Þjóðviljinn - 01.05.1940, Side 1
V. ARGANGUft.
MIÐVIKUDAGUR 1. MAl 1940.
99. TÖLUBLAÐ
lnilr uerkanKRR
jurtr
H Hoiif!
Il
í dag — 1. maí — fylkir al-
þýðan liði um kröfur siuar.
Aldrei hefur riðið meir á ein-
ingu hennar og samheldni en
nú. Og aldrei hefur riðið meir
á einingu alþýðuæskunnar en
nú, fyrir atvinnu, irelsi og
launabótum.
I dag safnast alþýða Reykja
víkur í ciningargöngTi fyrir
kröfum Dagsbrúnar og ann-
arra verkalýðsfélaga.
Alþýðuæska!
Kröfur verkalýðsfélaganna
eru þínar kröfur.
Þessvegna sameinast þú í
einingargöngunni 1. maí.
Ungir verkamenn og konur!
Alþýðuæska Reykjavíkur!
tlt á götuna 1. maí!
Sameinizt til baráttu fyrir
atvinnu, frelsi og launabótum,
fyrir farsælli framtíð æskunn-
ar.
Framkvæmdanefnd
Æskulýðsfylkingarinnar.
ef ekkí verður sam-
íð í dag
Ekkert sahikomulag: hefur
náðst í sjómannadeilunni. tJtgerð-
armenn hafa harðnéitað að ganga
að hinum sjálfsögðu sanngirnis-
kröfuni sjómanna.
Verði engin breyting þár á í dag
hefst sjómamiaverkfail, eins og
boðað liefur' verið, á miðnætti í
riótt.'
Verklýdssínnar I
Mætið 1. maí til að taká 1.
maí-merki einingargöngunnar
" til sölu kl. 8 f. h. í Austur-
stræti 12 (skriístofu vSósíal-
istaflokksíns).
Mætið svo kl. 12,45 á skrif-
stofu Landssambands stéttar-
féiaganna, Hafnarstræti 19, til
síðasta undirbúnings hátíða-
haldanna.
Og svo öll kl. 1,45 í
Lækjargötu fyrir
fraimfn Menntaskól-
Allflr I einingarlcrfifii-
gfingn verkalýðsfélag-
anna I. maí!
Ávarp frá SðsfallstaUokkniim
Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn skorar á alla félaga sína og fylgismenn og
allt það alþýðufólk og unnendur. einingar verkalýðsins, er orð hans ná til að mæta í einingarkröfu-
göngu verklýðsfélaganna í dag 1. mai. I>að getur ekki samrýmzt flokksheiðri neins félaga í Sósíal-
istaflokknum að láta á sér standa í dag, eða láta nokkurs ófreistað til þess að gera fundinn og
gönguna sem glæsilegasta og fjölmennasta, og við treystum því einnig, að allir aðrir, sem vilja ein-
ingu verkaiýðsins leggi fram allt sitt lið til þess að svó megi verða.
Dagsbrún og önnur verklýðsfélög bæjarins, sem að einingargöngunni standa, hvetja i dag al-
þýðu bæjarins undir merki sín til þess að lýsa einróma fylgi hins vinnandi fólks í Reykjavík við eftir
farandi kröiur sem Verkamannafélagið Dagsbrún hefur einróma. samþykkt:
Margháttaðar atvinnuframkvæmdir til að bæta úr atvinnuieysinu:
Vegavinna í stórum stíl, vinnsla á mó, surtarbrandi og brúnkolum, .gatnagerð, .hafin .verði
vinna við íþróttasvæði og flugvöll, framræsla til undirbúnings jarðræktar í Ölfusi, aukning garðyrkju
landa í Reykjavík, innflutningur á minnst 10 vélbátum og hverskonar framkvæmdir aðrar, sem unnt
er að framkvæma. Verkamenn verði látnir njóta kolaviimunnar viðhöfnina.
Stríðsgróðinn verði skattlagður til þess að auka atvinnuna. Kaup verkamanna hækki
mánaðarlega* að fullu í réttu lilutfalli við dýrtíðina og verkalýðsfélögin fái aftur samningafrelsi.
Verkalýðurinn kemur einnig saman í dag til að lýsa eindregnu fylgi sínu við allar kröfur sjó-
manna.
Um öll Jiessi mál stendur verkalýðurinn óskiptur. Allt þetta hefur haim samþykkt einróma
í félögum sínum án tillits til stjórnmálaskoðana.
Hversvegna skyldi hann Jiá ekki standa sameinaður um málin í eiidngargöngunni í dag?
