Þjóðviljinn - 17.11.1939, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 17.11.1939, Blaðsíða 2
ÞJÖÐVILJINN Föstudagurinn 17. nóvember 1939. tuðmnuiNii Otgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. Kitstjórar: Einar Olgeirsson. Sigfús A. Sigurhjartarson. Bitstjórnarskrifstofur: Aust- urstræti 12 (1. hæð). Símar 5276 og 2270. Afgreiðsla og auglýsingaskrif- stofa: Austurstræti 12 (1. hæð) simi 2184. Askriftargjald á mánuði: Reykjavík og nágrenni kr, 2.50. Annarsstaðar á land- inu kr. 1,75. 1 lausasölu 10 aura eintakið. Víkingsprent h. f. Hverfisgötu 4. Simi 2864. Tvö verklýðsam- bðncL Landssamband ísl. stéttarfélaga er nýstofnað. Samband þetta er byggt á algerlega óháðum grund- velli. Samþykktir þess eru sam- þykktir meiri hluta þess verkalýðs, sem Sambandið skipaf, án alls til- lits til þess, hvaða flokki hann fylg- Ar í stjórnmálum. Forystumerin sam- bandsins eru þeirrar skoðunar, að stéttarsjónarmið verkalýðsins sé hið sama, þótt hann skiptist í mismun- andi flokka um önnur mál. Hver einasti af meðlimum sambandsins nýtur fyllsta léttar til allra trún- aðarstarfa, ef hann aðeins hefur sýnt verkalýðnum að hann sé verð- ur þess trausts, að standia í forustu- og trúnaðarsveit hans. Hinsvegar stendur Alþýðusam- hand íslands, verklýðssamband, sem ! háð er vilja hins pólitíska flokks- J hrots Stefáns Jóhanns Stefánssonar. j Engir aðrir en þeir, sein segja já ' og amen við skoðunum hans, njóta • þeirra réttinda að koma fram sem : fulltrúar hinna einstöku félaga á j allsherjarþingi sambandsins. Sam- bandið er skyldað og bundið sam- þykktum og lögum til þess að vinna að pólitísku gengi Stefáns Jóhanns og félaga hans. Starfsemi sambands- ins öll og stefna þess skal vera í samræmi við stefnuskrá Stefáms Jó- hanns Stefánssonar. í Landssambandinu ræður vilji verkalýðsins, í Alþýðusambandinu stefnuskrá Stefáns Jóh. Stefánsson- ar. Kjörgengir á þing Landssam- bandsins eru allir meðlimir þess, en á þing Alþýðusambandsins að- eins skósveinar félagsmálaráðherr- ans. I Landssambandinu fír rettur Alþýðuflokks-, Sjálfstæðismanna og Sósíalista samur og jafn, í Alþýður sambandinu eru sjálfstæðismenn og sósíalistar réttlausir til annars en að greiða gjöld sín, sem varið er- til þess að koma aðeins þeim mönn- um, sem eru Alþýðuflokksmenn, til opinberra starfa, fyrir bæjarfélög, sveitarfélög og landið allt. Á milli þessara tveggja verklýðs- sambanda á íslerizkur verkalýður að velja, og val hans getur aðeins orðið á eina leið, því að enginn verkamaður kýs fremur hlekkina en frelsið. Stolt verklýðsstéttarinnar krefst þess, að hún fái að ráða sjálf í hagsmunasamtökum sínum, hagsmunir hennar krefjast hins sama. En y,n' má verkalýðurinn ekki gleyma. Síðustu leifamar af veldi TTIB Fjárhagsáæflan L S. L I939~40* Þó nokkuð sé liðið frá aðalfundi 1. S. 1. er ekki úr vegi að ræða nokkuð þann fjárhag sem I. S. I. á við að búa, og þar sem samband ð nýtur bæði styrks ríkis, 8000 kr., og frá bænum 2400 kr., til læknisskoðunar íþróttamanna, er það að ýmsu leyti rétt að almenn- ingur kynnist því nokkuð. Heild- artekjur sambandsins eru um 11000 kr. Stærsti útgjaldaliður þess er kostnaðurinn við skrifstof- una, sem er um 3500 kr. Þá kemur styrkur til íþróttanámskeiða o. fl. 2600 kr., þar af fara 600 til Iþróttablaðsins, 300 til Áramnns samkvæmt aðalfundarsamþykkt. Þá er gert ráð fyrir að 1200 kr, renni til íþróttanámskeiða er ráð- gert var að halda, svo eftir voru þá 500 kr. til námskeiða og styrkja til 90 félaga, eða rúmar. 