Þjóðviljinn - 06.08.1943, Side 2
jT _________
Deila Þrðttar við ríkisverksmiðjurnar
í frásögn Þjóðviljans í gær af stöðvun síldarverksmiðja rík-
isins á Siglufirði var á það minnst að deila hafi staðið milli
Þróttar og stjómar síldarverksmiðjanna um eftirvinnukaup al-
mennra verkamanna.
Sá ágreiningur er algerlega óviðkomandi núverandi deilu
milli kyndaranna og verksmiðjustjómarinnar, og hefur hann
verið lagður fyrir Félagsdóm.
I Mjölni, blaði siglfirzkra sósíalista, birtist 21. f. m. eftirfar-
andi grein um þá deilu:
UndanfariÖ hefur staöiö yf-
ir deila milli ríkisverksmiöj-
anna og Þróttar, um hvernig
skilja beri ákvæöi um eftir-
vinnu í gildandi samningum.
Af hendi ríkisverksmiöj-
anna var því haldiö fram, aö
eftirvinnu bæri aö greiöa fyr-
ir 41/2 tíma á sólarhring, þeg-
ar unniö er í tveimur 6 tíma
vöktum, en Þróttur hélt fram,
að þaö væri 5 Vz tími. Sam-
kvæmt gildandi kaupsamning
um er 8 stunda vinnudagur
og þar í innifalið V2 tími til
kaffidrykkju án frádráttar á
kaupi (frá kl. 9—9% árd.)
eða raunverulega unninn 7 Vz
tími. Af tveimur 6 tíma vökt-
um eöa 12 tímum er þá auð-
vitaö eftir 4Vz sem ber aö
greiða eftirvinnu fyrir, en þar
meö er málið ekki aö fullu
skýrt, því í samningunum er
enn fremur svo ákveöið, aö
verkamenn skuli fá frí án
frádráttar á kaupi, þegar unn
in er eftirvinna, V* tíma frá
4—4(4, 1 tíma frá 7—8 síðd.,
Vt tíma frá 11%—12 og Vz
tíma frá 3(4—4 á nóttunni,
eða samtals tvo tíma til mat-
ar og kaffi. í samningunum er
' skýrt fram tekið, að sé unnið í
þessum tíma greiðist tilsvarandi
lengri vinnutími, með öðrum orð
um tímana ber að greiða tvisv-
ar, ef þeir eru unnir. Þessir tveir
tímar á sólarhring eru auðvitað
unnir, þegar unnið er á vöktum
og kemur þá sinn tíminn á hvora
vakt, eða einn tími á 2 sex tíma
vaktir. Það ætti því öllum að
vera auðsætt, að eftirvinna fyrir
tvær 6 tíma vaktir á sólarhring
eru 5Vz tími.
En ríkisverksmiðjustjórnin
neitaði algerlega að fallast á
þennan skilning og stefndi
Þrótti fyrir Félagsdóm til að fá
úrskurð hans um málið.
Eins og eðlilegt var vakti þessi
málshöfðun miklu meiri gremju
í Þrótti. Hélt stjórn og trúnaðar-
mannaráð fund um málið, þar
var ákveðið að svara verksmiðju
stjórninni í sama tón og var það
gert á þann hátt að samþykkja
að verkamenn ynnu ekki í mat-
ar og kaffitímum. En niðurlag
3. gteinar kaupgjaldssamninga
Þróttar hljóðar svo:
„í matar og kaffitímum skal
því aðeins unnið að verkamenn
séu fúsir til þess“.
Þáð skal viðurkennt, að senni-
lega hefur verksmiðjustjórnin
litið svo á þegar samningar voru
gerðir að þetta ákvæði næði
ekki yfir menn á föstum vökt-
um, en um það er ekkert í samn-
ingunum. Réttur allra' verka-
manna til að neita að vinna í
matar- og kaffitímum er því for-
takslaus. Verkamönnum er ljósc
OPN AÐ
verður föstudaginn 6« ágúsf bl, 7.30.
Sundhöll Rcyfcjavíbur,
HYNDA-
ínnrammatiir
Höfum opnað myndainn-
römmunar-vinnustofu.
Allskonar myndir og mál-
verk teknar til innrömmvmar
Fljót afgreiðsla. — Vönduð
vinna.
Héðínshðfðí h. f.
Aðalstr. 6 B — Sími 4958
Lakk- og leður-
KJÓLA6ELTI
í miklu úrvali.
Verzlun H. Toft
Skólavörðustíg 5.
