Þjóðviljinn - 12.11.1940, Blaðsíða 4
þJÓÐVILJINN
DagsbrnmarKnndnrinn
Or bopgtnnl,
Nœturlœkitir í nótt: Halldór Stef-
ánsson, Ránarg. 12, sími 2234.
Nceturvörðw er þessa viku í
Reykjavíkurapóteki og Lyfjabúðinni
Iðoinni.
'Jóhannes Björjisson lceknir veitir
sjúklingum inóttöku á lækni'ngastofu
sinni í Uppsölum. Viðtalstími kl.
121/2—2 daglega.
Fólacf til hjálpar löimðu fólki
verður stofnað í kvöld með fundi
i Kaupþingssalnum, sem liefst kl.
81/2* Er hér um gott ínálefni að
ræða, og ættu sem flestir að gerast
meðlimir félagsins eða leggja því
lið á annan hátt.
ölafur Jóhannsspn lœknir tekur
á móti sjúklingum í lækniingastof-
íunni í Kirkjustræti 10. Viðtalstími
kl. 5—6 siðdegis.
ptixirpið dag:
12,00 Hádegisútvarp.
• 15,30 Miðdegisútvarp.
19,25 Hljómplötur: Norsk þjóðlög.
19,50 Auglýsingar.
20,00 Fréttir.
20,30 Kvöldvaka:
2150 Fréttir.
a) Knútur Arngrimsson kennari:
Borgir á miðöldum. Erindi.
h) 21,15 Frú Elinborg Lárusdóttir:
Upplestur úr „Förumönnum“ 3.
bindi.
d) 21,35 Sigurður Einarsson dós
ent: „Fyrstu árin“. Kafli úr bók
Guðrúnar Jónsdóttur frá Prests
bakka.
e) íslenzk sönglög.
Brezkir hermenn björguða ixirni
frá drukknun s. 1. sunnudag. Var
margt manna á skautum á tjörr,-
inni, en ísinn veikur. Datt barn nið
ur um hann og við björgunartil-
raunir brotnaði ísiinn meira og
'meira í kring neiir og meir. Fleygðu
brezkir hermenn, er þarna voru,
Sér á ísinn til að skríða í áttina
til barnsins, en ísinn brotnaði. Fóru
þeir fyrst í :kaf, en tókst síðan að
bjarga barninu og sýndu við það
snarræði og fórnfýsi, sem þakka
ber.
Ármenningar: Fim leik a æ fin gar
verða í kvöld hjá eftirtöldum flokk
wnl í Iþróttahúsinu:
Niðri: kl. 7—8 handknattleikur
kvenna; kl. 8—9 skiðaleikfimi og
frjálsar iþróttir; 9—10 Old Boys.
Uppi: kl. 8-9 I. fl. karla, 9-10
2. fl. karla.
NEesti skemmtifundur félagsins
verður á miðvikudag í Oddfellow
húsinu.
Slysfadrnar um helgína
Framhald af'1. sfðu.
hefði lent á boðumf í Húnaflóa, en
þeir eru margir og ekki allir merkt
ir á kortinu.
Súðin og Óðinn lágu bæði á Horn
vik þessa óveðursnótt og hófu þau
þegar leit að bátnum, ennfremur
tók Ægir þátt i leitmni.
Framhald af 1. síðu.
sem ásamt félagsstjórn undir-
byggi grundvöll aö kaupkröf-
um fyrir Dagsbrún, en legði
svo þennan grundvöll fyrir
Dagsbrúnarfund, sem tæki á-
kvörðun í málinu og kysi sér
samninganefnd.
Um tillögu stjórnarinnar er
þaö aö segja, aö hún var fyrir-
fram dauðadæmd eins og hver
önnur vitleysa. Á tillögu GuÖ-
mundar Ó, var sá ljóður, að
hún lagði of mikið vald í hend
ur nefndarinnar aö svo komnu
máli og vitað var, aö hann
hafði samið við stjórnina um
að tryggja henni meirihluta í
nefndinni með kosningabanda
lagi.
