Þjóðviljinn - 19.07.1939, Qupperneq 4
Úr borgtnnl
Næturlaeknir Halldór Stefáns-
son Ránargötu 12, sími 2234.
Næturvörður er í Ingólfs og
Laugavegs apóteki.
„Reginn”, 1, tölublað annars ár-
gangs hefur Þjóðviljanum borizt.
Fjallar blaðið aðallega um mót
það, er norðlenzkir bindindismenn
héldu í vor að Laugum. Útgefandi
blaðsins er St. Framsókn nr. 187
en ritstjóm blaðsins annast Hann-
es Jónasson.
Skipafréttir: Gullfoss er á leið
til landsins frá Khöfn, Goðafoss er
á leið til Hamborgar frá Leith,
Brúarfoss er i Reykjavík. Detti-
foss kom í gær frá útlöndum, Lag-
arfoss var á Hvammstanga í gær.
Selfoss er á leið til Rotterdam frá
Vestmannaeyjum. Dronning Alex-
andrine leggur af stað í dag áleið-
is til Islands frá Khöfn.
Ferðafélag íslands efnir til far- •
ar norður að Amarfelli og Kerl-
ingafjöllum um helgina, ef næg
þátttaka verður. Allar nánari upp-
lýsingar fást á skrifstofu Krist-
jáns Ö. Skagfjörðs, Túngötu 5 og
verða þeir, sem hugsa sér að vera
með í förinni að hafa sótt farmiða
sína fyrir kl. 6 e. h. næstkomandi
fimmtudag.
Gamla Bíó sýnir um þessar
mundir U. F, A. gamanmynd, sem
gerist í London. Aðalhlutverkin
leika Lilian Harvey og Willy
Fritsch.
Athygli skal vakin á auglýsingu
tollstjóra á öðrum stað hér í blað-
inu um gjalddaga á tekju- og
eignaskatti þinggjöldum og fleiri
sköttum.
Listasafn Einars Jónssonar er
opið daglega kl. 1—3 e. h.
Menntaskólanemarnir dönsku
voru meðal farþega á Brúarfossi
að norðan í gær. Hafa þeir ferðast
allvíða um Norðurland undan-
farna daga. Nemendurnir fara ut-
an með Brúarfossi á fimmtudag-
inn og verða þá i för með þeim 20
íslenzkir menntaskólanemendur
héðan sem fara í kynnisför til
Danmerkur.
Lúðrasveit Reykjavíkur lék í
gærkvöldi fyrir framan Bindindis-
höllina við Fríkirkjuveg. Er Lúðra
sveitin eins og kunnugt er nýkom-
in úr /kynningarferð um Austur-
Ag Norðurland.
Flugpróf. Nýlega luku tveir
piltar flugprófi, sem gefur þeim
rétt til þess að stýra vélknúinni
flugu, þó ekki til farþegaflutnings.
Piltar þeir, er prófinu luku heita
Kjartan Guðbrandsson og Björn
Pálsson. Hafa þeir að undanförnu
notið flugkennslu hjá Agnari Ko-
foed-Hansen og Emi Johnson, og
útskrifaði Örn þá.
Útvarpið í dag:
11.00 Veðurfregnir.
12.00 Hádegisútvarp.
16.00 Veðurfregnir.
19.30 Hljómplötur: Létt lög.
19.40 Auglýsingar.
19.45 Fréttir.
20.10 Veðurfregnir.
20.20 Hljómplötur: Píanólög (Pad
erewsky),
20.30 Frá útlöndum: Baltísku
löndin (Sig. Einarsson dósent).
20.55 Útvarpskórinn syngur.
21.20 Hljómplötur: Tónverk eftir
Bizet.
21.50 Fréttaágrip.
Dagskrárlok.
(m
Eftir að Þjóðviljinn hefur skrif-
að hverja greinina á fætur ann-
arri, til að sýna fram á hve til-
finnanlegt atvinnuleysið er nú
hafa stjórnarblöðin loks farið að
rumska.
