Þjóðviljinn - 03.11.1943, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 03.11.1943, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 3. nóvember 1943 ÞJ99VILJINN Alþýðusamband íslands hefur efnt til námskeiðs fyrir meðlimi sambandsins, þar sem veitt verður fræðsla um ýmis þau mál er verklýðsstéttinni er nauðsynlegt að hafa þekkingn á. Námskeið þetta fer fram í húsi Prentárafélagsins við Hverf- isgötu og hófst það í gærkveldi. Kennsla fer fram á kvöldin alla daga vikunnar nema laugardaga og sunnudaga. Folltríar attiMtt l Himiil m ðris 11 Ma ilnnilaglnn Tillaga um að lengja vinnudaginn upp í 10 stundir í vega- vinnu og' brúagerð, flutt af Sigurði Bjamasyni, Gunnari Thor- oddsen og Sigurði Þórðarsyni, var til umræðu á fundi í sam- einuðu þingi í gær. plÓflVIMINN Útgefandi i Sa, liningarflokkni alþýSa — Só*._ii»tttflokknrinn Ritatjórar i Einar Olgeirsson Sigfús Sigurhjartarson (áb.) Ritstjórn: Garöastraeti 17 — Vikingsprent Sími 2270. Afgreið__u og auglýsingaskrif— stofa Skólavörðustíg 19, neðstu hæð. Víki.igsprent, h.f. Garðastr. 17. Noskva- ráðstefnan Allir lýðræðissinnar heims fagna því, að stórveldin þrjú — Bandaríkin, Bretland og Sovétríkin — skuli hafa náð fullkomnu samkomulagi um hvernig vinna skuli stríðið sem fyrst og friðinn sem bezt. Það lýsti sér bæði ótti og eftirvænting í afstöðu lýðræð- issinna til Moskvaráðstefnunn- ar. Menn vissu um þær deilur, sem átt höfðu sér stað áður milli þessara forusturíkja hinna sameinuðu þjóða, um mjög ó- líka afstöðu til mála eins og myndunar nýrra vígstöðva, Amgot (hernaðarstjórn Breta og Bandaríkjamanna) á Ítalíu, júgóslafnesku og grísku aftur-. haldsstjórnanna í Kairo, pólsku fasistaklíkunnar í Lond- on, meðferðar á stríðsglæpa- mönnum o. s. frv. Vitanlegt var að afturhalds- seggirnir í Bandaríkjunum og Bretlandi reru að því öllum ár- um að spilla samstarfi milli þessara forustuþjóða, vekja tor- tryggni og úlfúð til Sovétríkj- anna, einmitt þegar þau færðu dýrustu fórnirnar í sameigin- legu frelsisstríði sameimiðu þjóðanna og jafnvel æsa upp til styrjaldar gegn þeim, er þau hefðu firrt mannkynið ógn- um fasismans. Áform þessara sundrungar- og afturhaldsseggja biðu skip- brot á Moskvaráðstefnunni. Af þeim yfirlýsingum, sem þegar eru kunnar orðnar, má sjá, að algert samkomulag hefur náðst — um aðgerðir til þess að ljúka stríðinu sem fyrst — um sam- starf til að tryggja friðinn og myndun alþjóðabandalags að stríðinu loknu — um frelsi ítala til þess að mynda samtök gegn fasismanum (Amgot bannaði starfsemi pólitískra flokka og lét fasistana sitja áfram í em- bættum) — um frelsi Austur- ríkis og um fleira og fleira, sem næstu vikur og mánuðir vafa- laust leiða í ljós. Einingin á Moskvaráðstefn- unni er þungt áfall fyrir naz- istastjórnina þýzku og öll hand- bendi hennar, innan Möndul- j veldanna sem utan. Nazistar eru nú sviftir síðustu voninni um sigur — sigur vegna sundr- ungar Bandamanna og langs stríðs. Vafalaust reyna afturhalds- öflin að spilla árangri þeim, sem náðst hefur í Moskva. Gömlu Munchen-mennirnir í London og Washington, þessir verndarenglar fasismans, munu einskis láta ófreistað M1 að eyði Á mánudögum verða flutt erindi um ýmis efni, en hina dagana fer fram kennsla í eftir- farandi greinum: Á þriðjudögum verður saga verklýðssamtakanna, kennari er Sverrir Kristjánsson sagn- fræðingur. Á miðvikudögum: Saga vinnu og framleiðsluhátta, kennarar verða Björn Franzson og Gylfi Þ. Gíslason dósent. Á fimmtudögum: Alþýðu- og f é lagsmálalöggj öf, kennarar verða Guðmundur Kr. Guð- mundsson tryggingafræðingur og Guðmundur í. Guðmunds- son lögfræðingur. Á föstudögum: Félagsstarf- semi og verða kennarar þeir J ón Sigurðsson framkvæmda- stjóri og Jón Rafnsson