Þjóðviljinn - 21.06.1944, Síða 2

Þjóðviljinn - 21.06.1944, Síða 2
2 ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 21. júní 1944» í snmarleyfi Reykjavík með sínum rykugu strætum, hávaða sinum, ys og óró, kvöðum sínum og takmörkunum, hún er orðin að endurminning hug- ans. Allt draumur og óveruleiki nema hið litla þorp með lágreist- um, vinalegum húsum í dökkum, miklum sandi, og ekkert lögmál framar nema þrá hjartans. — Svona getur - einn hversdagslegur verkamaður komizt nálægt ský- unum í huganum, sem bíður þess einn glaðan morgun austur í Vík í Mýrdal, að hesturinn hans komi í hlaðið. Við erum þríiJ bræður í sumar- fríi, sem sitjum við rætur Reynis- fjallsins og bíðum. Og við horfum út á hafið, blátt og kyrrt. Fiski- skip með dökkum, gljáandi byrð- ing, er að veiðum úti undan strönd inni, en niður í huga manns detta hendingar úr ljóði, sem einna skemmtilegast hefur kveðið verið af íslenzku skáldi: „Snæddi ég lítt af duggarans pjáturdisk, og drakk með Flandramönnum þrettán jól“ .....Og meðan við virðum fyrir okkur uppskipunarbátana og fiski- bátana niðri í uppsátrinu, sem flest ir eru grafnir niður í sandinn svo aðeins sést á hnífla og söx. — Því þegar stormurinn æðir yfir Víkina, fýkur sandurinn eins og mjöll, og bátana skeflir. — Þá fljúga mala- múkkarnir sitt livíta hópflug uppi við grænar sillur fjallsins, en klið- ur þeirra berst yfir staðinn eins og viðlag voldugrar þagnar. Síðan koma hestarnir. Páll á Heiði ætlar að verða leið- sögumaður okkar félaga í einu lít- ilsháttar ferðalagi. Ilann er aldinn að árum, þó fullur fjörs eins og galdur foli. Góðfrægur maður í sínu byggðarlagi og elskulegur. Hestamaður og hættur að búa. Geltandi hundar fylgja okkur á leið, en gömul kona og berhöfð- uð, stendur úti undir vegg á húsi, skyggir hendi fyrir augu og horfir á eftir okkur, þar sem við ríðum hjá og austur sandinn. Ekkert orkar á hugann af dýpri fögnuði en fjörsprettur góðhests- ins, nema ef vera skyldi, „að sigla fleyi og sofa í ungmeyjarfaðmi“, minnsta kosti, þenna morgun finnst okkur sem hinar fallegu lín-' ur Theodóru Thoroddsen, séu kveðnar útúr okkar eigin barmi: „Að láta dýrið dilla sér, drottinn, það er brot af þér“. En þegar eft- ir hina fyrstu áningu í angandi mó undir háum hömrum, þar sem maður hefur látið tappann fjúka úr ferðapelanum og drukkið frels- isins skál, og er aftur stiginn á bak færleiknum, þá tekur maður undir með Einari Benediktssyni, af hjart ans list: „Knapinn á hestbaki er kóngur um stund, kórónulaus á hann ríki og álfur“. Ilestarnir eru prýðilegir, enda gæti Páll á Heiði, aldrei látið sér detta í hug að fara í útreiðar með móbikkjur og drógar. Sjálfur á hann hryssu eina, gráa að lit, sem ýmist er kölluð Lotta, í höfuðið á gömlum sveitardraug — að ^g held — eða Kata, í höfuðið á dótt- ur hans. Og fyrr en varir erum við komn- ir á þann stað sem heitir Kerling- ardalur. Þar er byggð. Þar voru hin fyrstu hefndarvíg vegin, eftir Njálsbrennu, þegar þeir Kári Söl- mundarson og Þorgeir Skorargeir, káluðu þar fimm mönnum á skammri stijndu og voru reiðir. Á þeim slóðum eru nú aðeins nokkr ar friðsælar lambær sem bíta gróð- urinn í grænum lækjardrögum, og mófuglar sem hrökkva af blundi við hófatak hestanna, grípa til flugsins og hverfa. Og dalinn þrýtur og Höfða- brekkuheiðarnar eru framundan og til beggja