Þjóðviljinn - 30.12.1943, Side 6
ÞJÓÐVILJINN
Fimmtudagur 30. des. 1943.
KAUPTAXTI
er gildir um kaup og kjör á öllum mótor- og gufuskipum
undir 130 rúmlestir, sem stunda veiðar með dragnót (Snurre-
vaad) og botnvörpu og gerð eru út frá félagssvaeði undirrit-
aðra félaga:
1. Af heildarafla skipsins (brúttó) greiðist skipverjum 37%, er skiptist
jafnt milli þeirra, er á skipinu vinna.
2. Auk þess, sem greinir í tölulið 1 greiðir útgerðin:
til skipstjóra 1 hlut,
til 1. vélstjóra V2 hlut,
til stýrimanns, sem er vanur botnvörpuveiðum, með óvönum skipstjóra
1 hlut,
til stýrimanns, sem ekki er vanur netamaður, Va hlut,
til háseta, sem er netamaður, % hlut.
Nú er stýrimaður ekki fullgildur netamaður og skal þá netamaður
fá Vz hlut.
til 2. vélamanns kr. 116,00 og dýrtíðaruppbót, á mánuði,
til skipstjóra, sem er vanur botnvörpuveiðum, fæðispeninga,
til stýrimanns, vönum botnvörpuveiðum, fæðispeninga,
til matreiðslumanns, sem vinnur önnur skipsverk, 78 krónur á mánuði,
auk dýrtíðaruppbótar, miðað við allt að 7 manna áhöfn, en fyrir 9
manna áhöfn kr. 116,00 auk dýrtíðaruppbótar. Sé um stærri skips-
höfn að ræða, sé skylt að hafa sérstakan matreiðslumann, og hefur
hann kr. 116,00 auk dýrtíðaruppbótar, hvorttveggja á mánuði.
Séu aukahlutir lægri en að framan greinir, hækkar hlutur skipshafn-
ar (sbr. 1. lið) að sama skapi.
3 Skipverjar, sem vinna að útbúnaði skipa í byrjun veiðitíma eða að hon-
um loknum, svo sem hreinsun og málningu skipsbotns, hreinsun og
málningu ofan þilja og neðan, umfram daglegar venjur, svo og út-
búnaði veiðarfæra, ber útgerðinni að greiða samkvæmt gildandi kaupi
verkamanna á hverjum stað. Vélamenn og stýrimenn hafi hafi 25%
hærra kaup fyrir umrædda vinnu. Þar sem kjör við svona vinnu eru
betri en að framan greinir, skulu þau haldast óbreytt, eða í öllu falli
ekki rýrð. í nætur- og helgidagavinnu greiðist 50% hærra kaup. Fæð-
ispeningar greiðist skipstjóra og stýrimanni vönum á botnvörpuveiðum
samkvæmt reglum, sem gilda um fæðispeninga togaraháseta í Reykja-
vík.
4 Skip, sem siglir til útlanda með eigin afla greiðir skipverjum af brúttó-
sölu samkvæmt tölulið 1 og 2. Nú kaupir útgerðarmaður fisk til við-
bótar, kemur þá til skipta helmingur af brúttó andvirði þess fiskjar.
Ef færri menn eru á fiskveiðum en krafizt er til að sigla skipinu til
útlanda, þá greiðist þeim mönnum kaup og áhættuþóknun eftir þeim
reglum, sem gilda á flutningaskipum, og greiðist það af óskiptu.
5. Sigli skipið með veiddan afla og keyptan til sölu á erlendum markaði,
og verði fyrir töfum í ferðinni af völdum ófriðarins, sjótjóns eða véla-
bilunar, sem nemur meira en 6 sólarhringum samanlagt í ferð, greiðist
skipverjum kaup það, dýrtíðaruppbót og stríðsáhættuþóknun, sem
greidd er á samskonar skipum í flutningum með ísvarinn fisk á erlend-
an markað, samkvæmt samningum og kauptöxtum stéttarfélags hvers
skipverja þann tíma sem tafirnar tóku samanlagt lengri tíma en 6
sólarhringa.
6. Útgerðarmaður tryggi afla skipsins á sinn kostnað. Ónýtist afli af völd-
um sjótjóns, skiptist vátryggingarupphæðin á sama hátt og andvirði
aflans.
