Þjóðviljinn - 19.02.1941, Síða 1
VI. árgangur. Miðvikudagur 19. febrúar 1941 41. tölublaö.
Það dugatr cbkí að láta nýja hertðku koma
þjóð vorrí og öðrum þjóðum að óvörum
Frásagnir Þjóðviljans um afstöðu Bandaríkjanna til ís-
lands og hættuna á því að þau færu að seilast til raunveru-
legra yfirráða hér, hafa að vonum vakið mikla athygli allra
þeirra íslendinga, sem láta sig frelsi og framtíð þjóðarinnar
nokkru varða.
Tilmæli munu hafa borizt frá stjórn Bandaríkjanna,
þar sem látin er í ljós ósk um það aö Ísland beiðist verndar
þeirra. Minnir slíkt mjög á tilmæli Bretastjórnar 9. apríl, er
Lún vildi fá ísland í hernaðar-bandalag við sig, — en hótaði
raunverulega að hertaka landið ella.
Ef nú skyldu vera komin á-
líka tilmæli og hótanir frá
Bandaríkjastjórn, þá er það al-
veg óverjandi af ríkisstjórninni
að skýra ekki þjóðinni, eða að
minnsta kosti Alþingi frá því.
hvað sé að gerast, svo þá þing-
ið a. m. k. á löglegan hátt geti
tekið afstöðu í slíku «:stórmáli
sem þessu, málinu, sem ef til
vill er örlagaríkasta mál, sem
Alþingi nokkurn tíma hefur
rætt.
Það verður ekki öðru trúað
að óreyndu, en að yfirgnæf-
andi meirihluti þingmanna
myndi, ef þeir tækju ákvöröun
sína svo að segja frammi fyrir
augliti þjóðarinnar, taka al-
gjöra afstöðu gegn því að óska
<eftir vernd Bandaríkjanna.
Og þá þarf slík afstaða ís-
HHHarMi
hata lalast shta ao
shirO tssr aillllio-
ir snOlesta
Bretar tilkynna að síðan 7.
jan. hafi þeir sökkt skipum
fyrir Þjóðverjum og ítölum
með samtals 257 þúsund smá-
lesta buröarmagni. En frá
byrjun ófriðarins hafi Bretar
sökkt skipum eöa hertekiö sem
séu um 2 milljónir smálesta aö
stærð.
Bretar misstu vikuna; sem
endaöi 9. febrúar, skip með
samtals um 30 þúsund tonna
burðarmagni. Þar af voru 9
brezk skip, 19 þús. smálestir
að stærð, en 4 eign banda-
manna Breta, um 10500 smál.
lands að koma fram opinber-i
lega, gerast öðrum þjóðum
kunn. Því ella mætti ef til vill
líta svo á að þótt íslenzk ríkis-
stjórn ekki vildi biðja um
vernd Bandaríkjanna, þá vildi
hún ekki gera Bandaríkjunum
erfiðara um hugsanlega her-
töku með því að mótmæla
Fram til þessa hefur verið
talið að Tyrkir væru öflugustu
bandamenn Breta við austan-
vert Miöjarðarhaf. Tyrkneskir
stjórnmálamenn hafa hvað
eftir annaö lýst því yfir undan
farna mánuði, að komi til á-
lasar á Grikkland gegnum
Búlgaríu muni Tyrkir fara í
styrjöldina við hliö Grikkjá,
Síðan fregnir tóku aö berast
um herflutninga Þjóðverja til
Búlgaríu, hafa tyrknesk blöð
meira að segja hótaö því, að
tyrkneski herinn mundi ekki
„bíða eftir árás” frá Búlgaríu.
Fregnin um griðasáttmála
henni strax og hætta væri á
henni.
Þaö blað, sem lengst allra
stjórnarblaða gengur í að
þjóna málstaö erlends innrás-
arhers, — málgagn utanríkis-
málaráðherrans, átelur það, að
Þjóðviljinn skuli ræöa þetta
mál.
En hvaða mál á íslenzka
þjóðin heimtingu á að fá að
vita um, ef ekki þetta?
Hvers virði er öll okkar sjálf
stæðisbarátta, ef vér ættum
nú sjálfir að varpa því, sem
enn er til af fullveldi lands
vors, fyrir borö og fullkomna
það skemmdarverk, er hafið
var 10. maí?
Tyrkja við Búlgaríu einmitt
þegar hernaðarundirbúningur
Þjóðverja þar í landi er að kom
ast á hástig, kom þvi mjög á
óvænt. Ýmis Bandaríkjablöö
telja, að meö þessu hafi Þjóö-
verjár unniö mikinn stjórn-
málasigur, þar sem samning-
ur þessi muni vera upphaf
þess að Tyrkland dragi sig út
úr bandalaginu við Bretland.
Þannig er samningurinn
einnig skýrður í Þýzkalandi, og
talið að aðstaöa Þjóðverja á
Balkanskaga hafi gerbreytzt
til batnaðar við griðasáttmála
Búlgara og Tyrkja.