handa, greiðfærar, gróð- ursælar og fagrar. Þar þýtur fjalla- blærinn og þaðan er fögur útsýn til jökla. Við gefum hestunum slak- an tauminn, þeir skilja hálfkveðna vísu og geysast austur heiðarnar eins og sjálf Höfðabrekkujóka væri á hælunum á þeim. ' Seinna, þegar liðinn tími hafði varpað bláma fjarlægðarinnar yfir þá fantareið, var þessi vísa kveð- in: v* í fáksins spori var fjör og eldur og fagnaðskennd. og gömul slóð austur gamlar heiðar var gulli rennd. Og hvíta hestinn sem fór þar fremstur, hvar frelsið hló, sat Páll á Heiði og elztur allra, en yngstur þó. Á hárri brún eystri takmarka heiðanna, stigum við af baki og horfum yfir Mýrdalssandinn sem liggur framundan og fyrir neðan fætur okkar og minnir á eyðimörk- ina Sahara eins og hún birtist í hugsærri mynd einhverrar bókar- innar sem við lásum í æsku. Og ósjálfrátt vekjast upp í huga manns þessi hispurslausu vísuorð Þorsteins Erlingssonar: „Hann leit yfir allt eins og gullvægt og gott, það gæti ég djöfulinn ekki“. — Og það er eins og maður sjái fyr- ir sér álútan baksvip annars skálds, hvers land er týnt, á hvergi heima, en eitt í fylgd með nótt- inni, yrkir þunglyndislega vísú sem lifir meðan íslenzk tunga er töluð. Hér, á þessari brún, sat Páll á Heiði, við hvíarnar frá Höfða- brekku, þegar hann var drengur. Hann svipaðist um og í gráum augum hans er dreymni. Austur um miðjan sand hleyp- um við okkar ágætu hestum. Þar, eins og gneip klettaborg, rís Ilaf- ursey með sæluhús, hestarétt og grænum bletti. Hér er það dul þjóð sögunnar sem ræður húsum. í rokkinni birtu göngum við upp fornfálegan stiga, upp á fornfálegt loft, og þeir sem hafa gaman af afturgengnu fólki eru komnir heim. En kaffið er gott. Við hitum okk- ur sopa á olíuvél, og drekkum hann úr leirkrúsum. — Páll veit ekki til þess 'að hér liafi nokkru sinni liengt sig maður. Síðan vendum við okkar kvæði í kross. Leiðin liggur til baka, og þó um aðrar slóðir og norðar um heið- arnar. Þar er landslag hrikalegt og eyðilegt: tröllvaxnir hólar og örfoka, en aldagamlir troðningar og staksteinóttir, djúpt niðri, snúa sig eins og grannir þræðir á milli þeirra og minna á hinn þrönga veg Heilagrar Ritningar. Útsýn upp til marinskýja á himnum. Þar heita Sund. Við ríðum greitt út Sundin, og Páll á Ileiði ávalt drjúgan spöl á undan. Eiginlega komumst við al- drei í kallfæri við hann fyrr en hryssan hans stanzar af sjálfsdáð- um við ársprænu og fær sér að drekka. Auðvitað köllum við hann skepnuníðing og manndrápara, enda virðast innýfli okkar öll úr lagi færð, og harðsperra í þind- inni. En hinn aldni skröggur lítur við okkur hógvær, fullur skilnings, gefandi þá skýringu að allir liestar séu þakklátir fyrir að vondir veg- ir þrjóti sem fyrst. Og liann blak- ar við hríslunni sinni á nýjan leik, og er horfinn eins og fugl sem flaug upp af götuslóða á Kerling- ardal í morgun. Við hvílum lijá vallgrónum liúsa tóftum drjúgan spöl vestan við sundin. Kvöldið er að færast yfir. Iívítar kindur niðri á enginu og einn röskur sprettur eftir heim í lilað á Ileiði í Mýrdal. Þctta ferðalag er brátt á enda. í lágnættinu riðum við niður brekk- urnar ofan við Vík og heim að húsi Páls. Nokkrir hæglátir fuglar eru á flögri uppi við dökka kletta fjallsins. Tveir menn ganga sig á götu vestur í þorpinu. En það er við Ileiði í Mýrdal, það þekka býli, hvaðan Páll hefur kenningarnafn