Þjóðviljinn - 21.12.1940, Page 4
Næturlæknir í nótt: Kristín
Ólafsdóttir, Ingólfsstræti 14,
sími 2161.
Útvarpið í dag:
19.25 Hljómplötur: Kórlög.
20.30 Leikrit: “Að deyja”, eftir
Jónas Baldursson.
21.15 Útvarpshljómsveitinleik-
ur jólalög.
Da gsbrúnarkjoirst jótrnín
Framh. af 1. síðu.
Meirihluti kjörstjórnar lítursvo
á, að þar sem hún hefur þegar
skipað í stjórnir kjördeilda þann-
ig, að öll þau sjónarmið, sem
komið geta til greina við atkvæða
greiðslu um tillögurnar eigi mál-
svara á kjörstað, sé ástæðulaust
að verða við tilmælum bréfritara
um að hafa þar fulltrúa.
Þetta tilkynnist yður hér með.
Með félagskveðju.
Kjörstjórn Dagsbrúnar.
Þþð vekur athygli í sambandi
við þetta bréf, að kjörstjórnin
hefur ekki verið á eitt sátt um
málið, auðvitað hefur Haraldur
Guðmundsson ráðið gerðum
meirihlutans. Þá er þess að gæta
að í bréfinu er talað um „þau
sjónarmið, sem komið geta til
greina við atkvæðagreiðsiuna“,
það þýðir auðvitað að viss ajónar
mið fá ekki að koma þar til
greina, og er það í fullu sam-
ræmi við þá yfirlýsingu, sem Har
aldur Guðmundsson gaf á fundi
trúnaðarráðs, er hann lýsti því
yfir, að verkamönnum kæmufjár
reiður AJþýðusambandsins ekk-
ert við. Þarna kom sem segt fram
hin alkunnu einræðis og fasista
sjónarmið Skjaldborgarinnar.
Verkamenn suara peim með pví
að segja nei við príðju spuming-
mni.
Sfurlungaöldísi
Framh. af 2. síðu.
ingur verði ósigrandi hjá henni
sjálfri, þoki ekki um fet undan
manngildishieypidómum brodd-
borgara og eftirlíkingum lélegra
yfirstéttartegunda.
Margbreytt rök í ritinu sýna
það, að hrun þjóðveldisins forna
fyrir gráðugum höfðingjaklíkum
12.—13. aldar og síðan konungs
valdinu stafaði ekki af smámun-
um eins og lauslæti, rómantískum
áhrifum eða jafnvel blóðsút-
hellingum aldarinnar (smámunir
móts við mannskaða okkþ|r í sjó),
heldur af djúptækri óheillaþróun
höfðingjavalds og síðan kirkju
og loks af hnignun á frelsi og
efnahag almennings. „Karl í
Garðshorni" verður úr því alþýðu
týpan, sem rnest ber á í liók-
menntum, og þjóðfélagsbreyting-
in upprætir eða lamar manngildis
skilning íslendingasagna.
„Sturlungaöld“ verður bók til
hliðsjónar við nútíðina. Endur-
reisnarbókmenntir þeirrar aldar
verða að gagni í endurreisn nú-
tíðar oig framtíðar og það á fleiri
vegu en menn dreymir almennt
um. En sagan af hruni 13. aldar
sýnir einnig að ytri þjóðfélags-
skilyrði þurfa að batna, en ekki
versna, til þess að endurreisnar
bókmenntir nái tilganginum í
samtíð sinni.
B. S.
Greín Halldórs
Péfurssonar
Framhald af 1. síðu.
við séum taldir með þjóðinni og
þessvegna segjum við já við þvi
að okkar kaupgjald komist á
sem réttastan grundvöll og hægt
er. Frá mínu sjónarmiði er önnur
spurningin lokleysa, sem verður
að svara neitandi. En það, sem
ég vildi segja er það, að Dags
brún á að ganga í Alþýðusam-
bandið nú þegar og öll verkalýðs
félög ,sem utan við það standa
og þetta er einmitt einn stærsti
liðurinn í kaupgjaldsmálunum nú
sem stendur.
Og ég hika ekki við að segja,
að sá sem vill annað, hefur ekki
hugsað þetta mál ofan í kjölinn,
eða hann hefur aðra hagsmuni
fyrir augum en verkamanna.
Afltaug verkalýðssamtakanna
er að þau séu óskipt; í einu alls
herjar s ambandi.
Látið ekki glepjast af kjaftæði
og aukaatriðum, sem er og verð-
ur þyrlað upp um þetta mál. Ég
veit að það er enginn vandi að
benda á vankanta á stjóm Al-
þýðusambandsins og meðferð á
eignum þess, en mér er spurn, til
hvers er að standa æpandi og
bölvandi utan við það?