Tillaga Hallgríms Hallgríms
sonar fjallaði aðeins um und-
nefndin gat notiö aögangs aö
irbúning málsins, þar sem
ýmsum nauösynlegum gögn-
um stjórnarinnar í starfi sínu;
greiðfær og rökrétt afgreiðsla
málsins, í staö þess að blanda
saman samningaþófi viö at-
vinnurekendur og rannsókn,
sem afstaða væntanlegrar
samninganefndar átti að
byggjast á.
Tillaga þessi hlaut því að ná
samþykki fundarmanna, ef
fundurinn hefði fengið aö
ganga sinn eðlilega gang.
En hinn kjörni stjórnarand-
stæöingur, Gvendur Ó, hafði
allt í einu séö sig um hönd, og
lýsti því yfir, að hann tæki
sína fyrri tillögu aftur. Bar
hann fram nýja tillögu þess
efnis, aö sett yrði á laggirnar
5 manna samninganefnd, 3
þessara nefndarmanna yrðu
skipaðir af félagsstjórn, en 2
kosnir af fundinum. — Leyndi
það sér ekki á hljóðinu 1 stjórn
arliðinu að samkomulag hafði
náðst við Gvend, enda dróg
stjórnin hina fyrri tillögu sína
til baka.
Eftir venjulegum fundar-
reglum átti tillaga Hallgríms,
sem fyrir lá og engin önnur
frá fyrri hluta fundarins, að
berast upp fyrst, en fundar-
stjóri sinnti því engu þrátt
fyrir athugasemdir og mót-
mæli fundarmanna og bar upp
tillögu Gvendar og Co. á und-
an tillögu Hallgríms.
Fylgdist hér aö allt í senn:
leikni þingforsetans sem at-
vinnumanns í því að villa
mönnum sýn og flækja mál,
blygðunarlaus óskammfeilni í
óleyfilegum fundarbrögðum
ásamt fullkominni einingu
afturhaldsaflanna og Héðins-
klíkunnar, sem varð þess
valdandi að fundarstjórinn úr-
skurðaöi tillögu Gvendar og
Co. samþykkta eftir að óljós
og hikkennd atkvæðagreiðsla
hafði farið fram.
Svo mikill uggur var þó l
þessari nýju þjóðstjórnarsam-
steypu við vinstri öflin á þess-
um fundi, aö þeir treystust
ekki til annars en að stinga
upp á sósíalistanum Sigurði
Guðnasyni, sem öðrum þess-
ara tveggja manna, sem firnd-
urinn átti að kjósa í nefndina.
Varö hann sjálfkjörinn þar eð
vinstri menn höfðu einnig
stungið upp á honum. Kosn-
ing fór fram á milli Jóns
Rafnssonar sem vinstri menn
stilltu upp og Jóns Guðlaugs-
sonar, sem hiö sameinaða aft-
urhald stillti upp til að veiða
atkvæði vinstri manna, en
tókst það þó ekki betur en svo,
að listi hins sameinaða aftur-
halds fékk 18l atkv. gegn 159
atkv. þ. e. sigraði með aðeins
22 atkvæðum.
Á bátnuin voru 5 menn, þar á
meðal J6n Sigurðsson frá Hr.'sey
vélstjóri, en hann hafði áður átt
bátinn en selt hann tíl Hafnarfjarð
arr, og var iiaim á leið ineð hann
til hinna nýju eigenda.
