Þjóðviljinn - 18.05.1939, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 18.05.1939, Blaðsíða 1
Gerízt meðlímír í Sósialísía~ flokknum l IV. AKGANGUK FIMMTUDAGINN 18. MAI 1939 113. TÖLUBLAÐ Hvad heiur þú gert tll ad útbrelda Þjóðvíljann 9 Tílbod Hd|$aard & Schuíh var gagnrýnt mjög skarplega, en talíð óhjákvæmílegt að ganga að því með tíllítí tíl striðshættu Bæjarstjórnarfundur var haldinn í gær kl. 5. Aðal- málið, sem fyrir fundinum lá var hitaveitumálið. Ýms smærri mál voiru rædd í sambandi við fundargerð bæj arráðs. Bæjarstjórnin ræddi í gær í 3 klukkustundir um tilboð Höjgaard & Schultz í byggingu hitaveitunnar og visaði málinu samhljóða til 2. umræðu. Tilboðið var gagnrýnt all ítarlega bæði hvað fjárhagshlið þess og „tekniskar" fyrirætlanir snerti. Gallar tilboðsins spiltu eðlilega nokkuð þeirri miklu ánægju, sem er yfir því að loks liggur þó fyrir fast tilboð um hitaveituna. En sökum óttans við stríð, þótti allflestum ræðumönnum þó i;étt að taka þessu tilboði, en reyna að fá á því breytingar, ef hægt væri. Tillaga frá Jóni A. Péturssyni um að undanþiggja lóðarleigu gangstíg við Verkamannabústaðina frá Brá- vallagötu að baki húsanna við Hringbraut og annan gangstíg á milli Ásvallagötu og Hringbrautar, var felld með 8 atkv. gegn 5. Tillögu frá Einari Olgeirssyni um að atvinnubóta- vinnunni verði haldið áfram, unjz sæmilega batnaði um atvinnu, var vísað til bæjarráðs — að vanda. í mjólkursölunefnd átti að kjósa einn mann'í stað Jakobs Möllers, sem gékk úr, og var hann endurkos- mn. Trnclriit Jíiíi'i>nn!> i An<> x lio tn nnnkíchu -fo n ííq ó 1 Enskir lögregluþjónar hafa arabiska fanga á burt með sér. Palestina sjálfstætt rlkl fnnan 10 ára? Gyflinoar eioa aðeins að verða priðjnngnr pjóðarinnar Ef Brcídfylkíng" ín þorír? Breiðfylkingin lét það boð út ganga nýlega, að hinar marg umtöluðu útvarpsum- ræður um Jónasínu ættu að fara fram annað kvöld. Þor- steinn Briem var fenginn til að neita þessu kvöldi. Þá var lát- ið boð út ganga um, að um- ræðurnar ættu að fara fram þriðjudaginn 23. þ. m. Er þá búið að ákveða daginn fimm sinnum. Nú er röðin komin að Framsóknarflokknum og Skjaldborginni með að finna upp ráð til þess að aflýsa í fimmta sinn. Væntanlega tekst þeim það. En ef Breiðfylkingin þorir, fara umræðurnar fram á þriðjudaginn. Umræður um hífavcífumálíd Borgarstjóri, Pétur Halldórsson, sem mætti n ú á fundinum eftir all-íanga legu, hóf máls í hita- veitumálinu og rakti stuttlega sögu þess, einkum hvað umleitanir um Iánin snerti. Rakti hann síð- an það tilboð, sem fyrir bæjar- stjórninni lá frá Höjgaard & Schultz, og lagði eindregið til að því yrði tekið. Fyrir fundinum lá uppkast að frumvarpi til laga um Hitaveitu Reykjavíkur. — Samkvæmt því skyldi Reykjavíkurbær fá einka- rétt til að leiða heita vatnið um lögsagnarumdæmið og selja það. Einnig skyldi bærinn, samkvæmt því, geta skyldað menn til að kaupa heita vatnið, bannað að hús yrðu hituð öðruvísi. I þessu frum- varpi fælist og heimild til rílds- stjómarinnar um að ábyrgjast skuldbindingar þær, sem Reykja- víkurbær tæki á sig út af hitaveit- unni. — Þótti ýmsum ræðumönn- um hart að gengið að ætla að lög- bjóða mönnum viðskiptin við hita veituna, og það á þeirra kostnað, hvað breytingu miðstöðva og