Þegar ég var unglingur, þá
kom ég einu sinni þar að sem
drengur var að sækja hryssu í
haga. En merin var svo ramm
stöð að hún gekk ekkert, nema
þá aftur á bak. Drengurinn lamd
ist um og var farinn að gráta. Ég
blandaði mér ekki annaðj í málið
í fyrstu en að bölva merinni, en
þá sagði drengurinn: Það er ekki
til neins að bölva henni, ég er
búinn að rnarg reyna það. Ég hef
aldrei getað gleymt þessu svari
og þeirri lífsspaki sem í þyí felst.
Sannleikurinn er alltaf sá sami
það þarf að gera hlutimai í veru-
leikanum. Þeir sem æpa um eigna
missi verklýðsfélaganna og vonda
stjórn Alþýðusambandsins eiga
(að ganga í það og koma þessu í
lag, annars verður það ekki gert
hvað mikið sem skammazt verður
og bölvað. Þrjú stærstu verkalýðs
félög landsins, Dagsbrún, Þróttur
og Hlíf eiga að geta knúið sín
stefnumál fram ef þeirn er al-
vara með það. Þetta verður ekki
gert án þess að laga vankant-
ana, utan þess að félögin gangi
Skemmfaníir Brefanna
Framhald af 1. síðu.
ber að stöðva þessar jólaskemmt-
anir Bretanna, með því að banna
börnum að sækja þær, en um
leið verða þau að sjá til þess, að
öll börn, fátæk jafnt sem rik,
eigi kost á því að gleðja sig um
jólin, á skemmtunum sem haldn-
ar eru af íslendingum.
Mjaðveíg Mánadóffír
Framhald af 2. síðu.
þær nálgist sem mest skilning
nútímabarna.
Það er auðséð á barnabókaút-
gáfunni f haust að skilningur
útgefenda á því hvílíkar auðlind-
ir þjóðsögurnar eru, er mjög að
aukast.
Þetta æfintýri um Mjaðveigu
Mánadóttur, sem Guðjón Ó. Guð-
jónsson hefur nú gefið út, er eitt
virðingarvert spor í rétta átt. B
Saian af Olafi Hðrasani bjisBíkini er
stætrsia iístaverk i íslenzkum
núfima bókmennfum*
Slguióur Sflorc/al ftró/essor segir um
hóhina :
„Eg er stundum í vafa um, hvort nokkur núiífandí skáld-
sagnahöfundur, sem ég þekkí tíl, hefur ríkarí eða fjöl-
breyttarí hæfíleíka tíl brunns að bera“
E( fíf vill verdur engínn Lfósvíkíngur
fff effír jólín.
Inn í Alþýðusambandið og heitati
sinn rétt. Það eru auðvitað við
sjálfir, sem eigum að ná þessu
sem við þykjumst hafa verið
sviptir. Og hver ætti eiginlega að
gera það annar, kannske þeir
sem settu þvingunarlögin, vinau
dómana eða þá sem standa að
visitölunni.
Nei, við skulum ekkert vera
að grínast með þetta, það geta
aldrei orðið aðrir en við, ef það
á að gerast, því svo aðeins getum
við byggt upp trú okkar á aðra
menn og samband okkar við þá,
að við treystun; okkur sjálfir til
að leggja okkar skerf til þess er
gera skal.
Um síðustu spurninguna vil ég
segja það eitt, að óg held að það
sé alger villa að verkamenn reki
hverjir aðra úr verkamannafélög
um. Ef menn gerast brotlegir við
félagslögin þá verður að finna
önnur ráð, sem duga, en um
]iað mál skal ekki rætt að sinni.
i Verkalýðsfélögin og samtök
okkar eru eins og brennandi hús,
þar sem aleiga okkar er inni. Eng
inn, sem veit aleigu sína og fram
tíðarvonir þar inni má hika við
að ganga í eldinn og bjarga því
sem bjargað verður. Körorð okk-
iir í þessari atkvæðagreiðslu eru
því þessi:
Kaupgjald okkar í fullu sam-
ræmi við dýrtíðina og Dagsbrún
Hnn í Alþýðusambandið nú þegar.
Enginn má vera hlutlaus í
þeirri kaupgjaldsbaráttu, sem nú
er framundan. Undir merki eins
allsherjarsambands munurn við
vinna sigur, — glæsilegan sig-
ur.
Halldór Pétursson.
SVANA KAFFI
ættuð þér að reyna.
Járnsmiðir.
Allsherjaratkvæðagreiðslan vegna samninganna heldur
áfram í dag á skrifstofu félagsins í Kirkjuhvoli, frá kl. 10—
22 og á morgun á sama tíma,
STJÓRNIN.