Sími 1035
►»»»»»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
að það kæmi sér illa fyrir síld-
arverksmiðjurnar, ef sá vani
væri tekinn upp að vinna ekki
í matar- og kaffitímum, og það
hefði engum dottið í hug að
leggja til að það yrði gert, ef
verksmiðjustjórnin hefði ekki
stofnað til illinda með málshöfð
un sinni. Öllum sem til þekkja
er kunnugt, að framkoma verk-
smiðjustjórnar í þessu máli er
óverjandi og bar henni tvímæla-
laust að leysa deiluna með sann-
girni, í stað þess að stofna til
málaferla, sem hljóta að vekja
úlfúð og gremju og spilla sam-
búð verksmiðjustjórnar og verka
manna verksmiðjanna..
Þegar verkamenn höfðu ákveð
ið að vinna ekki í matar- og
kaffitímum, höfðaði verksmiðju
stjórn >nýtt mál út af því. Það
varð þó úr, að samningaumleit-
anir fóru fram og mættu við
þær, af hálfu verksmiðjustjórn-
arinnar Þormóður Eyjólfsson og
Jón Gunnarsson, en af hálfu
Þróttar, Gunnar Jóhannsson,
Þóroddur Guðmundsson og Pét-
ur Baldvinsson. Eftir að nefnd-
irnar höfðu haldið þrjá fundi
og nefnd Þróttar leitað álits
trúnaðarmannaráðs og verka-
manna, sem vinna í síldarverk-
smiðjunum, náðist samkomulag
og voru samningar undirritaðir
í fyrradag.
Aðalatriði samningsins eru
þau, að verkamenn, sem vinna
á vöktum hafi ekki rétt til að
neita að vinna í matar- og kaffi-
tímum, verkamenn fái greiddar
strax 5 stundir á sólarhring í
eftirvinnu fyrir 2 sex tíma vakt-
ir, en málið haldi áfram fyrir
Félagsdómi. Úrskurði dómurinn
meira en 5 tíma greiða verk-
smiðjurnar það, en þó dómurinn
úrskurði minna en 5 tíma greiða
verksmiðjurnar samt sem áður
5 tímana. Ennfremur skuldbinda
verksmiðjurnar sig til að greiða
árlega kr. 600 í Hjálparsjóð
Þróttar“ Engu skal um það spáð
hvernig úrskurður Félagsdóms
fellur, reynslan verður að skera
úr því, en hitt verður ekki nægi
lega átalið að höfða mál og
stofna til illinda út af ágrein-
ingsmálum, sem auðvelt er að
leysa ef sanngirni er gætt.
Eftir ástæðum verður að telja
| rétt af verkamönnum að ganga
að þessum samningum við verk-
smiðjustjórnina, því lengra mun
ekki hafa verið hægt að komast.
en því verður ekki neitað, að
það er hart fyrir verkamenn að
þurfa að eiga rétt sinn í máli
þessu undir Félagsdómi, þó um
það skuli ekki sakazt úr því sem
komið er.
KAUPIÐ ÞJÓÐVILJANN
oBœiax/pózti'WÍnn
Afgreiðslustöð sérleyf-
isbíla
í tillögum skipulagsnefndar bæja,
sem nýléga voru birtar í blöðunum,
er ein uppástunga sem mér líkar sér-
staklega vel við. Og það sem betra
er, þessari tillögu má hrinda í fram-
kvæmd nú þegar án mjög mikils til-
kostnaðar.
Nefndin leggur til að komið verði
upp miðstöð fyrir afgreiðslu sérleyf-
isbíla 'hér í bænum. Nú er mesta ó-
lag á þessu. Sérleyfisbílarnir hafa af
greiðslu á fjölda mörgum stöðum i
bænum. í mörgum tilfellum á aðal-
götum bæjarins þar sem þær eru til
mikils trafala fyrir um ferðina.
Skipulagsnefndin leggur til að
þessari miðstöð verði komið fyrir á
svæðinu milli Arnarhóls og Sænska
frystihússins, þar sem nú er kola-
port kolaverzlunar Suðurlands. Betri
staður hefði vart verið finnanlegur.
Þetta er alveg í hjarta bæjarins, en
liggur þó um leið einkar vel við
Skúlagötu, sem á að verða aðalum-
ferðargatan út úr bænum.
Þarna er nokkur hæðarmunur og
leggur nefndin til að afgreiðslustöð^
in verði byggð í tveimur hæðum og
sé hægt að aka í þasr frá báðum hiið-
um.
Þessa afgreiðslustöð ætti svo að
reka á svipaðan hátt og járnbrautar-
stöðvar erlendis, með sérstakri far-
þega og flutninga afgreiðslu. Smám-
saman ætti að færá þessar ferðir 1
hendur þess opinbera, sem ræki þær
með hentugum tækjum.
Um leið og slík miðstöð er komin
upp þyrfti ávalt að hafa við hendina
varabíla sem Væru til taks bæjði ef
bilun yrði og ef eftirspumin eftir
ferðunum væri sérstaklega mikil.