Þegar hér var komiö sögu
lýsti fundarstjórinn því yfir aö
hann mundi taka fyrir félags-
málin, í stað þess að taka fyr-
ir næsta mál, sem var Breta-
vinnan. Frá félagsmálunum
var horfið á fyrri hluta fund-
arins, 27. okt. sl. — með þeim
hætti að Jón Rafnsson lagði
til að málinu um sjóðþurröina
og önnur mestu hneykslismál
félagsstjórnarinnar yrði frest-
að þar til fundurinn hefði af-
greitt hin mest aðkallandi úr-
lausnarefni félagsins, svo sem
kaupgjaldsmáliö o. fl. — Tví-
mælalaust er það þessari lausn
að þakka, að samningum er
nú búið að segja upp fyrir lög-
ákveðinn tíma og Dagsbrún
sat ekki uppi með sinn gamla
taxta (kr. 1,45) 1 það minnsta
þrem mánuðum lengur en
flest önnur verklýösfélög lands
ins og varð ekki eftirbátur ann
arra félaga. En þetta vakti
fyrir fulltrúum atvinnurekend
anna með því að farið yrði að
rótast í hinu botnlausa spill-
ingarfeni félagsstjórnarinnar í
stað þess að afgreiða kaup-
gjaldsmálin fyrir 1. nóv. — En
Guðm. Ó. var einn þeirra
manna, sem tók þessa afstöðu
með fulltrúum atvinnurek-
enda.
En nú brá svo við undir dag
skrárliðnum félagsmál, er
ræöa skyldi tillögu frá Egg-
ert Þorbjarnarsyni um að fé-
lagið héldi sér við samþykkt
sína um að félagiö héldi sér
við samþykkt sína um brott-
vikningu sexmenninganna
frægu, 11. nóv. 1938, sem Guð-
mundur sjálfur sótti manna
fastast að fá út úr félaginu þá,
að þessi sami maöur rauk upp
með tillögu þess efnis, að til-
lögu Eggerts yrði vísaö frá án
umræðu.
Héldust nú aftur í hendur
óskammfeilni fundarstjóra og
samheldni stjórnarklíkunnar
um tillögu Gvendar. Þrátt fyr-
ir eindregin mótmæli fjölda
fundarmanna, er skildu hvað
hér var á feröinni, bannaði
Haraldur umræður um máliö.
— í þessu glundroöa ástandi
bar hann upp tillöguna, At- |
kvæöagreiðsla var strjál og
hikandi, en þó sýnilegur mun-
ur tillögunni í óhag. — Nokk-
ur orð hrutu enn af vörum
fundarstjóra til aö rugla fund-
armenn og síðan kom skipun
um að telja atkvæði. Talninga
menn, sem undir svona kring-
umstæðum gátu naumast
rækt starf sitt, þó samvizku-
samur vilji hefði verið fyrir
hendi, gáfu upp einhverjar
álíka háar tölur, sem Haraldur
hikaði ekki við að úrskurða
Gvend, stjórninni og sexmenn-
ingunum í vil.- Á meðan þessu
íór fram dundu stöðugt á
fundarstjóranum áskoranir
um leynilega atkvæöagreiðslu
og að málið fengi aö ræðast,
en allt kom fyrir ekki.
Það var ekki um villzt, að
hér hafði verið leikið að tjalda
baki svívirðilegt laumuspil af
hálfu atvinnurekendavaldsins
í Dagsbrún, þar sem Gvendi Ó
var falið hlutverk þjónsins til
að blekkja í svipinn heiðarlega
vinstri menn, í félaginu og að
þessi óvenju svíviröilega mis-
þyrming fundarskapa og lýð-
ræðis á fundinum, var til þess
gerö, að hleypa fundinum upp
áður en tími gæfist til þess að
taka fyrir sjóðþurrðarmálið,
þjófnaðinn mikla í sambandi
við útborgun vinnulauna i
Bretavinnunni og önnur sam-
eiginleg hneykslismál þeirra,
sem nú drottna í Dagsbrún.
Þetta sannast bezt á því, að
Haraldur Guðmundsson skyldi
slíta fundi eftir að þessi snögg
legi ys, sem varð í salnum af
lians völdum, v&r liðinn hjá og
fullkomin kyrrð komin á, sem
mest var að þakka stillingu og
aðvörunum sósíalista til fund-
armanna.
