Þjóðviljinn - 24.09.1939, Side 1
IV. ABGANGUB
SUNNUDAGUR 24. SEPT. 1939.
221. TÖLUBLAÐ
'■■I
Takmarkaltnan mllll sovðtberslns
og þýzka berslns i Pðllandl dregln
Almenní eiru úrslitin i Póllandí álítin míkill ósígur f^rir Hítler
Rauði herinu tðk fi g»r Brest-Litovsk og Bialystok
SAMKV. EINKASK. FRA MOSKVA OG IÍHÖFN i GÆRKVÖLD,
Samkvæmt opinberri tilkynningu í'rá sovétstjórninni, 22. sept,
hafa stjórn Sovétríkjanna og stjórn Þý/.kalands ákveðið takmarka
línu (demarkationslinie) milli þýzka hersins og Rauða hersins, og
er hún sem hér segir
Eftir Pissafljóti að Narewfljóti, eftir Narew að Bug, eftir Bug'
að Weichsel, suður eftir Weichsfel þangað sem San rennur í hana
og þaðan eftir ánni San til upptaka.
Samkvæmt tilkynningu herforingjaráðs Rauða liersins 22. sept.
tók sovéther þennan dag borgirnar Brest-Litovsk og Bialystok á
vald sitt og hélt áfram að festa stöðu sína.
I Lemberg-héraði gáfust sex pólskar fótgönguliðssveitir og tvö
skyttuherfylki undir forustu Langers hershöfðingja, upp fyrir
Rauða hernum. Fram að 21. sept. hafa 120 þús. pólskir hermenn
og liðsforingjar verið teknir til fanga af sovéthernum, og 380 fall
byssur og 1400 vélbyssur teknar lierfangi.
Btreíar og Frakkar van»
lrúaðír á sögusagnír
þfzka úívarpsíns.
Brezk og frönsk blöð leggja lít-
Inn trúnað á þá staðhæfingu
þýzka útvarpsins, að takmarka-
lína þýzka hersins og sovéthersins
i Póllandi hafi verið ákveðin fyr-
irfram. Benda þau á að þýzki her-
inn hafi lagt á sig stórkostlegar
fórnir til að ná valdi á þeim hér-
uðum, er hann hörfar nú úr und-
an sovéthernum, og sé engin á-
stæða til að ætla að það hafi ver-
ið fyrirfram umsamið. Telja blöð-
in síðustu atburðina í Póllandi
stórkostlegan ósigur fyrir Hitler
og geti það haft ófyrirsjáanlegar
afleiðingar fyrir nazistastjórnina
í Þýzkalandi, ef Sovétríkin fá
stórum aukið áhrifavald í Mið-
Evrópu.
Víðsfáín í da$
Andrés Síraumland.
Andrés Straumland, forseti
'Sambands íslenzkra berklasjúk-
linga, ritar í Víðsjá Þjóðviljans í
dag um baráttuna gegn berkla-
veikinni.
Þýzkur hcrshöfðíngí
fallínn
Tilkynnt hefur verið frá Berlín,
að von Fritz hershöfðingi, fyrr-
verandi yfirherforingi þýzka hers-
ins, hafi fallið í bardögum við
Varsjá.
Nazísfísku motrðíngýun-
um hcgnf
Rúmenska stjórnin tilkynnir að
aðfaranótt 22, sept. hafi morðingj
ar Calinescus forsætisráðherra
verið teknir af lífi, og allir þeir,
er samsekir voru um morðið. Tel-
ur stjórnin að nauðsyn hafi borið
til að hraða aftökunum vegna
hins alvarlega ástands, og muni
Járnvarðaflokknum, hinum þýzk-
sinnaða nazistaflokki í Rúmeníu
algerlega verða útrýmt.
Fríðvænlegf á Balkan
Blöð í Búlgariu og Júgóslavíu
láta mjog vel yfir batnandi sam-
komulagi ítalíu og Grikklands og
telja að sú ákvörðun ítölsku
og grísku stjórnanna að draga
burt heri sína frá landamærum
Albaníu og Grikklands muni mjög
stuðla að áframhaldandi friði á
Balkanskaga.
I gær lentu fimm pólskar flug-
vélar í Búlgaríu. Ein þeirra hóf
sig þegar á loft aftur og hvarf,
en hinar voru teknar af búlg-
arskri lögreglu og áhafnir þeirra
kyrrsettar.
Vínáffa víð Sovcfrakín -
grundvalfarafríðí í uf«
anrákíspólífík Tyrklands
Aðalblað tyrknesku stjórnarinn
ar birtir í dag ritstjórnargrein
um för tyrkneska utanríkisráð-
herrans til Moskva .Bendir blaðið
á að för ráðherrans á þessum al-
varlegu tímum, veki athygli um
allan heim, og sé það ekki að á-
stæðulausu. Vináttan við Sovét-
ríkin er grundvallaratriði í utan-
ríkispólitík Tyrklands, segir blað-
ið. Vér munum aldrei gleyma
þeirri hjálp, er Sovétríkin veittu
Tyrklandi, þegar því lá mest á.