Það er nú ekkert samkomulag
komið á um framtíðarskipulag bæj-
arins, sem heíur verið til athuguriar
í nokkra áratugi. En hér er tillaga
sem allir geta orðið sammála um,
sem brýn nauðsyn er á að verði fram
kvæmd sem fyrst og'sem ekki yrði
mjög kostnaðarsöm.
Baráttan við Alþýðuflokk-
inn.
Gamall og þrautreyndur Alþýðu-
flokksmaður hitti kunningja sinn á
förnum vegi nýlega.
Kunninginn var andstæðingur Al-
þýðuflokksins.
„Jæja“, sagði Alþýðuflokksmaður-
inn ,.nú þurfið þið ekki að vera að
berjast við Alþýðuflokkinn, Alþýðu-
blaðið er búið.að taka ómakið af ykk
ur“.
Sagði hann satt?
Ég hefi síðan verið að velta því
fyrir mér hvort Alþýðuflokksmaður-
inn hafi sagt þetta satt, og niðurstað-
an er að það sé alveg satt.
Alþýðublaðið berst gegn stefnu
flokksins í Sjálfstæðismálinu, það
berst gegn stefnu hans í bandalags-
málinu og það berst gegn Alþýðu-
flokksmönnum í Dagsbrúnarmálinu.
Það er.því óþarfi fyrir sósíalista að
vera að deila á Alþýðuflokkinn, hitt
væri nær sanni að verja hann fyrir
árásum Alþýðublaðsins.
Hvemig stendur á þessu?
Hvemig stendur á þessu furðulega
fyrirbæri? Því er auðsvarað.
Það hefur komið í ljós að hvar
sem sósíalistar og Alþýðuflokks-
menn hafa tekið upp samstarf hefur
það gengið ágætlega, þannig hefur
það verið í stjórn Alþýðusambands-
ins og þannig hefur það verið i stjóm
Dagsbrúnar. Skoðanamunur manna
úr þessum tveimur flokkum hefur
ekki verið teljandi, er þeir hafa
mætzt á þessum vettvangi.
Liku máli gegnir um starfið á Al-
þingi og í bæjarstjórn, oftast hafa
flokkarnir greitt atkvæði eins í hin-
um stærri málum, og oft hafa þeir
haft samstarf í kosningum í nefndir
og fundarstörf.
Reynslan hefur sýnt að eðlilegt og
rétt er að flokkar þessir vinni saman
og raunar ætti ekkert að vera þv£
til fvrirsöðu að þeir sameinuðust I
einn flokk.
Af einhverjum ástæðum mun Ste-
fán Pétursson líta á það sem sitt
mikla verkefni að hindra góða sam-
búð með þessum flokkum, og þá er
ekki annað fyrir hann að gera en að
berjast við Alþýðuflokkinn, þegar
hann er okkur sósíalistum sammála.
Þetta er skýringin á hinni dular-
fullu haráttu Alþýðublaðsins gegn
Alþýðuflokknum.
Afleiðingin.
Þessari afstöðu Stefáns. geta heið-
arlegir Alþýðuflokksmenn ekki svar
að nema á einn veg, þeir verða að
halda áfram samstarfi við sósíalista;
í verkalýðssamtökunum og annars-
staðar þar sem því verður við kom-
ið, og að því hlýtur að draga, að þeir
athuga í næði hvort þeim sé ekki
rétt að yfirgefa Stefán og- sameinast
sósíalistum. Stefán getur svo* haldið
áfram að gefa út skemmtiblað, og
skammað sósíalista, það er þeim gott
til fylgis.
Gleymið ekki samvinnufé-
lögunum.
Verkalýðshreyfingin er sameinuð
og sterk, hún er hafin yfir flokkspóli
tík, og einmitt þessvegna vinnur hún
sitt þýðingarmikla og stórpólitíska
starf vel og giftusamlega. En það ma
engan sósíalista henda að gleyma því
að næst verkalýðsfélögunum eru
samvinnufélögin hin mikilvægustu.
Þessvegna ber hverjum einasta sós
íalista, að vinna fyrir samvinnufé-
lögin eftir því sem hann fær bezt
áorkað. Þeir eiga- að verzla við kaup-
félögin og leitast við að efla þau á
allan hátt, meðal annars með því að
benda ráðamönnum þeirra á það sem
þeir telja að miður fari í rekstri.
þeirra. Reykvískum sósíalistum ber
öllum að starfa í ,,Kron“, þeir eiga
að gera það langstærsta og öflug-
asta kaupfélag landsins, en til þess
þarf samsillt átak allra, stjórnenda,
starfsfólks og félagsmanna. Munið
að verzla við Kron.
OÖOOOOOOOOOOOOÖOO
MUNIÐ
Kaffisöluna
Hafnarstræti 16
ooooooooooooooooo
Unglinga vantar til að bera Þjóðviljann til kaupenda.
Talið við afgreiðsluna Austurstræti 12, sími 2184.