Þjóðviljinn - 24.03.1944, Blaðsíða 3
Föstudagur 24.. marz 1944.
ÞJÓÐVILJINN
3
Skfðaferðir skðlabarna
og skfðadagur
Fyrir nokkru var borin fram í bæjarstjórn tillaga um það að
bæjarsjóður legði fram nokkurt fé til kaupa á skíðum er skóla-
börn hefðu afnot af til skólaskíðaferða. Hefur svo vel tekizt, að
þessi ágæta tillaga hefur verið samþykkt. Þessi ráðstöfun, eða
fyrirhyggja, er vissulega gleðiefni öllum íþróttamönnum og
öllum þeim, sem skilja þrá barna og unglinga eftir leikjum.
Það er líka spor í þá átt, að beina hugsun þeirra að hollri hreif-
ingu og útiveru. Vekja hjá þeim félagshneigð, og þá hlýtur leit-
in eftir félagsskap í þessa átt að vakna þegar skólanum sleppir.
Eiga íþróttafélögin þá að taka við þeim betur undirbúnum en
nokkru sinni fyrr.
Þess vegna finnst mér, að skíðafélögin sérstaklega, ættu að
gegna þessu hlutverki og efna til eins skíðadags á vetri þar sem
seld væru merki til ágóða fyrir skíðakaup handa skólabörn-
um. Þessari hugmynd mun Jón Kaldal hafa hreyft fyrir nokkr-
um árum í einu af dagblöðum bæjarins. Mun þetta hafa fengið
heldur góðar undirtektir þótt ekki hafi enn verið að gert.
Nú er einmitt tækifærið til að hefjast handa um þetta og
æt'ti skíðaráðið að hafa forgöngu í málinu hér, og er því vel
treystandi til þess, svo öruggt og gott hefur starf þess verið
frá fyrstu. Samstarf þyrfti að vera milli þess, skólastjóra óg
kennara um sölu merkjanna og svo við börnin sjálf sem mundu
selja merkin. Þennan dag yrði kennsla að falla niður, svo að
þau gætu sinni sölunni.
Hvert barn þarf að taka þátt í sölunni, enda geri ég ráð fyr-
ir að þau yrðu beztu sölumennirnir. Það vekur líka áhúga þeirra
að þau eiga sjálf að njóta ágóðans eftir þeim reglum sem settar
yrðu um skíðaferðir skólanna.
Til mála gæti komið að hver skóli fengi það sem hann safn-
aði, og þannig vakið svolitla keppni hjá börnunum. Til þess nú
að vekja athygli borgarbúa á deginum frekar, mætti efna til
skrúðgöngu skíðafólks um götur borgarinnar er bæru skíði um
öxl, er endaði á Austurvelli með snjöllu ávarpi fluttu í útvarpi
þar sem skorað væri á alla íslendinga að styðja þessa viðleitni;
að koma unga fólkinu í faðm fjallanna, fegurðarinnar og holl-
ustunnar.
Þessi skíðadagur verður að vera fyrir allt landið og er ég
viss um að fræðslumálastjórnin myndi ljá þessu lið og íþrótta-
fulltrúi ríkisins. Þar verða skíðafélögin á hverjum stað að ná
samstarfi við kennarana. Sama merkið yrði notað allstaðar. Eg
tel alveg sjálfsagt að íþróttafélögin láni skála sína virka daga
vikunnar enda eru flestir þeirra meira og minna styrktir af
opinberu fé. Félögin hafa líka vonina í þessu unga fólki þegar
það stækkar og njóta þá starfskrafta þess. í Svíþjóð hefur um
langt skeið verið tekinn einn dagur sem skíðadagur til fjár-
söfnunar fyrir skólabörn.
Er það Skidfrámjandet sem hefur forystuna í því. Hafa
safnazt þar stórupphæðir og tugþúsundir barna hafa komizt á
skíði sem ella hefðu átt þess engan kost. Sama yrði það hér.
Fjöldinn allur af börnum og unglingum á þess engan kost að
Icomast á skíði eins og er, en með þessari söfnun og styrkjum
frá því opinbera eins og Reykjavík hefur ákveðið, mundi fjöld-
anum opnast leið. Þótt mikið sé um peningasafnanir, þá munar
ekki mikið um þó einni sé bætt við og mundu fáir telja eftir
sér að styrkja þetta málefni.