íhaldið ætlar að lofa Óðni að
vinna ódýran „sigur”, með þvi að
bæjarstjórn bæti við í bæjarvinn-
una, — en Alþýðublaðið fæst loks
til að minnast á atvinnuleysið í
gær. Koma skrif þess hjákátlega
fyrir sjónir þeim, sem muna af-
skipti Alþýðuflokksins af atvinnu-
leysismálunum í vetur, þvi þá hélt
Alþýðublaðið því fram, að engin
bót fengist á atvinnuleysinu, nema
Alþýðuflokksmaður yrði ráðherra.
Nú er Alþýðuflokksforsetinn orð-
inn félagsmálaráðherra, — æðsti
maður yfir atvinnubótafé o. s. frv.
— og fæst ekkert til að gera,
nema reyna að eyðileggja atvinnu
byggingaverkamanna!! Og svo
ætlar Alþýðublaðið nú að skella
allri skuldinni á Dagsbrún, — að
hún reki ekki nóg á eftir félags-
málaráðherranum! Öðru vísi var
hljóðið í vetur. En vissulega væri
það fagnaðarefni, ef Alþýðublaðið
væri farið að finna til þess hvern-
ig frammistaða St. Jóhanns er í
ráðherrastól, og hvernig atvinnu-
pólitík Breiðfylkingarinnar er í
Reykjavík. En þá ætti blaðið að
sýna það í verkinu með því að
styðja Dagsbrún, þegar hún legg-
ur til baráttu gegn atvinnuleys-
inu, en ekki vega aftan að henni
eins og það gerði í vetur.
Bif reiðaskoðunin: Bifreiðar og
bifhjól R. 901—975 eiga að mæta
til skoðunar í dag.
Ferðafélag Islands.
Hin fyrirhugaða skemmtiför
næstkomandi sunnudag til Gull-
foss og Geysis verður frestað, þar
sem ekki fæst leyfi til að bera
sápu i Geysi þennan dag.
Þórsmerkurför. Önnur ferð verð
ur farin inn á Þórsmörk um næstu
helgi, vegna þess hve margir kom-
ust ekki i fyrri ferðina. Lagt af
stað síðdegis á laugardag og ekið
að Stóru-Mörk undir Eyjafjöllum
og gist þar í tjöldum. Á sunnu-
dagsmorgun verður farið riðandi
inn á Mörk, Stakkholtsgjáin og
Mörkin skoðuð og ferðinni hagað
svipað og þeirri fyrri. Þórsmörk
er einhver yndislegasti blettur á
Islandi. Stakkholtsgjáin er eitt af
undrum landsins. Af Valahnúk er
ágæt fjalla og jöklasýn og yfir
Mörkina.
Gönguför .á .Botnsúlur. Næst-
komandi sunnudagsmorgun kl. 8
ekið austur Mosfellsheiði um Þing-
völl og að Svartagili. Þaðan verð-
ur gengið eftir leiðinni á Leggja-
brjót fram við Súlnagil og þá upp
fjallið á hæsta tind (1095 m.).
Fjallgangan tekur 5'—6 tíma fram
og til baka. Áskriftarlistar liggja
frammi á skrifstofu Kr. Ó. Skag-
fjörðs, Túngötu 5. Farmiða að
Þórsmerkurförinni þarf að taka
fyrir kl. 4 á föstudag, en að
Súlnaförinni fyrir kl. 12 á laugar-
dag.
Farþcgar frá útlöndum með e. s,
Dettifoss í gær: Sveinn B. Einars-
son Sigrún Sveinsdóttir, Kristín
Magnúsdóttir, Oddgeir Hjartar-
son frú og sonur Kristján Zoega
og margir útlendingar.
þJÚÐVILIINM
ss (\íý/al5io
Úlfurími snýr
affur
Övenju spennandi og vel
gerð lögreglumynd, eftir sög
unni „The Lone Wolf in
París”, sem er víðlesnasta
sakamálasaga, sem nú er á
bókamarkaðinum.
Aðalhlutverk leika:
Franz Lederer og
Frances Drake.
