Þjóðviljinn - 25.07.1944, Side 2

Þjóðviljinn - 25.07.1944, Side 2
ÞJC.BVILJINN Þriðjudagur 25. júlí 1944». |i bolar oepkfall i. Igist Aðalkrdfarnar: 6mnnkaupshækkun, eínkum fyrír kvenfélk o$ unglinga. Idnverkamenn vinní sí$ upp s fullf kaup á eínu átu Atvinnurekendur oeita sanngiðmum kiöfum iðnverkafólksins í skjóli verðiagsstjóra og viðskiptamálaráðherra Iðja, félag: verksmiðjufólks, hefur boðað verkfall irá og með 1. ágúst næstkomandi, þar sem samningsum- leitanir við atvinnurekendur um nauðsynlegar breyting- ar á núgildandi samningum hafa reynzt árangurslausar. Verkfall þetta mun ná til á annað þúsund manns. Hér er um að ræða kjör alls iðnverkafólks í Reykajvík •g á Álafossi, því að þau iðnfyrirtæki, sem ekki eru meðlimir í Félagi íslenzkra iðnrekenda og því ekki að- ilar að samningum milli þess sambands og Iðju, hafa jafnan farið eftir gildandi samningum- — Iðja í Hafn- arfirði hefur gert sömu kröfur og einnig boðað verkfall frá 1. ágúst. Þjóðviljinn átti í gær tal við Björn Bjarnason, formann Iðju, og bað hann að skýra frá aðdrag- anda vinnudeilunnar og um hvað hún snerist, og skýrði hann þannig frá: KRÖFUR VERKAFÓLKSINS. í uppkasti því að samningun- «m, sem Iðja hefur sent Félagi íslenzkra iðnrekenda, er gert ráð fyrir nokkurri grunnkaupshækk- un, einkum fyrir það fólk, sem lægst er launað, konur og ungl- inga. En aðalbreytingin, fyrir ut- an kaupupphæðina, er sú, að fólk skuli vinna sig upp í full laun á einu ári, í stað tveimur nú, enda mun óhætt að telja, að fólk sé búið að fá það mikla leikni í starfi sínu eftir ársvinnu við það, að sanngjarnt sé að það fái fullt kaup. í núgildandi samningi eru byrj- nnarlaun karla yngri en 18 ára 160 kr. á mánuði, en hækka á 12 mán- uðum upp í 225 kr. Byrjunarlaun kvenna eru þau sömu, 160 kr. á mánuði, en hækka á tveimur ár- um upp í 265 kr. í hinu nýja samningsuppkasti Iðju er gert ráð fyrir að kaup karla yngri en 18 ára og kvenna verði sem hér segir: Byrj unarlaun, á mánuði kr 215,00 Eftir 3 mán, á mánuði — 250,00 Eftir 6 mán., á mánuði — 275,00 Eftir 9 mán., á mánuði — 300,00 Eftir 12 mán., á mánuði — 325,00 Karlar eldri en 18 ára hafa nú í byrjunarlaun 280 kr. á mánuði, og hækkar kaupið á tveimur ár- um upp í 440 kr. í samningsupp- kasti Iðju er gert ráð fyrir að þetta breytist sem hér segir: Byrjunarlaun, á mánuði kr. 300,00 Eftir 3 mán., á mánuði — 350,00 Eftir 6 mán., á mánuði — 400,00 Eftir 9 mán., á mánuði — 450,00 Eftir 12 mán., á mánuði — 500,00 í núgildandi samningi er svo ákveðið, að yfir-, nætur- og helgi- dagavinna greiðist mcð 50% á- lagningu. I nýja samningsupp- kastinu er þessu ákvæði haldið um yfirvinnu, en nýtt ákvæði sett um að nætur- og helgidagavinna skuli greiðast með 100% álagi. Við smjörlíkisgerðirnar hefur Iðja sérstakan samning. Þar er kaupið það sama hvort sem um byrjanda er að ræða eða vanan mann, 275 kr. fyrir konur og 480 kr. fyrir karla. Þeim samningi, hefur Iðja einnig ságt upp og far- i8 fram á ldutfallslegar grunn- kaupshækkanir. Aðrar efnisbreytingar fer Iðja ekki fram á að gerðar séu á gild- andi samningum. Ilér er ekki farið af stað með ósanngjarnar kröfur. Til saman- burðar má geta þess, að sé núgild- andi taxti Þvottakvennáfélagsins Freyju umréiknaður í mánaðar- kaup, hafa konur samkvæmt hon- um 'dhO lcr. á múnuði. Verka- kvennafélagið Framsókn hefur nýlega gert samninga, og sé taxti þess umreiknaður i mánaðarkaup, verða þau 328 kr. Og þarna er ekki um nein byrjunarlaun að ræða. Við netagerð er kaup kvenna eftir tvö ár orðið 330 kr. á mánuði. Sé taxti Dagsbrúnar í almennri verkamannavinnu um- rciknaður í mánaðarkaup, er hann h'M kr. á mánuði, og þar eru eng- in byrjendalaun, þetta kaup er greitt alveg óvönum mönnum. Svo það virðist