Þjóðviljinn - 10.04.1941, Síða 3
PJOÐVIL JIN W
Fimmtudagur 10. apríl 1941
■ '3B B|
ÞjoOin minnist idag sjómannanna
af Reykjaborginni
Ásmundur Sigurðss'jn
skipstjóri.
fep*r"
12 sýómenn einn farþegý léfu líf-
íð þann 10« marz er hryðjuverkið
mikla var framíð út á Aílanzhafí
<*»
Ásmundur Sveinsson Óskar Þorsteinsson Guðjón S. Jónsson,
1. stýrimaður 1. vélstjóri. 2. stýrimaður.
Runólfur Sigurðsson,
skrifstofustjóri.
• hjá fiskimálanefnd.
Mannfallið á Reykjaborginni 10. marz 1941 er einhver
liræðilegasti atburður íslandssögunnar. Þegar hann er bor-
inn saman við verstu níðingsverk Sturlungaaldarinnar, þá
er menn og konur voru brenndar inni, er þó sá muriur á,
að þeír, sem inni voru höfðu vopn til varnar og höfðu jafn-
vel stundum beitt slíkum grimmdaraðferðum sjálfir. — En
sjómenn vorir voru vopnlausir og höfðu aldrei manni grand-
að, heldur þvert á móti bjargað fjölda mannslífa. Og þegar
borið er saman við grimmdarverk Tyrkjaránsins, þá voru
það þó siðlausir sjóræningjar, sem að verki voru, — en hér
þykjast þeir, er myrtu sjómenn vora, vera vaxtarbroddur
mannkynsins, fyrirheitið um „æðra mannkyn“.
En sjómennirnir,sem fyrir þessu níðingsverki urðu, tóku
örlögum sínum eins og beztu hetjum sæmdi. Þeir höfðu
horfzt í augu við dauðann fyr í hamförum náttúruaflanna,
en þeir höfðu ekki búizt við að mæta honum á þennan hátt.
En þeir æðruðust hvergi. Með karlmennsku og ró tóku þess-
ar hetjur friðavins því sem að höndum bar. Með skjöld sinn
óflekkaðan mannsblóði hnigu þessir hugprúðu synir íslands
í vota gröf íyrir morövoprum siórveldis, sem sýnir „yfir-
burði“ sína yfir aðra í glæpum á þennan hryllilega hátt.
ísland er stolt af þessum hetjum sínum. Islenzku þjóð-
inni ber að sýna ekkjum þeirra og bömum þá virðingu og
þá aðstoð, sem hún frekast getur látið þeim í té. En það
fegursta hafa þó hinir föllnu sjálfir eftirlátið ástvinum sín-
um: Orðstír, sem ei mun fimast, hreina minningu um þær
hetjur, sem fómuðu lífi sínu í þjónustu friðar og fram-
leiðslustarfa.
Með lotningu minnist þjóðin sjómannanna af Reykja-
borginni í dag. Það er nú krossfest í stærri stíl en fyrir 1900
áram. En það nálgast sá tírni, að vinnandi þjóðirnar, sam-
herjar fiskimannanna okkar, rísa upp gegn þeirri villi-
mennsku stórveldastyrjaldar og -kúgunar, sem íslendingam-
ir 13 á Reykjaborginni féllu fyrir.
Þeir 13 menn, sem létu lífið
á Reykjaborginni kvöldið 10.
marz fyrir skothríð frá þýzk-
um kafbát, voru þessir tólf
skipverjar og einn farþegi:
Ásmundur Sigurðsson skip-
stjóri, fæddur 21. júni 1901.
Kvæntur. Bamlaus.
Ásmimdur Sveinsson, 1.
stýrimaður, fæddur 24. febrú-
ar 1905. Ókvæntur.
Óskar Þorsteinsson, 1. vél-
stjóri, fæddur 24. marz 1902.
Kvæntur. Barnlaus.
Gunnlaugur .Ketilsson, 2.
vélstjóri, fæddur 3. maí 1912.
Kvæntur, á barn í ómegð.
Ðaníel Kr. Oddsson loft-
skeytamaöur, fæddur 21. júlí
1888. Kvæntur; átti 8 böm,
þar af 4 í ómegð.
Guðjón Jónsson, 2. stýri-
maður, fæddur 29. janúar
1894. Kvæntur, lætur eftir sig
íósturson.
Jón Lárusson, matsveinn,
fæddur 25. sept. 1915. Kvænt-
ur, átti 1 bam í ómegö.
Óskar Ingimundarson, kynd
ari, fæddur 5. nóv. 1909. Ö-
kvæntur, átti 1 bam í ómegð.
Hávarður Jónsson, háseti,
fæddur 19. apríl 1901. Kvænt-
ur, barnlaus.
Þorsteinn Karlsson, háseti,
fæddur 26. sept. 1917. Ókvænt-
ur.
Árelíus Guðmundsson, há-
seti, fæddur 4. maí 1913.
Kvæntur, átti 1 bam í ómegö.