AUKAMYND:
Kröftugar himmur,
skopmynd leikin af Andy
Clyde.
Börn fá ekki aðgang.
X
I
Gömla Í3i6 %
'i
7
löðrnngar
t
|
l
x
'i
x
?
t
?
I
♦%
Ljómandí skemmtileg og t
fyndin UFA-gamanmynd er
gerist í London. ?
t
❖
t
Aðalhlutverk leika hinir X
frægu og vinsæiu leíkarar: ?
t
l
•Í*
♦>
Lilian Harvey
og
Willy Fritsch.
?
Urvalíð vann Danmcrkur-
fara Fram 6:3
, Það mun hafa verið með nokk-
urri eftirvæntingu að þessa leiks
var beðið. En fæstir munu þó hafa
búizt við þessum úrslitum eftir
öllu umtalinu um sigra Fram í
Danmörku.
Leikurinn var yfirleitt fjörugur
og vel leikinn og gefa mörkin til
kynna að fólk hefur fengið mörg
mörk fyrir sína peninga, 1 byrjun
leiks hefja Framarar sókn og
halda henni góða stund, og voru
þeir þá stundum mjög óheppnir
fyrir framan markið og munaði
minnstu að sett væri mark í tvö
skipti, en smátt og smátt fór úr-
valsliðið að falla betur saman og
var það mikill munur frá því er
Corinthians var hér, og má að
sumu leyti þakka það heppilegri
niðurröðun liðsins.
Náði liðið oft góðum samleik,
en það má ef til vill þakka nokkuð
slæmri staðsetningu vamar Fram,
sem ekki er sterk þrátt fyrir góða
Hugtnyndin um „Arf fs-
lendinga^ fser glæsí-
legar undírfekfír,
Tilkynnngin frá Máli og menn-
ingu um stórvirki þess, „Arf Is-
lendinga” liefur fengið hinar beztu
undirtektir svo sem vænta mátti.
Það er sem fjöldi manna hafi ár-
um saman þráð einmitt svona rit-
verk og sjái nú vonir sinar rætast.
| Vekur það ennfremur sérstaklega
fögnuð manna að hinir beztu fræði
menn þjóðarinnar skuli hafa bund-
izt samtökum um að inna þetta
verk af hendi á þann hátt að allri
alþýðu manna verði gert mögulegt
að eignast það, að þetta rit verði
virkileg sameign íslendinga.
Nú streyma að tilkynningamar
til Máls og menningar um að með-
limimir ætli sér einnig að gerast
kaupendur að „Arfi íslendinga”.
Lítur út fyrir að hver einasti með-
limur Máls og menningar ætli að
kaupa hann. En ekki nóg með það.
Nýir áskrifendur bætast á hverj-
um degi og margir skrifa sig fyrir
hærri upphæðum en skylda er, til
þess að tryggja að útgáfan geti
orðið sem glæsilegust.
Það er auðséð að Mál og menn-
ing hefur talað út úr hjarta þjóð-
arinnar, er það tilkynnti þessa á-
kvörðun sína. Mál og menning hef-
ur nú gert sitt. Nú er það þjóðar-
innar að svara. Hún er þegar byrj-
uð á því og það er þegar auðséð
að það svar ætlar að verða nógu
kröftugt til að gera þetta ritverk
eins glæsilega úr garði í reyndinni
eins og hugmynd þess var stór-
fengleg. Um það munu allir góðir
Islendingar sameinast.
aðstoð Brands, sem lék innherja.
Vörnin var góð í úrvalsliðinu og
með nákvæmri staðsetningu Har-
alds hefði hún orðið mikið örugg-
ari, því hraða og kraft á hann í
ríkum mæli. Anton varði prýðilega
það sem verjandi var, og í tvö
skipti næstum meistaralega. Björg
vin Schram lék nú hægra fram-
vörð og gerði það mjög vel. Hann
er einn , af þessum fáu mönnum,
sem geta leikið hvar sem er og
allsstaðar vel. Hrólfur var einnig
góður, Frímann og Grímar voru
ekki vel heilir heilsu, en léku samt
sæmilega. Framlínan var nokkuð
heilsteypt, Gísli og Magnús náðu
. oft góðum skiptingum, og var
Gísli sá duglegasti af þeim fimm.
