Þjóðviljinn - 24.09.1944, Síða 1

Þjóðviljinn - 24.09.1944, Síða 1
V 9 líð flntt tll hans loftleíðís Brezki herinn er nú kominn á syðri bakka Lecks (nyrðri kvísl Rínar) og hefur náð sambandi við nokkra flokka loftflutta hersins. — En meginhluti hans er á nyrðri bakkanum hjá Arnhem. í gær var flutt mikið lið og birgðir í flugvélum til 2. brezka hersins. Foringi liðsins hjá Arnhem hefur sent kveðju til 2. brezka hersins og segir menn sína berj- ast kappsamlega og vera á- kveðna í að halda út þangað til 2. brezki herinn komi. — Sá síðarnefndi heldur uppi skot- hríð á stöðvar Þjóðverja fyrir norðan Leck. Þjóðverjar gerðu harða árás á birgðaflutningalið Breta milli Eindhoven og Nijmegen í gær og tókst að rjúfa hana um stund. — Kvöddu Bretar „Taj- fun“-flugvélar til aðstoðar og voru Þjóðverjar hraktir burt innan skamms. Stolberg er nú alveg á valdi Bandamanna. Á Mosellevígstöðvunum geisa enn miklir skriðdrekabardagar. — Hafa Þjóðverjar misst þar 246 skriðdreka á s.l. 10 dög- um. Stofflun Lards ai- bands iinnema Stofnþing Iðnnemasambands íslands var sett í gær í Góð- emplarahúsinu. Til stofnþingsins var boðað af undirbúningsnefnd er fulltrú- ar iðnnemafélaga í nokkrum iðngreinum kusu. Á fyrsta fundi stofnþingsins í gær mættu 20 fulltrúar frá iðn- nemafélögunum í Reykjavík. Meginatriði í starfsemi sam- bandsins eru þessi: Að gangast fyrir stofnun iðn- nemafélaga. Að styðja iðnnemafélögin og efla starfsemi þeirra og hags- munabaráttu og tryggja það, að þau séu í sambandinu. Að veita þeim iðnnemafélög- um. sem í sambandinu eru, sér- hvern þann styrk og aðstoð sem sambandið getur í té látið til að efla starfsemi þeirra og hindra að gengið sé á rétt þeirra. Að gangast fyrir gagnkvæm- um stuðningi iðnnemafélaganna hvers við annað. Að beita sér fyrir aukinni fræðslu og bættum kennsluskil- yrðum iðnnemum til handa. Að vinna að því að lögum um iðnnám verði breytt til hagsbóta fyrir iðnnema. Á fundi sambandsins í gær voru samþykkt lög og kosin stjórn sambandsins, en hana skipa: Óskar Hallgrímsson, for- maður, Sigurður Guðgeirsson, Egill Hjörvar, Kristján B. Guð- jónsson og Sigurgeir Guðjóns- son. Fundarstjóri var Guðmundur Magnússon Meðal gesta á stofnfundinum voru: Jón Rafnsson og formenn sveinafélaganna í Reykjavík. Þingið kemur saman í dag kl. 2 e. h. , Þjóðviljinn mun skýra nánar frá þinginu síðar. Ks JíííRfl tíeyia í írY-vm ' f3S53t!Úfc!11 Stöðugt berast nýjar fréttir um lát norskra fanga 1 Þýzka- landi. Julíus Michelsén 34 ára gam- all, frá Oslo, hefur dáið í Oran- ienburg. — Læknisfræðistúdent- inn Petter Dahl frá Oslp hefur dáið í fangabúðunum í Weimar, og Magne Lunde höfuðsmaður hefur látizt - í liðsforingjavarð- haldi, 53 ára gamall. Alþýdsssamband Islassds býcter ■vlaiwffíd i tvö éf - Atvio iitrekasddr tafa bdut þessu boil eg vlrðast fyrst og freest ville strlð vlð vertaljðku Undanfarið hafa farið fram nokkrar tilraunir til þess að koma á sættum í yfirstandandi vinnudeilum. Það stendur ekki á Alþýðusambandinu að leysa þetta mál, það hefur boðið vinnufrið til tveggja ára þannig, að gerðir verði heildarsamningar sem séu í meginatriðum á grundvelli núverandi samninga með nauðsynlegum samræmingum. Atvinnurekendur, sem mjög hafa talað um nauðsyn vinnu- friðar, létu í fyrstu líklega um að slíkt samkomulag tækist, en nú hafa þeir hafnað tilboði Alþýðusambandsins og þar með sýnt að fyrir þeim vakti ekki fyrst og fremst vinnufriður, heldur strjð við verkalýðinn. Alþýðusambandið hefur lýst sig reiðubúið til þess að koma á vinnufriði, en það mun að sjálfsögðu taka því stríöi sem at- vinnurekendur virðast umfram allt vilja. Grein um þessi mál, eftir Jón Rafnsson, erindreka Al- þýðusambandsins, birtist á 4. síðu Þjóðviljans í dag. Tilboð Alþýðusambandsins fer hér á eftir: „Vegna fyrirspuma þeirra Ilaralds Guðmundssonar og Brynjólfs Bjamasonar sem fulltrúa nefnda flokkanna, er við- ræður hafa átt um stjórharmyndun, vill stjórn Alþýðusam- bands íslands taka það fram, að hún er fyrir sitt leyti með- mælt því, að gerðir verði heildarsamningar um kaup og kjör til 2ja ára, í ineginatriðam á gmndvelli núverandi samninga stéttafélaganna með nauðsyhlegum samræmingum kaups og kjara á hinum ýmsu stöðum og starfsgreinum og er reiðubúin að hefja víðræður við fulltrúa atvinnurekenda um þetta efni, og leita umboðs sambandsfélaganna til samninga, ef líkur em til að samkomulag náist, enda verði um leið samkomulag um verð landbúnaðarafurða, í sanngjömu hlutfalli við. almenn launakjör á grandvelli þess, sem verið hefur undanfarið, og gerðar verði ráðsíafanir til að tryggja stöðuga atvinnu og fyr- irbyggja atvimiuleysi með öllu, eftir nánara samkomulagi um þessi atriði o. fl.