Óskar Vigfússon, kyndari,
fæddm- 12. okt. 1907. Kvænt-
ur; átti 3 böm í ómegð.
Gunnlaugur Ketilsson Daníel K. Oddssoii, Jóni Lárusson
2. vélstjóri. loftskeytamaðúr. matsveinm
Óskar Vigfússon, Óskar Ingimundarson Árelíus Guðmundsson
kyndari. kyndaxi. .,-.t háseti.
Hávarður Jónsson
J háseti
Ennfremur fórst einn far-
þegi á skipinu:
Rxmólfur Sigurðsson, skrií-
stofustjóri fiskimálanefndar.
Kvæntur og átti 3 börn.
Vér kveðjum pá alla og vott
ur aöstandendum þeirra
dýpstu samúð vora.
Eftirmæli, sem blaöinu hafa
borizt um einn þeirra, birtum
vér hér, en líklega berast oss
fleiri síðar.
Þorsteinn Karlsson
hááeti .
NiAhwí 11
istar íIiIússdi
Kristófer Óskar Vigfússon
var einn þeirra er fórust meö
íogaranum Reykjaborg.
Óskar eins og við kunningjar
hans kölluðum hann venjulega,
var fæddur 12. október 1907.
Óskar heitinn var alinn upp hjá
I Kjartani í Hraunprýði hér í bæ,
föður þeirra Sigurðar og Þórar
ins Kjartanssona, sem flestum
Reykvíkingum eru vel kunnir.
Hann var kvæntur Þórlaugu M.
Sigurðardóttur og áttu þau sam-
an þrjú börn, sem öll eru í ó-
megð-
Hugur Óskars hneigðist
snemma til sjómennsku og gerði
hann hana þvi að lífsstarfi sínu
og veit ég að það rúm, sem hann
skipaði á sjónum þótti ávalt vel
skipað.. Þó að Óskar sigldi lengst
af sem kyndari, vissi ég að hug-
ur hans stefndi hærra í vélarúm-
inu, þó ekki kæmist sú hugsjón
háns til endimarka. Óskar varð
snemma að hefja lífsbaráttu sína
eins og svo oft vill \’erða með
þá, er komnir eru af alþýðustétt.
>‘Óskar heitinn var vel gefinn
og var því ekkert að vanbúnaði
til að hefja sig til flugs og fram
kvæma hugsjón sína, ef annað
skyldusjónarmið hefði þá ekki
blasað við, sem var að sjá vel
fyrir fjölskyldu sinni og þori ég
að segja að þá skyldu sína rækti
hann með prýði og býst ég við
að það hafi orðið það sjónarmið
sem í fyrirrúmi sat.
Óskar var maður fríður sýn-
um, meðalmaður á hæð, ljós yf-
irlitum, karlmannlega vaxinn og
bar með sér að þar fór drengur
góður er hann fór.
Hann var maður skapstilltur
þó býzt ég við að hann hafi ver
ið all skapstór, þó vandlega væri
með það farið. Félagi var hann
hinn bezti, hreifur og kátur í
sínum hóp, þó öllu væri þar einn
ig í hóf stillt.
Óskar lét sig heldur ekki litlu
skipta þjóðfélagsmálin og varð
honum það fljótt ljóst, hvarhann
skyldi skipa sér í sveit í stétt-
arbaráttunni. Hann var áhiugasam
ur flokksmaður í Sósíalistaflokkn
um og er mér ekki sízt minnis-
stæður fundurinn í fiokksdeild
okkar, er óskar var nýkominn
frá Kaupmannahöfn um Petsamo
með Esju, eftir að hafa dvalið
í Danmörku i 6 mánuði, af því
hann var kýndari á Gullfossi.
Óskar hafði þá orð á því, að
hætta sér vart í greipar nazist-
anna á ný, fyrst hann slapp að
lokum þá, — en svona fór.
En þótt ég hafi fyigzt vel
með Óskari i iífsbaráttu og
starfi fullorðinsárarina, þá verða
mér þó alltaf hugþekkastar iendj
urminningarnar um hann frá æsku
árunum. Þær eru svo ijúfar og
ijósar minningamar um tímann áð
ur en lífsbaráttan hefst áður ien
skyldurnar fara að , íþyngjaí
hinni glöðu æsku og skuggarnir
að falla á óframkvæmdar hug-
sjónir.
Vér, félagar þínir, þökkum
þér, Óskar, stuðninginn, sem þú
veittir okkur í sameiginiiegri frels
isbaráttu okkar ailra. Þú hefðir
vafalaust oft kosið að hafa hann
meiri, — eins og ,vér óskum svo
margir — en erfitt _strit fyrir dag
Iegu brauði hamlar oss þar sem
víðar að sinna svo ýeitum áhuga
málum sem vér helzt kysum. Þú
hvikaðir aldrei frá því, sem þú
áleizt satt, þú reyndir ekki að
hliðra þér hjá því að mæta stað-
reyndunum og glíma við erfið-
leikana. Þú varst of sannur mað
ur til þess að fara svo að mál-
Framhald á 4 .síðu.