Þjóðviljinn - 10.01.1941, Side 1
VI. árgangur.
Föstudagur 10. janúar 1941.
7 tölublað.
RauOha, Bpana, Haupfél. SiulufjarOap oo | Handtllhllllllli fjölyi
Sjótncnn eínhugaum fejarabófahrötur sínar
f
Iðjja á fundum með sáffasemjara. — ,Bald-
ur' á Isafírðí fær nokfera kauphækkun
Allsherjaratkvæðagreiðslunni í “Þrótti” verður lokið um
miðnætti í nótt. Þátttaka í atkvæöagreiðslunni var mjög góö.
Verksmiðjustjórn Rauðkuog Gránu, Kaupfélag .Siglu-
fjarðar og Siglufjaröarbær'hafa í dag gengið að taxta Þrótt-
ar. Ágæt stemning með verkamönnum.
Fréttaritari.
Verkfall togarasjómanna
nær nú til um 13 togara. Kröf-
ur þær, sem sjómenn gera, eru
að þeir fái dýrtíðaruppbót á
öll laun, fái 6L/< hækkun á öll
laun, er greidd voru 1940 og að
fyrir lifrarfatið séu greiddar
100 kr. í stað 28—35 króna
eins og greitt hefur verið sl. ár,
,Þá er og krafizt lengra sumar-
frís og ennfremur þess að kynd
arar hafi ekki lægra kaup en
hásetar, en eins og kunnugt er
hafa kyndarar orðið illa út-
undan í samningum sjómanna
félaganna og orðið því fyrir
misrétti í kaupgreiöslu.
Það mun mál manna, að
minni en þetta megi kröfur
Yíirlýsíng
Ég vil leyfa mér í sam-
bandi við undirritun samnings
ins milli Vinnuveitendafélags-
ins oig Dagsbrúnar að taka
þetta fram:
1. Samninganefnd Vinnuveit
endafélagsins hefur viður-
kennt, að ég var mótfallinu
því að grunntaxtinn héldist ó-
breyttur, það er því ekki rétt,
sem sáttasemjari, Björn Þörð-
arson segir í bréfi sínu til
Dagsbrúnar, að nefndin nafi
fyrir sitt leyti gengið að tilLög-
unni, og er því krafa sátta-
semjara um allsherjaratkvæða
greiðslu byggð á röngum for-
jendum.
2. Ég álít það með öllu ó-
löglegt að stjórn félagsins
láti tillögu, sem felld er á
lögmætum félagsfundi ganga
til allsherjaratkvæðagreiðslu.
Af þessum ástæðum gat ég
ekki sem samningsnefndarmað
ur Dagsbrúnar undirskrifað
samninginn við Vdnnuveitenda
féLagið.
Sigurður Guðnason.
sjómanna ekki vera og myndu
vafalaust hafa veriö haröari, ef
sjómenn sem heild hefðu staö-
iö aö þeim. — En því ósvífn-
ara er það, aö togaraeigendur
skuli ekki tafarlaust ganga að
þessum mjög svo hóflegu kröf-
um, sem sjómannafélögin hafa
sett fram.
Fulltrúar Iðju sátu á fundi
með sáttasemjara ríkisins síð-
degis í gær og aftur í gær-
kvöld.
Verklýösfélagiö Baldur á ísa
firði gerði í fyrradag samning
við þá atvinnurekendur á ísa-
firði, sem eru utan Vinnuveit-
endafélagsins. Fá verkamenn
“fulla dýrtíðaruppbót”, grunn-
kaup viö almenna vinnu hækk
ar um 5 aura á klst., en einnig
við ísfisk um 20 aura almennt
og veröur það sama hvort sem
er aö nótt eða degi. VirÖist
þetta síöastnefnda undarleg
ráðstöfun.
Guðbrandur Guðmundsson og lík~
le$a annar maður íeknír af Brefum
Hvað er nú orðíð um réffaröryggí
híns isleneka borgara?
" EINKASKEYTI TIL ÞJÓÐV. SIGLUFIRÐI í GÆRKV.
I gær tóku Bretar Guðbrand Guðmundsson Bergþóru-
götu 15 fastan. Guðbrandur er einn af ötulustu Dagsbrún-
arverkamönnum í hinni stéttarlegu baráttu.
Altalað var að þeir hefðu tekið annan mann, en ekki
liefur Þjóðviljinn fengið það staðfest, en allar líkur benda til
að fregnin sé sönn.
Nú er svo komiö að Bretar,
sem komnir eru hingað til þess
að „vernda rétt einstaklingsins"
lýðræðið og hina smáu, varnar-
lausu þjóð okkar hafa 9 Is-
lendinga í haldi, án þess að ís-
lenzkir dómarar hafi fengið að
fjalla um mál þeirra.
Nær allir eða allir hafa þess-
ir menn verið teknir án þess að
réttlætanlegar ástæður væru fyr-
ir hendi.
Menn spyrja hvert stefnir?
Uppreisnarhreyfing Abessiníumanna
gegn Itölum færist í aukana
Italir eiga nú mjög í vök að verjast í Afríkunýlendum
sínum. Bretar halda uppi öflugri sókn í Líbýu og hafa nú
einnig hafið hernaðaraðgerðir á landamærum Súdan. í Ab-
essiníu magnast uppreisnarhreyfing íbúanna, og vinna þeir
ítölum hvert það tjón, er þeir geta.
