Þjóðviljinn - 20.12.1939, Síða 4
DJÚPVIUIMH
Clpboíglnnl
Næturlæknir: Halldór Stefáns-
son, Ránargötu 12, sími 2234.
Næturvörður er í Ingólfs- og
Laugavegs-apóteki.
Næturakstur: Bifreiðastöð Is-
lands, sími 1540.
Heimilið og Kron, 11.—12. hefti
II. árgangs er nýkomið út. Birtist
þar meðal annars grein eftir Th. B.
Líndal, er hann nefnir Staðgreiðsla
— innlánsdeild, Samkeppni og við-
skiptahöft, Garðrækt og kvillar eft
ir Ingólf Davíðsson, Jóla- og nýárs
matur — Jólabakstur eftir Helgu
Sigurðardóttur og nokkrar smá-
greinar um samvinnumál.
Jón Þorleifsson listmálari hefur
sýningu á nokkrum af nýjustu
verkum sínum í Blátúni, þessa dag
ana.
Hjónaband. Á laugardaginn var
voru gefin saman í hjónaband ung
frú Sigríður Sigurhjartai'dóttir og
Ásgeir Blöndal Magnússon.
Útvarpið í dag:
10.00 Veðurfregnir.
12.00—13.00 Hádegisútvarp.
15.00 Veðurfregnir.
18.15 Dönskukennsla, 2. fl.
18.45 Enskukennsla, 1. fl.
19.10 Veðurfregnir.
19.20 Lesin dagskrá næstu viku.
19.30 Þingfréttir.
19.40 Auglýsingar.
19.50 Fréttir.
20.15 Frá útlöndum.
20.40 Útvarpshljómsveitin: Lög
eftir Mozart.
21.05 Hljómplötur: Jólalög frá
ýmsum löndum.
21.30 Fréttir.
Dagskrárlok.
Iþróttablaðið er nýkomið út og
er það 24 blaðsíður að stærð með
f jölda greina um íþróttir, svo sem
um utanferðir íslenzkra íþrótta-
manna og margt fleira. Fjöldi
mynda er efninu til skýringar.
Blaðið kemur framvegis út hálfs-
mánaðarlega og er það væntanlega
gleðiefni fyrir alla íþróttamenn.
„Sköpunin”, oratorium eftir
Haydn var flutt í bifreiðaskála
Steindórs í fyrrakvöld og voru á-
heyrendur á þriðja þúsund, þar á
meðal allmargir menn sem Tón-
listafélagið hafði boðið. Eftir
hljómleikana hafði Tónlistafélagið
boð fyrir þátttakendur í hljómleik-
unum og sátu það á þriðja hundr-
að manns. Ýtarlegri grein um
hljómleika þessa, sem eru einstak-
ur viðburður í íslenzku tónlistalífi
birtist hér í blaðinu einhvern
næstu daga.
^kólaskýrsla Kvennaskólans í
Reykjavík fyrir árin 1934—1939
er nýkomin út. -
Foreldrablaðið, gefið út af Stétt
arfélagi bamakennara er nýkomið
út. Er blaðið sent ókeypis á öll
heimili sem eiga böm í skóla. Fjall
ar blaðið um kennslu og uppeldis-
mál, einkum þá hliðina, er fjallar
um samband skólanna og heimil-
anna. í blaðið rita meðal annarra
Sigurður Thorlacius skólastjóri,
Stefán Jónsson kennari, Sigurður
Helgason kennari, Guðm. I. Guð-
jónsson kennari og Jón Sigurðsson
skólastjóri. Blaðið er 48 síður í
Bfs Ny/álSio a§
4
I nefí Lögreglunnar ‘f
4
Pjörug og spennandi amerísk %
lögreglumynd er gerist í New X
York og Budapest.
Aðalhlutverkin leika:
Wendy Barrie,
Kent Taylor og skopleik
arinn frægi Mischa Auer
t
T
Þetta er óvenju skemmtileg y
y
mynd, hlaðin fyndni og fjöri X
I
?