Haukur og Isebarn voru oft góðir,
en héldu knettinum stundum of
lengi. Steini var hættulegur herra
og mikið á hreyfingu, stundum
heldur mikið út til hliðanna, þar
sem hann hafði svo góða menn
með sér þar.
I liði Fram báru þeir Brandur
og Lindemann hitann og þungann,
og þó sérstaklega Lindemann, sem
þó gerði sig sekan um þvílíkt mál-
I æði úti á vellinum að það hefur
I eflaust truflað í mörgum tilfellum
I og þreytt menn. Við framför jrjá
Fram var varla að búazt eftir hrað
er' um Danmðrku. Það kenu'-
þegar nýju atriðin verða æfð, sem
þeir sáu i þessari för sinni,
enda var ekki sýnleg nein sérstök
framför í þessum leik. Veilurnar
liggja aðallega i vörninni: slæmar
staðsetningar og ekki hnitmiðuð
spörk. Framlínan var hinsvegar
þeirra styrkur með Brand og
Lindemann, sem innherja og skipu
leggjendur. Þórhallur fylgdi of vel
með, en var óheppinn með skotin
sín. Jón Sigurðsson og Jón Magg
voru góðir. Sæmi og Högni unnu
mikið, en varð ekki mikið úr sínu
striti. Bakverðimir voru ekki eins
I öruggir og ég hafði búizt við, og
I var Sig. Halldórs þeim og liðinu
I mikil hjálparhella, Gunnl. hefur
gott grip um boltann, en er ekki
orðinn nógu öruggur í staðsetn-
ingum.
1 hálfleik stóðu leikar þannig að
Úivalið hafði 3:0, svo setur Jón
Sig. fallegt mark og nokkru síðar
setur Lindemann mark úr vítis-
spyrnu 3:2. Þá eykur Steini við
töluna .4:2 og. nr. 5 er Gísli faðir
að. Úr horni setur Brandur þriðja
mark Fram og nokkm fyrir leiks-
ok setur Magnús lokamarkið.
Áhorfendur voru 2500, og veður
gott, nema hvað sól truflaði leik-
menn nokkuð. Dómari var Guðjón
Einarsson og slapp vel frá því
starfi. Mr.
31
GRAHAM GREENE:
SKAMMBYSSA
T I L LEIGU
slóð ekki á húsinu. Hann brosli eins elskulega og hann gat
og sagði:
„Hér er vissulega ánægjulegt innan dyra, elskan”. Hann
lauk upp dyrunum og ýtti henni inn í þröngan, dimman
gang. l’ar gekk hann frá hattinum sínum og gekk á tán-
um ínn að stiganum.
„Við opnum útvarpið og hlustum á hljómlistina”, sagði
mr. Davis.
Þá opnuðust dyr út að ganginum og spurt var með
kvenrödd: „Hver er þar?”
„Bara mr. Gholmondeley ’.
„Gleymið ekki a” borga áður en jþér gangið upp”.
„Linn stiga upp”. sagði m.r. Davis, „dymar beint á móti.
Eg kem að andartaki liðnu”. Hann beið við stigann þang-
að ti'
nun var k
omin fram hjá. Hann lét glamra í pening-
um í vasa sinum.
I’arna var reyndar útvarp inni og slóð á marmaraplöt-
unni á servantinum. En það var heldur lílið rúm til að
dansa, því að stórt hjón.arúm stóð á miðju gólfi og tók
út undir veggi. Ekkert bar vitni um að búið væri i her-
berginu. l’ykkt rykl’ag yar á speglinum og þvottasvamp-
urinn, sem var við hliðina á hátalaranunr, var skráþurr.
