Þjóðviljinn - 26.09.1944, Page 2

Þjóðviljinn - 26.09.1944, Page 2
« Hafnarfl örður • Þar sem í verki alpýðan er ekki höfð með - og fær engu að ráða Er velferð bæjarfélagsins í engu sinnt, en einstökum mönn- um gefin öll aðstaða til auðsöfn- unar? Og ekkert tillit tekið til þess hvað hag bæjarbúa er fyr- ir beztu. Þetta er í stuttu máli, þótt ljót sé, saga Alþýðuflokksfor- ingjanna í Hafnarfjarðarbæ. Hvar sem litið er á málefni bæjarfélagsins, ríkir sama í- haldsmennskan og sofandahátt- urinn og yfir öllu því er til framfara horfir um almenna hagsmuni bæjarfélagsins, og var hér á stjórnarárum gamla íhaldsins. Bærinn er nálega snauður af menningar- og uppeldisstofnun- um. Sá vísir sem þegar er fyrir hendi er fyrir löngu orðinn allt- of lítill og ófullnægjandi. ■ Bamaskólinn er fyrir löngu orðinn of lítill. Flensborgarskólinn virðist einnig vera ófullnægjandi eins og hann var. Aðrar uppeldisstofnanir svo sem barnaheimili, barnaleikvell ir og dagheimili fyrir börn, fyr- irfinnast ekki í Alþýðuflokks- bænum. Og ekki er heldur til neitt íþróttasvæði, svo íþrótta- æskan verður að búa við hin verstu skilyrði. Hvað þá að bærinn eigi jafn lífsnauðsynlegar stofnanir eins og sjúkrahús, fæðingarheimili og barnaspítala. Sömuleiðis er vöntun á elliheimili. Vatnsveita bæjarins er svo ó- fullkomin, að heil hverfi í bæn- um mega heita vatnslaus. Og af þeim sökum eru slökkvitæk- ln, ef á þyrfti að halda í þeim bæjarhlutum, óvirk ef ekki næst í sjó. Öll byggingamálefni eru í skipulagslausri hringavitleysu. Enda eru hýsnæðisvandræðin eftir því. Það yrði of Iangt mál að telja upp allt það sem aflaga fer í bæ j armálef nunum. En það er sama sagan hér sem annars staðar þar sem kapital- isminn ræður ríkjum, að félags- legar framfarir eru látnar sitja á hakanum, samtímis því sem ráðamennirnir raka saman fé í eigin vasa svo tugum og hundr- uðum þúsunda skiptir, og jafn- vel milljónum. Það virðist nú heldur ekkí vera lengur um neinn ágreining að ræða á milli Sjálfstæðis- flokksins og Alþýðuflokksins . um bæjarmálefni. Enda eru höfuðleiðtogar þessara flokka komnir að einni og sömu jöt- unni. Hafnfirzk alþýða sér líka hvert stefnír um málefnx sín, ef þessir flokkar eiga að fá að halda áfram að vera einráðir um stjórn bæjarins. Og hún er ákveðin í því að koma í veg íyrir að svo geti orðið. Þess vegna á nú Sósíalista- flokkurinn ört vaxandi fylgi- að fagna. — Hann hefur frá upp- hafi bent á þá þróun sem átt hefur sér stað hjá hinum borg- aralegu flokkum. Forystuhæfileikar Sósíalista- flokksins eru m. a. fólgnir í því, að hann leysir úr læðingi hina bundnu orku, og vilja til starf- ans, hjá verkalýðnum og menntamönnum þjóðfélagsins, — til þess að lyfta þjóðinni á hærra svið andlega og efnalega. Þessari orku, hins vinnandi manns, til sköpunar nýs og betra lífs hér í okkar bæjar- félagi, er haldið bundinni í járn greipum auðhyggjunnar. Með því að þeir menn sem ráða í bæjarfélaginu, ganga ætíð fram hjá vilja verkalýðsins, spyrja hann aldrei ráða, og traðka á réttindum hans. Hver skcp pelrri Ef Alþýðublaðið væri mál- svari verkalýðsins. hefði það ekki tekið jafn fjandsamlega afsfóðu gegn verkamönnum og raun varð á í Hlífarverkfallinu. Eða hver var munur á skrifum þess og t. d. Vísis eða Morgun- blaðsins? Enda þótt Alþbl. álíti okkur verkakarla vera heimsk- ingja, þá ætti það þó ekki að ganga svo langt í sjálfsblekk- ingunni, jafnt sem það er að reyna að blekkja aðra, að sjá það ekki að verkamenn, þrátt íýrir allt, kunna vel að greina rét't frá röngu. Öll þessi þrjú áðumefndu blöð, kepptust um það, að reyna á allan hátt að hrinda af stað hvers konar blekkingum, til þess að takast mætti að veikja Hlíf í baráttunni. Verkamenn eru sammála um það, að hefðu foringjar Al- þýðufl. og Sjálfstæðisfl. ekki staðið á bak við þessi skrif og verið þeim samþykkir, þá mundu þeir hafa komið í veg fyrir að þau yrðu birt. Ein af þeim fáránlegu blekk- ingum og hótunum