Börn fa ekki aogang.
y
.. y
X~X"X**X*.X“:“X*.X~X*.X..:*.X“X**>*?
og spennandi viðburðum.
& GamlarZjio %
| Hefjur |
I núfímans 1
y y
X — TEST PILOT X
y
•:♦
£ Heimsfræg Metro Goldwyn •»•
•*• Mayer stórmynd, er á á- £
•}• hrifamikinn og spennandi •}•
♦}• hátt lýsir lífi flugmanna •<•
♦}♦ vorra daga. Aðalhlutverkin y
•!• leika:
y
$
♦}*
f
y
y
?
X
T
y
y
❖
y
Í
Clai'k Gable,
Myrna Loy og
Spencer Tracy.
Hvar cr landráðanna
að leífa?
FRAMH. AF 2. SIÐU.
Spáni. — ---En nú hafa þau al-
varlegu tíðindi gerzt, að annar að-
alstuðningsflokkur íslenzku ríkis-
stjórnarinnar hefur gengizt fyrir
almennri fjársöfnun hér á landi til
styrktar spönsku stjórninni í við-
ureigninni við uppreisnarmenn.
Það eru liðnir þrír dagar síðan
tilkynning um þessa fjársöfnun
jH*M*M*M*M*M*4«*M**«*****4*<MMM****»«*M*»***«**«*M*»**«»*******H*<l
*
%
Flokburínn
L .♦. .♦■ .♦. .♦.
•í-
t
t
•}♦
Flokkurinn okkar þarf enn fleiri
starfandi áhugasama félaga. Það
hefur ætið verið þörf en nú er nauð
syn að sameina alþýðuna til bar-
áttu fyrir bættum kjörum, og það
er fyrsta og helzta áhugamál
flokksins. Blaðið okkar vantar líka
fleiri kaupendur. Bær og ríki verja
stórfé til auglýsinga í öllum dag-
blöðum afturhaldsins, og Þjóðvilj-
anum neita þau um auglýsingar,
það er með öðrum orðum, að mínu
fé og þínu, sem greiðum skatt til
ríkis og bæjar, er varið til þess
að torvelda, að við getum gefið út
blaðið, sem segir valdhöfunum til
syndanna.
Fjöldinn allur af kaupmönnum
ver því fé sem þeir taka af mér
og þér með hagnaði af viðskiptum
okkar til þess að styrkja blöð aft-
urhaldsins, en vinna á móti blöðum
okkar. Það er rétt eins pg bær og
j) f
ríki vilji ekki skatta og utsvör frá
lesendum Þjóðviljans og kaup-
menn ekki viðskipti þeirra.
En hvað um það, flokkurinn þarf
fleiri félaga, blaðið þarf fleiri kaup
endur. Það er skylda þín félagi góð
ur að vinna að því að útvega
hvorttveggja.
*♦*♦♦*♦**♦••♦**••*♦•*♦•*♦•*♦*♦♦♦*♦•*♦•*♦*•♦•*♦**♦*•♦**•*****♦*♦•
I
y
y
Æ* F* R*
i
Æ.F.K.-stúlkur!
Saumahópurinn heldur síðasta
fund fyrir jól í kvöld kl. 8%. Áríð-
andi að allar mæti og skili brúðum
sem þær hafa heima.
stóru broti. Er þetta 6. árgangur
Ritstjórar blaðsins eru Sig. Helga-
son, Guðm. I. Guðjónsson og Stef-
án Jónsson.
Skipafréttir. Esja kom til
Raufarhafnar kl. 6 síðdegis í gær.
birtist í aðalmálgagni ríkisstjórn-
arinnar, Alþýðublaðinu, og enn hef
ur stjórnin ekki fundið ástæðu til
að grípa í taumana.
Þetta aðgerðarleysi ríkisstjóm-
arinnar er óverjandi með öllu.
hennar skylda var, að stöðva þeg-
ar í stað þetta óafsakanlega frum-
hlaup Alþýðuflokksins. Ríkis-
stjórnin getur ekki afsakað sig
með, að slík fjársöfnun hafi verið
látin óátalin í ýmsum öðmm lönd-
um t. d. Danmörku”.