Anna ga'gðisl út um gluggann bak við höfðagaflinn, niður
í litinn dimman garð. Hönd hennar skalf á gluggapóst-
iimm. Þella var óálitlegra en hún hafði búizt við. Mr.
J'-yvis stóð i dyrunum. . \ <f‘
önnu greip óhugur. í’að varð til þess að hún hóf sókn.
„Og jæja. Þér kallið yður mr. Cholmondeley?”
Hann leit við henni og lokaði dyrunum hljóðlega: „Hvað
um það?”
„Og þér sögðust ætla heim til yðar. Þér eigið ekki hér
heima”.
Mr. Davis sellist á rúmið og tók af sér skóna. „Við meg-
um ekki hafa hátt, elskan, sú gamla vill það ekki”. sagði
hann. Hann opnaði servanlinn og tók þar úl pappaöskju
og rauk sykurrúst út um öll hornin á henni. „Eigum við
ekki að borða tyrkneskan sykur?”
„Þetta er ekki yðar heimili”, endurtók hún.
„Nei, auðvitað ekki”, sagði hann og stakk mola upp i
sig. „Þér ætlizt þó ekki til að ég fari með yður heim til
min. Svo heimskar eruð þér ekki. Eg lief ekki hugsað mér
að fórna minu góða nafni og áliti. En nú skulum viS hafa
ofurlítiS af hljómlist fyrst”. Hann skrúfaSi takkann svo
að úlvarpið ýldi og urraði. ”Þetta er aumi hljóSfæraslátl-
urinn í kvöld”, sagSi hann og skrúfaSi og snéri þangaS
til hann náði i fjarlæga danskviSu meS drynjandi hljóm-
falli: „Nælurljós, ástarljós. Þetta er héðan úr sjálfri Notl-
vvich. Þetta er frá Grand. Það er ekki til betra orkester í
öllu fvlkinu”. Hann greip um mitli hennar og byrjaSi að
rugga henni eftir hljómfallinu milli rúmsins og þilsins.
„f’etta gólf er ekki gott til aS dansa”, sagSi Anna og
reyndi að halda i sér kjarki með einhverskonar gaman-
semi, „og ]ió eru þrengslin verri”.
„Þau eru ekki sem verst”, sagði mr. Davis og logaði
allt í einu af ástríðu. Hann þurrkaði sykurrústina af vör-
unum og þrýsti þeim að hálsi hennar. Hún ýtti honum frá
sér cn hló við honum um leið. Nú reið á að láta sér ekki
fipast.
Hún byrjaði að lala eittlivað úl í bláinn, fljótt, um það
fyrsta, sem henni kom í hug. Hvernig skyldi gasárás
verka? Var það ekki hræðilegt, hvernig gamla konan var
slegin milli augnanna?
Hann sleppti henni strax, þó aS hún hefði raunar ekk-
ert meS þessu meiril. Hversvegna fariS þér að tala um
þetta? sagði hann.
„Eg las um það”, sagði Anna.
„l'að hlýtur að hafa veriS óskemmlilegt i ibúðinni eftir
morðiS”.
Mr. Davis kveinkaði sér: „Hættið, GeríS mér þann
greiða að hadta þessu tali. Hann studdi sig viS rúmbrík-
ina og reyndi að gera grein fvrir framkomu sinni: „Eg er
svo magaveikur að ég þoli ekki að heyra talað um skelfi-
lega atburði”.
„En ég hef svo mikið yndi af þeim frásögnum”, sagði
Anna. „Hér um dfiginn heyrði ég sagt frá manni sem ..”
„Eg hef aíltof rikt ímyndunarafl”, sagSi mr. Davis.
„Einu sinni skar ég mig í fingurinn og þá------”
„GeriS það fvrir mig að hætta þessu tali”.
En nú þegar henni fannst hún hafa heppnina meS sér.
gætti hún sin ekki. Húri sagði: „Eg hef líka ríkt imyndun-
arafl. Mér fannst ég .sjá mann, sem stóS úti á götuhorninu
og hafði gætur á þessu húsi".
„HvaS eigið þér við?” sagði mr. Davis. Hann var aug-