ofna snerti. Þá tók Sigurður Jónasson til máls. Kvað hann árlega greiðslu samkvæmt tilboðinu, að viðbætt- um reksturskostnaði, myndi verða um 1.700.000 krónur þau 8 ár, sem greiðslan á að fara fram. Gagn- rýndi hann tilboðið allskarplega og þóttu undirstöður, einnig hvað útreikninga snerti, t. d. um kola- verðið, óvarlegir. Þótti honum sérstaklega óvarlegt, að Höjgaard & Schultz gætu yfirtekið hitaveit- una, ef ekki væri staðið í skilum, án þess að nokkur ákvæði væru um það, hvernig bærinn gæti feng ið hana til baka. Kvað hann og þau 5% til danska ríkisins ættu að renna, væru okur, — „provisi- on”, sem danska ríkið ætti ekki að vera þekkt fyrir að taka af Is- landi og hættulegt fordæmi fyrir Island að ganga inn á. Svo sýndi Sigurður, að ekkert hefði verið rannsakað um Krísuvík. Öskaði hann eftir að nánari skýrsla væri útbúin, þar sem líka væri reiknað út hvað breytingar á miðstöðvum o. s. frv. myndu kosta menn. Haraldur Guðmundsson tók næstur til máls. Kvartaði hann, sem aðrir ræðumenn, yfir, hve lít- inn tíma og tækifæri bæjarfulltrú- ar hefðu haft til að athuga tilboð- ið, þar sem allmikið af plöggum barst þeim fyrst á fundinum. Kvaðst hann lítinn dóm geta á til- boðið lagt, en þótti sem Höjgaard & Schultz ynnu í raunir.ni mestallt verkið á bæjarins kostnað. Ársæll Sigurðsson tók því næst til máls fyrir hönd Sósíalista- flokksins. Kvað hann lánskjörin í heild mjög erfið, alveg sérstaklega það, að verða að greiða allt lánið upp á fyrstu 8 árunum. Hinsvegar væri allur dráttur, — svo sem nvj ar rannsóknir, sem helzt hefðu átt að vera gerðar, — mjög hættu legur vegna heimsástandsins. Til- boðið um framkvæmd verksins gæti vart kallazt tilboð, þar sem ekkert í því væri fast, Höjgaard & Schultz væru hvað verð snerti á verk.inu mjög lítt bundnir. Kvað hann nauðsynlegt að reyna að fá fast tilboð frá Höjgaard & Schultz EINKASKEYTI TIL ÞJÓÐVIUANS. KHÖFN I GÆRKV Brezka stjómin hefur lagt til að stofnað yrði sjálf- stætt ríki í Palestinu áður en tíu ár eru liðin, en þang- að til hafi Bretar meiri eða minni ihlutun um stjórn landsins. Bæði Gyðingar og Arabar skulu njóta sömu lýðréttinda í landinu. Tillögur þessar þýða allmiklar tilslakanir við kröf um Araba, þar sem gert er ráð fyrir, að innflutningur Gyðinga verði smámsaman takmarkaður, og loks bann- aður með öllu nema leyfi hinna arabisku íbúa komi til. Gyðíngar og Arabar óánægdír Er svo gert ráð fyrir í tillögum þessum, að Gyð- ingar megi aldrei verða meira en þriðjungur landsbúa. Tillögur þessar eru taldar geta orðið þess valdandi, að dragi úr óeirðum þeim er lengi hafa verið landlæg ar í Palestínu. Pó er alls ekki víst, að svo verði þar sem bæði Arabar og Gyðingar eru mjög óánægðir með tillögurnar, og telja gengið á rétt sinn til landsins með þeim. „Víndíctíve“ heím- sóhnín Brezka herskipið H. M. S. Vind- ictive kom í gærmorgun kl. 8.30 til Reykjavíkur. Skipið er um 9000 smálestir, 600 fet á lengd og 58 á breidd. Á- höfn skipsins er um 700 manns og er talsverður hluti þeirra sjóliðs- foringjaefni, þar sem skipið er not að sem skólaskip. — Það er ekki í opinberri heimsókn. „Vindictive” verður hér til mið- vikudags í næstu viku. Munu skip- verjar einhvern næstu daga keppa í knattspyrnu við reykvíska knatt spymumenn. 