Þjóðviljinn - 03.11.1943, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 03.11.1943, Blaðsíða 4
þJÓÐVILJINN Or borgltml, Næturlæknir er í Læknavarðstöð Reykjavík, sími 5030. Leikfélag Reykjavíkur sýnir Lén- harð fógeta í kvöld. Aðgöngumiða- sala hefst kl. 2 í dag. Æ. F. R. Skrifstofa Æskulýðsfylk ingarinnar, Skólavörðustíg 19 er op- in daglega kl. 6—7. Ljósatími bifreiða og bifhjóla er frá kl. 16,30 að kvöldi til kl. 7,30 að morgni. Útvarpið í dag: 18.30 íslenzkukennsla, 1. fl. 19,00 Þýzkukennsla, 2. fl. 20.30 Kvöldvaka: a) Kvæði Matthíasar Jochums sonar: „Þuríður Kúld“ (Upp lestur). b) Þórbergur Þórðarson rit- höfundur: Þáttur um frú Þuríði Kúld (f. 2. nóv. 1843) eftir frásögn Árna prófasts Þórarinssonar (fyrri hluti). c) Tónleikar. d) 21,20 Ásmundur Helgason frá Bjargi: Fyrir austustu nesjum íslands. Erindi (Bj. Vilhjálmsson cand. mag. flyt ur). Ennfremur íslenzk lög. Glímufélagið Ármann. Skemmti- fundur verður í dag kl. 9 e. h. Til skemmtunar verður: Einsöngur: Ólafur Magnússon frá Mosfelli. Guðjón Benediktsson segir gam- ansögur. Takið með ykkur skírteini til að sýna við innganginn. Mætið •11. Hjúskapur. Gefin voru saman í Hafnarfirði föstudaginn 29. fyrra mánaðar af séra Garðari Þorsteins- syni, ungfrá Laufey Andrésdóttir, Kárastíg 4, Reykjavík og Aðalsteinn Þórðarson, Hafnarfirði. Útvarpstíðindi, 3. hefti 6. árg. eru 'fyrir skömmu komin út. Flytja þau viðtal við Gunnlaug Briem verk- fræðing útvarpsins um margháttaða nýbreytni er útvarpið hefur í hyggjú ,að taka upp. Ennfremur er viðtal við Brynjólf Jóhannesson leikara, en hann stjóm ar leiknum „Heilagur Antonius", er leikinn verður í útvarpið laugardag- inn 13. þ. m. Auk þess eru í heftinu margs konar smærri greinar. Læknablaðið, 1. og 2. tbl.. 29. árg. hefur Þjóðviljanum borizt. Efni 1. heftis: Meðferð við orgoniska hjarta sjúkdóma eftir Theódór Skúlason; Ritdómar um „Röntgendiagostik"; Úr erlendum læknaritum; Frá lækn um og Tilkynning til lækna. Efni 2. tbl.: Um ilsig eftir Bjarna Jónsson; Árni B. P. Helgason, dán- arminning; Tökum við berklasjúkl- ingana snemma til hælismeðferðar? eftir Bjöm Guðbrandsson og Ólaf Geirsson; Sendibréf til lækna; Úr erlendum læknaritum; Frá læknum o. fl. Æskan 10.—11. tbl. 44. árg. er nýkomin út. Er þar áframhald sög- unnar Á ævintýraleiðum; IV. þáttur af barnaleikriti Ragnheiðar Jóns- dóttur: Líneik og Laufey; ennfrem- ur sögurnar Gullintöfrar, Vitrir hundar, Sl.vngur dómari og Barna- kóngurinn o. fl. ELZTA BINDINDISFÉ- LAG Á NORÐUR- LÖNDUM? Thorshavns Tatals Afholds- forening varð 65 ára 20. okt. síðastliðinn. Var félagið stofnað árið 1878. Mun það vera elzta starfandi bindindisfélag á Norðurlöndum NÝJA fM „Tígris" flugsveitin Flying Tigers). Stórmynd með: JOHN WAYNE, ANNA LEE, Sýnd kl. 7 og 9 Börn fá ekki aðgang. I a örlagasfundu (Before I Hang) Boris Karloff Evelyn Keyes Sýnd kl. 5 jBönnuð fyrir börn innan 16| ára. I TJARNÆSð# <SI Byssa tíl leígu (This Gun for Hire) Amerísk lögreglumynd VERONICA LAKE ROBERT PRESTON ALAN LADD Bönnuð fyrir börn innan 16 ára Áukamynd: Norskt fréttablað (m. a. frá Akureyri) Sýning Íd. 5, 7 og 9. Síðasta sinn. LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR. 9? LÉNHARÐUR FÓGETF eftir Einar H. Kvaran. Sýning í kvöld kl. 8. ■ Aðgöngumiðar seldir frá kl. 2 í dag. Fræislösfarí lifar f HafinM Verkamannafélagið „Hlíf“ í Hafnarfirði, heldur uppi fræðslustarfi þar í bænum fyrir meðlimi sína og aðra bæjar- búa. *&m Er fræðslustarfsemi félagsins í því formi sem algengast er nú orðið, en það er flutningur fræðandi fyrirlestra, sem fluttir verða á vegum félagsins. Nú þegar hafa tveir slíkir fyr- irlestrar verið fluttir á vegum Hlífar, annar af Jóni Rafnssyni erindreka Alþýðusamb. íslands um verklýðshreýfinguna, en hinn af hr. biskupnum Sigurgeir Sigurðssyni, sem flutningsmað- ur nefndi Á vegum krists og kirkju. Verkamannafélagið „Hlíf“ hef ur nú birt áætlun sína um fræðslustarfsemi sína. og er þar gert ráð fyrir að fyrirlestrar verði fluttir annanhvern sunnu dag í vetur í Góðtemplarahús- inu í Hafnarfirði kl. 4 s. d. Áætlun þessi fer hér á eftir: OKTÓBER: Verkalýðshreyfingin: Jón Rafnsson, erindreki Alþýðusam bands íslands. Verksmiðjan „ Sindri “ 2 ára Verksmiðjan „Sindri“ á Ak- ureyri á tveggja ára starfsaf- mœlí um þessar mundir. Verksmiðja þessi framleiðir kolsýru og kalk og gerir ráð fyrir að geta fullnægt þörfinni fyrir þessar vörutegundir í ná- inni framtíð. Hráefnið, sem verksmiðjan vinnur úr, er skeljasandur. MUNIÐ Kaffköluna Hafnarstræti 16 Á vegum Krists og kirkju: Hr. biskup Sigurgeir Sigurðs- son. NÓVEMBER: Sjálfvalið efni: Sigurður Nor- dal prófessor. Sjálfvalið efni: Jóhann Sæ- mundsson yfirlæknir. DESEMBER: Fiskveiðar íslendinga: Árni Friðriksson magister. Líkamsrækt: Þorsteimi Ein- arsson íþróttafulltrúi. JANÚAR: Alþýðutryggingarnar: Har- aldur Guðmundsson alþingis- maður. Leiklistin: Lárus Pálsson leik- ari. FEBRÚAR: Sjálfvalið efni: Símon Jóh. Ágústsson dr. phil. Bókalestur og bókaval: Magnús Ásgeirsson bókavörður. MARZ: Kaupstaðirnir og búskapur: Pálmi Einarsson ráðunautur. Samvinnuhreyfingin: Ragnar Ólafsson lögfræðingur. APRÍL: Skógrækt: Hákon B'jarnason skógræktarst j ór i. Aðgangur að fyrirlestrum þessum verður seldur svo vægu verði og unnt er, aðeins eina krónu. Er þess að vænta að Hafnfirðingar kunni að meta menningarstarf það er Hlíf er að vinna með þessari starfsemi sinni. 19 NINI ROLL ELÍ OG ROAR ... Þú ættir heldur að gera eins og ég sagði þér, Ingrid og lesa eitthvað, sem vit er í. Lestu Cellini. Hann er skemmtilegur líka. Og svo lærirðu dálítið, sem allir menn eiga helzt að vita eitthvað um — um Florentz og endur- reisnartímabilið. Ingrid sat álút og studdi höndum á legubekkinn. „Fólk- ið hérna í bænum veit ekkert um þetta. En allir lesa Binna og Pinna. Frú Sturland líka“. „Jæja, Ingrid, þú ert mesti apaköttur", sagði Elí og hló. „Komdu nú og hjálpaðu mér til að festa upp gluggatjöld. Viltu vera svo væn að sækja stigann?