Þjóðviljinn - 28.01.1944, Síða 1
ÍMiP Ml ai laðAa siall Maaal
Þóroddur Guðmundsson Icggur fram þíngsálykfunarfíllögu um ad fcla
rikfssflórntnní að láfa fafarlausf endurskoda folfskrána og flyfja siðan
frumvarp um follalækkun, — Rannsókn hefur sýnf að follalækkun cr
Bæjarráð á að ráða
garðyrkjuráðunaut
Bæjarstjórn samþykkti í gær
tillögu borgarstjóra um að fela
bæjarráði að ráða garðyrkju-
ráðunaut fyrir bæinn. Bæjarráð
mun væntanlega afgreiða mál-
ódýrasfa lcíðin fil þcss að mínka dýrfiðína og sú, scm bczt samcínasf ið 1 dag
hagsmunum alþýðu
Þóroddur Guðmundsson, alþingismaður, sem var einn fulltrúi Al-
þýðusambandsins í síðari sex-manna-nefndinni, hefur lagt fram tillögu
til þingsályktunar um afnám og lækkun tolla á nauðsynjavörum. Með
samþykkt eða höfnun þessarar tillögu skæri Alþingi úr um það, hvort
það vill minnka dýrtíðina með þessum hætti, sem í senn virðist ríkinn
ódýrastur og alþýðu hagkvæmastur, — eða hvort það er eitthvað ann-
að, sem fyrir mönnum vakir, þegar mest er kvartað yfir böli dýrtíðar-
innar og tugum milljóna króna veitt úr ríkissjóði til að kaupa hana
niður til bráðabirgða.
Tillaga Þóroddar hljóðar svo:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta nú þegar fara fram
endurskoðun á lögum um toUskrá, í því skyni að fella niður tolla á þeim
vörum, sem áhrif hafa til hækkunar á framfærslukostnað, svo og Iækka
eða fella niður tolla á þeim vörum, sem atvinnuvegir landsmanna
þarfnast mest til framleiðslunnar, og ennfrsmur öðrum þeim nauðsynja-
vörum, sem beint og óbeint hafa áhrif til hækkunar á verðlag í land-
inu. Felur Alþingi ríkisstjórninni að leggja fram, svo fljótt sem unnt er,
frumvarp til laga, sem feli í sér framangreindar breytingar á tollalög-
gjöfinni.
Jafnframt felur Alþingi ríkisstjórninni að notfæra sér nú þegar
heimild í gildandi tollalöggjöf og hætta að innheimta tolla af stríðs-
farmgjöldum".
Bergsteinn Guðjónsson.
A ðaljundur Bijreiðastjórajélags-
ins Hreyjill var haldinn í Iðnó 36.
jan. Var þctta jjölmennasti jundur
sem haldinn liejur verið í jélaginu,
en jundinn sátu um 200 jélags-
menn. Formaður jélagsins, Berg-
steinn Guðjónsson, gaf skýrslu um
stórf jélagsins s.l. ár, ralcti hann í
stórum dráttum baráttu jélagsins
undanfarin ár og sýndi framá hver
styrlcur bijreiðastjórum vœri að
samtökum sínum, miðað við það
sem áður var, þegar engin samtök
voru til.
Þá skýrði hann frá stofnun Bif-
Teiðastöðvarinnar Hreyfill, sem
sjálfseignarbifreiðastjórar stofnuðu
1. des. s.l., en þar starfa nú 95 bif-
reiðar.
Eftir að reikningar s.l. árs höfðu
verið samþykktir var gengið til
stjórnarkosningar, og fór hún
þannig:
Formaður var endurkosinn Berg-
steinn Guðjónsson.
Fyrir sjálfseignarmenn voru
kosnir í stjórnina:
Ingjaldur ísaksson, Þorgrímur
Kristinsson og Tryggvi Kristjáns-
son, allir endurkosnir.
Fyrir vinnuþega voru kosnir í
stjórnina:
Ingvar Þórðarson, Björn Stein-
dórsson, báðir endurkosnir, og
Valdimar Konráðsson.
Greinargerðin er á þessa leið:
„Ein af ástæðunum fyrir hinu I
háa verðlagi í landinu eru þeir gíf- j
urlega háu tollar, sem ríkið leggur
á flestar innfluttar vörur. Tollarn-
ir hafa farið ört hsakkandi á und-
anförnum árum og eru nú rúmlega
sjöfaldir á við það, sem þeir voru
fyrir stríð, því að 1938 námu að-
flutningstollarnir rétt um 7 millj.
kr., en tvö undanfarin ár um 50
millj. króna hvort ár. Nú er ekki
nóg með, að þessir tollar hækki
innfluttu vörurnar um 50 milljónir
króna á ári, heldur kemur ofan á
það álagning bæði heildsala og smá
sala, sem er varlega áætluð 50 til
00% eða 25 til 30 millj. og senni-
lega þó nokkuð miklu meira.