Aljiýðan lætur ekki rugla sig í ríminu, þó stóratvinnurekendur, liálaunameim og bitlingameiui
reyni einnig að hagnýta sér daginn, og skipta sér í tvo hópa undir skiltununt: Sjálfstæðismenn og
fulltrúaráð Alþýðusambándsins í Reykjavík.
Hver er málefnagrundvöllur Iiátekju- og hálaunamannanna, sem eru að reyna að sundra al-
Jiýðunni í dag ? •
Eins og verklýðsfélögin liafa gert sínar einróma samþykktir án tilUts .til stjórnmálaskoðana,
eins hafa hátekju- og hálaunamenriirnir gert sínar samþykktir á Alþingi, í einingu andans, án tillits til
„stjórnmálaskoðana”.
Þeir hafa skorið niður verklegar framkvæmdir um meira en þriðjung.
Þeir hafa hneppt verklýðsfélögin í fjötra og lögbóðið reglubundna lækkun á raunverulegu
kaupi verkamanna. • ! •
Þeir hafa hækkað tolla á nauðsynjavörúm um milljónir.
Þeir hafa ákveðið launahækkun fyrir hátekjumenn.
Þeir hafa bætt við sig nýjum bitlingum.
, Þeir hafa komið séi* saman um ofsóknir og atvinnukúgun gegn Jieim, sem eru.andvígir Jiess-
um gerðum Jieirá.
Og undanfarna daga Iiafa löringjar Aljiýðuflokksins og Sjálfstæðisflokksins komið sér nákvæm
lega saman um hvernig tefla skuli refskákina til áð eyðileggja einingu alþýðunnar 1. maí
Hvaða alþýðumaðui* og alþýðukona vill ganga út á götuna 1. maí i hópi Jiessara hátekju- og
hálaunainanna til að staðfesta þenna málefnasamning Jieirra?
Enginn.
Þessvegna látafþéir sér ekki nægja að ræna fiá okkur landinu og gæðiun þess, Jiessvegna láta
Jieir sér ekki nægja að sölsa undir sig arðiniu áf striti vóra og taka brauðið frá munni barnanna,
Jieir ræna Kka fánurn vorum og félagsmerkjum til Jiess að villa á sér heimildir á hátíðisdegi verka-
■ Iýðsins.
Það er eina von þeirra til að geta sundrað alþýðunni.
En við skrilum ekki láta það takast að Jiessu sinni. Við þekkjum Jiessa herra lullvel þó þeir
gangi undir fölsku flaggi.
Lofum Iiátekju- og hálaunamönnunum að sameinast um einliuga samjiykktir sínar á Alþingi.
En við aljiýðumenn og konur sameinumst í dag um einróma samþykktir okkar í verklýðsfé-
lögunum.
Allir í einingarkröfugöngun a kl. 1% í dag í LækjargÖtu fyrir framan Menntaskólann.
ar hkrr sillR helnR
i. maf!
Það væri bezta hjálpín
víð andsfæðínga eín-
ingarinnar!
Fjandmönnum einingarinnar
hefur enn einu sinni tekizt að
hindra fullkomna einingu 1. maí.
Þeir gera þetta af því að þeir ótt-
ast þann kraft, sem í verkalýðn-
um býr, ef hann stendur samein-
aður. Og þeir vænta þess að
drepa kjark verkalýðsins með því
að láta heitustu vonir hans um
einingu bregðast þannig á síðustu
stundu ár eftir ár!
En verkamenn! Einmitt þetta
má þeim ekki takast! Kjarkur
verkamannsins, trúin á. málstað
sinn og tryggðin við stéttina er
það dýrmætasta, sem verkamaður-
inri á;. Og því ætlar auðvaldið og
lymskustu erindrekar þess að
reyna að ræna verkamenn, með
því að ganga nú um og telja mönn
um tni um að allt sé vonlaust og
það 'sé bezt að sjtja heima .
Ekkert væri fjandmönnvim ein-
ingarinnar kærara en að menn
sætu heima. Til þess er einmitt
þeirra ljóti leikur leikinn.
Þessvegna — verkamenn og
verkalýðssinnar — enginn, sem
vill vinna að því að skapa einingu
verkalýðsins í hagsmuna- og frels-
isbaráttu hans, má sitja heima 1.
maí!
Mætumst öll í Lækjargötu fyrir
framau Menntaskólann kl. 1,45.
Þjóðviljinn kemur ekki út fyrr
en á laugardag vegna þess að frí
er í prentsmiðjunni i dag og á
moi’gun.