ekki nein ósann- girni að krefjast 500 kr. launa fyr- ir iðnverkamann, sem búinn er að vinna heilt ár fyrir minni laun- um, og er búinn að fá leikni í starfi AÐDRAGANDI VINNUDEILUNNAR. í 31. gr. núgildandi samnings er kveðið svo á, að liann skuli í gildi þar til annar hvor aðili segir hon- um upp fyrir 1. ágúst, mcð minnst þriggja mánaða fyrirvara. Sam- kvæmt þessu var ákveðið á fundi í Iðju í apríl s.l. að segja upp samningunum og var uppsögnin send fyrir 1. maí. Samningsgrein- in segir ennfremur, að áður en hálfur mánuður er liðinn af upp- sagnartímanum, skal sá aðili, sem tilkynnir uppsögn sína, hafa lagt fram við gagnaðila kröfur sínar til breytinga á gildandi samning- um. Samkvæmt þessu sendi stjórn Iðju Félagi íslenzkra iðnrekenda fyrir 15. maí uppkast að nýjum samningi, þar sem fram voru tek- in þau atriði, er Iðja óskar að Bjöm Bjarnason jorm. Iðju. breytt verði. — Loks er svo kveð- ið á í þessari samningsgréin, að áður en mánuður er liðinn frá því breytingarkröfurnar eru lagðar fram skuli samningsaðilar eiga fund með sér um þau atriði. Þetta varð ekki og stóð þar á atvinnu- rekendum. Seint í júní skrifaði stjórn Iðju Félagi ísl. iðnrekenda bréf, og til- kynnti, að þar sem þessu atriði samningsins hefði ekki verið full- nægt, téldi hún samningsuppkast- ið, sem sent var í maí, ekki bind- andi, og áskildi sér rétt til að víkja þar frá i væntanlegum sanniingum eftir vild. Atvinnurekendur báðu þá um viðtal, og fór það fram. Þar lýstu atvinnurekendur yfir því, að þeir gætu ekki gert nein gagntilboð, nema ]iað að gildandi samningur yrði framlengdur ó- breyttur. Þessi afstaða var síðan staðfest með bréfi til Iðju, dagsettu 18. júlí, svohljóðandi: „Iðja, félag verksmiðjufólks, Alþýðuhúsinu, Reykjavík. í tilefni af uppsögn yðar á gild- andi kaup- og kjarasamningum jnilli j'ðar og vor, svo og fram- kómnum kröfum yðar til breytinga á þeim, viljum vér leyfa oss, að tjá yður eftirfarandi: Vér lítum svo á, að kaup verk- smiðjufólk sé þegar orðið svo hátt, að þar sé engu á bætandi, ef ís- lenzkur iðnaður á ekki að sligast undir því. Þegar af þeirri ástæðu væri torvelt eða ógerniingur að ganga að kauphækkunarkröfu yð- ar. En í þessu sambandi kemur einnig annað atriði til greina, og viljum vér Ieggja á það mcginá- herzlu. Eins og yður mun kunnugt, hef- ur verðlagsstjóri, með samþykki yfirmanna sinna, neitað um hvers- konar hækkun á innlendri fram- leiðslu, til samræmis við liækkað kaupgjald. Þessi afstaða laans er, að því er virðist, óhagganleg, sam- kvæmt þeim viðtökum, sem vér höfum átt við hann og viðskipta- málaráðherra. Þar sem því útilokað væri, að framleiðsluvörur iðnrekenda fengj- ust hækkaðar til samræmis við hið hækkaða grunnkaup, samkvæmt fyrrnefndum kröfum yðar, sjáum vér oss ekki fært, eins og sakir standa, að ganga inn á breytingar á kaupgjaldi frá ])ví sem nú er. Jafnframt því að tilkynna yður framanritað, leyfum vér oss að tjá yður, að vér höfum afgreitt ofangreint kaupdeilumál til sátta- sémjara ríkisins í kaupgjaldsmál- um. Virðingarfyllst, Félag íslenzkra iðnrekenda (undirskriftir)“. lija mðtmælir dðmi Félagsdðms í vegavinna- deilnnni Á fundi í Iðju, l'élagi verk- smiðjufólks í Reykjavík, er haldinn var 21. þ. m. voru samþykkt eftirfarandi mót- mæli gegn dómsúrskurði Fé- Iagsdóms í vegavinnudeilunni: „Fundur í Iðju, félagi verk- smiðjufólks haldinn 21. júnj 1944, mótmælir harðlega dómi Félagsdóms í vegavinnudeil- unni, og telur hann ósvífna árás á verkalýðssamtökin“. Þegar þainiig var sýnt, að ekki yrði um samkomulag að ræða, á- kvað trúnaðarmannaráð Iðju á fundi 17. júlí, að verkfall skuli hefjast 1. ágúst n.k. hjá öllum fyr- irtækjum, sem heyra undir gild- andi samning. Félagsfundur i Iðju, haldinn 