ólafur Thórs. Stefán Stefánsson. Steingrímur Steinþórsson. Sveinbjörn Högnason. v Samgöngumálanefnd: Eiríkur Einarsson. Gísli Sveinsson. Helgi Jónasson. Vilmundur Jónsson. Porbergur Porleifssion (Gísli Guðmundsson). Landbúnaðamefnd: Bjarni Ásgeirsson. Emil Jónsson. Jón Pálmason. Pétur Ottesen. Steingrímur Steinþórsson. (Frh. á 4. síði Bamavcmd Framhald af 2. siðu. engan skilning eða þekkingu hafa á þörfum barna og mæðra. Það gefur að skilja, að til slíkra starfa þyrfti að vanda mjög mannval, og ætli því að gera útlæga alla pólitík frá vali í barnaverndarráð og nefndir. Barnaverndarráð ætli að vera skipað af einum lækni, einum uppeldisfræðing og einni hjúkr- unarkonu, öllum tilnefndum af stéttafélögum, í stað þess sem nú tíðkast, — einn prestur og einn kennari, kiosnir af stjórn málaftokkum. Ráðið ætti að istarfa í |nánu sambandi við heil- brigðissfjóm og hafa umsjón með öllum barnaverndarnefnd- um iog auk þess sjá um áður um töluð námskeið. Hvernig þeim yrði fyrirkom- ið, er ekki ástæða til að fjöl- yrða um, en benda má þó á það, að hér á landi er starfandi eitt ágætt félag er heitir Rauði kross íslands, -og hefur einmitt heilsuvernd á stefnuskrá sinni. Það hefur líka haldið uppináms skeiðum víða um land, bæði í hjálp í viðlögum, heimilishjúkr- un og ungbarnameðferð. Það er því alls ekkert óeðlilegt að láta sér dettlai í hug að heilbrigð isstjórnin gæti kiomizt' að samn- ingi við Rauða krossinn um þá fræðslu í þessum efnum, sem skólar ná ekki til. Ekkert er til jafn ósjálfbjarga og lítil börn. Þau eru algerlega ofurseld geðþótta hinna full- torðnu, fáfræði þeirra og mis- tökum, sem geta ráðið úrslitum, hvort þau verða að láns- eða ólánsmönnum. Ég veit, aðþetta eru viðkvæm tilfinningamál og móðurástin stundum viðkvæm- ari fyrir því að missa einræði sitt yfir barninu heldur en fyr- ir velferð þess. En einungis með því að byggja aðhlynning og uppeldi á þekking og reynslju bæði sín og annarra, sem bet- ur kunna að vita, sýna foreldr- ar börnunum sanna ást. Sókn Sósíalístafélagsíns í úíbreíðslu Þíóðviljans o 1 g$jág 11“ ■8 HHSa 1. 1 deild 2. deild 3. deild 4. deild 5. deild Staðan 16. febr. 5. deild . . . 37 3. — ... . 25 4. — ... . 23 1. — ... . 16 2. — ... . 11 7. — ... . 5 6. — ... . 2 Samtals 119 Aðeins tvær deildir létu til sín heyra í gær, 4. og 5. deild. Það má ekki minna vera. SÓSÍALISTAFÉL. RVIKUR. SKRIFSTOFA félagsíns er í Hafnarsiraefí 21 Sími 4824. Opin alla virka daga frá kl. 2—7 e. h. Félagsmenn eru áminntir um að koma á skrifstofuna og greiða gjöld sín. Þeir félagsmenn, sem ekki hafa fengið skírteini geta vitjað þeirra á skrifstofuna. STJÓRNIN. Hnsmæðrafræðsla KBON Fræðslufundir og kvikmynda- sýningar í Gamla Bió. Þriðjudaginn 21. febrúar, kl. 4 e. h.: 1. Ávarp. (Rannveig Þorsteinsdóttir.) 2. Erindi: Næringarefnin og fæðutegundirnar. (Dr. Jón E. Vestdal.) 3. Kvikmynd frá Finnlandi. Föstudaginn 24. febrúar, kl. 4 e. h.: 1- Ávarp. (Soffía Ingvarsdóttir.) 2. Erindi: íslenzkar fæðutegundir. (Steingrímur Steinþórsson.) 3. Kvikmynd frá Finnlandi. Mánudaginn 27. febrúar, kl. 4 e. h.: 1. Ávarp. (Katrín Pálsdóttir.) 2- Erindi: Næringarefnin og fæðutegundirnar. (Dr. Jón E. Vestdal.) 3. Kvikmynd frá Finnlandi. AÐGÖNGUMIÐAR fyrir félagskonur, konur félagsmanna og aðr- ar húsmæður, sem þær vilja bjóða með sér, fást ókeypis í öllum sölubúðum KRON í Reykjavík.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.