Þjóðviljinn - 24.05.1939, Blaðsíða 1
Horræni æshuiiDt að
bauuapvatni í suuiar
Norrænt æskulýðsmót verð-
ur, eins >og áður hefur verið
frá skýrt, haldið að Laugar-
vatni dagana 27. júní til 4. júlí.
Mót þetta er haldið að tilhlutun
hinnar svo kölluðu Viggby-
holmsnefndar í Svíþjóð. Sams-
konar mót hafa áður verið hald-
*in í öllum hinum Norðurlöndun
um iog) í Eistlandi. Tilgangurinn
með mótum þessum er að æsku
Berklayfirlæknir
fer í skoðunar-
f erð' nm Anstf irði
Sigurður Sigurðsson berklayfir-
læknir fer í næstu viku í berkla-
skoðunarför til Austurlands, og
býst hann við að verða einar þrjár
vikur í förinni. Fer hann fvrst til
Hornafjarðar, en heldur þaðan
norður eftir. Skoðunin verður
framkvæmd í samráði við héraðs-
læknirinn á hverjum stað, og hafa
þeir fólkið til, sem skoða á. Sig- 1
urður hefur meðferðis Röntgen-
tæki. Ríkisstjórnin hefur leigt
björgunarskútuna „Sæbjörg” til
að flytja Sigurð milli fjarðanna.
fólk Norðurlandanna kynnistog
fái af eigin sjón og reynd að
kynnast atvinnulífi, félagsmál-
um og menningu Norðurlanda-
þjóðanna allra. Á mótinu verða
allmárgir fyrirlestrarfluttir, um
ræðufundir og skemmtisam-
koma,. auk þess verða faruar
ferðir að Gullfossi, Geysi, til
Þingvalla og fleiri staða. Fyrir-
lestra munu flytja, Hermann
Jónasson forsætisráðherra, Sig-
urður Nordal prófessor, Stef-
án Jóh. Stefánsson ráðherra,
Jónas Jónsson alþingismaður,
Thór Thors alþingismaður, dr.
Einar Ól. Sveinsson, Árni Ey-
lands ráðunautur og Ólafuf
Björnsson hagfræðingur. Aukl
þess munu nokkrir erlendir
fræðimenn og stjórnmálamenn
flytja þar fyrirlestra og hefja
umræður um ýms merk mál.
Um 30 ungra manna frá Dan-
mörku, Finnlandi, Noregi og
Svíþjóð hafa þegar sótt um
þátttöku í mótinu. Eru það að-
allega stúdentar, ungir kennar-
ar og lýðskólafólk, karlar og
konur. Þeir íslendingar, sem
óska að taka þátt í mótinu
sendi umsóknir sínar fyrir 10.
júní til ritara móttökunefndar-
innar, Guðlaugs Rósinkranz yf
irkennara, Ásvallagötu 58 og
gefur hann nánari upplýsingar
um mótið.
Alvarleg ófriðarblika í Danzig. « Nazist-
ar frá Þýzkalandi streyma til borgarinnar
EINKASKEYTI TIL ÞJÓÐVILJANS. KHÖFN I GÆRKV ;
Ráðsfundur Þjóðabandalagsins var settur í gæír;,
og er Maiski, fulltrúi Sovétríkjanna forseti fimda'þins.
Fulltrúi Kína, Wellington Koo, lagði til að ráðið
samþykkti fjárhagshjálp til Kína, meðlimir Pjóðabanda
lagsins neituðu að kaupa japanskar vörur og hættu að
selja Japönum vopn.
Fulltrúi Sovétríkjanna, Maiski, studdi tillögur Kín-
verja og skoraði á Biíéta að láta nú sjást hvað Cham- ‘
berlain hefði meint með yfirlýsingu sinni um stuðning
við ríki er yrðu fyrir árásum.
Halifax lávarður og Bonnet, utanríkismálaráðh.
Frakka, tóku þvert fyrir að Bretland og Frakkland
tækju þátt i nokkrum róttækum ráðstöfunum gegn
Japan. 1
Ástandið í Danzig verður í- tollstöð við landamærin hafði þær
skyggilegra með degi hverjum. Á- afleiðingar að einn Danzig-borgari
rás nazista frá Danzig á pólska var drepinn, og hafa orðið um
málið ákafar deilur milli senats-
~“^~~~~~~~~ ins í Danzig og pólsku stjórnar-
Alþýðusambandið grfpur til ðrprifaráða
til pess að hindr? úrsðgn Bjarma á Stokkseyri
Öskar Sæmundsson auglýsir að Alþýðusambands
meðiimum sé óheimilt að vinna með mönnum, sem
eru í félögum utan Alþýðusambandsins.
Samkvæmt því ætti meðlimum Alþýðusambands-
ins að vera óheimilt að vinna með Dagsbrúnarmönn-
um, Hlífarmönnum, öllum verkamönnum og verkakon-
um á Siglufirði o. fl.