erind- reki. Ákveðið hefur verið að flytja þessi erindi á mánudögum: Stéttasamtök verkalýðsins og Alþýðusambandið, flutt af Þor- steini Péturssyni. V erklýðssamtökin og sam- vinnuhreyfingin, flutt af Guð- geiri Jónssyni forseta Alþýðu- sambandsins. Verkalýður og millistéttir, flutt af Finni Jónssyni alþing- ismanni. Lýðrœði og stéttaþjóðfélög, flutt af Karli ísfeld blaða- manni. Stórveldastefna og styrjaldir, flutt af Stefáni Ögmundssyni prentara. Alþýðan og þjóðernisbaráttan, flutt af Einari Olgeirssyni al- þingismanni. Baráttuaðferðir og markmið, flutt af Sigurði Guðmundssyni blaðamanni. Ennfremur mun verða flutt erindi um stéttasamtök og stjórnmálabaráttu, en enn er óráðið hver flytur það. ★ Fræðslustarfsemi sem þessi hefði þurft að vera framkvæmd fyrr á vegum Alþýðusambands- ins, en það, að hún er nú hafin, er óræk sönnun þess að núver- andi stjórn Alþýðusambandsins skilur þýðingu og nauðsyn auk- innar fræðslu til handa með- leggja Þá samfylkingu lýðræð- isaflanna, sem treyst hefur ver- ið og skipulögð á ráðstefnu Molotoffs, Cordell Hull og Edens. En lýoræðisöfl hvers lands — og þá verklýðshreyf- ingin þeirra fremst — verða að vera á verði og knýja það fram að eigi verði látið sitja við orð- in tóm, heldur knúðar fram stórfelldar aðgerðir í anda þeirrar einingar og virku lýð- ræðisstefnu, sem ofan á varð á Moskvaráðs efnunni. limum sambandsins og þá ekki aðeins aukinnar almennrar fræðslu, heldur fyrst og fremst fræðslu í þeim þjóðfélagsmál- um er varða verklýðsstéttina mest, bæði í dægurbaráttu hennar og starfi að auknum réttindum og áhrifum á þjóð- félagsmálin. Alþýðusambandið- er fjöl- mennustu samtök íslenzkrar al- þýðu, og er því mjög þýðingar- mikið fyrir starfsemi þess að hafa nægum hæfum' mönnum á að skipa. Meðlimir Alþýðusambandsins ættu ekki að láta þetta tæki- færi ónotað og má vænta þess, að þessi starfsemi sambandsins verði aukin í framtíðinni. Taflfélag Reykjavíkur byrjar vetrarstarfið með keppni milli Austur og Vest- urbæjar á sunnudaginn 7. nóv Taflfélag Reykjavíkur hefur nú hafið starfsemi sína og reglubundna fundi á nýjan leik, eftir tveggja ára óskipulagða starfsemi, sem orsakaðist af mjög tilfinnanlegum húsnæðis- vandræðum annarsvegar, en sumpart af frámuna óhentugum húsnæðisafnotum. Að vísu hef- ur félagið alltaf verið illa statt hvað húsrúm snertir síðan það varð að hverfa úr K. R.-húsinu, eftir komu setuliðsins forðum, en nú virðist svo, sem bætt sé úr brýnustu þörfum 1 bili, þar sem bæjarráð Reykjavíkur hef- ur nú nýlega heimilað félaginu afnot af sal í fyrrverandi „Hótel Hekla“, að vísu fremur litlum, en að ýmsu leyti mjög hentug- um. Verðskuldar bæjarráð tví- mælalaust þakkir fyrir sína skjótu ákvörðun og velviljuðu afstöðu í félagsins garð. Félagið hefur nú starfsemi sína með keppni milli Austur- og Vesturbæjar, sem verður háð næsta sunnudag (7. nóvem- ber), en í kjölfar þeirrar keppni siglir önnur meiri, sem sé „Inn- anfélagsmót Taflfélags Reykja- víkur“, sem féll niður í fyrra- haust, og verður án efa þar af leiðandi mjög fjölmennt í þetta sinn. Stjórn félagsins skipa: Aðal- steinn Halldórsson formaður, Guðmundur S. Guðmundsson féhirðir, Baldur Möller ritari, Óli Valdimarsson skákritari, Róbert Sigmundsson áhalda- vörður, Hafsteinn Gíslason með stjórnandi. joooooooooc^oe^xy^oo ÁsKriítarstml ÞPvitfsns er ‘2ta* <000«0099ð009000« Fulltrúar atvinnurekenda túlkuðu vel og dyggilega við- horf vinnuveitandans gagnvart réttindamálum verkamanna, í þessu tilfelli 8 stunda vinnu- deginum. Reyndu þeir þó öðr- um þræði að dylja 'sitt sanna innræti, með því að telja sig bera þessa tillögu fram af um- hyggju fyrir vegavinnumönn- um, sem vinna á fjöllum. uppi, og óðfúsir vildu vinna lengur en 