Að sjálfsögðu ætlast- ég ekki til þess að það opinbera dragi
úr stuðningi sínum vegna söfnunarinnar.
Eg vil að lokum vekja athygli á því, að ef góð samvinna tæk-
ist með skólum og íþróttafélögum, að þau gætu ef til vill skipzt
á og lánað kennara í skíðaferðir barnanna. Á ég þar við að
margir hinir snjöllu skíðamenn þeirra, sem ekki eru því bundn-
ari störfum gætu farið daga og daga.
Eg treysti því að skíðamenn hér í Reykjavík taki með dugn-
aði á þessu máli, því skíðasókn þeirra sýrfir ótvíræðan dugnað.
Ef íþróttafélögin, kennarar og börn um land allt, með aðstoð
íþróttafulltrúa og fræðslumálastj.órnar, le^gjast á eitt um einn
skíðadag einhvern tíma vetrar, mun mikið ávinnast.
HANDKNATTLEIKSMOTIÐ
Hafnflrðingar vnru f úrslitum f öllum flokkum
Stúlkur Ármanns sigra S sinnum í rðð
Arnie Anderson hlawparinn
samski, sem á tvö aj heims-
metum ársins 19^3. Iíann jékk
líka heiðursgidlpening „Sven-
slca Dagbladets“ 19\3. Eru
Svíar ánœgðir yjir þessum ár-
angr Andersons, sem svo lengi
hejur orðið að hlaupa skugg-
ann aj Gunder Hágg.
★
Elzta skráða heims-
met er að verða
75 ára
Áður en langt um líður mun
koma út skrá yfir öll þau met,
sem I.A.A.F. (International
Amateur Athletia Federationl
Alþjóðasambandið í frjálsun;
íþi'óttum hefurstaðfest. I.A.A.F.
er stofnað 1912 í sambandi við
Olympiuléikana í Stokkhólmi.
Til gamans má geta þess hér,
að íþróttasamband íslands var
stofnað sama ár og í tilefni af
för útlendinga á Olympiuleik-
ina 1912. Elzta metið sem stað-
festingu hefur fengið er að
verða 75 ára gamalt, en það
var 20 mílna ganga sem geng-
in var 20. des. 1870. Var það
Englendingurinn T. Griífith,
sem gekk vegalengdina á
2,47,52. (Núverándi heimsmet
á þessari vegalengd er 2,24,54 2,
sett af Frakkanum F. Cornet,
1942). Þetta met var svo stað-
fest 43 árum síðar.
Á þessum metlista eiga Sví-
ar hvorki meira né minna en
61 heimsmet. Af þeim eru 34 í
hlaupum; 23 fyrir göngu og 1
fyrir köst.
Elsta skráða met þeirra er |
Handknattleiksmótið, sem
fer fram innan húss á hverjum
vetri, er orðið einn af stærii
íþróttaviðburðum vetrarins hér
Er slíkt ekki undarlegt þar
sem um er að ræða ef til vill
flesta þátttakendur af öllum
mótum sem fram fara hér í
Reykjavík og um land allt þeg-
ar miðað er aðeins við eina í-
þróttagrein. Flokkarnir munu.
alls hafa verið 25 með 6 í
hverjum sem gera til samans
150 manns. Sýnir það gróanda
og áhuga í þessari grein þrátt
fyrir slæm skilyrði sem ég hef
svo oft minnzt á.
Keppni í handknattleik hef-
ur nú farið fram í 5 ár hér í
Reykjavík. Þeir, sem fylgzt
hafa með frá byrjun hafa séð
þá miklu framför sem orðið
hefur hjá flokkunum. Sóknin
er orðin skipulegri og vörnin
lobaðri, og gripið betra. Ef til
vill hafa menn veitt því athygli
að því meira sem menn kunna
og því betri sem flokkarnir ,
voru, var auðveldara að dæma,
því neðar sem dróg í flokkana
því villtari og óviðráðanlegri
voru leikmenn og sumir þann-
ig að þurft hefði að vísa þeim
úr leik.
