Þjóðviljinn - 28.11.1942, Blaðsíða 1
f
7. árgangur.
Laugardagur 28. nóvember 1942.
181. tölublað.
i'JEI
FföisHh heFsöipuflum í
Toulon suhhf
Borgin herteninlaf þýzkum og itölskum, her
Þýzkur og ítalskur her réðist á frönsku herskipahöfnina
Toulon í fyrrinótt, og kröfðust foringjar fasistahersins þess, að
frönsku herskipin, sem lágu á höfninni, gæfust upp.
Svar franska flotaforingjans var: „Eg mun láta skjóta á livern
þann hermann, sem reynir að fara um borð í skipin“.
Nokkru síðar hófust stórkostlegar sprengingar í franska or-
ustuskipinu Strasbourg, og nokkru síðar í öðrum herskipum
Frakka á höfninni. Flotaforinginn hafði gefið fyrirskipun um að
sökkva skipunum.
Sjóliðarnir vörðust af skipunum meðan verið var að sprengja
þau í loft upp, og fórst fjöldi þeirra með skipunum.
Ekki er vitað með vissu hve mörg herskip lágu í Toulon, né
hvort tekizt hefur að gera þau öll ónothæf, en í Vichyfregnum
segir að flestum eða öllum frönsku herskipunum hafi verið
sökkt.
Tveir kafbátar komust undan.
Taliö er aö tvö orustuskip.
tíu beitiskip, 25 tundurspillar.
26 kafbátar og margt ann-
árra smærri skipa hafi veriö
í Toulon.
Strandvirki og hergagna-
birgöir Frakka í Toulon voru
sprengd í loft upp.
Hitler hefur fyrirskipaö von
Rundstedt hershöfðingja aö
gera „nauösynlegar ráðstafan
Sœnska ftrysfihúsíð
Bæjarráðið vill halda
fast á forkaupsrétt
bæjarins
Á fundi bæjarráös í gær
var eftirfarandi tillaga sam-
þykkt með 4 atkv. gegn 1.
„Borgarstjóri lagöi fram
eftirrit af símskeyti, er hann
sendi til „Sifa”, Göteborg, 21.
þ. m. vegna tilkynningar fé-
lagsins um að sala á eign
um þess hér væri gengin til
baka, svo og svarskeyti frá
,,Sifa“ móttekið 24. þ. m.
„Bæjarráð leggur til að
hafnarstjórn og bæjarstjórn
ákveði að halda fram rétti
sínum til þess áð kaupa eign-
irnar vegna sölu á þeim 1 júní
s. 1. og að ákveöið verði að
nota þann rétt”.
Pétur Benediktsson sendi-
herra talar ð fslenzku i
brezka útvarpið
Pétur Benediktsson, sendiherra
íslands í London, talar í ís-
lenzku sendingu brezka útvarps-
ins á mánudaginn kemur, 30.
nóv.
Sendiherrann mun flytja ræðu
í tilefni af fullveldisdeginum og
kveðjur til íslands.
ir” til aö halda öllu meö kyrr-
um kjörum í Toulon og öðr-
um frönskum borgum.
r
I
ttnri n lurgion ilutt III stalfairad ettlr mstiMia Ualn
Verður fjðlmenn-
ur fasistaher um-
kringdur suður af
borginni?
Rússneskt fótgöngu-
lið gerir áhlaup á suð-
urvígstöðvunum með
aðstoð skriðdreka.
Heyrnarhjálp
i
stdlhan sem líhi ieiru tftir ta ír
Vídtal víð stjórn félagsíns „Heyrnarhjálp"
Stjórn félagsins Heyrnarhjálp boðaði blaðamenn á sinn fund
í gær, í tilefni að því að tvítug stúlka, sem verið hefur heyrnar-
laus í 18 ár, hefur nýlega fengið heyrn, með hjálp heyrnartækis,
er félagið hefur útvegað.
Verkefni félagsins, sem hefur aðeins starfað í 5 ár, er það, að
hjálpa heyrnardaufu fólki og útvega því heyrnartæki.
Um 30—40 heyrnartæki af þeirri gerð, sem hér um ræðir,
eru nú komin til landsins.
Framfarir í gerð heyrnartækja hafa orðið ótrúlega miklar
á seinustu árum.
Félagið Heyrnarhjálp var
stofnað 1 nóv. 1937.
