Þjóðviljinn - 05.08.1943, Síða 2
2
ÞJÓÐVILJINN
Fimmtudagur 5. ágúst 1943
TILKYNNING
um afTinmileysisskráníngu
Hér með tilkynnist, að atvinnuleysisskráning, samkvæmt á-
kvörðun laga nr. 57 frá 7. máí 1928 fer fram á Ráðningarstofu
Reykjavíkurbæjar, Bankastræti 7 hér í bæ, dagana 4., 5. og 6. á-
gúst þ. á. og eiga hlutaðeigendur, sem óska að skrá sig samkvæmt
lögunum, að gefa sig þar fram á afgreiðslutímanum, kl. 10—12 f.
h. og 1—5 e. h. ~>
Reykjavík, 4. ágúst 1943.
BORGARSTJÓRINN f REYKJAVÍK.
Múraravlnna
Nú þegar vantar múrara til múrhúðunar og annars
vii hitaveituna.
Höjgaard & Schultz %
vantar við þvottahús Landsspítalans frá 1. sept. n. k. Umsóknir,
með upplýsingum um nám og störf, og meðmælum ef fyrir hendi
eru, sendist stjómarnefnd ríkisspítalanna fyrir 15 ágúst n. k.
IJpplýsingar um starf þetta gefur skrifstofa ríkisspítalanna
og þvottaráðskona Landsspítalans.
Reykjavík, 3. ágúst 1943.
STJÓRNARNEFND RÍKISSPÍTALANNA.
S.G.T.* dansleikur
í Listamannaskálanum í kvöld. — AðgÖngumiðasala kl.
5—7, sími 3240. — Hljómsveit Bjarna Böðvarssonar.
Kventöskur og veski
MIKIÐ ÚRVAL
Verzlun H. Toft
Skólavörðustíg 5
Sími 1035
iOOOOOOOOOOOOOOOOO
MUNIÐ
Kaffisöluna
Hafnarstræti 16
00000000000000-000
ooooooooooooooooo
DAGLEGA
NY EGG, soðin og hrá
Kaf f isalan
Hafnarstræti 16.
ooooooooo-oooooooO
ooooooooooooooooo
Gcrizt
áskrifendur
Þjóðvilians!
(OOOOOOOOOOOOOOOOO
Fjórar „stjörnur“
Þær eru fjórar stjörnurnar í leið-
ara Alþýðublaðsins í gær. Það má
ekki minna vera en að Þjóðviljinn
helgi hverri þeirra nokkruifi línum,
en áður en farið er að ræða hinar
einstöku stjömur og þeirra þýðingu,
þykir rétt að skýra frá því eindregna
áliti stjörnuspámanna að síðari hluti
ársins 1943 geti orðið mjög erfiður
öllum þeim sem búa nálægt gatna-
mótum Hverfisgötu og Ingplfsstræt-
is, Stefani stjarnan gengur um þess-
ar mundir inn í Ljónsmerkið og af-
staða hennar til Venusar pr mjög
athyglisverð. Þeim sem undir þessari
stjömu búa, við téð gatnamót, get-
ur orðið hætt við mótsögnum og öfg-
um, sem leitt geta til sundrungar og
upplausnar á heimilum þeirra, þeir
ættu því að forðast allt óvarlegt tal,
og ekki væri þeim óráðlegt að flýja
til fjalla og hafa hægt um sig. Helzt
ættu þeir aldrei að koma til byggða
aftur.
„Fyrsta stjarnan“
Fyrst verður að taka það fram að
þessar stjörnur Alþýðublaðsins eru
skki himintungl, heldur eru þær
stjömur eins og þær sem Hannes á
Hominu talaði um þegar hann sagði
í útvarpið, ég vil vera stjarna! ‘
Fyrsta stjarnan hefur uppi harð-
vítuga árás á kommúnista fyrir að
segja ekki upp Dagsbrúnarsamning-
unum og fyrir að krefjast endurskoð
unar á vísitölunni.
Það eru ekki nema fimm smáatriði
sem þessi stjarna gleymir, auðvitað
skiptir það engu máli hverju húri
gleymir og hvað hún man, en svona
rétt til gamans skal þó á þessi atriði
minnst.
1. ) Alþýðuflokksmaðurinn Helgi
* Guðmundsson, sem á sæti i
stjórn Dagsbrúnar, var allra
manna ákveðnastur í að segja
samningunum ekki upp.
2. ) Alþýðuflokksmaðurinn Jón
Sigurðsson skrifstofustjóri Al-
þýðusambandsins. ráðlagði
stjórn Dagsbrúnar eindregið
að segja samningunum ekki
upp.