Síðan keisarastjórnin rússneska,
og soldánstjórnin tyrkneska féll.
hafa engin ágreiningsatriði verið
milli þjóða Sovétríkjanna og
Tyrklands, en þá fyrst voru sköp-
uð skilyrði til heilbrigðs vináttu-
sambands milli þessara ríkja, er
áður höfðu verið fjandsamleg
hvort öðru.
Sovétríkin og Ungverjaland
hafa á ný tekið upp stjórnmála-
samband sín á milli.
Amcríshír sjó~
menn knýja ifram
kaup hækkun
KAUPMANNAHÖFN f GÆRKV.
Ilásetar og kyndarar á átta
amerískum flutningaskipum gerðu
verkfall þar sem þeim hafði verið
neitað um kauphækkun fyrir sigl-
ingar á hættusvæðum í Evrópu.
Lauk verkfallinu svo, að sjó-
mennirnir fengu 25% launahækk-
un fyrir siglingar á þeim leiðum,
sem hættulegastar eru taldar,
Tveir lögreglnþjónar
flzBitiiÍii* n siifcöirrefls
Dómur var kveðinn upp í und-
irrétti yfir tveimur lögregluþjón-
um, þeim Sigurði Thorarensen og
Þorkatli Steinssyni, fyrir ólöglega
handtöku á Karli Jónssyni lækni
sem er kærandi málsins. Setudóm-
ari í máli þessu var fsleifur Arna-
son prófessor. Var Sigurður
dæmdur í 200 króna sekt, en Þor-
ketill í 100 króna sekt.
Orsakir málshöfðunar þessarar
eru sem hér segir: Kvöld eitt fyr-
ir nær ári síðan voru lögreglu-
þjónarnir kallaðir að Hótel Borg
til að skakka þar leik vegna ó-
spekta.
Á meðan lögregluþjónarnir
voru í anddyri hótelsins, bar Karl
þar að og ætlaði hann að fara í
frakka sinn, en byrjaði um leið að
raula lagstef. Höstuðu lögreglu-
þjónarnir á liann, en Karl sinnti
því engu. Réðust lögregluþjón-
arnir þá að Karli en hann stymp-
aðist við. Lauk þeirri viðureign
svo að Karli var ekið í fangahús-
ið og þar kom hann fyrst til vit-
undar daginn eftir. Var hann þá
með nokkra áverka, en auk þess
telja læknar að hann hafi fengið
snert af heilahristingi. Komst
Karl nú heim, en lá alllengi vegna
áverka þeirra, er hann telur sig
hafa fengið í viðskiptunum við
lögregluna.
Sannanir hefur þó brostið að
dómi réttarins til þess að færa ó- i
yggjandi rök fyrir því, að meiðsli
Karls stöfuðu af viðureign hans
við lögregluna. Hlutu lögreglu-
þjónamir því engan dóm fyrir á-
verkana, heldur aðeins sekt fyrir
að hafa tekið Karl höndum ólög- j
lega og að ástæðulausu.
Hvað taefur þú
gerf ftl að
úfbreíða
Þfóðvjlfann I
Búízt víd
dóflií í Hafn-
arfíardardeíl
unní næsfu
daga
A iöstudaginn var fór fram
málflutningur fyrir Félagsdómi í
Hafnarf jarðarmálinu svonefnda,
eða máli því, er Skjaldborgin hef-
ur látið höfða fyrir dóminum
gegn Verkamannafélaginu Hlíf í
Hafnarfirði.
Mál þetta átti að koma fyrir
dóminn þann 20. þ. m. en var frest
að vegna veikinda eins af dóm-
urunum, Kjartan Thors.
Búizt er við að Félagsdómur
kveði upp dóm sinn í máli þessu
á morgun eða þriðjudaginn, þar
sem öllum málaflutningi er lokið,
Kjartan Thors mun ekki eiga sæti
i dómnum við dómsúrskurð og
mun Jón Ásbjörnsson hæstarétt-
armálaflutningsmaður sitja í sæti
hans.
Sækjandi málsins er Guðm. I.
Guðmundsson, en Pétur Magnús-
son ver málið fyrir hönd Hlífar,
Guðmundur Arn-
laugsson skrífar
greínaflokk í Þjóð-
víljann um Argen-
tínu-skákmótíð.
Fyrsta greínin kem-
ur á þríðjudagínn.
Guðmundur Arnlaugsson.
Eins og lesendum mun kunn-
ugt, var Guðmundur Arnlaugsson
ritstjóri skákdálks Þjóðviljans,
einn af íslenzku keppendunum í
Buenos Aires, en þeir unnu for-
setabikarinn sem frægt er orðið.
Guðmundur hefur sent Þjóðvilj-
anum greinar um ferðina og skák-
mótið og birtist sú fyrsta í næsta
blaðí (þriðjudagsblaðinu). Er tals
verður hluti greinarinnar gaman-
söm lýsing á ferðinni yfir hafið,
en inn i er fléttað fróðleik, sem
öllum skákmönnum mun þykja
fengur í.