“ Hún sneri sér við og gekk út að glugganum. Litlu seinna stóð hún uppi í stiganum og Ingrid rétti henni títuprjóna, einn og einn. — Það heyrðist brothljóð. Stigarimin, sem Elí stóð á, hafði bilað'. Hún fálmaði eftir einhverju til að grípa í, en missti jafnvægið og féll aftur á bak. Stiginn datt ofan á hana. Það leið ekki yfir hana, en hræðslan lamaði hana fáein augnablik. Önnur öxlin og handleggurinn höfðu komið niður og hún fann ákaflega til. Hún lá hreyfingarlaus litla stund. En þá kom hún auga á Ingrid. Stúlkan stóð í sömu sporum með gula títuprjónabréfið í hendinni. Elí reis upp við olnboga og hreyfði ofurlítið þann handlegginn, sem meiddur var. „Eg er óbrotin“, sagði hún og brosti. Þá sleppti Ingrid loksins títuprjónunum og fór að hjálpa Elí. Elí drakk vatnið, sem Ingrid færði henni. Síðan fylgdi hún Ingrid með augunum, hreyfingum hennar snörum og ákveðnum. Þar sem hún stóð í stiganum og handlék gluggatjöldin. „Gáðu að þér barn“, sagði hún. Og svo bætti hún við: „Þú hefur orðið hrædd, þegar ég datt“. „Ég veit það ekki“, heyrðist ósköp lágt ofan frá glugg- anum. Þegar gluggatjöldin voru komin á sinn stað og þær höfðu horft á þau með velþóknun um stund, fór Ingrid inn í herbergi sitt og lokaði dyrunum. Hún nam staðar á miðju gólfi. bar hendina upp að munninum og beit sig í hnúana. Nei, hún hafði ekki orðið hrædd. Þegar hún sá stjúpu sína detta. Hún hélt fyrst, að hún hefði rotast. Og þá .... Ingrid fleygði sér niður í legubekkinn og byrgði and- litið í koddanum. --------Elí og Róar Liegaard höfðu ekki heimsótt neina í bænum, aðeins mætt fólki á götunum. Róar hafði tvisv- ar minnst á það, að eiginlega ættu þau að heimsækja einhverja. En Elí hafði eytt því. Var það nauðsynlegt? Allir þekktu hann. Óg hann gegndi starfi sínu eins og áður. Hann svaraði dræmt, að auðvitað væri það ekki nauð- synlegt starfsins vegna. Og hvað þau sjálf snerti, lá ekki neitt á. Sumarið mátti líða. Fólk gat satt forvitni sína í bráðina, að sjá hana á götu. — Forvitnin var að vísu lítt seðjanleg. Síðan gat það komið eins og af sjálfu sér að þau færu að umgangast þá, sem hann mat mest. Tveir af fé- lögum hans höfðu þegar heilsað Elí. Frú Sturland hafði komið einu sinni að morgunlagi, verið mjög alúðleg og fengið lánað vöflujárn — sem hún virtist kannast við. Kona, að nafni frú Tiller, hafði sjálf kynnt sig fyrir Elí í búð og verið hin ljúfasta. Auðvitað var það bezt, að þau fengju að vera útaf fyrir sig, óáreitt. Roar féllst á það. En einn góðan veðurdag kom skriflegt heimboð til kvöldverðar hjá Pryser yfirlækni og konu hans. Það var bjart maíkvöld og Elí fór í bláa kjólinn frá París. Þannig ætlaði hún að fylgjast með manni sínum í fyrstu kynnisförina í þessum bæ. Hún beið hans í stofunni. Hann var rétt kominn úr sjúkravitjun utan úr eyjum. Hún hafði lagt sparifötin hans á rúmið hans. Eftir tíu mínútur átti hann að vera ferðbúinn. Hún hafði beðið um bíl. Það var hljótt inni. Börnin voru úti, sitt í hverri áttinni. Kvöldsólin skein inn um gluggann. Hún sat í lágum hægindastól og strauk lófunum eftir mjúku silkinu. Hún leit á handleggi sína, sem voru nakt- ir. Annar var enn blár af mari, síðan hún datt úr stigan- um, en hún hafði borið á hann andlitsduft.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.