3. ) Ekkert verkalýðsfélag. sem
Alþýðuflokksmenn stjóma hef
ur sagt upp samningum á
þessu sumri.
4. ) Alþýðuflokkurinn og einnig
Alþýðublaðið hafa marg sinn-
is krafizt þess að vísitalan
verði endurskoðuð og hafa tal
ið að það mundi leiða til mik-
ils hagræðis fyrir verkamenn
og aðrar launastéttir.
5. ) Hvaða Alþýðuflokksmaður
sem hefði verið formaður
Dagsbrúnar nú og hvaða Al-
þýðuflokksmenn sem hefðu
myndað stjórn hennar, hefðu
farið nákvæmlega eins að og
kommúnistastjórnin, í þessu
máli.
„Önnur stjarnan“
Onhur stjarnan ræðst heiftarlega
að kommúnistum fyrir að vera sam-
mála Ólafi Thors og Jónasi frá
Hriflu, um að slíta beri sambandinu
við Dani, eigi síðar en 17. júní 1944.
Megináherzlu leggur þessi stjarna
á hve svívirðilegt það sé að vinna ’
með þeim Ólafi og Jónasi.
Þessi stjarna gleymir þremur
smáatriðum:
1. ) Allir þingmenn Alþýðuflokksins
hafa til þessa verið sammála um
að slíta beri þessu sambandi eigi
síðar en 17. júní 1944.
2. ) Samkvæmt stefnuskrá Alþýðu-
flokksins og marggefnum yfirlýs
ingum beztu manna flokksins,
ber flokknum að vinna að stofn-
un lýðveldis og fullum skilnaði
við Danaveldi, þegar sambands-
lögin leyfa, en það er i árslok
1943.
3. ) Allir forustumenn Alþýðuflokks
ins hafa fyrr og síðar haft mjög
náið samstarf við Jónas Jónsson
og Ólaf Thors, raunar aldrei um
sameiginleg áhugamál þjóðarinn
ar, heldur ætíð sérmál þessara
herra.
„Þriðja stjarnan“
Þriðja stjarnan ræðst af hinni
mestu grimmd á kommúnista fyrir
að beita sér fyrir stofnun bandalags
íslenzkrar alþýðu.
Þessi stjarna gleymir:
1. ) Að tillaga um stofnun þessa
bandalags var samþykkt á Al-
þýðusambandsþinginu í haust
með atkvæðum manna úr öllum
stjómmálaflokkum og þar á með
al voru flestir þeir Alþýðuflokks
menn, sem eitthvað hafa unnið
í verkalýðshre.vfingunni.
2. ) Stefnuskrá fyrir bandalagið var
samþykkt með samhljóða at-
kvæðum allra þeirra sem nú
skipa Alþýðusambandsstjórnina
þar á meðal eru fjórir Alþýðu-
flokksmenn.
3. ) Samband ungra jafnaðarmanna
hefur samþykkt að gerast aðili
að þessu bandalagi og kosið full-
trúa á fyrirhugaða ráðstefnu
þess.
4. ) Miðstjórn Alþýðuflokksins hafði
ákveðið að Alþýðuflokkurinn
skyldi gerast aðili að stofnun
bandalagsins og kosið Stefán
Pétursson fulltrúa á fyrirhug-
aða ráðstefnu þess. Þetta hefur
þó ekki verið tilkynnt opinber-
lega.
„Fjórða stjarnan“
Fjórða stjarnan er feigðarstjarna
Alþýðuflokksins.
Mussolini, Vísir og Morg-
unblaðið.
Einræðisherrann Benito Mussolini
er fallinn úr valdastóli. Maðurinn
sem fyrir nokkrum dögum gat sagt.
tugum milljóna að sitja og standa
eins og honum sýndist, er nú áhrifa-
laus með öllu og sennilega ófrjáls
sinna eigin ferða. Svo sviplega hef-
ur gæfan, eða öllu heldur héppnin
yfirgefið þennan mann. Það gefur að
skilja að einræðsherra sem situr að
Völdum í 21 ár eignast marga „vini“
Það þykir yfirleitt sigurstranglegt að
vera handgenginn slíkum herrum,
eða að minnsta kosti skoðanabróðir
þeirra. Það eru aðeins bjálfar og ut-
angarðsmenn eins og t. d. kommún-
istar sem ekki skilja slíkt.
En svo er til málsháttur sem segir
að vináttan sé úti þegar ölið er af
könnunni, og ekki er nú laust við -•
að II Duce fái smjörþefinn af þeim
sannindum. Eða hvar eru nú ,,vinir“
hans, standa þeir kannske við hlið
hans eða halda uppi vörn fyrir hann
Nei, þvert á móti, nú vill enginn við
hann kannast og hver reynir sem
be-tur getur að sparka í hinn fallna
„vin“ og foringja.