Greinin endar svo:
„Þessvegna verður að krefjast
þess af íslenzku stjórninni, að hún
banni þegar í stað fjársöfnun þá:
sem Alþýðuflokkurinn gengst fyr-
ir, og geri jafnframt öflugar ráð-
stafanir til tryggingar því, að ekki
hljótist varanlegt tjón af fram-
hlaupinu”.
. 26.. ág birtir Morgunblaðið við-
tal við Herm. Jónasson, Stefán Jó-
hann (sem svarar ákaflega loðið
og skýtur sér bak við áskomn frá
II. intemasjonale til verkalýðsfé-
laga um allan heim, að styrkja
söfnun Matteottisjóðsins) og Am-
grím Kristjánsson, sem veit ekki
sitt rjúkandi ráð út af því að
„flokksbræður” hans hafa sent
stjóm Kennarasambands Islands
áskorun um söfnun, en segir í lok
viðtalsins (feitletrað af Mbl.) ■
„En annars get ég sagt yður —
— að það er mín skoðun, að ýmis-
legt liggi nær að styrkja en styrj-
öldina á Spáni”.
Aumingja Arngrimur er nú einn
af þeim er fastast ganga fram i
því að „styrkja styrjöldina” í Finn
landi.
Mbl. 27. ág. ritar enn leiðara:
„Hlutleysisbrotið”. 1 sama blaði er
4 dálka fyrirsögn:
„Engum eins áriðandi að gæta
hlutleysis gegn Spáni og Dönum
og Islendingum.
Vegna hinna miklu fjárhagslegu
hagsmuna.
— Þannig líta Danir á málið.
— íslenzku fjársöfnunina verður
að stöðva.
Greinin byrjar svo:
„Ríkisstjórnin hefur ekki enn
fundið ástæðu til að grípa í taum-
ana og stöðva hið háskalega fmm-
hlaup Alþýðuflokksins, að fara að
hefja fjársöfnun hér á landi til
styrktar spönsku stjóminni í „bar-
áttunni” við uppreisnarmenn á
Spáni, og þar með gerast aðili í
þcim ægilega hildarleik, sem þar
er háður”.
Þannig var hún, fyrir þremur
árum samúð íslenzku burgeisanna
með bágstaddri alþýðu og löglegri
lýðræðisstjórn í baráttu við óskap,
legt ofurefli innlendra og erlendra
glæpamanna! Niðurlag.
EDNA FERBER:
SVONA STOR
44.
• • •
Pervus tók steininn í lófann, deplaði augununi eins
og venjulega þegar hann halði ekki vit á einhverju.
„Hvað heldurðu að þú íengir fyrir hann? Kannske fimxn-
tíu dollara. En ég þyrfti minnsL finnn hundruð”.
„Eg á nóg Lil þess. Með því sem ég á í bankanum”.
„Jæja, við atiiuguin það næsta vor. Eg má ekkert vera
að lxugsa um það núna”.
Pað fannst Selínu léleg röksemd. En hún var nýgii'L
og ástfangin, og auk þess of óíróð um jarðyrkju til þess
að halda fast við sitt-
Draumúrinn um hvítt mál og málarabursta rættist.
Vikum saman var stórhætlulegL að setjast eða koma á
annan hátt við nokkuð það er málað varð í húsi DeJongs
Selína ætlaði líka að mála húsið að ulan með eigin liendi
en Pervus alsagði það með öllu. Hún féklc sér snotur
gluggatjöfd, og bjó út þokkalegar ábreiður á sófann í
setustofunni og klæddi seturnar i ljótu hægindastólunum
með nýju efni. Hún gerðist áskiifandi að tímariti „Hús og
heimilispi'ýði, og þau Roell þreyttusl ekki á að skoða í
því myndirnar og spjalla uixi el'ni þess. Selína kaus sér
ítalskt ski-autliýsi með breiðri vérönd, þar ætlaði hún
sjálf að standa í mjallahvítum kjól með rússneskan mjó-
hund sér við hlið. Ef fólkið á High Prairie hefði heyrt
þessar viðræður sveitakonunnar, sem alftaf gat orðið eins
og lítil stúlka og sveitadrengsins, sem eiginlega hafði ald-
rei veriS barn, hefði þaö fórxxað höndum og hrópað „og
heden” í skelfingu. En High Prairie-fólk heyrði aldrei til
þeiri'a og liefSi heldur ekki skilið hvað þau voru að fara.
