Þjóðviljinn - 25.06.1939, Page 3
► JÖBVILJINN
Sunnudagurinn 25. júní 1939
Ingvar Björnssofi frá Gaf fí:
Sameinnð alþýðnæska
Það ,er ekki svo sjaldgæft að
misskilnings gæti milli kaup-
staðafólks .annarsvegar og sveita
fólks hinsvegar. Pað á ekki
síður ,við um æskuna. Kaup-
staðaæskan ;er að mörgu leyti
frábrugðin sveitaæskunni. Þann
mismun :skapar hin ólfka að-
staða. ,En þar með er ekki sagt
að á miili þessarar æsku þurfi
að vera einhver óbrúanlegur
misskilningur. Síður en svo.
Æskan til sjávar og sveita hlýt
ur að eiga mörg sameiginleg á-
hugamál,, eða ætti að eiga. Hún
er sjfrottin upp af sömu stétt,
alþýðustéttinni íslenzku. Heim-
ili hennar eru heimili verka-
manna ;og bænda. Þar er barizt
við sömu erfiðleika, gegn sama
óvini. Það er þvjí í raun og verui
mjög fjarri allri sk)msemi að
álíta ,að þessir tveir aðilar séu
ósaettanlegar, fjandsamlegar
andstæður, eins og stundum er
haldjð fram. Því er af sumum
haldið fram við okkur sveita-
æskuna að við séum eitthvað
mjög þýðingarmikið fyrirbrigði
fólkið ,í „hinum dreifðu byggð-
um“ með þúsund áramenningu
að baki. Sveitirnar séu aflgjafi
allra framfara, þar sé kjarni
þjóðarinnar. Sveitafólkið sé
gáfaðasta fólk landsins, og að
það sé sveitaæskan, sem allt
veltur á.
Jafnframt þessu er okki r sagt
frá rótleysi og alvöruskorti
æskunnar við sjávarsíðuna. Þar
er, nú eitthvað annað en sveita-
menning á ferðinni, með þús-
und :ára sögu að baki. Það er
rétt( þar um að þetta fólk er tal-
ið með Islendingum, að minnsta
kosti ;ekki af betri endanum.
Okkur er sagt frá þessari æsku
sem mjög menningarsnauðri og
illa uppaldri. Það eru „kommj
únistar“ og annar viðlíka skríll
sem gera uppreisnir og verk-
föll gegn „betri mönnum''.
miklu af viðlíka hugmyndum
er haldið að okkur árlega ,og
þessi skrif virðast eiga það
mark æðst að ófrægja kaup-
staðaæskuna í augum sveita-
æskunnar, og er það óneitan-
lega dálítið skrítin hugmynd.
Og þessi áróður hefur ef til
vill einhvern árangur borið.
Það er ekki svo sjaldgæft að
heyra því haldið fram að kaup-
staðafólk spilli samkomum
sveitafólksins, þegar það kem-
ur þangað. Slíkar hugmyndir
eru að nokkru leyti réttar og
eðlilegar. En um leið verður að
athuga eitt mikilvert atriðí
Hvaða fólk er það úr kaup-
stöðunum, sem kemur á
skemmtanir sveitafólksins? Það
er vert að athuga það áður en-
felldur er dómur yfir allri
kaupstaðaæskunni. Það er
nefnilega alls ekki alþýðuæskan
sem kemur á skemmtanir sveit
anna, ekki hin heilbrigða, hugs
andi, vakandi æska verkalýðs-
ins. Það er fyrst og fremst yf-
irstéttaræskan og stéttlausir
slæpingjar. Þetta fólk kemur
með sína siðj og sína ósiði má
eins vel segja. Það eru þessar
manntegundir, sem setja oft
svip sinn á skemmtisamkomur
sveitaæskunnar, sérstaklega á
sumrin. Þessi æska er vel klædd
framkoman óhefluð en frjáls,
alvara lítil, áfengi nóg. Og þeg-
ar hópur þessara manna kem-
ur, dregur sveitaæskan, sem er
fyriL og á skemmtunina, sig í
hlé. Þarna er agi lítill og þessir
menn geta því látið sem þá
lystir óátalið. Þeir slá um sig
með útlendum orðum, og láta
skína í tilbúna mikilmennsku.