7. Útgerðarmaður tryggir hvern hlut skipverja fyrir hverja 30 daga af
ráðningartímanum með kr. 325,00 auk dýrtíðaruppbótar á það, og er
það ekki afturkræft. Nú víkur skipverji úr skiprúmi áður en 30 dagar
eru liðnir og skal honum þá greiddur hlutfallslegur hluti trygging-
arinnar.
8. Hásetar, matsveinn og vélamenn séu meðlimir viðkomandi félaga, eða
annarra verklýðsfélaga innan Alþýðusambands íslands, er veita sömu
réttindi, enda tryggi skipstjóri eða útgerðarmaður að svo sé við lög-
skráningu í skipsrúm.
Útgerðarmaður eða skipstjóri heldur eftir af kaupi eða aflahlut skip-
verja upphæð, er nemur ógreiddu iðgjaldi til stéttarfélags hans, ef þess
er óskað af félaginu og afhendir því þegar þess er krafizt.
9. Taxti þessi gildir frá 1. janúar 1944 og þar til öðruvísi verður ákveðið.
í desember 1943.
TAXTI
Sjómannafélag Reykjavíkur,
Sjómannafélag Hafnarfjarðar.
Verklýðsfélag Akraness.
Verkamannafélagið Þróttur,
Siglufirði.
Verkamannafélag Húsavikur.
Verkamannafélagið Fram,
Seyðisfirði.
Verkalýðsfélag Norðfirðinga,
Vélstjórafélagið Gerpir, Norðf.
Verklýðsfélag Fáskrúðsfjarðar.
Verkalýðs- og sjómannafélag
Gerða-og Miðneshrepps.
Verkalýðs- og sjómannafélag,
Keflavíkur.
Sjómannafélag Akureyrar.
um kaup og kjör á ísflutningaskipum svo og skipum, sem eru í vöru-
flutningum innanlanðs, sem ekki heyra, undir gildandi samninga.
1. Frá 1. janúar 1944 skal lágmarkskaup vera á mánuði:
1. Hásetar ......................... kr. 426,25
2. Kyndarar ......................... — 480,50
3. Matsveins ........................ — 465,00
4. 1. vélstjóra ..................... — 810,00
5. II. vélstjóra .................... — 607,50
Auk kaups hafa allir skipverjar frítt fæði. Auk hins fasta kaupgjalds fá
skipverjar frá 1. janúar 1944 dýrtíðaruppbót samkvæmt vísitölureikn-
ingi kauplagsnefndar og breytist uppbótin mánaðarlega eftir þeirri
dýrtíðarvísitölu, sem, birt er í næsta mánuði á undan.
L Á eimvélaskipum, sem sigla á milli landa skulu vera tveir kyndarar
og aldrei minna en 4 hásetar. Á mótorvélskipum sé_minnst 9 manna
skipshöfn, þar af 4 hásetar.
3. Skipverjar á skipum þeim, sem flytja fisk til útlanda, skulu að lok-
inni ferð frá útlöndum hafa 24 klst. dvöl í heimahöfn og fá hafnarfrí
þann tíma.
Nú flytur skip frá útlöndum kol eða aðrar vörur, í lestum eða á dekki,
sem tekur lengri tíma en tvo sólarhringa að losa, skulu skipverjar þá
hafa hafnarfrí þar til affermingu er lokið og lestir hreinsaðar, og vera
undanþegnir næturvarðstöðu fyrstu tvo sólarhringana.
4. Starfi skipverjar þeir, er á þilfari vinna að flutningi kola úr fiskirúmi
eða af þilfari í kolabox, eða „fyrpláss“ í millilandaferðum, fá þeir 6
krónur á vöku, auk dýrtíðaruppbótar. Sama þóknun greiðist kyndurum
fyrir flutning kola úr fiskirúmi eða af þilfari í kolabox eða „fyrpláss".
Engum einstökum manni er þó skylt að vinna að kolaflutningi lengur
en 12 tíma á sólarhring.
Sama greiðsla ber hásetum er kynda í ferðum milli landa.
Skipverjar þeir, er þessi taxti tekur til, vinni eigi að löndun fiskjar í
erlendum höfnum og meðan á styrjöldinni stendur heldur eigi að borða-
þvotti þar.