Og Selína gerði ýmislegl fleira skrítið. Hún Valdi út-
skornu kistunni frá Roelf stað, þar sem Dirk hlaut að
reka augun í liana slx-ax og hann vaknaöi á moi'gnana.
Pað var fegursti hlutui'inn í eigu hennar. Hún átti líka
borðsamstæðu af gömlu postulíni. Móðir Pervusar hafði
átt það, og amma hans þar áður. Nú var farið að vanta
í hana. Á sunnudögum notaði Selína þennan borðbúnað,
hvernig sem Pervus mótmælti því. Og hún gætli þess aS
Dirk fengi aS drekka mjólkina sína úr einum af þessum
fagurlega mynduðu bollum. Pervus fannst það ganga
bi'jálæSi næst.
Selína fór á fætur klukkan fjögur á hverri nóttu- Pað
tók enga stund aS henda sér í fötin. Moi’gunvei'ður varð
að vera til handa Pervús og Jan, þegar þeir koxnu inn frá
skemmunni. Svo þurfti að taka til i húsinu, bæta, þvo,
draga á, elda mat. Hún fann upp ýmsar aSfei'öir til vinnu-
drýginda. Og hún sá greinilega aS búskapurinn á þessu
smábýli var illa rekinn, fyi'irhyggjulaust og heimskulega.
Henni þótti vænt um stóra, góða, þrjózka di'enginn sem
nú var eiginmaður hennar. En hún sá hann eins og hann
raunverufega var, óti'úlega skýrt gegnunx slæðu ástarinn-
ar. Eins og af ósjálfráSri framsýni tólc hún aS drekka í
sig allt sem hún gal um búskapinn, um garöi'æktina, um
torgsöluna. Daglegar umræöur á heimilinu urðu um þessi
mál og ekkert annaö.
Svona smábýli, tultugu og fimm ekrur af gai'Salandi,
átlu ekkert af mikilfengleik kornræktarbæjanna í Iowa,
illinois og Kansas, þar sem endalausar komekrur bylgj-
uSust svo langt sem augað eygSi. Hér var allt meS minnsta
móti. Ein ekra af þessu. Tvær ekrur af hinu. Tuttugu
hænsni. Ein kýr. Einn hestur. Tveir grisir. PaS eina, sem
nóg var af, var erfiSiS, seigdrepandi þrældómur. Selína
fann á sér, aS hér yrði hver fei'þumlungur lands aS gefa
eitthvað af sér, ef vel átti aS vera- En þai'na lá Vestur-
bletturinn, ónotaður mestan hluta ársins, og aldrei treyst-
andi. Og þaS voru engir peningar til að i-æsa liann fram
engir peningar lil aS kaupa í viSbót ágælt land, sem lá aS
honuiu. í starf Pervusar og áætlanir vantaði alveg til-
raunir til aS verjast dutllungum veöráttunnar. Parna í
vatnahéruðunum var stundum kæfandi hiti. Það nærri sauð
i moldinni, og jurtirnar spruttu svo ört aS maSur gat
haldið sig sjá þær stækka. En svo kom skyndilega iskald-
ur stormur utan af Michigan-vatni, er fór dauSahöndum
um unga gróSurinn. Pá þurfti aS hafa til vermireiti og
vax'nargrindur og ótal tilfæringar, ef verjast átti skaða.
Pervus átti næstum ekkert af slíku.