Og hvað lítið, sem út af ber
er hnefinn á lofti. Og í stað
þess að þetta átti að vera
skemmtun sveitaæskunnar varð
úr því tæki handa nokkrum
,,betri“-slæpingjum til aðsvala
skemmtanafýsn sinni og öðr-
um hvötum. Því þessir menn
vita að sveitaæskan er auðleidd
ari út á ýmsar miður heppileg-
ar brautir og varast ekki eins
lævísar veiðibrellur og kaup-
staðaæskan, sem vön er orð-
in við slíkt, og á því hægara'
með að gæta sín. En þegar
sveitaæskan dæmir þessa frið
spilla ,í sínu samkvæmislífi, þá
gleymir ,hún því að þetta er
aðeins hluti af kaupstaðaæsk-
unni. Hún setur undir sömu sök
hina tegund æskunnar, alþýðu-
æskuna. Mér finnst athyglis-
vetrltj í þessu sambandi lít-
ið,dæmi: Haustið 1937 var ég á
samkomu reykvísks verkalýðs,
samkoman var mjög fjölsótt,
húsfyllir í hinu stóra samkomu
húsi. Það sem vakti undrun
mína, með hliðsjón af öðrum
samkomum, var það að ekki
gat heitið að sæi vín á nokkr-
um manni, hvað þá að um op-
inbera ölvun væri að ræða og
samkoman fór mjög vel fram.
En það sama kvöld hélt annar
félagsskapur samkomu, sem
fullvíst má telja, að hafi ver-
ið meira sótt af hinum ,,betri“
æskulýð bæjarins. En hvernig
fór allt fram þar? Tveir menn
stórslösuðust yegna ölæðis og
áfloga, ,og almenn slagsmálog
annað s'tieysi setti svip sinn á
allt ,og loks var samkomunni slit
ið fyrr en ákveðið var. Þetta
eru ekki ýkjur heldur athygl-
isverð smádæmi.
Það er sveitaæskán og verk-
lýðsæskan, sem þurfa að kynn
ast meira en orðið er. Verklýðs
æskan ,er vöknuð til vitundar
um mátt sinn.
Gagnstætt þeim kenningum,
sem okkur eru boðaðar er það
nú kaupstaðaæskan, sem við
getum lært af því, nú á síðustu
árum liafa kaupstaðirnir farið
fi'am úr sveitunum í menningar-|
legu tilliti, nú er það sveitaæsk-
an, sem getur tekið sér kaup-
staðaæskuna til fyrirmyndar.
En til þess að slíkt megi verða
þarf að takast gagnkvæm kynn
ing milli þessara hópa alþýðu-
æsku.
Það þarf að byrja á því að
útrýma Öllum ríg og misskiln
ingi á milli þeirra. Kenna þeim
að koma auga á þann sannleik:
að verkalýðs og bændaæskan
eru tvær greinar á sama stofni
og að þessar undirstöður hvers
þjóðfélags, hinar vinnandi stétt
ir, eiga ekki að láta ríkja úlf-‘
úð og fjandskap á milli sín held
ur samhug, samstarf og jafn-
rétti. En hvað hefur verið gert
í þá átt? Það má fullyrða að
það er mjög lítið opinberlega,
og þessar tvær fylkingiar standa
hvor gagnvart annarri sem
tvær andstæður, sem; í raun og.
veru er ein fylking eða ætti að
vera, ein sterk, voldug æsku-
lýðsfylking.
(Niðurl. á þriðjud.)
Aukin slysavarnastarfsemi
8 ný félög sfofnud
Landssýning barnaskólanna
verður opnuð sunnudaginn 25. júní í Austurbæjarskól
anum. i
.Kl. 1,30 hefst skrúðganga skólabarna frá leikvangi
Miðbæjarskólans. 1 fararbroddi skrúðgöngunnar
ganga skátar, leikfimi- og söngflokkur frá barna-
skólunum.
Kl. 2 á leikvangi Austurbæjarskólans:
1. Hópsönuur barna (frá nokkrum skólum).
2. Ræður:
Jakob Kristinsson, fræðslumálastjóri.
Guðmundur Ásbjörnsson, forseti bæjarstjórnar.
Ásgeir Ásgeirsson, bankastjóri.
Sig. Thorlacius, skólastjóri, form. S. 1. B.
3. Leikfimisýningar (skólabörn).
4. Hópsöngur barna.
Aðgöngumiðar að leikvangi Austurbæjarskólans kosta
1,00 kr. fyrir fullorðna og 0,25 fyrir böm, og gilda þeir
einnig að skólasýningunni á sunnudag. Skólabörn, er
taka þátt í skrúðgöngunni, hafa ókeypis aðgang að
leikvanginum.
Að tilhlutun erindreka Slysa-
varnafélags íslands, Jóns E.
Bergsveinssonar, fóru Eyfelling
arnir sr. Jón Guðjónsson, Holti
undir Eyjafjöllum, Einar Guð-
mundsson, Ingimundur Ólafs-
son iOg Si,gmundur J>.orgilsson
kennarar, og Leifur Auðunns-
son sundkennari í erindum
Slysavarnafélagsins dagana 12
—20. ,þ. m. um Borgarfjarðar-,
Mýra- ,og Dalasýslu til þess að
vinna að stofnun slysavarna-
deilda í sVeitum þessara sýslna.