21. júlí, tók undir það með einróma samþykkt eftirfarandi Lillögu: „Fundur í Iðju, félagi verk- smiðjufólks, haldinn 21. júlí 1944, lýsir ánægju sinni yfir þeirri á- kvörðun trúnaðarmannaráðs fé- lagsins að lýsa yfir verkfalli hjá Framh. á 5. síðu. Sögusýningunni lokið Á sunnudaginn var lauk sögusýn- ingunni í Menntaskólanum. Höfðu þá yfir 10.000 manns séð sýninguna, en síðasta daginn komu yfir 1000 manns. Má aðsóknin heita allgóð. Nú mun í ráði að sýningin verði opin í nokkra daga fyrir þá erlendu menn, sem hér dveljast, og mun þeim þá gefast kostur á að kynnast sögu íslenzku þjóðarinnar og þá sérstaklega sjálfstæðisbaráttu henn- ar. Er það vel farið. — Einnig er í ráði, að gefinn verði út bæklingur, þar sem myndir verða af mörgum þeim myndum og listaverkum, sem á sýningunni voru og lesmál til skýr ingar, og mun landsmönum öðrum en Reykvíkingum þannig gefast kostur á að kynna sér þessa merki- legu sýningu, sem innblásin er af þjóðerniskennd, ættjarðarást og full um skilningi á öllu því, sem gott er í þjóðareðli íslendinga. Sögusýningin á að verða sérstök deild við Þjóð- minjasafnið En þetta er ekki nóg. Sýninguna þarf að setja upp í öllum helztu kaupstöðum landsins, svo að sem flestum landsmönnum verði gefinn kostur á að kynna sér hana sjálfa. 1 sambandi við Þjóðminjasafnið, sem nú á að fara að reisa á að setja upp sérstaka, fasta deild, þar sem saga þjóðarinnar yrði rakin á svip- aðan hátt og gert var á Sögusýning- unni. í þessari deild yrði öllum þeim listaverkum komið fyrir, sem gerð væru úr sögu þjóðarinnar eða sýndu á einhvern hátt baráttu henn ar fyrir menningu sinni og frelsi. íslenzka þjóðin hefur oft verið nefnd söguþjóðin og það með nokkr um rétti. En þó veitir ekki af því að söguþekkingu hennar sé haldið við og hún minnt á þá baráttu. sem hún hefur háð fyrir tilveru sinni. Eitt af vandamálunum Byggingarmálið er eitt, þeirra mála er krefst skjótra úrbóta hér hjá okkur elcki síður en hjá öðr- um þjóðum, þó að okkar bygging- ar liggi ekki í rústum eftir loftárás- ir. Það er því eðlilegt að mörgum. verði að umhugsunarefni hvernig þær byggingar er við reisum eigi að vera, og þá einkum hvernig íbúð- arhúsum í sveitum og bæjum verði bezt fyrir komið. Skortur á góðum íbúðarhúsum, byggðum úr varanlegu efni, er mjög. tilfinnanlegur bæði í bæjumogsveit um, enda mun almennt viðurkennt,. að ráðast verði í stórfelldar bygg- ingarframkvæmdir á næstu árum. Nokkurrar andstöðu verður þó vart gegn byggingaframkvæmdum. í kaupstöðum, frá hendi afturhalds- samra manna sem vilja spyrna gegn vexti bæjanna og eru það skamm- sýnir í þjóðmálunum að þeir sjá ekki hvaða breytingar eru að verða og munu verða á atvinnuháttum. þjóðarinnar. Þessir menn eru oft með lævísum áróðri að breiða út ótrú á þéttbýli og samfærslu sveitabyggðarinnar í. hverfi og sveitaþorp. Ein af þeirra algengustu ,,röksemdum“ er að slæmt samkomulag „hljóti alltaf að verða þar sem margir búi saman“, einkum búast þeir við að húsmæð- urnar geti ekki verið margar undir sama þaki án þess til óvináttu komi. Ekki veit ég þ'ó til þess, að húsmæðurnar kvarti undan sambýl- inu, eða ekki hefur það komið op- inberlega fram, svo mér sé kunn- ugt. Er þó sambýli margra fjöl- skyldna hér í Reykjavík og í kaup- stöðum úti á landi, nægilega þekkt: fyrirbrigði til að gefa reynslu af slíku sambýli. Skipulagning sem er fyrir- mynd Mér dettur í hug í þessu sam- bandi, það sem einn kunningi minn var að segja mér um daginn, en frásögn hans finnst mér benda til að sambúð og samstarf fjölskyldna er búa undir sama þaki geti verið hin ákjósanlegasta, og tel ég dæmi það er hann sagði mér frá vera athyglisvert og til fyrirmyndar. Framh. á 5. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.