sitt, sem hugur minn er bundinn meðgm ég skrifa þessar línur. Skammt innan við túnið stend- ur lítið og vinalegt sumarhús. Við áður áminnstir þrír bræður, feng- um það til umráða fjóra daga í þessu fríi okkar. Þar heitir að Bjannahlíð. Nafnið sjálft er þrung- ið ljóðúð, svo er og um umhverf- ið: Illíðin ofan hússins, mjúk í línum, hvergi brött en vaxin gróðri hátt upp eftir skriðunum. Slétt engi, grösugt og víðáttumikið, nið- ur að stóru vatni neðst í dalnum, en hinumegin við það rísa fjöll heiðanna, há og litrík, þar sem læk ir liðast niður slakka og eru á að sjá eins og blá bönd úr silki. Og mitt í þessari miklu fegurð kveð- ur spóinn sínar eilífu hringhendur um elskuna sína, og aðrir fuglar kveða líka. Á slíkum stað verður allt að ljóði. Enginn verst því að fara sjálfur að yrkja, og Guðmund- ur leggst út í móa og býr til vísu: Ilvern sumardag er sólin skín og signir fjallsins tind, þau bærast, söngvabrotin mín, í blárri liiminlind. Og Andrés heldur áfram: Þótt féndur vinni á frelsi bug, og fenni um snauðra hag, Hversvegna kom Þjóð- viljinn ekki út á mánu- dagsmorguninn? Ýmsir lesendur Þjóðviljans er sáu Morgunblaðið og Alþýðublað- ið á mánudagsmorguninn urðu fyr ir vonbrigðum að fá ekki blaðið sitt líka og liafa spurt livers vegna Þjóðviljinn hafi ekki komið út eins og hin blöðin þennan dag. Svaiúð er einfalt. Til þess að venjulegt blað af Þjóðviljanum kæmi út á mánudagsmorguninn, hefðu einir tíu starfsinenn prent- smiðjunnar sem blaðið er prentað í orðið að breyta síðari helming lýðveldishátíðarinnar í liversdags- legan vinnudag, með því að vinna á sunnudaginn og mánudagsnótt- ina. Eg er viss um að hægt hefði verið að fá þá til þess, prentar- arnir í Víkingsprenti hafa hvað eftir annað sýnt að þeir vilja mik- ið á sig leggja fyrir Þjóðviljann. En til þess kom ekki. Þjóðviljinn kom ekki út á mánudagsmorgun- inn af því að ritstjórn blaðsins taldi óviðkunnanlegt að fara fram á slíkt, og það var ekki orðað við prentarana sem vinna að blaðinu að þeir ynnu á lýðveldisliátíðinni. Þið sem haldið saman Þjóðviljanum. Vegna ruglings á tölublaðsröð Þjóðviljans vikuna sem leið eru lesendur beðnir að athuga að eng- in blöð eru-með númerunum 129— 131. Hátíð þjóðarinnar. Flestum sem voru á Þingvöllum laugardaginn 17. júní mun finnast það hafa verið tilkomumesti dag- ur ævi sinnar. Þeir munu miðla börnum sínum og barnabörnum af fjársjóði minninganna frá þessum degi, þegar stór hluti þjóðarinnar kom saman á frægasta sögustað landsins, til að vera viðstaddur þá miklu stund er lýðveldi væri end- urreist á íslandi. Þúsundir höfðu komið til Þing- valla dagana fyrir hátíðina og reist tjaldbúðir þó af annarri gerð væri en til forna. Það var risin upp stór borg á völlunum, götur voru merktar með bókstöfum, en tjöld- in með tölustöfum. Þeir sem komu til Þingvalla á laugardagsmorgun- inn sáu þessa borg er reist hafði verið svo að segja á einni nóttu. vakna af svefni. Hvarvetna mátti heyra glaðværar raddir fólks sem var að koma á fætur. Brátt heyrð- ist víða sungið og leikið á hljóð- færi í tjöldunum og það voru ekki erlend danslög sungin með ensk- um texta, heldur íslenzk ættjarð- arlög. við syngjum æ með sigurhug, vorn söng um fólksins dag. En undirritaður fer að sjóða sil- ung. Og þótt mér hafi yfirsézt að taka tuskurnar burt sem bundnar hafa verið yfir