Átta deildir voru stofnaðar í
eftirtöldum sveitum: Á Hvítár-
síðu, formaður Torfi Magnús-
son;i Hvammi. Guðmundur Böð
varsson, skáld, Kirkjubóli, og
Eyjólfur Andrésson, Síðumúla.
Að Hvanneyri, formaður Run
ólfur Sveinsson, skólastjóri. Á
Hvalfjarðarsirönd, formaður sr.
Sigurjón Guðjónsson, Saurbæ,
frú Ásgerður Þorgilsdóttir, Kala
stöðum og Þorvaldur Brynjólf9
son, Miðsandi. í Leirár- og
Melasveit, stjórn: form. Sigur-
jón jHallsteinsson, Skorholti,
Júlíus Bjarnason, Leirá og Ingv
ar Hallsteinsson, Lyngholti. í
Skilmannahreppi: form., Björn
Lárusson, Ósi, Sigurður Sigurðs
son, ,eldri, Stóra-Lambhaga og
Guðmundur Björnsson, Litla-
Lambhaga. I Borgarhreppi, for-
maður, Stefán Jónsson, Brennu-
stöðum, Þorsteinn Jóhannsson,
Laufási og Einar Sigurðsson,
Stóra-Fjalli. :í Stafholtstungum
form. sr. Bergur Björnsson, Staf
holti, Geir Guðmundsson, Sund-
um og Guðmundur Guðbjarn-
arson, Arnarholti. I Norður-
árdal: formaður, Sverrir Gísla-
: son, Hvammi. Undirbúningur
var hafinn að stofnun deilda í
Hálsasveit og Reyholtsdal og
í Dalasýslu í Laxárhreppi,
Hvammshreppi, Miðdalahreppi
, og á Fellsströnd.
Skilningur og samúð fólks,
sent sótti þessa fundi, var frá-
bær í garð Slysavarnafélagsins
og sjálfboðaliða þess, og kom
fram á fundunum ríkur áhugi
og bezta samvinna að efla slysa
varnir á sjó og landi með félags
bundnum samtökum.
Sumargístíhúsíð Reykholt
er búíð að opna.
rikísíns og Reykholtí
Upplýsíngar á Ferðaskrífstofu
Theédésra Svesnsdéffír,
| Valur og Bret~
! arnír
Pramhald af 2. síðu.
leikinn og nákvæmari staðsetn-
ingar, spörk og skiptingar, væri
hann margfalt hættulegri. Vöm
Vals var góð og örugg með Grím-
ar sem bezta mann. Sigurður og
Frímann voru nokkuð öruggir.
Hrólfur og Jóhannes unnu mikið,
en nokkuð harkalega með köflum.
Hermann er ekki kominn í þjálfun
og var ekki eins öruggur eins og
undanfarin sumur.
Dómari var þjálfari Víkings,
Pritz Buchloh. Hann fylgdist ekki
vel með leiknum og kenni ég því
nokkuð þeirri hörku, sem kom í
leikinn, en góður dómari getur oft
komið í veg fyrir slíkt.
I kvöld leika Bretar við Viking
og mun Víkingur fá tvo menn lán
aða, þá Björgvin Schram og Prí-
mann Helgason. Englendingar
hafa fengið Devine, þjálfara Vals,
til að leika með sér, vegna þess að
miðframvörður þeirra meiddist
svo í leiknum við Val, að hann
getur ekki leikið með, en hann er,
sem kunnugt er, hezti maðurinn
í liði þeirra. Mr. —
Kennarahátíð: Samsæti verður
haldið að Hótel Borg, annað
kvöld kl. 19 í tilefni af 50 ára af-
mæli kennarasamtakanna. Öllum
kennurum og áhugamönnupi um
skólamál, ásamt gestum þeirra, er
boðin þátttaka, meðan húsrúm
leyfir. Aðgöngumiðar seldir í
kennarastofu Austurbæjarskólans
| í dag kl. 2—6 og kl. 10—12 f. h.
I á morgun. Ennfremur verða þeir
seldir að Hótel Borg állan daginn
! báða dagana.
t hverrl verstðð
á landinu eru mcsf nofaðar smurníngsolíur frá Vacuum
Oíl Company þvi allír sjómcnn'frcysfa bczf fegundum,
svo scm:
Rubrex olíum (Oil P, 976 0$ 978)
Motoroíl H
Vacme og DTE olíum.
OLÍUVERZLUN ÍSLANDS H.F.
(Aðalsalar fyrir Vacuum Oil Co.)
Bretamlr og Víkingnr
keppa í kvöld kl. 8,30 stundvfslega
Enskí aívinnuspíladnn Mtr. Devíne (þiálfatrí Vals, leikuir með Brefunum,
Spennandí 1000 metra hlaup verður í hléínu.