Svo fávís er stjórn Alþþýðusambandsins ekki að
detta í hug að reyna að framkvæma slíkt bann.
Ciano utanrítósráðherra Itala og Ribbentrop, utanríkisráðh. Þjóð-
verja. — Með sáttmála Italíu og Þýzkalands lofar MussoUni Hitler
hjálp til árásar á Pólland.
Þjöðaratkvæði um
stjórnarskrá Dana
Verkamannafélagið Bjarmi á
Stokkseyri ákvað á fundi 1. maí
að láta fara fram allsherjarat-
kvæðagreiðslu um það hvort fé-
lagið ætti að segja sig úr Alþýðu-
sambandi Islands. Á kjörskrá fé-
lagsins voru taldir 117 menn og
tóku 83 þeirra þátt í atkvæða-
greiðslunni, sena fram fór síðast-
liðinn sunnudag. Af þeim sögðu
41 já við tillögu um að segja sig
úr Alþýðusambandinu en 41 nei,
en eitt atkvæði var úrskurðað ó-
gilt.
Af þessari atkvæðagreiðslu eru
þessi tíðindi annars merkust.
Á föstudag komu þeir Ingimar
Jónsson og Öskar Sæmundsson til
Stokkseyrar. Óskar skyldi vera
formaður kjörstjórnar, skipaður
af stjórn Alþýðusambandsins, en
báðir í sameiningu skyldu þeir
hafa uppi áróður meðal verka-
manna gegn því að félagið segði
sig úr Alþýðusambandinu. Virðist
svo sem þeim hafi orðið fátt til
raka, og þarf þó hvorugum að
frýja vits, því aðal vopn þeirra
var að telja verkamönnum trú um
að verkamenn, sem ekki væru í
Alþýðusambandinu yrðu útilokað-
ir frá að vinna með þeim, sem
væru í Alþýðusambandinu. Um
þetta festu þeir upp svohljóðandi
tilkynningu á staðnum:
„Að gefnu tilefni tilkynnist hér
með, að meðlimum sambandsfé-
laga Alþýðusambands Islands er
óheimilt að vinna ásamt mönnum,
sem eru í félögum utan Alþýðu-
sambands Islands.
Sjómenn og verkamenn, sem
eru í félögum utan Alþýðusam-
þands Islands, verða því að gerast
meðlimir sjómannafélags eða
verkalýðsfélags innan Alþýðu-
sambandsins, ef þeir vinna á sama
skipi eða á sömu vinnustöð og
meðlimir sambandsfélaga Alþýðu-
sambandsins.
F. h. Alþýðusambands Islands
I
Öskar Sæmundsson,
framkvæmdastjóri”.
Samkvæmt þessu er öllum með-
limum „sambandsfélaga Alþýðu-
sambands Islands” óheimilt að
vinna ásamt verkamönnum og
verkakonum á Siglufirði, enginn
þeirra er í sambanÚsfélögum Al-
; þýðusambandsins. Fróðlegt væri
j að vita hvernig Skjaldborgin ætl-
1 ar að framkvæma það. Þá er þeim
í
j mönnum, sem eru í Alþýðusam-
, bandinu, óheimilt að vinna með
Dagsbrúnarmönnum og Hlífar-
mönnum. Allir vita, að Skjald-
borginni -hefur ekki einu sinni
komið til hugar að framkvæma
j slíkt vinnubann. Þess má svo geta
í að sjómenn vinna nú samkvæmt
| taxta, án samnings,* og er því
hvergi til stafur eða stafkrókur,
sem veiti Alþýðusambandsmeð-
limum forgangsrétt til vinnu á
veiðiflotanum.
Ýmsir Stokkseyringar reyndu
að benda verkamönnum á að þeir
Ingimar og öskar færu þama með
staðla'usa stafi, og varð þeim þá
sumum að orði: „Hvor ykkar lýg-
ur” ?
Róleg íhugam mun nú þegar
hafa sannfært þá um að það væru
fulltrúar Alþýðusambandsins, sem
„lugu” enda hefur reynslan sýnt
það svart á hvítu, og ennþá betur
J mun hún sýna það í sumar. Vissa
i er fyrir því að þessi „lyga”-yfir-
lýsing þeirra Ingimars og óskars
reið baggamuninn í atkvæða-
greiðslunni, ásamt því að Óskar
knúði menn, sem skulda félaginu
margra ára ársgjöld, og voru auk
þess brotlegir við samþykktir
þess, inn á kjörskrá, en jafnvíst
er einnig hitt að með slíkum vinnu
brögðum munu þeir Skjaldborgar-
ar brátt hafa lokið smíði sinnar
eigín líkkistu.
II. flokks
mótíð
Úrslitakappleiknum milli K. R.
og Fram i II. fl., sem fram átti
að fara á mánudagskvöldið varð
að fresta vegna óveðurs. Víkingur
hafði gefið sinn leik við Val.