1 gær fór forsætisráðherra um borð. í dag er almenningi boðið að skoða skipið kl. 2—6.30. Verða bátar frá skipinu í förum milli lands og skips og leggja þeir að Geirsbryggju. Samningaoefnd- mgeröi nppkast að spmkomnlagi í stað þessarar áætlunar, sem hér lægi fyrir. Ef gengið væri að til- boðinu eins og það er, þá væri að- eins ein afsökun fyrir því, og það er, að ef til ófriðar kæmi, þá væri þetta svo mikilvægt fyrir þjóðina, að það eitt afsakaði að ganga að því óbreyttu. Borgarstjóri tók nú aftur til máls og kvaðst vona að bæjarfull trúar myndu líta ljósar á málið ef þeir hefðu getað athugað plöggin betur. Kvað hann erfitt að fá fast verðtilboð í vörurnar, sem þyrfti til hitaveitunnar, sökum verðsveifl anna, sem hugsanlegar væru eins og tímarnir eru. Kvað hann um að velja, að taka þessu boði og fá hitaveituna, — eða fresta því og eiga á. hættu að stríð skylli á okk- ur hitaveitulausa. Hvað erfiðleik ana um greiðsluna snerti, benti hann sérstaklega á, að auk vaxta og afborgana, þá væri reksturs- kostnaður hitaveitunnar tlltölu- lega lítill, eða um 225 þús. kr. (stjóm, viðhald, rafmagn, olía o. fl.). Lánsmöguleika í Svíþjóð kvað hann rannsakaða til þrautar, svo Frarahald á 4. síðu. í símamálinn í gærdag. I gær sat á rökstólum þriggja- manna nefnd frá símalagningar- mönnum, er fjallaði um samninga fyrir þeirra hönd, og starfaði hún í fullu umboði félagsins. 1 nefnd- inni voru Kristinn Eyjólfsson for- maður Félags símalagningar- manna, Gústaf Sigurbjarnarson, varaformaður félagsins og Héðinn Valdimarsson, formaður Dags- brúnar. Fyrir hönd Landssímastjóra mætti verkfræðingur símans, Gunnlaugur Briem, og Edvard Árnason, en þeir höfðu ekki um- boð til þess að ganga frá samning um. Þessir aðilar höfðu í gær komið sér saman um uppkast að samn- ingi og kemur nú til kasta Hlíð- dals póst- og símamálastjóra að samþykkja það eða hafna. Þar á eftir þarf staðfestingu atvinnu- ’j málaráðherra, og er þess naumast " að vænta að á henni standi. Skosmidnrmf hcldu að sama rcftlæfi1 Ekki verður annað sagt, en að , samninganefndin hafi unnið fljótt æffi að gan$a yfnr þa o$ hctldsalana Rikisstjórnin lagfærir ,mísskilning, Fulltrúar skósmiðanna hér í bænuni fóru nýlega á fund yf- irvaldanna og óslcuðu eftir að; mega hækka nokkuð taxta sína, því eins og kunnugt er hefur efni til skóviðgerða stigið. Yf- irvöídin kváðu við því þvert nei. Skósmiðum fanst þetta und- arlegt og bentu á að heildsöl- um hefði þó verið leyft að hækka vöruna til skósmiðanna um 10—20°/n. Það fannst líka yfirvöldunum afar eðlilegt ©g réttlátt. Skósmiðirnir hafa auðsjáan- lega gengið út frá gömfu regl unni: „Hvað höfðingjarnir haf- ast að, hinir ætla sér leyfist það“. — En þetta stafer af al- gerum misskilningi hjá skó- smiðunum: Gengislækkunijn og verðhækkunln var sem sé gerð fyrir höfðingjana, en á kostnað verkalýðs og millistétta. Pess- Framh. á 4. síðu. og vel í þessu máli, og er það póst og símamálastjóra hin mesta skömm, ef hann lætur málið lengi bíða afgreiðslu hjá sér. tltvarpsstjórar Norðurlanda á ráðstefnu í Kaupmannahöfn. Talið frá vinstri: Olav Midttun, Noregi, Jónas Þorberg'sson, fslandi, F. E. Jansen, Danmörkn, Vakio, Finnlandi, og Dymling, Svíþjóð.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.