Þjóðviljinn - 07.09.1944, Síða 2

Þjóðviljinn - 07.09.1944, Síða 2
2 ÞJÓÐVILJINN Útvegið börn til að bera út blaðið Baxnaskólarnir eru nú í þann veginn að taka til starfa. Um leið, verður erfiðara en áður, að fá börn til að bera Þjóðviljann til kaupenda. Börn, sem hafa borið blaðið út í sumar, hverfa nú til námsstarfanna, og erfitt reynist að fá önnur í be>rra stað. Þið lesendur blaðsins sem viljið fá Þjftðviljann heim til ykkar á Lverjum morgni, verðið að gera það sem þið getið til að hjálpa til við útvegun ungjinga til að bera blaðið til ykkar. Á áfgreiðslu Þjóð- viljans, Skólavörðustíg 19, getið þið fengið allar upplýsingar þessu viðvíkjandi. Unglingarnir sem bera út Þjóð- viljann skipta tugum, þið getið því gert ykkur- í hugarlund, hve mikið verk það er að sjá um að blaðið komist á réttum tíma til allra kaupendanna, og sjálfsagt hafið þið orðið fyrir því eða ein- hverjir kunningjar ykkar, að illar heimtur hafi orðið á blaðinu til ykkar. En i hvert skipti sem þið verðið þess varir að erfiðlega geng- ur að koma blaðinu út, ættuð þið að vera samhentir um að bæta úr því, með útvegun unglinga. Nú er enn einu sinni heitið á ykkur, að gera ykkar til að bæta úr þessum vandræðum. Lesendur blaðsins sem búa við sömu götu, ættu að taka saman ráð sín, um hvað gera skuli til að koma þessu í rétt horf. Guðsmenn og kirkjurottur í gær birtist hér í Bæjarpóstin- um smápistill um byggingu Hall- grímskirkju og umræður jiær, sem út af því máli hafa spunnizt hér i blöðunum. í þessum pistli var spurt að því, á ósköp meinlansan hátt, hvort það myndi ekki sýna fremur tryggð kirkjunnar við mannúðarhugsjónir kristninnar, ef fjárfúlgum þeim, sem ætlaðar eru til kirkjubygginga, væri varið til að byggja yfir það fólk, sem nú hýrist í ófullnægjandi húsakynn- um, eða til starfrækslu á heimili því fyrir munaðarlaus og vangefin börn, sem þjóðkirkjan hefur haft með höndum. Nú hefur séra Sig- urbjörn Einarsson sent Bæjarpóst- inum heldur orðljótt bréf, þar sem hann hyggst svara þessari spurn- ingu. Eer bréf hans hér á eftir: „Kirkjurottan er á ferðinni í „Bæjarpóstinum" í dag. Það er all- langLsíðan hennar hefur orðið vart á þeim slóðum, en ekki er hún dauð. Slík kvikindi eru lífseig og ekki hvimleið öllum. X Mig langar svo sem ekkert til að f'ara að þurrka henni um trýn- ið, en hinsvegar vildi ég gjarna fá að krydda æti hennar með eft- irfarandi staðreyndum: 1) Þeir, sem hafa fylgzt með umræðum okkar próf. Níelsar Dungals, vita að það er ósatt, að ég hafi hótað andstæðingum kirkj- ubygginga „öllu illu“. Hitt sagði ég, og lagði Guðs nafn við, að þeir, sem gegn þeim standa af ó- drengskap og illum hvötum, þeir hefðu illt verk með höndum og myndu verða að „svara f.yrir það á sínum tíma“. Margir hafa tekið þessi ummæli til sín, eins og eðl.i- lega var og til var ætlazt. „Sök bítur sekan“. 