5 krónur til félags. Sést á þessu hve mikið f éleysi 1. S. 1. á við að stríða. Læknisskooðun iþrótta- manna kostar 2400 kr., og er sú lækniskoðun og það lækniseftirlit sem haft er með íþróttamönnum alls ekki fullnægjandi, þó mikið hafi úr bætzt við þessa fram- kvæmd. Heiðursskjöl og heiðurspening- | ar er áætlað 600 kr. Til kaupa á ritvél 600 kr. Eru þetta nauðsynlegar fram- kvæmdir. Við þetta stutta yfirlit er það öllum ljóst, að þessi slæmi fjár- hagur stendur íþróttunum og í- þróttastarfseminni í landinu fyr- r þrifum. Sem sagt, hindrar alla ■ðliiega þróun bæði í aðbúnaði og árangri. Til þessa menningar- starfs landsmanna er ynnt af hendi svo mikil þegnskaparvinna að ómögulegt er að meta til pen- inga, og áhugamennirnir ætlast ekki til að fá fyrir störf sín. En þeir krefjast að það opinbera leggi sitt til, og þá með beinum fjárframlögum eða að ætla þeim irygggan tekjustofn. Verði nú sú raunin á, að þing er fyrir hendi og hafizt yrði handa styðja betur iþróttastarfsemina, og hvort sem væri, þá verða íþróttamenn að sameinast um þetta mál og leysa á viðunandi hátt. Þetta ætti að takast ef áhugi er fyrir hendi og hafist yrði handa um málið. Verður ef til vill síðar komið nánar inn á þessi atriði og bent á eiðir sem fara ætti til að auka tekjur sambandsine. félagsmálaráðherrans og flokksbrols hans hvíla á því, að verkalýður sá, sem er í Alþýðusambandinu, verði nauðugur viljugur að bera pólitískar byrðar Skjaldborgarinnar. Og loks iná ekki gleyma því, að hagur atvinnurekendanna er veikt verklýðssamband, háð pólitískum yf- irráðum þarfasta þjónsins. Þess vegna lýsti Ólafur Thórs því yfir, að hann væri albúinn að semja við Stefán Jóhann um fagsamhands- málin. V Þegar reglur Knattspyrnuráð Reykjavíkur voru samdar fyrir tveim árum var komið þar inn ákvæði um ársþing, þar sem rædd yrðu þau mál er sameiginleg væru og svo til þess að K. R. R . gerði þar grein fyrir störfum sínum á liðnu ári og tæki á móti þökk eða vanþökk í staðinn eftir því sem á stendur. Yfirleitt fannst öllum þetta ákvæði ágætt og að það gæti orðið til þess, ef rétt væri á haldið, að sameina félögin og skapa virðingu um K.. R R. sem svo oft hefur vantað. I fyrra þurfti 3 fundi til að ljúka þeim málum sem fyrir lágu, svo það virðist sem þingsins hafi ver- ið þörf. Nú er búinn einn fundur þessa árs þings og verður bráð- um haldinn annar. Eftir þessi þing hefur mér oft borizt til eyrna að þau væru ekki eins virðuleg og ætti að vera, málin ekki tekin alvarlega, og þingið þarafleiðandi missti marks, og jafnvel hefur verið kveðið svo að orði, að þing í svona formi ættu 'ekki að hald- ast. Það eru sjálfir þingfulltrúarnir sem láta sér þessi orð um munn fara. Því miður verð ég að játa, að þessi ummæli styðjast við nokkur sannindi. En í hverju liggur þetta? Er ekki hægt að lagfæra það? öllum hlýtur að vera það ljóst, að það er á valdi þeirra er að þinginu standa, hvernig það fer fram. Það hlýtur því að vera þeirra sök sem þar fer aflaga. I fyrsta lagi var undirbún- ingur K. R. R. undir þingið mjög slæmur, og er það vond byrjun 1 öðru lagi virðist nokkur hluti fulltrúanna ekki gera sér grein fyrir því hvað þingið í raun og veru er, og taka málin engan veg- in alvarlega. Afleiðingin verður að sjálfsögðu sú, að þingstjórnin verður erfið fyrir þingforseta, og svo fær hann sinn hluta af þess- um mistökum með þingið, þó í rauninni sé þeirra að leita hjá full trúunum sjálfum og K. R. R. Við erum ekki sannir íþróttamenn ef við getum ekki horfzt í augu við þennan sannleika. Við eigum heldur ekkki skilið að heita íþróttamenn, ef við ekki getum setið þing um okkar hjartans áhugamál nema misbjóða og hálfeyði- leggja tilgang þess. Þingið er æðsta samkoma knattspyrnufélag- anna í Rvík, um það á að skapast sú virðing, sem er samboðin þeirri íþrótt sem langsamlega mestum tökum hefur náð á Reyk- víkingum. Þessa virðing má skapa, sýni réttir aðiljar- þroska og sannan áhuga í starfi sínu. Dr. Adalfundír félaganna. Krmttspyrnufélagið Fram hélt ný- lega aðalfund sinn. Er þetta að ýmsu leyti sögulegt ár í ævi Fram. Er þar fyrst að nefna utanför fé- lagsins, sem er sú fyrsta, er fé- lagið fer, og var árangur hennar góður. Þá er að minnast þess, að á þessu sumri endurheimti félagið Is- landsmeistaratitil sinn, eftir nær 20 ár. II. fl. hefur líka verið mjög sigursæll hjá Fram