Þjóðviljinn - 12.01.1943, Side 1
8. árgangnr.
Þriðjudagur 12. janúar 1943.
8. tðlublað.
I
Stórf landsvœdí i Mtð~Kákasus með borgunum Georgíevsk, Pjafígorsk
og mðrgum ödrum, á valdi Rássa* — Pýekaf herstjórnín vídurkennír
opínberfega að fasisfaherírnír á suðurvígsfððvunum séu ílla sfaddír
Þessi vika hefst með nýjum stórsigrum rauða
hersins. í aukatilkynningu, sem birt var í Moskva í
gærkvöld, segir, að sovéther sæki hratt fram á 85 km.
breiðri víglínu í Mið-Kákasus, og hafi tekið borgimar
Georgievsk, Mineralni Vodi, Pjatigorsk, Elesnavodsk,
Kislavodsk og Búdjonnovsk.
Borgir þessar og landið umhverfis þær tók fas-
istaherinn í ágúst s.l. sumar í hraðri sókn, og era þær
mjög þýðingarmiklar frá hernaðarsjónarmiði.
Rauði herinn tók mikið herfang á þessu svæði, en
ekki hefur unnizt tími til að telja það.
Sóknin eftir járabrautinni frá Stalíngrad til
Svartahafs heldur áfram. Rauði herinn nálgast Donets
og er aðeins um 75 km. frá Rostoff.
Þessi rússneski flugmaður heitir Nikolaj Markin. Hann var
verkamaður fyrir styrjöldina, en hefur flogið lOOnæturflugferðir
Fáheyrt ráðabrugg um glæpí
Dddiiif 1 ÍMf, HFDf, IjáF'
ifinir og Fáða
Miðvikudaginn 16. des. s.l. var í aukarétti Reykjavíkur kveð-
inn upp dómur í málinu réttvísin og valdstjórnin gegn Hauki
Hlöðve Hjálmarssyni til heimilis að Hofi á Kjalamesi og rétt-
vísin gegn Ara Guðmundi Guðmundssyni til heimilis á Blöndu-
ósi og Svavari Pálssyni til heimllis að Smyrlabergi í Húna-
vatnssýslu.
I forsendum dómsíns, sem eru
allmikið mál í 25 liðum er sagt
frá afbrotum hinna dómfelldu,
sem eru margvísleg og sum
nokkuð óvenjuleg, en aðallega
falw í þjófnuðum, innbrotum,,
ólöglegri vínsölu, fölsunum, hót-
unum, svikum og ráðagerðum
um manndráp.
Haukur hefur að undanförnu
dvalið að staðaldri hér í Rvík,
en Ari og Svavar dvaltö hér
nokkra mánuði í senn.
Afbrot þeirra eru í stuttu máli
þessi: í nóv. 1941 stelur Ari arm
bandsúri í húsi einu. Svavar stal
90 kr. úr ólæstri skrifborðs-
skúffu hjá manni nokkrum. í
febr. 1942 stálu þeir tveim reið-
hjólum við Nýbýlaveginn,
skildu þau eftir í Öskjuhlíð. í
marz s.l. fremja þeir tvö inn-
brot á verkfærageymslu í
Höfðahverfi. I sama mánuði inn
brot hjá Silla og Valda og ann-
að í veitingastofu Alþýðubrauð-
gerðarinnar, Laugaveg 69, þar
stálu þeir á annað hundrað krón
um. Ennfremur hafa þeir játað
á sig fataþjófnað og tilraunir til
fleiri innbrota og að hafa farið
um bæinn í því skyni að athuga
hvar heppilegast væri að brjót-
ast inn. Sumarið 1941 fær Hauk-
ur lánaðar 300 kr. hjá manni
nokkrum, er hann kvaðst ætla
að nota til stofnunar hóruhúss,
bauð hann lánardrottni sínum
stöðu við fyrirtækið. Haukur
greiðir 100 kr. af þessari skuld.
Þessum sama manni, sem hafði
týnt skömmtunarseðli sínum,
selur Haukur skömmtunarseðil
á 100 kr., en seðil þennan fékk
hann lánaðan hjá kunningja sín
um með loforði um að skila hoií-
um aftur.
f nóv. lét Haukur föður sinn
í fregn frá Moskva síðar í gær
kvöld er sagt frá fleiri bæjum
í Kákasus, sem rauði herinn hafi
tekið undanfarna sólarhringa.
Fasistaherirnir í Kákasus eru
á undanhaldi á stóru svæði, en
þeir verja hverja borg og
sleppa engu virki nema þeir
megi til. Þunginn í sókn rauða
hersins virðist fara vaxandi,
gefa út víxil að upphæð 4500 kr.
og kvaðst ætla að kaupa bifreið,
en keypti hvorki bifreiðina né
greiddi víxilinn.