í garð verka manna, var sú, að atvinnurek- endur létu blöð sín staðhæfa að togararnir yrðu gerðir út frá Englandi, ef ^erkamenn létu ekki af kröfum sínum. Og það var svo sem ekki lát- ið sitja við orðin ein. Einn togaranna, Óli Garða, eign Alþýðuflokksforingjanna, var látinn sigla til Englands rétt fyrir verkfallið. með öllum veiðarfærum. Þeir sýndu það svo sem Al- þýðuflokksbroddamir, að þeir Það verður þess vegna að ske fyrr en seinna ef alþýðan á ekki ævilangt að vera hneppt í þrældómsfjötra, að hún taki sig saman um að leysa þá hnúta, sem kreppa að samtökum henn- ar, frá hendi auðvaldsins í bæn- um. Fjöldinn allur er þegar tekinn til1 starfa. Og úr öllum áttum æpa á okkur óleyst verkefni. Framkvæmd sósíalismans fel ur í sér lausn vandamálanna. Þess vegna, — þið, fylgj- endur sósíalismans, er ennþá hafið ekki gefið ykkur fram, — komið nú þegar til starfa. Fylgizt nú þegar með straumn um. Samstilltur vilji og samtaka hendur reisa bæjarfélagið úr því fúafeni sem það liggur nú í. Með því að taka þátt í fram- sókn sósíalista 1 bænum, er sig- urinp vís. Kúlann. drottnandi au0? stæðu í engu að baki íhaldinu í fjandskapnum gegn verka- lýðnum. Þeir voru orðnir því svo vanir á atvinnuleysisárun- um að kúga menn til hlýðni við sig, með krafti atvinnuvaldsins. Svo þeir eru sjálfsagt þeirrar skoðunar, að þeir séu beinlínis skapaðir og fæddir til slíkra verka. En þeir mega vera vissir um það, að þeir verða krafðir reikn ingsskila sinna verka. Hinn vinnandi lýður á sjó og landi hefur ekki skapað hinn mikla auð, sem þessir menn leika sér nú með handa á milli, til þess að hann yrði notaður sem kúgunarsvipa gegn honum, í hvert sinn er hann krefst betri lífskjara. Og nú er komið að því, að hinn vinnandi lýður segi hingað og ekki lengra. Atvinnurekendavaldið er þeg- ar komið of langt. — Nú kemur verkalýðshreyfingin til sögunn ar. Hún getur ekki þolað það að fáeinir menn séu einvaldir í atvinnu- og fjármálum þjóðar- innar. Verkalýðurinn heimtar rétt sinn, þ. e. fyllsta lýðræði í þeim málum sem öðrum, að hinn vinnandí lýður sem skap- ar fjármagnið með starfsorku sinni, hafi ráð um það á hvern hátt þeim málum verði bezt stjórnað. Það er verkalýðurmn sem hefur skapað þeim hinn drottn- andi auð. Og hann hefur nú komið auga á það, að það er óheppilegt og skaðlegt velferð þjóðarinnar að Þriðjudagur 26. september 1944. Húsnæðisleysið og 1. október Verkamaður skrifar: „Þessa dagana dregur til úrslita um mjög viðkvæmt mál. Fyrsti október er í nánd. Það er ekki gott að segja um f jölda þeirra fjölskyldna og einstaklinga, sem eiga að „fara út“ núna um mánaðamótin. En það ei víst að þetta fólk er mjög margt. Fjöldi þess hefur enga vissu um húsaskjól í framtíðinni. Sumir flytja í bragga og slíkt þykir náð, aðrir sitja áfram í trássi við hús- eigendurna og gegn vilja síns sjálfs, vegna þess að annars er ekki kostur og svo eru þeir sem verða að fara út á götuna, án þess að eiga víst húsnæði. Sumt af þessu fólki „hol- ar sér niður“ hjá kunningjum og sumt... ja, það er næstum ótrú- legt hvar menn hafast við um næt- ursakir. Eg veit til þess að menn sofa í svefnpokum í geymslum, verkstæðum, bílskúrum eða hvar sem er. Ef þið haldið að þessi frá- sögn mín sé orðum aukin, þá get ég fullvissað ykkur um að svo ótrúleg sem hún er, þá er hún sönn. Mismuntir Margir kunningja minna, sem ég hef hitt að undanförnu, hafa sömu sögu að segja: „Eg er á götunni". Að vísu eru þetta flest verkamenn eða lágt launaðir menn. Eg þekki ekki „heldri borgaranna", en um þá er öðru máli að gegna. Synir auð- mannanna eru ekki á götunni, eins og þeir fátæku og margar auðmanna fjölskyldur hafa óhóflega mikið hús næði til umráða. Svo segja þeir í „flokki allra stétta*^ að hér sé ekk- ert auðvald til. En það er staðreynd að hér er eitt svartasta afturhald og auðvald sem sögur fara af m. a. í húsnæðismálunum, þ. e. a. s. ef við mælum auð þeirra á mælikvarða ísl. þjóðarinnar. Það