Þessum eftirminnilega Dags
brúnarfundi lauk með því að
Haraldur Guömundsson og fé-
lagsstjórnin tóku saman pjönk
ur sínar og runnu á dyr meö
Gvend Ó með sér eins og hund
í bandi.
Um það bil % fundarmanna
sátu stundarkorn kyrrir í
bekkjum og samþykktu ein-
róma haröorð mótmæli gegn
athæfi fundarstjóra og félags-
stjórnar ásamt kröfu um að
halda félagsfund eigi síðar en
að viku liðinni til að leiðrétta
og bæta fyrir gerræðið.
Hið lærdómsríkasta frá þess
Happdrættíð
Framhaid af 3. síðu.
16357 (500), 16337, 16502, 16514,
16631, 16634, 16688, 16750 (200),
16785, 16844, 16949, 16956 (200),
16980, 17151, 17172, 17215, 17256
(1000), 17291, 17321 (200), 17325,
17323, 17355, 17439, 17447, 17498,
17512, 17612, 17619, 17702, 17727,
17819,M7827, 17873, 17893, 17906,
17924, 17960, 18044, 18105, 18157,
18192 (200), 18273, 18375. 18385,
18424, 18489, 18516, 18535, 18539,
18560, 18575, 18641, 18652, 18668,
18694, 18793, 18794, 18878, 18933,
18970, 18996, 19045, 19105, 19114,
19160, 19162, 19246, 19282, 19366,
19497, 19543, 19545, 19558, 19587
(1000), 19694, 19797, 19818, 19824,
19832, 19927, 19932, 19940, 19977,
20004, 20041, 20096, 20104, 20146,
20184, 20221, 20255, 20307, 20308,
20313 (200), 20320 (200), 20347,
20423, 20441 (200), 20490, 20503
20604, 20715. 20757, 20792 (200),
20870, 20923, 21246, 21262 (200),
21300 (200), 21310 (200), 21341,
21345, 21383 (200), 21480, 21540,
21554, 21557 (200), 21583, 21609,
21619 (200), 21630, 21643, 21840,
21979, 22006, 22044, 22084, 22109,
22352, 22400, 22515, 22536, 22692,
22715, 22803, 22856, 22930 (200),
22961, 22988. 23123, 23133, 23139,
23153, 23155, 23162, 23178, 23298,
23255, 23300, 23312 (25000), 23375,
23523, 23604 (200), 23614, 23638,
23647, 23663, 23680, 23883, 23924,
23960, 24051, 24151 (500), 24160,
24179, 24185, 24200, 24246 (1000),
24303 (500), 24366, 24420, 24442,
24456, 24493, 24588, 24656, 24745,
24950 (200). (Birt án ábyrgðar).
um fundi eru þau sannindi, aö
Kveldúlfsklíkan, stríðsgróöa-
mennirnir og þjóðstjórnarlið-
ið, sem stjórnað hefur stærstu
verklýðsfélagi landsins á yfir-
standandi ári með þeim end-
emum, er seint munu fyrnast,
er nú að setja á stokkana nýja
Skjaldborg, sem á að verða
þeim stoð og stytta innan fé-
lagsins í þeim hungurárásum,
sem íslenzk atvinnurekenda-
stétt undirbýr nú á hendur al-
þýðunni. — Þjónn Héðins,
Gvendur Ó, er persónugerfing-
ur þeirrar Skjaldborgar.
Vinstri menn, lýðræðissinn-
ar, sannir einingarvinir innan
Dagsbrúnar! Verið á verði!
Gefið börnunum
lýsl
Kaldhreinað þorskalýsi:
1/1 fl. 1.85 innihald
1/2 fl. 0.95 innihald
Með piparmyntubragði:
1/1 fl. 2.10 innihald
1/2 fl. 1.05 innihald
(ökaupíélaqiá
/