Þjóðviljinn - 02.04.1941, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 02.04.1941, Blaðsíða 4
DIÚPVILIINN Nœturlœknir í nótt: Halldór Stefánsaon, Rá'nargötu 12, sími 2234. Nœturvördur er þiessa viku í Reykjavíkurapóteki og Lyfjabúð- inni Iðunni. 2. cleild KRON hteldur fund í dag (miðvikudag) kl. 8,30 í Bað* Btofu iðnaðarmanna. Otvarpld í dag. 12,00 Hádegisútvarp. 13,00 Þýzkukennsla, 3. fl. 15.30 Miðdegisútvarp. 18.30 íslenzkukennsla, 2. fl. 19,00 Þýzkukennsla, 1. fl. 19,25 Þingfréttir. 19.50 Auglýsingar. 20,00 Fréttir. 20.20 Föstumessa í dómkirkjunni: Séra Bjarni Jónsson- 21.20 Ot^arpshljómsveitin: Iiaga- syrpa eftir Suppé. 21.50 Fréttir. Ungnvermafélagtd V&lvakandi heldur Farfuglafund í kvöld kl- t9 í Kaupþingssalmum. Hínitr uppvödslu- sömu Pólvcrjar dæmdír Sakadómari kvað nýlega upp jflóm í máli Pólverjanna af skip- inu Charzow, er sýndu lögregl- unni mótþróa hér á ’dögunum. Skipstjórinn Zygmunt Garavar ■jdæmdur í eins árs fangelsi, ann- ar var dæmdur í fimm mánaða fangelsi, og sá þriðji í þriggja mánaða fangelsi. Hinn síðast taldi var dæmdur fyrir vínþjófn- að- Allir hinir dómfeldu áfrýjuðu málum sínum til Hæstaréttar. Kavíar Framhald íd 2. síðu. fram ásamt kartöflum. Kaperssósa er líka ágæti í stað feiti. 1 öllum eggjavandræðunum er fólk að reyna að finna sem flest til að geta bakað eggjaláust. Hér einn gneppur, himnan tekiin úr einum greppur, himnan tekin utan af; hrærð hrá og höfð í pönnukökur. Hrogniin koma ajveg í stað eggja. Svo getur fólk haft meira eða minna eftir því hvað hverjum finnst. Deigið má ekki vera 'alveg eins þunnt eíns iog ef um egg væri að ræða. Einnig .þarf minni sykur. St. Mínerva nr. 172 heldur fund í kvöld kl. 8,30. Síra Jakob Jónsson sýnir og skýrir skuggamyndir frá Ame- ríku. Afmæliskaffi. Reyfeíavlbmr Annáll hX Revyan verður sýnd annað kvöld kl. 8 Aðgöngumiðar seldir kl. 4—7 í dag ó'g eftir kl. 1 á morgun. — Síoasta sýning fyrir páska. Engin forsala Hef lokað lækfiíngastofu mínní á Laugaveg 16 Heigí In$varsson 10 mðnnum bjargað Framhald af 1. siðu. þó rnest í hinni síðustu. Kom þá til sjóiorustu og var a. m. k. kveikt í tveim iolíuskipum. 1 skipi báts- manna kviknaði ekki en það brotn laði í tvennt er tundurskeyti hæfði það og flutu báðir partamir með an skipverjar sáu til. Á „Beduin“ var 34 manna á- höfn, og héldu bátverjar áð Þeir hefðu allir komizt Ilfandi í bát- ana, ekkert vissu þeir frekar um afdrif félaga sinrta. Þeir siem björguðust voru 8 Norðmenn og 2 Kílnvierjar. Einn Norðmannanna skýrði svo frá,að þetta værA í þriðja sinni, siem ís- lenzkur togari bjargaði honiumfrá því ,stríðið byrjaði. Istendíngar sektaðír fyrír að kaupa af Brefum Nýlega var kveðinn upp dórnur í lögreglurétti yfir tveim mönn- um, sem keypt höfðu varning af Bretum. Annar þessara manna hafði keypt sjö teppi, vindlinga, niður- soðna ávexti o. fl. Hann var dæmdur í 300 kr. s®kt. Hinn hafði keypt vi'ndlinga og ávexti. Hann fékk 100 kr. sekt. En hvað fá Bretar fyrir að kaupa ýmsar