2) Enn vita þeir, sem lesið hafa skrif okkar próf. Dungals, að það hefur alls ekki verið „mergurinn málsins" hjá mér að bítast um það við aðra, hverjir hafi gert minnst til þess að bæta úr hús- næðisvandræðunum. Hitt sýndi ég'fra.ni á, svo að ekki verðuf á i móti mælt með rökum, að það er bull og blekking, að þetta kirkju- byggingarmál sé í nokkru sam- bandi við húsnæðisvandræðin yf- irleitt. Sannleikurinn er sá, að sumir, sem eru kirkjunni fjand- samlegir, þora ekki að láta það uppi eins og það er, kjósa heldur að hylja sig hjúpi hræsninnar og skinhelginnar — það sé svo sem ekki af kristindómsfjandskap, sem þeir ástunda kirkjurottustarfsemi sína, heldur af umhyggju fyrir húsnæðisleysingjunum. En það skrítna er, að þessarar umhyggju gætir svo lítið, þegar önnur mál eru á dagskrá en kirkjumál. Eng- inn verður hennar var, þegar rætt er um leikhúsmál, æskulýðshallar- mál o. fþ o. fl. Og margir þessara sömu manna hafa ekkert við það að athuga, þótt íslendingar drekki brennivín á einu ári fyrir upphæð, sem samsvarar kostnaði Reykja- víkurbæjar af hitaveitunni. sem nálgast þá upphæð, sem varið hef- ur verið á ári til bygginga nýrra íbúða, s,em nægja myndi til þess að byggja allt að því tíu stórar og vamfaðar kirkjur. Það er þéssi hræsni, sem er langt fyrir neðan það að vera samboðin sæmilegum mönnum, jafnvel þótt heiðingjar séu. 3) Málið liggur þannig fyrir: Hallgrímssöfnuður hefur handbær- ar nokkur hundruð þúsund krón- ur, sem hafa yerið gefnar til þess að reisa fyrir Hallgrímskirkju á Skólavörðuhæð. Þetta fé má ekki til annars nota, nema með því að stela því. Því það er þjófnaður að nota gjafafé til annars en ]iess, sem það er gefið til. Má söfnuður- inn ekki nota þessa peninga í friði, án þess að mæta sífelldum árásum? Ug veit að sumir telja ekki þörf á starfsemi kirkjunnar í þessu landi. En á að svipta hana starfsfrelsi? Öll starfsemi þarf starfstæki. Jafn- vel Sósíalistaflokkurinn hefur orð- ið að ráðast í húsbyggingu til starf- semi sinnar, og þyrfti sjálfsagt meira húsnæði ef vél ætti að vera. Og hann verður að halda úti dýru blaði. Væri sanngjarnt að fara fram á það, að útgáfa Þjóðviljans væri stöðvuð t. d. í eitt ár, og því fé, sem sparaðist við það, væri varið til þess að byggja yfir einhverja, sem búa í „bröggum“ nú? Það væri samskonar „rottu“-sanngirni og birtist í „Bæjarpóstinum" í dag. 4) Það er satt, að barnaheimili hefur verið starfrækt í Grímsnesi I fyrir tilstyrk kirkjunnar og fleiri slík heimili hafa verið styrkt af samskotáfé, sem safnað hefur ver- ið í söfnuðum landsins. Okkur svíður það mörgum, að þessi starf- semi skuli ekki vera miklu víðtæk- ari en orðið er. Presturinn, sem vitnað er í í „Bæjarpósti“, er einn af þeim. Og hann skrifaði um það mál án þess að hlífa okkur „kirkj- unnar þjónum“ við gagnrýni — við prestarnir eigum það til að gagnrýna sjálfa okkur og varpa á okkur sjálfa én ekki aðra sökum fyrir það, sem miður fer, og það er meira _en sagt verður um ýmsa aðra. Ég tek ekki að mér að verja það, að þjóðin skuli ekki hafa léð þessari starfsemi kirkjunnar fyrir illa stödd börn meiri stuðning í fjár framlögum en verið hefur. En leiðin til þess að ráða bót á því er ekki sú að fjandskapast við heilbrigða og nauðsynlega safnaðarstárfsemi. Það er ekki líklegt að kirkjan eigi hægara með að koma þessum og öðrum áhugamálum sínum áfram ef hún á að starfa í „ósýnilegum og óáþrcifanlegum húsum“, eins og presturinn sagði réttilega í grein sinni um barnaheimilissjóð þjóð- kirkjunnar. LLirkja Idanch hyggs'; 'cklii að Fimmtudagur 7. september 1944. VerltfölHn reMip sliMua elno 1200-1301 na VerkaneBi eru staðráðnir í að biodra kúgunaráform afturiiaidsins Afturhaldið í landinu hefur enn einu sinni hafið árás