Fór svo þessi leikyr fram í gær-
kvöld og lauk með sigri Fram 3:1.
Léku hinir beztu frá Fram mjög
laglega og reyndu oftast að leika
fram hjá hinum sterku K. R.-ing-
Framh. á 4. síðu.
innar.
Pfzhír nazísfar undír*
búa ínnlímunína.
Undanfarnar vikur hefur fjöldi
grunsamlegra „skemmtiferða-
manna” komið til Danzig. Meðal
þeirra -eru á annað þúsund ungir
menn frá Austur-Prússlandi, og
bera margir þeirra einkennisbún-
ing nazista. Þeim hefur verið séð
fyrir gististöðum á heimilum þýzk
sinnaðra Danzigbúa. Ungir Dan-
zig-borgarar, er verið hafa sjálf-
boðaliðar í þýzka hernum streyma
nú heim til Danzig í „sumarleyfi”.
Hávær orðrómur um þýzka inn-
limun gengur milli manna í borg-
inni, og hefur hann einkum bloss-
að upp við komu þýzku „skemmti-
ferðamannanna”, en samskonar
ferðir voru skipulagðar af naz-
istum í Súdetahéruðunum í sept-
ember sl.
37 manns, allt þekktir andfas-
istar, hafa verið teknir fastir í
Danzig.
Ferðafélag Islands ráðgerir að
fara skemmtiför til Snæfellsness
um Hvítasunnuna, eins og undan-
farin ár, ef þátttaka og veður
leyfir.
Farið verður með m. s. Laxfoss
miðdegis á laugardag 27. maí og
siglt til Arnarstapa. Til baka verð-
i ur farið seinni hluta annars hvíta-
sunnudags og komið til Reykja-
vikur um kvöldið og er þetta því
rúmlega tveggja sólarhringa ferð.
Það er svo óendanlega marg-
breytt og sérkennilegt að sjá á
Snæfellsnesi. Komi maður þar
einu sinni, hefur maður löngun til
að fara aftur. Þetta er ágætt tæki
færi til að kynnast hinu einkenni-
lega og tröllslega Snfellsnesi, t. d.
Búðum, Búðahrauni, Breiðuvík, j
Arnarstapa, Hellnum, Lóndröng- 1
EINKASK. TIL pJÓÐVf
KHÖFN í GÆRKV,
í dag fór fram í Dan-
mörku þjóðaratkvæða-
greiðsla um nýju stjómar-
skrána. Til þess að hún nái
samþykki þarf 45% allra
kjósenda að greiða henni
atkvæði. Sósíaldemókratar,
Kommúnistar, Ihaldsflokk-
urinn og Radikali-flokkur-
inn hafa skorað á fylgjend-
ur sína að samþykkja stjórn
arskrána.
um, Djúpalóni og Dritvík og þá
ekki sízt að ganga á Snæfellsjökul
— þennan mesta gimstein ís-
lenzkra jökla. — 1 björtu veðri er
útsýni af Snæfellsjökli svo til-
komumikið að eigi verður með orð
um lýst og er þar sjón sögu rík-
ari. Fyrir skíðafólk er þetta ein-
stakt tækifæri, því brekkurnar
austan í jöklinum eru með af-
brigðum góðar og enn er jökullinn
að heita má sprungulaus. Frá Am
arstapa er um V/2 stundar gang-
ur uppí snjó, eftir það má ganga
á skiðum uppá jökulhúfur. Tjöld
viðleguútbúnað og mat þarf fólk
að hafa með sér. Áskriftalisti ligg-
ur frammi i bókavcrzlun _ l3afold-
arprentsmiðju til fimmtudags-
kvölds.
SÍÐUSTU FRÉTTIR:
Nýjn grnndvall-
arlogin felld
Atkvæðagreiðslunni . um . ný ju
grundvallarlögin er lokið.
Af öllum kjósendafjölda lands-
ins greiddu alis 966037 eða 44,4%
allra kjósenda atkvæði með grund
valiarlögunum.
Nýju grundvailarlögin voru
þannig felld, enda þótt þau fengju
mikiim meiri hluta greiddra at-
kvæða. Þátttaka í kosningunum
var afarlítil.
Hiflcr æflar að
frelsa Danmðirku,
scgir foríngí naz~
ísfaá Suður~JófL
Ársþing þýzka nazistaflokksins
á Suður-Jótlandi stendur yfir. Naz
istaleiðtoginn Möller gaf þar m. a.
eftirfarandi yfirlýsingu:
„Hitler hefur gengið að Ver-
salasamningnum dauðum, hann
hefur frelsað þýzku þjóðina, og
hann mun einnig frelsa okkur.
Tíminn er kominn, vér munum
ekki lengur þurfa að þjást undir
oki hinna dönsku marxista”.
FRÉTTARITARI
Snæfellsnesför Feröafélagsins