Það hefur verið reiknað út, að
afnám tolla á þeim vörum, sem
vísitala kauplagsnefndar er reikn-
uð eftir, mundi lækka vísitöluna
um 20 stig a. m. k. og mundi valda
mciri lækkun á dýrtíðinni en á
vísitölunni. Við útreikninga, sem
gerðir hafa verið, að vísu í flýti,
virðist svo scm ríkissjóður mundi.
við það tapa í tolltekjum 8^2 millj.
króna. Þegar þetta er borið saman
við það, að ríkissjóður hefur und-
anfarið keypt niður vísitöluna um
14 til 15 stig með því að grciða
niður verð á kjpti og mjólkuraf-
urðum, en það nemur um 15 millj.
króna útgjöldum á ári, sést bezt,
live mikið liagstæðara væri fyrir
ríkissjóð að afnema tollana á nauð-
synjavörum. Eftir því sem bezt
Framhald á 8. síðu.
Valdimar Lconardsson.
Aðalfundur Félags
b fvélavirkjd
Aðaljundur í Félagi bifvélavirkja
var haldinn 26. þ. m.
í stjórn voru kosnir:
Formaður: Valdimar Leonards-
son.
Varaformaður: Arni Stefánsson.
Ritari: Sigurgestur Guðjónsson.
Gjaldkeri: Jón Guðjónsson.
Varagjaldkeri: Gunnar Bjarna-
son.
ISIO
es>*- .
Sigurhátid haldín i Lcnitigrad
Govoroff hersböfðingi, yfirmaður rauða hersins á
Leníngradvígstöðvunum gaf úr sérstaka dagskipun til
hers síns í gær 1 tilefni af sigrum þeim, sem unnizt
hafa í 12 daga sókn. Segir í dagskipuninni að hernum
hafi tekizt að ljúka því sögulega hlutverki, sem honum
hafi verið falið, nefnilega að leysa Leníngrad úr um-
sátursástandi og hafnbanni. 700 bæir og þorp hafa verið
tekin á þessum dögum. — Mikil hátíðahöld voru í Len-
íngrad í gærkveldi.
f hinni venjulegu herstjórnartilkynningu var sagt
frá töku Volosovo og Tasno.
í dagskipun sinni þakkaði Þjóðverja hefðu verið molaðar
Govoroff hersveitum sínum á endilangri víglínunni. Væri
frammistöðuna og eins aðstoð það nú ekki lengur á valdi
flotans. Sagði hann að varnir Framhald á 8. síðu.
Gaf rannsóknin á Þormóðsslysinu bendingu um, að
ekki mætti breyta togurunum á þann hátt, sem
gert hefur verið?
Vill Sjálfstæðisflokkurinn láta þagga gagnrýnina
niður með málshöfðunum?
Á fundi sameinaðs Aiþingis í gær kvaddi Gísli Jónsson sér hljcðs
utan dags.krár, og heindi til atvinnumálaráðherra ýmsum fyrirspurnum
í samhandi við rannsókn Þormóðsslyssins, m. a. hversvegna niðurstöður
rannscknarinnar væru ekki birtar, þótt liðnir væru ca. fimm mánuðir
frá því sjódcmur Iauk rannsókninni.
Út af þessu spunnust talsverðar j
umræður, og var auðheyrt, að sú
almenna gagnrýni á útbúnaði og
breytingum fiskiskipanna og eftir-
liti með þeim, sem komist hefnr á
loft, eftir að Þjóðviljinn hóf að
skrifa um þcssi cfni, hefur skotið
forsvarsmönnum útgerðarinnar
nokkurn skelk í bringu.
í umræðum þessum upplýsti
Bjarni Benediktsson — og taldi
sig ekki segja það út í bláinn, þó
ekki væri búið að birta það opin-
berlega — að rannsókn Þormóðs-
slyssins mundi hafa gefið ákveðna
bendingu um, að hættulegt væri
öryggi fiskiskipa að gera á þeim
slíkar breytingar, sem gerðar liafa
verið á ýmsum togaranna, ejtir að
Þormóðsslýsið varð.
Ef þetta reynist rétt vera, er
cnn vítaverðara, að ekk'i skuli hafa
verið birtar niðurstöður rannsókn-
arinnar, og látið, eftir sem áð-
ur, viðgangast að togurunum sé
breytt, o'r öryggi þeirra þannig
stórlega rýrt.
Frh. á 8. síðu.