á lífs- kjör 'alþýðunnar. Draumur þess er enn hinn sami: að rýra kjor launþeganna, þrengja kosti vinn andi stéttanna, í því skyni að gera hina ríku ríkari og vold- ugri, — skapa hér algert drott- invald stóratvinnurekenda og stríðsgróðamanna yfir kúgaðri alþýðu. í þeim tilgangi að ná þessu takmarki hefur afturhaldið lagt út í það ævintýri að stofna til harðvítugra deilna og stöðva hverja starfsgreininá á fætur annarri, því er alveg sama hvað það kostar, aðeins ef það getur náð aðstöðu til þess að kúga al- þýðuna og auðgast á kostnað vinnandi stéttanna. RAUST COCA-COLA Ríkisstjórnin hefur nú lagt fram frumvarp sitt til ráð- stafana „gegn dýrtíðinni“. Þessi ríkisstjórn, sem vanrækt hefur allt sem gera þurfti til endurbóta og nýsköpunar á bruðla neinum „fjárfúlgum“ í „stásskirkjúr", ekki frekar nú en á undanförnum öldum. En hún ætlar sér að flytja boðskap mann- úðarinnar og kærleikans hér eftir eins og hingað til og krefst þess eins að njóta frelsis og skilyrða til að gera það. Henni er hollt að sæta gagnrýni og hún biðst engrar vægðar í þeim sökum. En þegar agg og nieinfýsi í hennar garð hyggst að hylja hið rétta eðli sitt í flíkum mannúðarinnar, þá er \ skylt i|ið fletta ofan af því. Því að þeir, sem eru andstæðir kirkj- unni, hafa væntanlega það gild rök fyrir afstöðu sinni, að þeir þurfi ekki á slíkum púkabrögðum að halda. Með þökk fyrir birtinguna. (i. sept. 1944. Sigurbjörn Einarsson". Athugasemd Spurningu Bæjarpóstsins hefur presturinn ekki svarað. Á það skal , enginn dómur lagður hér, hvers vegna hann gerir það ekki. — Að sinni ætlar Bæjarpósturinn að láta þetta mál útrætt. Það gefst éflaust tækifæri til að ræða það síðar. „Musterisæði“ og „kristin mæðiveiki“ Eftirfarandi bréf hefur Bæjar- póstinum borizt í sambandi við umræðurnar um byggingu Hall- grímskirkju: „Eftir lestur greinar frú Guðrún- ar Guðlaugsdóttur, en sú grein átti að vera svargrein til próf. Níelsar Dungal, varð hagyrðingi einum að orði: „Illa af bræði er mannkind mörg og musterisæði leikin. Hun er bæði köhl og körg kristna mæðiveikin". Og um séra Sigurbjörn Einars- son kvað sami hagyrðingur: „Hóa mjög á heimsins börn himnaríkis smalar. Samt er mestur Sigurbjörn: sviði atvinnumála til þess að tryggja öllum landsmönnum at- vinnu og velmegun, sér ekkert ráð annað en: kauplækkanir. Þessi ríkisstjórn, sem lét’einu félagi haldast uppi að græða tugi milljóna króna á flutningi á nauðsynjavörum almennings og auka þar með dýrtíðina um 60 millj. kr., hefur aðeins eitt að segja við alþýðuna: það verð- ur að lækka kaup ykkar, rýra kjör ykkar. Af Vísi, blaði coca-cola-stjórn arinnar, er augljóst, að aftur- haldið er staðráðið í því að beita öllum ráðum til þess að hneppa vinnandi stéttirnar í þræla- fjötra. SAMKVÆMT FYRIRMÆLUM AFTURHALDSINS Ríkisstjórnin lagði þrælalaga- frumvarp sitt fram fyrir nokkr- um dögum, en árásin á lífskjör alþýðunnar var hafin áður. Allmargir atvinnurekendur hafa valið það óheillaráð að gerast handbendi coca-cola- klíkunnar, verkfæri Sevintýra- manna í vonlausri baráttu gegn hagsmunum þjóðarinnar, að ör- fáum sfórgróðamönnum undan- skildum. Atlagan var hafin þegar F.