Aðalhvatamaöurinn aö stofn
un þess var Steingrímur Ara-
son kennari. Formaður þess
nú er Pétur Gunnarsson og
ritari er Helgi Trygg-vason.
Félagsmenn eru 246.
Verkefni félagsins er, sem
fyrr er sagt, að aðstoða heyrn
ardauft fólk við útvegun
heyrnartækja og annaö, er
því má að gagni koma. Hafði
félagið útvegað sér góð sam-
bönd á þessu sviði, sem voru
rofin, þegar stríðið skall á.
Nú hefur félagiö náö nýjum
samböndum í Ameríku og
gengið þaðan ágæt heyrnar-
tæki, en tækni í gerð heyrnar
tækja hefur fleygt mjög fram
á síðustu árum, jafnhliða út-
varpstækni, sem hvorttveggja
er mjög á sama sviöi.
Tilefni þess, að stjórn félags
ins ræddi við blaðamenn í
gær, var það, að hið ótrúlega
hefur gerzt: tvítug stúlka,
Elsa Mikkelsen, sem missti
Alstaðar á Stalíngradvígstöðvunum sækir rauði herinn fram,
og þó mest norðvestur af borginni, í Donbugðunni. í»ar berst nú
mjög öflugur rússneskur her, og náði í gær sex bæjum og fimm
byggðarlögum.
Suðvestur af Stalíngrad gerðu þýzkar hersveitir harðvítugar
tilraunir að brjótast til suðurs gegnum fleyginn sem sovétherinn
hefur rekið þar inn í varnarsvæði fasistaherjanna. Árásum þess-
um var hrundið og biðu fasistaherirnir mikið tjón.
Nokkur hluti sovéthersins sem sækir fram meðfram járn-
brautinni frá Stalíngrad til Kákasus, hefur sveigt til austurs
og eru nokkur þýzk herfylki milli járnbrautarinnar og Volga
í mikilli liættu.
Elsa Mikkelsen
heyrnina tveggja ára gömul,
hefur nú fengið heyrn á ný
með hjálp nýs heyrnartækis,
er félagiö hefur útvegað.
Stúlka þessi á tvær systur, er
Framh. á 4. síðu.
í .Stalíngrad .hefur .rauði
herinn hrakið Þjóðverja úr
nokkrum hluta verkamanna-
hverfisins, og tekið fjölda
húsa. Eftir langan tíma er nú
aftur hægt að flytja herlið og
hergögn til Stalíngrad suður
eftir vestri bakka Volgu.
Sókn á miðvígstöðvunum ?
Þjóðverjar viðurkenndu í
gær, að sovétherinn heföi rek-
ið stóran fleyg inn í varnar-
línur þýzka hersins við Toro-
pets, norðvestur af Moskva.
en ekki hafa borizt fregnir
um hernaðaraðgeröir á þess-
um slóðum frá Moskva.
Vaxandi ðrðugleikar
þýzka hersins
„Á norðvesturhluta Stalíngrad
vígstöðvanna eru Þjóðverjar
lengst frá járnbrautum11, símar
fréttaritari enska blaðsins Times
frá Moskva, „og er þýzki herinn
á þessum slóðum á skipulags-
lausu undanhaldi, eða þá að
hann berst við hin örðugustu
skilyrði. Á suðvesturhluta víg-
stöðvanna er öðru máli að gegna,
þar eru járnbrautir að baki Þjóð
verjum og undanhaldið auðvelt,
enda er vörn fasistaherjanna
mun harðari þar, og þýzka her-
stjórnin er sýnilega að reyna að
koma skipulagi á undanhaldið,
en á við vaxandi örðugleika að
etja. — Rauði herinn sendir stöð
Framh. á 4. síðu.
Bæjarlækni falið að
athuga sumarbústað-
ina sem teknir eru
leigunámi
Nokkrir sumarbústaðaeig-
endur hafa skrifaö bæjarráði
í tilefni af því, að ákveöið hef
ur verið að taka sumarbú-
staöi þeirra leigunámi. Fara
þeir fram á að leigunámiö
verði ekki framkvæmt, og
færa það einkum til, aö sum-
arbústaöirnir séu ekki íbúð-
arhæfir að vetrinum.
í tilefni af þessu samþykkti
bæjarráð að fela bæjarlækni
að athuga sumarbústaði þessa
og segja álit sitt um íbúðar-
hæfni þeirra .