Brezka útvarpið skýrði svo frá í gær, að uppi’eisnarhreyf-
ingin meðal Abessinumanna yrði stöðugt víðtækari og yrði
ítölum með hverjum degi hættulegri. Fram til þessa hafa
skæruflokkar jAbessiníumanna einkum ráðizt á afskekktar
landamærastöðvar, þar sem ítalir hafa haft fámennt setulið,
og á flutningalestir. En nú virðast skæruhóparnir vera farn-
ir að notfæra sér loftárásir Breta á herstöðvar ítala í Abessi-
níu, og haga árásum sínum í samræmi við þær. Hafa ítalir
orðið að flytja lið sitt burt úrýmsum hernaðarlega þýðing-
arnxiklum stöðvum inni í landinu, þar á meðal Guba, sem er
um 160 km. frá landamærunum.
í hernaðártilkynningum Breta
frá Kairo í gær segir, að undir
búningur að árás á Tobruk far
stöðugt fram, en brezkar véla
sveitir hafi sótt fram um 50
km. vestur af borginni, sem orð
in er innikróuð.
Undirbúningur árásarinnar er
fyrst og fremst fólginn í tilraun
um brezka flughersins til að lamai
flugher andstæðinganna, skemma
varnarvirki borgarinnar og drag;
úr viðnámsþrótti setuliðsins.
Brezkar sprengjuflugvélar hafá
þó undanfarna sólarhringa varp-
að sprengjum á allar þýðingar-
mestiu flughafnir Itala í Austur-
Líbýu og víða tekizt að valda
niiklu tjóni. Bengasi, ein þýð-
ingarmesta hernaðarstöð Itala,
um 400 km. vestur af Tobruk,
varð fyrir mjöig harðri loftárás
í fyrrinótt, og eyðilögðust skip
á þöfninni og mikið af húsum
í borginni. Brezkar sprengjuflug
vélar hafa einnig ráðizt á Mass-
awa kafbátabækistöð ítala í Eri-
trea og fleiri borgir í Austur-
Afríku.
Bretar leggja milda áherzlu á
þýðingu loftárásanna í sókninni
á Líbýu. ítalskir fangar, sem
teknir voru í Bardia, hafa skýrt
svO' frá, að hinar stöðugu loftá-
rásir Breta á þá borg hafi haft
mjög mikil áhrif í þá átt að veikja
mótstöðukraft sétuliðsins, og
þannig óbeint flýtt fyrir falli
bo,rgarinnar, jafnframt því að
sprengjurnar skemmdu og eyði-
lögðu ýms helztu mannvirki
borgarinnar.
Síðustu sólarhringa vikunnar,
sem leið bar lítið á mótspyrnu
af hálfu ítalskra flugvéla. Á
sunnudaginn létu þær mikið til
sín taka, en síðan hefur aftur
dregið úr aðgeröum þeirra.
Geta menn ekki búizt við að þeir
verði heimsóttir einhvern daglnn
og þeim gefið að sök, að þeir
hafi verið að fikta við leyni-
stöðvar, eða að þeir hafi á einn
eða annan hátt verið riðnir við
einhverja flugmiða. Og hvað er
þá orðið um réttaröryggi ís-
lenzkra borgara?
Það svíviröil'Qgasta í þessu rnáli
er að íslenzkir menn hafa gerzt
til þess að leiða grun að löndum
sínum, vitandi vel að það mundi
leiða til þess að þeir yrðu hand
teknir. Sem betur fer hiefur ís-
lenzk tunga aldrei þurft á því oð
halda að velja slíku athæfi nafn.
Þá er og talið að brezkir „heim
ilisvinir" hafi launað greiða og
gott atlæti með því að vekja
grunsemdir Breta á þeirn, sem
gerast svo fávísir að hleypa þeim
inn á heimili sín. Framkoma
Breta gagnvart íslenzkum heim-
ilum er kapítuli út af fyrir sig,
sem ekki skal rakinn að þessu
sinni.
Fjárhagsáætlun bæjarlns tíl
fyrstu umrædu á fundí ígær
Bæjarstjórnarfundur hófst
kl. 5 í gær.
Fyrsta mál var kosning borg
arstjóra. Bjarni Benediktsson
var kosinn borgarstjóri með 8
atkvæðum. 6 seðlar voru auð-
ir.
Samþykkt var að mæla með
því að Helga M. Níelsdóttir fái
leyfi til gistihússreksturs og að
Guðm, Kr. Guðmundsson,
Njarðargötu 39, eigendur
Gamla Bíós og Eggert Ólafs-
son, Baldursgötu 5, fái veít-
ingaleyfi.
Því næst hófust UmræðUr
um fjárhagsáætlun bæjarins
1941, fyrsta umræöa. FlUtti
Bjarni borgarstjóri Benedikts-
son langa og ýtarlega fram-
söguræðú, til að skýra helztú
breytingar lá frumvarpinu frá
síðustu fjárhagsáætlun. Kvað
hann fátækraframfæri hafa
minnkaö á síðasta ári og gjöld
innheimzt með allra bezta
móti, en ekki væri samt gengið
út frá að það sama yrði á hinu
nýbyrjaða ári.
En eins og venja er fara um-
ræðurnar um fjái’hagsáætlun-
na ekki fram í raun og veru
fyrr en viö áframhald 2. um-
ræðu eftir að breytingatillög-
ur bæjarfulltrúa eru komnar
fram.
Var frumvarpinu síðan vls-
aö til 2. umræðu.
Þá var tekið fyrir frumvarp
að fjárhagsáætlun hafnarinn-
ar og sætti hún samskonar
meðferö.
Næsti bæjarstjórnarfundur
verður eftir viku, en endanleg-
ar umræður og afgreiðsla fjár-
hagsáætlunar mun ekki fara
fram fyrr en síöast í mánuðin-
um.