Í.I. stöðvaði verksmiðjur sínar und- ir jiví yfirskini að iðnaðurinn þyldi ekki að starfsfólkið sem við iðnaðinn vinnur lifi við sómasamleg kjör. Rök F. í. I. gegn þvi að verða við kröfum verksmiðjufólksins voru, upphaflega þau, að verð- lagsstjóri hefði bannað að hækka iðnaðarvörurnar 1 verði. Nú eru þessi rök úr sögunni. F. í. I. hefur viðurkennt að það vilji alls ekki semja enda þótt verðlækkunarbann verðlags- stjó'ra sé upphafið. Og F. í. I. hefur gert meira, það hefur af- hjúpað tilgang sinn með því að tala um það sem sérstaka náð að sýna verklýðssamtökunum þá „virðingu“ að semja við þau um kaup og kjör fólksins sem skapar verðmætin er gróði þess ara herra byggist á. F. í. I. hef- ur aldrei lagt reikninga sína á borðið og sannað að iðnaðurinn þyldi ekki að starfsfólk hans byggi við viðunandi lífskjör. Síðan Iðjuverkfallið hófst hefur hver starfsgreinin á fætur anarri stöðvazt. Verkamönnun- um er fyllilega ljóst hvað hér er að gerast: Svartasta aftur- haldsklíka auðmannastéttarinn- ar notar nú hvert fyrirtækið af þðru í baráttunni fyrir því að koma á kauplækkun. Ríkis- stjóm sú er nú situr gerist for- ustusveit afturhaldsins með því að flytja í þinginu nýtt þræla- lagafrumvarp. Sem liður í þessari kauplækk verið stöðvuð fyrirtæki þar sem um 1200—1300 manns vinna. Iðjuverkfallið hófst 1. ágúst og hefur nú staðið hálfa sjöttu viku. í Iðju eru um 800 með- limir, en ekki munu þeir allir hafa verið starfandi við iðnað. Verkfall Vamar, sem er deild úr Iðju, hófst mánuði síðar, eða. I. september. Verkfall skipasmiða hófst 1. sept. í félagi skipasmiða munu. vera 30 meðlimir. Verkfall í hraðsaumastofum, II. fl. hófst 1. september og mun það ná til 60 manna. Olíuverkfallið hófst 22. ág. og nær það til um 30 mánaðar- kaupsmanna og um 30 tíma- kaupsmanna eða samtals um 60 manna. Verkfall járniðnaðarmanna hófst 3. sept og nær það til ca_ 130 járnsmiða og ca. 150 verka- manna eða samtals 280—300 manna. Samningar blikksmiða ganga úr gildi 10. þ. m. og má vænta þess, að þá bætist eitt verkfall- ið við. Það er mjög óvenjulegt að svo mörg verkföll standi yfir á sama tíma, en það er engin til- viljun. Vinnustöðvanir þessar eru allar gerðar „samkvæmt á- ætlun“ afturhaldsins. Hver þeirra um sig er liður í þeirri herferð sem coca-colastjórnin hefur hafið til þess að hneppa alþýðuna í þrælafjötra kaup- lækkana og kúgunar. Atvinnurekendur hafa engin rök fært fyrir því að þeir gætu ekki oréið við kröfum verklýðs- félaganna um kjarabætur. Þeir hafa ekki haft fyrir því að rökræða málið. Þeir ætla sér að koma á kauplækkunum, kosti það hvað sem vill — en þeir gleymdu aðeins einu, því, að íslenzk alþýða lætur ekki lengur fara með sig eins og þræla. AFTURHALDIÐ BERST GEGN MAGSMUNUM ÞJÓÐAR- INNAR Coca-colablaðið — sem þekkt er að því að koma upp um. innstu hugrenningar húsbænda sinna — sagði nýlega að tími kauphækkana væri liðinn, nú væri því „rétti tíminn“ til þess: að ráðast á kjör launþeganna. Héðan í frá skyldu lífskjör al- þýðunnar ekki batna, nú skyldi snúið við til kúgunar og eymdar. ,,Kommúnistar“ (en svo nefnir Vísir alla þá sem krefjast rétt- lætis og batnandi lífskjara) hafi strauminn á móti sér. Svo blind aður er Vísir af ofstæki sínu að hann sér ekki að með kröfunni um kauplækkanir og versnandí lífskjör er hann að berjast gegn hagsmunum þjóðarheildarinnar, Fnimhald á 8. síðu. i

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.