reykháfinn, svo húsið okkar fyllist rammri svælu þegar ég kveiki undir pottinum, og bræð- ur mínir, þessir skrattar, sitji úti í sólskininu og hlægi þegar ég kem sótugur og hóstandi út í dyrnar til að skýra þeim frá því að elda- vélarandskotinn sé því miður ó- nýi. .Hver lætur slíkt valda sér ó- gleði? Og þó að þessi silungur, sem að lokum soðnar á mjög kristi- Framhald á 5. síðu. Þrátt fyrir slæmt veður. Veðrið var langt frá að vera á- kjósanlegt, þennan hátíðisdag. Þaf5 var sunnlenzk rigning, mestan liluta dagsins. En fólk lét það ekki ! á sig fá, þótt það vöknaði. Meðan á þingfundi stóð að Lögbergi var kalsa veður, en umhverfis þing- staðinn var þéttskipað fólki, svo- og Almannagjá og brekkan allt niður að Öxará. Áður en söngur og ræðuhöld fóru fram á Völlunum, liafði mannfjöld- j inn tekið sér stöðu í Fangbrekku I og umhverfis sýningarsvæðið. Þá var veðrið heldur farið að batnaj þó varð að fresta Íslandsglímunni vegna bleytu á pallinum, og munu margir hafa saknað þess. Nú fékk Páll ísólfsson tækifæri til að stjórna veglegum þjóðkór, enda notaði liann sér það. Þátttaka; fólksins í söngnum virtist ekki vera nógu almenn. Þegar Páll snéri sér að Fangbrekku og sló taktinn áttus allir sem liljóði máttu upp koma að taka undir. Veitingartjöldin voru of fá. Það voru mjög áberandi mistök á skipulagningu veitingasölunnar,. frá hendi þeirra'sem um þann. undirbúning sáu. í fyrsta lagi voru tjöldin er seldu kaffi of fá og í öðru lagi ekki sem bezt fyrir •kom- ið, þar sem þeir er afgreiðslu höfðu fengið, urðu að troða sér út um sömu dyr og þeir er inn komu. Af þessu leiddi mikil þrengsli er voru til leiðinda. Búast má vi^ að ekki hefði borið eins mikið á þessu ef veður liefði verið gott, eu ráð þurfti að gera fyrir meiri að- sókn að veitingatjöldunum en sýní lega hefur verið gert. Vatnavextirnir og brýrnar á Öxará. Það rigndi mikið á Þingvöllumi aðfaranótt 17. júní, enda voru Vell irnir blautir um daginn. Var sagt að sumir tjaldbúar liefðu vaknað við það um nóttina að þeir lágu niðri í vatnspolli. Það hljóp mikill vöxtur í Öxará og lækir og kvíslar mynduðust er ollu farartálmum og óþægindum. Þegar mannfjöldinn fór frá Lög- bergi, varð þröng mikil við trébrú er reist hafði verið yfir kvísl úr Öxará. Var brúin handriðslaus plankabrú og var breitt bil á milli plankanna. Lögreglan var ekki viðstödd til að stjórna um- ferðinni og tróðst fjöldi fólks að> brúnni svo einstök heppni mátti kallast að ekki urðu slys að. Sennilega liefur ekki verið gert ráð fyrir að nota þyrfti þessa brú, en vatnavextirnir valdið því að sú varð raunin á, enda er það' eina málsbótin sem hægt er að finna þeim til lianda er að undir- búningnum stóðu. Aðalbrúin yfir ána hefur nýlega verið breikkuð, svo nú geta bílar mæzt á henni. Var sú ráðstöfun líka óhjákvæmileg til að afstýra umferðarstöðvun. Ölvaðir menn sáust varla. Það hefur lengi legið það orð á okkur íslendingum að við vær- um í meira lagi ölkærir og þætt- umst varla geta verið án víns í ferðalögum og á mannfundum. En hvað sem líður þeim staðhæfing- um að við kunnum síður en aðr- ar þjóðir að gæta hófs í þeirn sök- um, þá er vissa fyrir því að ölvun- ar gætti sama og ekkert á Þingvöll um 17. júní og er það þjóðinni tiL stórsóma, að svo skildi vera. f--------EFTIR Jón Jóhannesson

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.