Eitt af málgögnum fasismans hér
á íslandi, dagblaðið Vísir, lætur ekki
sitt eftir liggja er það (birtir afmæl-
isgrein um Mussolini sextugan.
Þetta sama blað sem átti ekki nógu
feit letur til að lýsa aðdáun sinni á
einvaldanum á Italíu þegar hann
sendi morðsveitir sínar yfir vamar-
lausa íbúa Abessiníu, alþýðu Spán-
ar og hina fámennu þjóð Albani.
Og síðast en ekki sízt þegar hann
ásamt þremur sálufélögum sínum.
Hitler, Chamberlain og Daladier fór
til Múnchen og bjargaði heimsfriðn-
um!!! Og hvað ætli að Vísir segði
nú ef Mussolini væri enn á sigur-
göngu sinni? Því er auðsvarað, Coca-
Cola-valdið þekkir sína, áreiðanlega
ætti íslenzk tunga ekki nógu sterk.
orð til þess að lýsa hrifningu þess.
yfir föðurlegri handleiðslu ítalska
foringjans. En nú er Mussolini fall-
inn, og ekki hægt að styðjast við
hann lengur, og þá er skipt um tón:
Mussolini! Þetta hefur alltaf verið
bölvaður óþokki, heiftrækinn og ill-
gjam og enginn getað við hann lynt
nema helzt kommúnistar, en lengra
verður ekki jafnað í fúlmennsku.
Með afmælisgrein sinni upplýsir
Vísir rækilega ,,hver grýtir ef gæf-
unni hnignar". Þannig eru fasistar
og nazistar allra landa, samvizku-
lausir níðingar gagnvart þeim sem
minni máttar eru, en tilbúnir að
kasta yfir sig sauðargærunni þegar
á móti blæs, og sverja þá fyrir öll
sín afkvæmi. Roosevelt forseti gat
þess nýlega í ræðu sinni er hann
flutti 28 þ. m. að engum fasista
skyldi takast að fela sig, hverskonar
gervi sem þeir tækju, þegar dagur
reikningskilanna kæmi. Vonandi
auðnast forsetanum að standa við
þessi orð sín.
Vinnubrögð Morgunblaðsins eru
nokkuð á annan hátt en Vísis, á þess
um síðustu og versnandi tímum fyr-
ir fasismann. Það reynir að leiða at-
hyglina frá óförunum á Ítalíu með
því að birta dag eftir dag níðgreinar
um Sovétríkin og leiðtoga þeirra, eft
ir nokkurs konar Stefán Pétursson
Bandaríkjanna, Max Eastmann að
nafni, og sá er nú ekki í vandræðum
með ,,heilagan sannleika“. Helztu
rök þessa Vesturheimspostula eru á
þessa leið:
„Uppreisnir Rússanna báru aldrei
neinn árangur". „Lenin lagði undir-
stöðuna að nýju harðstjórnarskipu-
lagi enn miskunnarlausara en harð-
stjóm keisarans". „Stalin, sem fyrir-
lítur fjöldann og óttast frelsið full-
komnaði harðstjórnina og gerði úí
af við síðustu leyfar iýðræðislegra
mannréttinda í Rússlandi“. „Það er
ekkert jafnrétti í Rússlandi, ekkert.
fi-elsi, enginn réttur“. „Verkamenn-
imir eru hlekkjaðir við vélarnar".
„Réttarmorð framin, skipulagðar
hungursneyðir". Tíu milljónir mat-
arlítilla. húsnæðislausra, illa
klæddra, fyrirlitinna þræla er und-
irstaðan sem öll byggingin hvílir á“
Þannig hljóða sannleikans heilögu
orð, og sælir eru þeir sem heyra!!!
Og þarna uppgötvaði Morgunblaðið
hið „heilbrigða raunsæi". Hvað ætli.
sé að marka það þó þjóðir Sovét-
rikjanna hafi staðið sem einn maður
í meir en tvö ár gegn mesta herveldi
heimsins og hrundið því, og þó Hitl-
er hafi kvartað undan því að Rúss-
land væri eina landið sem ekki fyrir
fyndist kvislingur í. Nei það fer jafn-
vel ekkert að verða að marka Hitler
úr þessu, hann getur farið sömu leið
og Mussolini, og þá er Wild West
eina vonin.
k.
Unglinga vantar til að bera Þjóðviljann til kaupenda.
Talið við afgreiðsluna Austurstræti 12, sími 21S4.