í sumar. — í stjórn voru kosnir: Ragnar Lárus- son, formaður, Ólafur Halldórsson varafonnaður, Júlíus Pálsson ritari, Gunnar Nielsen gjaldkeri og Sæ- mundur Gíslason bréfritari. I for- j mannskosningunni fékk Ragnar 47 a1kv„ te.n Jón 27. Eru í stjóminni núna allt nýir menn nema Sae- mundur. Sundfélagið Ægir hélt nýlega að- alfund sinn og sýndi við það tæki- færi íþróltakvikmynd f. S. I. frá í sumar, eða tvo þætti hennar, er vöktu hrifningu. f stjórn voru kosn- ir: Eiríkur Magnússon formaður, iendurkosinn í 12. sinn, meðstjórn- endur em Hafsteinn Helgason, Helgi Sigurðsson, Jón D. Jónsson, Jónas Halldórsson Logi Einarsson og Theódór Guðmundss. Bóðust þeir Þórður Guðmundsson og Jón Páls- son undan endurkosningu, en þeir hafa verið í stjórn félagsins frá byrjun. Einar Guðjónsson baðst líka undan endurkosningu. Eiríkur Magnússon gat ekki mæti á fundinum sökum lasleika.e n hann hefur verið ririffjöðrin í félaginu frá byrjun. Hefur árangur félagsins orðið góður og ber þess ótvíræðan vott að Ægir ber ægishjálm yfir önnur sundfélög nú. Af um 20 met- um, sem sett hafa verið á þessu árl, eiga Ægisinenn 15. Við þetta tækifæri var forseta í. S. I. afheni fögur gjöf frá félaginu í tilefni af 50 ára afmæli hans í sumar. Var það merki félagsins, haglega skorið úr fílabeini, á fögrum fótstalli. Fé- lagatala er nú á þriðja hundrað og fjölgar stöðugt. Erlendar fréifír* Taisto Máki finnski langhlaup- arinn er bezti hlaupari í heimi í löngum hlaupum. Hlaupakóngur- inn frægi, Paavo Nurmi er nr. 4 Séu lagðar til grundvallar vega- lengdirnar 1500 m., 3000 m., 5000 metrar-og 10.000 m. og árangur þeirra reiknaður í stigum eftir finnsku töflunni lítur það svona út: 1. Taisto Máki: m. st. 1500 3,53,6 1005 3000 8,15,6 1093 5000 15,08,8 1139 10000 29,52,6 1094 4331 2. Kauko Pekuri: m. st. 1500 3,52,6 1019 Skíðadeíld L R. hefur unníð að end- urbótum á skíða- stökkbrautínní í sumar — í þegn- skaparvínnu. Fyrir nokkru rakst ég á aug- lýsingu frá Skíðadeild 1. R. um þegnskaparvinnu að Kolviðarhóli. meðal félagsmanna sjálfra. Lék mér nokkur forvitni á hvað þeir „Hólverjar” hygðust fyrir á kom- andi vetri og að hverju hefði ver- ð unnið í þegnskaparvinnunni. Hringdi ég því til Jóns Kaldals. form. Skíðadeildarinnar, og spurð- ist fyrir um þetta. Sagði hann mér þá að unnið hefði verið rnikið 5 sumar þar upp frá, sérstaklega við skíðastökkbrautina. Brekkan sjálf slétt og undirlendið lagfært. Sprengdir klettar o. fl. Heima við húsin ýmislegt lagfært, t. d. skíða- geymslan sem skemmdist töluvert fyrra af eldi. Og allt hefur þetta verið gert í þegnskaparvinnu, sagði Kaldal og hann tók alveg sérstaklega fram hvað afköst þessa fólks hefðu verið mikil og vinnugleðin að sama skapi. Þátt- taka í vinnunni var allsæmileg. Þegar ég spurði hann hvaða áform lægju fyrir um vetrarstarfsemina sagði hann að ekki væri fyililega gengið frá‘þeim ennþá, en þegar það væri, mundi ég fá það til birt- ingar. Þó heyrði ég á Kaldal, að þeir hafa mörg járn í eldinum, t. d. námskeið skíðakennara o. fl. Heyrðist mér helzt á honum að engar stríðsráðstafanir skyldu hindra það að Reykvíkingar gætu heimsótt hið vistlega skiðaheimili Kolviðarhól, í vetur. Mr. vSlysavarnafélag Islands hefur að undanförnu haldið námskeið í slysavörnum, hjálp í viðlögum og fl. á Stokkseyri. Jón O/ Jónss. var kennari á námsskeiðinu og var á- gætur áhugi meðal Stokkseyringa um þessi mál. 3000 8,144 1088 5000 14,162 1108 10.000 30,106 1060 4275 3. Vaimari Isokollo: m. st. 1500 3,54,4 995 3000 8,14,4 1088 5000 14,16,2 1108 10.000 30,10,6 1060 4220 . Paavo Nurml: m. st. 1500 3,52,6 1019 3000 8,20,4 1061 5000 14,28,2 1062 10,000 30,06,2 1069 4211 Þý/.kaland vann Búlgaríu í knattspymukeppni, sem fram fór nýlega í Sofía með 2:1. Fór þessi annar leikur þessara ríkja fram í regni og slæmum veðurskilyrðum. Þó voru mættir um 20 þúsund á- horfendur.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.