Þá er alllangt mál um við-
skipti Hauks við einn kunningja
sinn, er hann hvað eftir annað
fékk lánað fé hjá, án þess að
greiða skuldina að fullu. 1. cíkt.
s.l. afhenti Haukur þessum kunn
ingja sínum víxil að upphæð
20 000 kr. og átti hann að koma
til greiðslu skuldarinnar. Hafði
Haukur falsað nafn föður síns
sem útgefanda víxilsins, en Ól-
afs Thors sem ábeking. — Þessi
fyrrnefndi kunningi Hauks tel-
ur sig hafa afhent honum 13000
kr. samtals.
Auk þessa gerðu þeir ýmsar
fleiri tilraunir til fjársvika og
falsana. Einnig fékkst Haukur
við óleyfilega vínsölu.
Við rannsókn á heimili Ara
Guðmundssonar fannst m. a.
lítil skrifkompa. A fyrstu síðu
er skrifað þetta: „Hinn míkli
svarti listi yfir menn þá,
'er einhverntíma hafa verið
Þrándur í Götu þeirra sjeff-
anna Svavars Pálssonar og
Ara Guðmundssonar". Á
næstu síðu eru svo nöfn og
heimilisföng 5 manna norö-
anlands og skýrt frá því, að
þeir skuli hver um sig verða
líflátnir og á hvern hátt það
skuli gert.
Framh. á 4. síðu.
enda er nú svo komið, að Þjóð-
verjar treysta sér ekki til að
leyna þýzku þjóðina lengur að
báglega horfi á austurvígstöðv-
unum.
Talsmaður þýzku herstjórnar-
innar skýrði frá sókn sovétherj-
anna í útvarpi frá Berlín í gær;
sagði að vísu ekki nema undan
og ofan af, en dró enga dul á að
ástandið í Kákasus og á Neðri-
Donvígstöðvunum sé ískyggi-
legt fyrir fasistaherina.
Þýzku herirnir eiga nú örð-
ugra um vörn en nokkru sinni
fyrr.
Útvarpsráð stofnar til
verðlaunasamkeppni
’ Útvarpsráð hefur heitið tvenn
um verðlaunum fyrir bezta frum
samið íslenzkt útvarpsleikrit,
1000 kr. og 500 kr.
Skal leikritið vera- frumsam-
ið til flutnings í útvarp. Aðalper
sónur eiga helzt ekki að vera
fleiri en 3 og aukapersónur ekki
fleiri en 2.
Flutningur leikritsins má
helzt ekki taka skemmri tíma
en 30 mín. og ekki lengri en 60
mín. Bezt að flutningur þess
taki 40—50 mín.
Útvarpsráð áskilur sér rétt að
veita engum verðlaunin, ef ekk
ert leikrit berst, sem talið er
hæft slíkra verðlauna, og vænt-
ir þess jafnframt að ná samning
um við þá höfunda, sem ekki
hljóta verðlaun, um flutning
leikrita þeirra samkvæmt gjald-
skrá útvarþsins.
Höfundar skulu senda útvarps
ráði nöfn sín í lokuðu umslagi
merktu sama dulnefni og hand-
rit þeirra. Handrit verða að
sendast útvarpsráði fyrir 31.
marz n.k
Líklegt er að hinir mörgu
ungu höfundar okkar og höfund
arefni láti ekki ónotað þetta
tækifæri til þess að vinna sér
til fjár og frægðar. — En von-
andi láta þeir sig ekki henda þá
skyssu að „þynna í þynnra
þynnkuna" sem hann Loftur
Guðmundsson bauð hlustendum
sællar minningar hér um árið.
Þíngfréttír
Ríkíssijórnín fer fram á 10
míllj, króna fíárveítíngu tíl
dýrfíðarrádsfafana
Ríkisstjórnin fer fram á heim
ild til þess að verja allt að 10
milljónum króna af tekjum ár-
anna 1942—1943 í því skyni að
koma í veg fyrir að verðlag á
innlendum og erlendum nauð-
synjavörum hækki og til að
styðja þá framleiðendur, sem af
styrjaldarástæðum eru neyddir
til að selja vöru sina óeðlilega
lágu verði.
Flytur fjárhagsnefnd þetta
frumvarp fyrir hönd ríkisstjórn-
arinnar. Með lögum frá 1941 var
ríkisstjórninni heimilað að verja
5 milljónum króna af tekjum
ársins 1941 og hefur þessi heim-
ild að nokkru leyti verið notuð.
Er hér favið fram á framleng-
ingu þessarar heimildar fyrir
árin 1942 og 43.
Jafnframt er í frumvarpinu
farið fram á framlengingu heim
ildar fyrir stjórnina til að fella
niður tolla af ýmsum matvör-
um, lækka á' öðrum um helming
og hækka þá um helming af á-
fengi og tóbaki. En heimildir til
þessa falla úr gildi í árslok 1942
samkvæmt gildandi lögum. Hef-
ur þessi heimild verið notuð að
allverulegu leyti.
Með sömu lögum er stjórninni
heimilað að innheimta tekju-
skatt, með 10% viðauka og
leggja sérstakt útflutningsgjald
á íslenzkar afurðir sem fluttar
eru úr landi. Hefur þessi heim-
ild verið notuð að nokkru leyti.
Neðri deild.
Þar voru 10 mál á dagskrá.
Samþykkt var frumvarp til
Framh. á 4. siðu