“ 213. tölublað iárnsmiðineinar notaiir sen verkfallsbrjótar l yfirstandandi deilu miUi jám- iðnaðarmanna og atvinnurelcenda hejur mjög kveðið að því að jám- smiðanemar vœm notaðir til vinnu. Munu í öllum jámsmiðjun- um 'liafa unnið síðan verkfallið hófst um 120 nemar en ekki nema um 30 fidlgildir jámsmiðir, meistarar og verlcstjórar. Þessi aðferð járnsmiðjanna er brot á iðnlöggjöfinni sem ákveður að meistari megi aldrei hafa í þjón , !Framh. á 8. síðu. Jðaasardeildio nótnslir Samtímis því er fulltrúar bænda sátu á rökstólum í Reykjavík, og leituðust við ið ná samkomulagi um af- stöðu til verðlagsmálanna, er gæti orðið liður í allsherjar- samkomulagi um stöðvun dýr tíðarinnar, kallaði Jónas lið sitt til fundar við Ölfusárbrú til að mótmæla niðurstöðum búnaðarþingsins. Fundur þessi stóð lengi dags í gær. Af hálfu Jónasardeildarinn- ar töluðu Jónas, Bjami á Laugarvatni, Egill Thoraren- sen og ef til vill fleiri. Af- itöðu búnaðarþingsins vörðu hingmenn Árnesinga og Rang vellinga. Svo fóru leikar að Jónasardeildin fékk sam- þykkt mótmæli gegn sam- þykkt Búnaðárþingslns, fáir greiddu þó atkvæði, flestir fundarmenn sátu hjá. Búnaðarþingið var kvatt saman til funda, fyrir nokkmm dögum til að ræða um dýrtíðarmálin. Hefur þingið nú sam- þykkt með 22 atkv. gegn 2, eftirfarandi tillögur til ályktunar um dýrtíðar- og verðlagsmál frá Dýrtíðar- og verðlagsmála- nefnd Búnaðarþingsins: „I. Búnaðarþingið lýsir því yfir, að það heldur fast við rétt- mæti ályktana sinna frá 1943, þar sem það lýsir yfir því, að það sé reiðubúið að samþykkja að verð á landbúnaðarvörum yrði fært niður ef samtímis færi fram hlutfallsleg lækkun á launum og kaupgjaldi og endurnýjar nú þetta tilboð til þeirra aðila er hlut eiga að máli. Jafnframt vill Búnaðarþing taka fram, að það telur enn sem fyrr, að það sé á engan hátt vegna sérhagsmuna |j landbúnaðarins, að fært sé niður útsöluverð á landbúnaðar- /j vörum með greiðslu neytendastyrks úr ríkissjóði um stundar- sakir. II. En með því að upplýst er, að eins og nú standa sakir næst ekki samkomulag um gagnkvæma niðurfærslu kaupgjalds og verðlags, lýsir Búnaðarþing yfir því, að það getur vegna nauðsynjar alþjóðar á því að stöðva verðbólguna í landinu, fallizt á að ákveðin sé nú þegar niðurfærsla sú af hálfu land- búnaðarins, sem um ræðir í fyrsta lið, með því að gera ekki kröfu til að fá greidda þá 9,4% hækkun á söluverði framleiðslu- vara þeirra, sem þeim ber frá 15. sept. 1944 til jafnlengdar 1945, samkvæmt útreikningi Hagstofunnar. Tilboð þetta er gert í trausti þess, að hér eftir fari fram hlutfallslegar kauplækkanir í landinu. Fari hinsvegar svo, að samræmingar verði gerðar í kaupgreiðslum, skal Hagstof- unni falið að afla jafnóðum gagna til að reikna út, hvort þætf hafi áhrif á verðlagsvísitölu landbúnaðarvara, eða vinnslu- og sölukostnað þeirra til hækkunar, og skal þá verð á þeim vörum þegar hækkað á innlendum markaði í samræmi við það. HI. Framlag bænda sem hér um ræðir, til stöðvunar verð- bólgunni, er bundið því skilyrði, að bændur fái greiddar upp- bætur á útflutningsvörur sínar, sem koma á markaðinn eftir 15. sept. 1944 til jafnlengdar 1945, miðað við landbúnaðarvísi- tölu síðastliðins tímabils. IV:' Að lokum lýsir Búnaðarþing yfir því, að ekki komi til mála, að bændur færi niður verð á afurðum sínum á nýjan leik, fyrr en tilsvarandi lækkun, þeirri er hér um ræðir, hefur farið fram á launum og kaupgjaldi.“ Á Búnaðarþingi 23. sept. 1944. Sigurður Jónsson, formaður, Jón Sigurðsson, ritari, Þorsteinn Sigurðson, Jóhannes Davíðsson, Jón Hannesson, Guðm. Erlendsson, /

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.