5. Liggi skip í höfn að aflokinni ferð frá útlöndum eða afloknum fisk-
veiðum og vinni hásetar eða matsveinar að hreinsun og viðgerð skips-
ins, skal þeim greitt tímakaup það, er hafnarverkamönnum, þar sem
verkið er framkvæmt, er greitt á sama tíma. Vélstjórar 25% hærra í
dagvinnukaup og 50% hærra í eftir- og næturvinnu, enda fæði þeir
sig að öllu leyti. Vinnutímar í viku séu ekki fleiri en 48 og frí frá
hádegi á laugardögum.
Vinni hásetar eða matsveinar að botnhreinsun skipa á útgerðartímabil-
inu, skal þeim greitt fyrir það samkvæmt ákvæðum, sem gilda um eft-
irvinnukaup hafnarverkamanna á hverjum stað. Nú vinna vélstjórar
á skipinu í samræmi við það sem að ofan greinir, skal þeim þá greitt
það kaup, sem vélamenn á togurum fá greitt fyrir sömu störf. Skip-
verjar hafa að öðru jöfnu forgangsrétt til vinnu við skipin við þau
störf, sem áður greinir, þar sem það kemur ekki í bága við lögbundin
réttindi iðnaðarmanna.
6 Útgerðarmaður greiðir fyrir tjón á fatnaði og munum við sjóslys 100%
hærra en nú er ákveðið í gildandi reglugerð, að viðbættri dýrtíðar-
uppbót af hvorutveggja.
7. Ef skipverji nýtur ekki fæðis um borð í skipinu, en vinnur annars fyrir
mánaðarkaupi, ber honum þá kr. 3,75 á dag í fæðispeninga frá útgerð-
inni, auk dýrtíðaruppbótar.
S. Liggi skipverji sjúkur í heimahúsum, en ekki í sjúkrahúsi, og útgerð-
armaður á að greiða fæði og sjúkrakostnað að lögum, skal útgerðarmað-
ur þá greiða honum fæðispeninga á dag kr. 3,75, auk dýrtíðaruppbótar.
Krefjist útgerðarmaður eða skipstjóri læknisskoðunar á skipverjum við
lögskráingu, skal hún framkvæmd skipverjum að kostnaðarlausu.
Verði hásetar, matsveinar eða kyndarar frá verki sökum veikinda eða
slysa, skal útgerðarmaður greiða þeim fullan hlut eða kaup í allt að sjö
daga, en allt að 30 daga ef um stýrimann eða vélstjóra er að ræða.
9. Áhættuþóknun skipverja í utanlandssiglingum skal vera sú sama og
felst í samningi dags. 16. júlí 1941, milli Sjóm.fél. Reykjavíkur, Sjóm.fél.
Hafnarfj. og Sjóm.fél. Patreksfj. annarsvegar og Fél. ísl. botvörpuskipaeig-
enda hinsvegar. Nú er skip í flutningum innanlands á hættusvæði, skal þá
greidd áhættuþóknun kr. 450,00 á mánuði umfram það kaup, sem ákveðið
er í 1. grein taxtans.
10. Hásetar, matsveinn og vélamenn séu meðlimir viðkomandi félaga,
eða annarra verklýðsfél. innan Alþýðusamb. íslands, er veita sömu réttindi,
enda tryggi skipstjóri eða útgerðarmaður að svo sé við lögskráningu í skip-
rúm. — Útgerðarmaður eða skipstjóri heldur eftir af kaupi eða aflahlut
skipverja upphæð, er nemur ógreiddu iðgjaldi til stéttarfélags hans, ef þess
er óskað af félaginu og afhendi því þá þess er krafizt.
11. Taxti þessi gildir frá 1. jan 1944 þar til öðruvísi verður ákveðið.
í desember 1943.
Sjómannafélag Reykjavíkur, Sjómainnafélag Hafnarfjarðar, Verkalýsfél.
Akraness; Verkamannafélagið Þróttur, Siglufirði; Verkamannafél. Húsa-
vikur; Verkamannafélagið Fram, Seyðisfirði; Verkalýðsfél. Norðfirðinga;
Vélstjórafél. Gerpir, Norðfirði; Verkalýðsfélag Fáskrúðsfjarðar; Verkalýðs-
og sjómannafélag Gerða- og Miðneshrepps; Verkalýðs- og sjómannafélag
Keflavíkur og Sjómannafélag Akureyrar hvað við kemur kaupi og kjörum
á ísfiskflutningum.