8 tíma!! Sigurður Guðnason tók til máls og hélt uppi vörn fyrir 8 stunda vinnudegi. Benti hann á þá lævísu árás sem hér væri verið að gera á eitt mesta rétt- indamál verkalýðsins. Atvinnu- rekendur myndu ekki láta sér nægja að fá vinnutímann lengd an í þessari atvinnugrein, held- ur væri þetta aðeins upphafið. Hér væri ráðist á garðinn þar sem hann væri lægstur. Tók Sigurður til meðferðar þá fullyrðingu flutningsmanna tillögunnar, að 8 stunda vinnu- dagur væri óvinsæll meðal vegavinnumanna, sagðist hann hafa grun um að þær óvinsæld- ir stöfuðu af því hvernig vega- málastjóri og umboðsmenn hans út um land hefðu fram- fylgt samningnum milli ríkis- stjórnarinnar og Alþýðusam- bandsins um kaup og kjör í op- inberri vinnu. Flutningsmenn tillögunnar vildu telja, að lenging vinnu- tímans mundi flýta fyrir vega- og brúagerð svo verulega mun- aði, og ætti því þessi breyting að verða til þess að afskekkt héruð kæmust fyrr í vegasam- band, en ella hefði orðið. Sig- urður Guðnason taldi sína reynslu sanna hið gagnstæða, það fengjust betri afköst með 8 stunda vinnudegi en náðst hefðu með 10 tímum. Svo að líka frá sjónarmiði atvinnu- rekenda væri þessi „röksemd11 fjarstæða. Umræðum um málið var ekki lokið á þessum fundi, og því ekki gengið til atkvæða. Verkamenn og aðrir launþeg- ar ættu að fylgjast vel með, hvaða afgreiðslu þetta mál fær í þinginu og hverjir verða með og móti. Því augljóst er, að þetta er upphaf að harðvítug- um átökum milli launþeganna annarsvegar og atvinnurekenda hinsvegar, sem búast má við að komist í algleyming þegar at- vinna fer að minnka, en þá ætla þessir herrar að vera bún- ir að höggva fyrsta skarðið í múrinn. DAGLEGA ! NY EGG, soðin og hrá Kaf f isalan Hafnacðtrasti 16. 900«« >0 Aðalfundur Fær- eyingafélagsins Aðalfundur Færeyingafélags- ins (F. F. R.) var haldinn í Golfskálanum á laugardaginn var. Frú Herborg av Heygum Sig- urðsson bauð félagsmenn vel- komna og skýrði frá starfsemi félagsins, en það var stofnað 15. maí s.l. Félagið gekkst fyrir skemmti- ferð til Þingvalla, Gullfoss og Geysis á Jónsmessunni í sum- ar og hátíðahöldum á Ólafs- vökunni og var nokkrum hluta þeirra útvarpað. Þá hafði fé- lagið skemmtifund í septem- bermánuði og voru Páll Pat- ursson frá Kirkjubæ og Knut Vang ritstjóri gestir félagsins. Frú Herborg lét af formanns- störfum og var Peter Wigelund kosinn formaður í hennar stað. I stjórnina voru enn- fremur þessir kosnir: María Ólafsson, Herborg av Heygum Sigurðsson, Sofus Jacobssen málarameistari og Jens Kjeld skipasmiður. „SVERRIR KONUNGUR“. Þá var skýrt frá því á fund- inum, að lögþingið í Færeyj- um hefði ákveðið að gefa eitt herbergi í nýja stúdentagarð- inum og skyldi það heita „Sverrir konungur“ („Sverre kongur“). Að afloknum fundarstörfum og kaffidrykkju var stiginn dans. Tillaga sósfalista í raforkunálunun Framhald af 1. síðu. Auk þess er það vitað, að fyr- ir liggja, að því er tekur til annarra þessara staða, full- komnar áætlanir um raforku- veitur. Þá er það einnig vitað, að undanfarið hafa verið athugaðir möguleikar á því að útvega efni til þessara framkvæmda frá Ameríku, þótt enn hafi ekki fengizt útflutningsleyfi fyrir því. í sambandi við tillögu, sem liggur fyrir Alþingi, um að verja fé úr ríkissjóði til kaupa á efni í raforkuveitu til Kefla- víkur, hafa komið fram breyt- ingartillögur um, að fléiri stað- ir skuli njóta sömu hlunninda. Réttara þykir, að heimild til efniskaupa í raforkuveitur þessara staða sé samþykkt með annarri þáltill., þar sem sér- staklega stendur á um Kefla- vík, en munai veiða öllum að- ilum til tjóns, að kapphlaup yrði milli hinna ýmsu staða um sameiginleg nauðsynjamal þeirra“.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.