nauðsynjavörur af Islendingum? Skofæfíngar Tílkynníng frá brezku hersfjórnínní Skotæfingar verða haldnar fimmtudaginn, 3. þ. m. kl- 10 til 16 á eftirtöldum stöðum: Skiotið í suðurátt frá Gunnars hólma að Kolviðarhóli. I morðurátt frá Kolviðarhóli yf ir Norðurvelli að Dyravegi- í vesturátt frá Dyravegi að Gunnarshólma. Sandskeiðsveginum verður ekki lokað rneðan æfingar fara fram. Skotið verður í austurátt. Samþykkfir sjómanna Framh. af 1. síðu. hættuþóknun, þegar sýnt þykir, að siglingar geti hafizt á ný, í samvinnu við önnur stéttarfélög sjómanna, er við kemur kaup- skipunum. < Þá litur fundurinn svo á, að á meðan óvissa ríkir um siglingar til útlanda verði fiskiflotinn lát- inn fiska í salt, svo lengi sem saltbirgðir endast, og leggur höfuðáherzlu á það, að ríkis- stjórnin og útgerðarmenn beiti sér af alefli fyrir því, að Brtetar sjái um skipakost til fliutninga á ísvörðum fiski og öðrum fram- leiðsluvörum okkar, sem til Bnet- lands eiga að fana. Þegar sýnt þykir, að sigli'ng- ar geta hafizt á ný, samþykkir fundurinn að fela stjórninni að Ieita samninga um auknai á- hættuþóknun við útgerðarmenin fiski- og flutningaskipa. Einnig samþykkir fuindurinn að kjósa 9 manna inefnd til þess að ganga frá væntainlegu salmn- ingsuppkasti í samvinnu við fé- lagsstjórnina, og til þess að vera ráðgefandi um mieðferð samning- anna og úrslit- Þá veitir fundurinn félags- stjórninini fullt umboð til þess að fara með samningana og und- irskrifa þá“. fugoslavía Framli. af 1. síðu. eitt þýzka blaðið, að nú sé sú stund komin, >er Króatar og Sló- venar kasti af sér oki Serbanna og taki mál sín í sínar hendur. Er óspart gefið í skyn, að Þjóð verjar muni styðja sjálfstæðis- kröfur þessara þjóðfloklia. I fregn frá Bielgrad ier því hald ið fram, að áróður Þjóðverja mieð' al Króata og Slóvena hiafi engain árangur borið. Leiðtogar þiei'rra sitji nú á ráðstefnu mieð hinni nýju stjórn, og murii Þjóðverjar fá verðugt svar, er birtur verbi árangurinin af þeirri ráðsteínu. Blöð og utvarp í Júgóslavíu neita því harðlega, að nokkrax of- sóknir gegn Þjóðvierjum eigi sér stað í landinu- Þýzki minmihlut- jnn í lándinu mjóti fyllstu borg- araréttinda, og sé áróður Þjóð- verja algerlega ástæðulaius, og sé sýnilega til þiess leins gerður að spilla sambúð ríkjanna og stofna til árekstra. OOOOOOOOOOOO^-ClOOOOOOO-OOOOOOOOOOO^OOC 78 Anna Liegaard SkéJdsaga chir Nini Roil Anker börnin orðin tengd xmgfrú Tofte. Hún þóttist finna á ýmsu, að Ingrid léti ekki undan, en hún var hræddari um Sverre, — það eru svo margar leiöir að barnshiart- anu. Hún ætlaði að hafa þau bæði hjá sér í sveitinni um sumarið, en tíminn leið hægt. Hún fékk aðrar aðsóknir. Skyidi Roar segja þessari ókunnu konu frá því sem liðið var? Ætli hann segði henni alla hluti, smátt og stórt. Allar þeirra sameigin- legu minningar — þær slæmu og þær góðu? Þegar þessi hugsun náði tökum á henni, gat hún ekki haldið áfram með störfin. Allt annað í samlífi nýju hjónanna varð þýðingarlítið óg