Frá og með deginum í dag
er samkomubanninu í Reykja-
vik aflétt. Hinsvegar helzt
samkomubann í öðrum kaup-
stöðum, og flestum stærri
þorpum landsins, en líkur eru
til að þau bönn verði upphafin
næstu daga. Allmörg héruð
og sveitir hafa ákveðið að
einangra sig með samkomu-
banni, og má búast við að þau
bönn standi lengur en sam-
komubönnin.
Þjóðviljinn átti í gær tal
bæði viö héraðslækni og land-
lækni, um heilsufarið 1 land-
inu. Þeir kváöu inflúenzuna
mjög í rénun hér í bænum,
cg töldu aö samkomubannið
hefði náð þeim tilgangi að
tefja útbreiöslu hennar, en nú
væri slíks ekki lengur þörf, ör
útbreiðsla kæmi ekki til mála
hér eftir, og því væri sam-
komubanninu af létt.
Veikin hefur ekki verið þung
cg fylgikvillar litlir sem engir.
í flestum hinum stærri kaup-
Ensku biöðin reyna hinsveg-
ar að láta líta svo út að sam-
búð Breta og Tyrkja hafi eng-
an hnekki beðiö. Því er lýst yf-
ir opinberlega, að brezka
stjórnin hafi vitaö um sam-
komulagsumleitanir Tyrkja og
Búlgara og fylgzt með þeim.
Griðasáttmálinn hafi verið
gerður með vitund hennar og
vilja.
Bretar aðvara
Bulgara
Sendiherra Breta í Sofia lét
svo, um mælt í blaðaviðtali í
gær, aö Bretar vildu stuöla aö
því aö sambúö Búlgara og ná-
grannaþjóða þeirra yrði sem
bezt, og að Búlgaría gæti hald-
ið hlutleysi sínu áfram. Ef til
þess kæmi að landið drægist
inn í styrjöldina, væri það ein-
í göngu sök Þjóðverja.
stöðum mun veikin vera í rén-
un, en enn þá er hún vaxandi
í mörgum héruöum landsins,
og nokkuð hefur þess gætt aö
sveitaheimili yröu fyrir erfið-
leikum vegna þess að allt
íeimilisfólkið hafi lagzt í einu.
Darlan fer
enn tíl París
Darlan, utanríkis- og flota-
málaráðherra frönsku stjórn- ‘
arinnar, lagði af staö frá Vichy
1 gærmorgun, áleiðis til París,
þar sem hann mun ræða við
útsendara ÞjóÖverja, Abetz, og
Pierre Laval.
Glæsíleg framííd
ÍTrír brezka
æsfeulýðínr* l
Alexander flotamálaráðherra
Breta, sagði 1 ræðu í gær, að
tryggt hefði verið, aö blóminn
af æskulýð Bretlands yröi tek-
inn til þjónustu á flotanum.
Hafa verið stofnaðir ýmsir
styrkir til náms á sjóliösfor-
ingjaskólum í þessu skyni.
Styrkþegarn*
ír gleymdust
Nú um áramótin hafa flest-
allar starfs- og launastéttir
krafizt hækkunar á grunn-
kaupi, dýrtíðaruppbótar og
ýmissa annarra hlunninda fyr-
ir meðlimi sína. Barátta þeirra
fyrir hagsmunum sínum hefur
verið mismunandi hörð, eftir
því við hvað sanngjama og
heiðarlega atvinnurekendur
hefur verið átt, eða hitt, og
það mun aö mestu léyti ríða
: baggamuninn, hve samtaka-
máttur verkalýösfélaganna
hefur veriö máttugur og hvort
stjórnir þeirra voru einhuga í
baráttunni og héldu skorinort
fram rétti verkalýðsins eða
hölluðust að undirboðum at-
vinnurekenda.
Þrátt fyrir smánarlega ósigra í
þessum launadeilum ,hefur þó
meginþorri verklýðsfélaganna
háö sigursæla baráttu og náð
fram kröfum sínum að miklu
leyti gegn harðvítugri mót-
spyrnu atvinnurekenda og
inálaliös þeirra, sem nægan
hafa blaöakostinn og geta því
Framhald á 4. síðu.
bpeytast PMh í uil?
Tyrkland o$ Búlgaría gcra mcd séir griðasáftmála
samfimís þd að hernaðairutidfrbúníngur Þjóðverja i
Búlgaríu hefur náð hámarkí
Tyrkir og Búlgarar hafa gert meö sér vináttu- og griða-
sáttmála, og skuldbundið sig til að ráðast ekki hvor á ánn-
ars ríki. Sáttmáli þessi var undirritaður í Ankara í fyrradag,
af forsætisráðherra Tyrklands og sendilierra Búlgaríu. Var
sama kvöldið gefin út opinber yfirlýsing um samninginn.
Fregnin um samningsgjörðina hefur vakið gífurlega at-
bygli um allan heim, og ervíða talið að atburður þessi
geti gerbreytt stjórnmálaástandinu á Balkanskaga.