Sem dæmi um þetta sem hér
er sagt, er það, að úrslitaleikur
Hauka og Vals í meistaraflokki
er einhver sterkasti leikur og
kraftmesti sem farið hefur hér
iram, en auðveldasti leikurinn
fyrir dómarann. Ræður þarna
sjálfsagt ýmislegt: slæm æfing,
slæmt grip, vankunnátta a
reglum, vanstilling á skapi, o.
fl. Á þessu þarf að sigrast og'
þurfa kennarar að vera vel vak
andi fyrir þessum atriðum.
í þessu móti hefur það vilj-.
að til að Hafnfirðingar hafa
verið í úrslitum 1 öllum flokk-
um. Haukar með alla sína
flokka, meistara og kvennafl.
og svo II. fl. sem þéir unnu.
F. H. var líka í úrslitum í I.
fl. Er þetta góð frammistaða
hjá Hafnfirðingum og ætti að
gefa öðrum trúna á það, að
með ástundun, æfingum og á-
huga er hægt að ná langt jafn-
-------r—----------------------
4x200 m. hlaup, sett af A.I.K.
13./9. 1908. Af þessum 34
hlaupametum á Gunder Hágg
11 met. Aðeins 3 eru fyrir spjót
kast og eitt fyrir kringlukast.
í göngunni eru það aðallega
tveir menn sem setja metin,
en það eru þeir J. Mikaltsson
með 11, og W. Hardmo með 3
og voru 7 af þeim sett s.l. sum-
ar.
vel svo að þeir ,,stóru“ i
Reykjavík kóVnist í tvísýnu
eða verða að horfa á bak grip-
um sem keppt er um.
I öll þessi 5 ár hefur stúlkna
flokkur Ármanns verið ósigr-
andi, unnið öll mótin.
Valur hefur aftur á móti tap
að aðeins einum leik í þessi 5
ár (s. 1. ár við Hauka 20:16).
Öll þessi mót hafa farið fram
í húsi Jóns Þorsteinssonar og
tíminn frá kl. 10—12 á kvöld-
inn notaður yfirleitt. Hefur Jón
sýnt þessu mikinn velvilja þar
sem heimilisfriði og öllu næði
er raskað meðan mótin standa
yfir. Undanfarin ár hefur þetta
þó tekið lengri tíma, en það
mun ekki sök Jóns eða skil-
yrði að leikjum var svo mjög
fækkað frá því sem verið hef-
ur. En eins og ég gat um um
daginn, hefur handknattleiks-
ráðið í mörg horn að líta og
verður að taka vasklega á mál-
unum.
Elzta knattspyrnufélag
Færeyja 52 ára
Um þessar mundir er okk-
ar elzta knattspyrnufélag að
halda upp á sitt 45 ára afmæli.
í því sambandi er gaman að
geta þess, að elzta knattspyrnu
félag Færeyja er stofnað 1892
og er Tveraa Boldklub.
Var þetta félag lengi eitt um
hituna eða 12 ár en þá er
Havna Boltfelag stofnað 1904.
Síðan risu félögin upp hvert
af öðru.
Fyrstu leikirnir sem leiknir
munu hafa verið í Færeyjum
voru milli Klakksvik og Thors
havn 1911. Thorshavn vann 5:0.
Árið eftir léku þau saman aft-
ur í Þórshöfn og vann Thors-
havn enn 2:0. Þetta var í júní
en 18 ágúst fara Þórshafnar-
menn til Klakksvikur og verð-
ur þá jafntefli 3:3. Var það í
fyrsta skipti sem keppt var
þar. 1913 sameinast. Tvöroyri,
Niðvágur, Eicþ og Klokksvík
gegn Þórshöfn. Endaði sá leik-
ur með sigri Þórshafnar 3:0.
Færeyjameistarar voru 1942
K. F. Klakksvík en 1943 varð
T. b. Tvöroyri. Meistari nr. 2
varð H B. Þórshöfn
Frán Albacken til! U. S. A.
AUur hinn menntaði heimur
veit hvílíkur hlaupagarpur
Gunder Hágg er, en fáir munu
vita að hann hefur um skeið
fengizt við íþróttablaða-
Framh. á 8 síðu