fjarlægt í sam- anburði við þetta. Hvað var líkamleg ótryggð hjá and- legum tryggðarofum? Hann hefði getað átt ungfrúna sem hjákonu. Ef hún hefði aldrei fengið að vita það, hefði hún ekki þjáðst þess vegna. Og meira að segja, þó hún hefði komizt að því, var henni ljóst, að það hefðu verið minnstu svikin. Kynhvötin, — í undirajúp- unum átti hún heima, í myrkrinu, ásamt öðrum þeim frumstæðu eðlishvötum, sem maðurinn verður að bæla niður, ef hann á að verða dýrunum æðri. Hvernig gat nokkur maður verið svo blindaður, að hann skildi þetta ekki? Það var henni huliö — já. það var henni lokuð bók. Kvöld éitt gekk hún eirðarlaus fram og aftur um stofuna, ásótt af þessum hugsunum. Þá var dyrabjöll- unni hringt. Hún opnaði og fyrir utan stóð frúin úr íbúðinni sem næst var. Anna hafði aldrei talað viö hana og frá því fyrsta haft óbeit á þessari ljóshæröu dömu, sem kvöld eftir kvöld trítiaði út húsagarðinn, uppábúin og léttstíg. Nokkrum sinnum hafði hún séö hana koma heim með karlmanni. Köld og stolt horfði hún á hana, — ljósa háríð var ekki eins vel hirt og venjulega, andlitið ópúðrað. „Fyrirgefiö þér, frú Liegaard“. Það var gráthljómur í röddinni. „Fyrirgefið að ég ónáða yður svona seint. En ég er alveg eyðilögð — litla stúlkan mín er oröin veik, allt 1 einu, í morgun var hún hress og fjörug en nú er hún komin með óráð, Ó, hvað á ég að gera. Mér datt í hug að þér eruð læknisfrú, viljið þér ekk'i gera svo vel að líta inn til Lissu og ráðleggja mér eitthvað? Eg heiti frá Blich-Jensen — það er ættarnafn feður míns”. „Eigið þér litla telpu?“ „Já, og ég á að fá að hafa hana hjá mér í hálfan mánuð. Og ég hef ekki séð hana í heilt ár. Og nú er hún orðin veik, og það er svo hræðilegt fyrir mig“. „Það er réttast að þér símið eftir lækni“. „Já, — en viljið þér ekki koma inn til hennar á með- an, frú Liegaard? Eg þori ekki að víkja frá henni“. „Jú“, — Anna fór með konunni. Eitthvað umkomu- laust í augunum með þrútnu hvörmunum hafði minnt hana á Ingrid. íbúðin hennar var minni en íbúð Önnu, húsgögnin fá og fátækleg. Anna varð mildari á svip, hún hafði bú- izt við að sjá eitthvað annað en þessa blámáluðu tré- stóla og gamla hnottréspíanóið. Þegar hún laut yfir litlu stúlkuna, er lá í stóru járnrúmi í innstá herberg- inu, hvíslaöi hún „veslings telpan“, og lagði höndina varlega á heitt enni barnsins. Móðirin var setzt á rúmstokkinn. Með aðra barns- höndina við varir sér, hvíslaði Jiún: „Lissa mín, Lissa — — þekkirðu ekki mömmu?r Mamma er hjá þér, Lissa mín“. „Ljótur — ljótur vófvóff — farðu — farðu“, stam- aði barniö. „Hún heldur að sé hundur hérna inni. Æ, hvað á ég að gera?“ „Þér getiö ekki annaö gert en að ná í lækni. Allir barnasjúkdómar byrja með hita. Það er ómögulegt að segja, hvað er að henni“. „Lissa — mamma er hjá þér, Lissa“. „Þér megið fara inn til mín og síma. Síminn er til vinstri í ganginum. Þetta er lykiliinn. Eg skal sitja hjá barninu á meðan“. OOO O1

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.