er ekki svo lítill mismunur á kjörum — og íbúðum fátækra verkamanna og útgerð- arburgeisanna. Hvað veldur? Það hljómar kaldhæðnislega í eyr um þeirra, sem nú eiga að fara út á götuna, þegar verið er að auglýsa stór hús til sölu, með öllum íbúðum lausum, eða svo og svo miklu íbúð- arplássi lausu. Fátæklingamir, sem hafa ekki peningna milli handa, hafa enga möguleika til að skapa sér nokkurt húsnæði. Á þessu má sjá, betur en á mörgu öðru, þann geisi- lega stéttamismun sem er hér í, Reykjavík. Húsnæðisleysið er miklu alvar- legra en við gerum okkur grein fyr- ir ef við þekkjum það ekki af eigin ..........—.................. eínstakir menn drottni yfir auðnum. Nú skal snúið við, verkalýð- urinn sem auðinn hefur skap- að skal líka verða herra hans. Vinnudeila Hlífar hefur orð- ið til þess að opna augu þeirra verkamanna fyrir þessum stað- reyndum sem ekki höfðu áður komið auga á þær. Sósíalistaflokkurin vill hafa samvinnu við hvern þann, sem vill vinna að því að skapa lýð- ræði í atvinnu- og fjármálum þjóðarinnar. Til þess að tryggja atvinnulífið, að öllum geti liðið vel. Og hafið verði skipulegt samstarf um að gera atvinnu- leysið útlægt úr landinu. reynd eða af því að kynnast erfið- leikum fólksins, sem á við það að stríða. Við höfum verið svo heppn- ir, Reykvíkingar, að losna algerlega við loftárásir. Þrátt fyrir það bú- um við illa í húsnæðismálum— en það er vegna þess, að stór hluti húsnæðisins í Reykjavík er í hönd- um auðugra braskara, sem svífast einskis, til að auðga sjálfa sig. Lausn vandamálanna Okkur er öllum ljóst, hvar í fiokki sem við stöndum að þetta ástand er illt, eða réttara sagt ó- viðundandi. En er jafn mörgum okk ar fyllilega ljóst hvað þarf að gera til úrbóta? Það þýðir ekki að láta bæinn byggja ef það á alltaf að selja allar íbúðirnar. Það eru eng- ir fátæklingar sem kaupa íbúðir sem kosta 60—100 þúsundir. Það- sem fyrst og fremst verður að gera er að hrífa bæinn úr höndum þess valds, sem hefur „haldið bænum niðri“ um margra ára bil. Við verkamenn skiljum þetta vel. Margir okkar búa við óhæft hús- næði, eða eru á götunni. Fólkið sem vinnur, skapar verðmætin, hef- ur orðið harðast úti í þessum sökum Verkamenn eru nú að komast á þá skoðun almennt, að þeir, ásamt ýms um *öðrum launþegum verði að stofna félög til að byggja. En þegar því verður komið í verk (og það þarf að gera hið skjótasta) verðum við að hagnýta okkur þær beztu fyrirmyndir, sem fáanlegar eru með- al þjóða sem skemmra eru á vegi staddar í verkalýðspyntingum en ís- lendingar. Um n. k. mánaðamót er enn meiri ástæða til að athuga þessi mál af fullri gaumgæfni og í alvöru þess að þetta ástand er óþol- andi“. Auknar tómstundir legrgja verkalýðnum skyldur á herðar Stytting vinnudagsins niður í 8 stundir hefur fært verkalýðnum meiri tómstundir og þar með nokk- ur skilyrði til aukinnar menning- ar. Þessum auknu réttindum fylgir sú skylda að nota þessar tómstundir á réttan hátt. Það þarf að skapa hinu vinnandi fólki aðstöðu til að auka þekkingu sína með sjálfsnámi, og það þarf einnig að gera því kleift að njóta hollra ■ skemmtana. Slæm skilyrðl til sjálfs- náms En hvemig er svo ástandið í þess- um efnum? Við höfum að vísu bókasöfn, sena almenningur hefur aðgang að, og við höfum einni lestrarsali, en þeir eru fáir og lítt sniðnir við hæfi manna sem vinna eriiðisvinnu á daginn, og nota kvöldstundir til lesturs. Við höfum einnig náms- hringi, en húsakynnin sem þeir hafa yfir að ráða eru þannig, að færri komast að en vilja. Til að hafa full not af lestri bóka í heimahúsum, þarf næði, og húsa- kynnin þurfa að vera mönnum sæm andi. Það er hinsvegar vitað, að fjöldi alþýðuheimila hér í þessum bæ„ hafa ekki þau skilyrði sem krefjast verður til að hægt sé að lifa menn- ingarlífi. Lélegí skemmtanalíf Þá er rétt að snúa sér að skemmt analífinu. Kvikmyndahúsin eru yf- irfull, þess utan má draga í efa menningargildi margra þeirra mynda sem hér hafa veriö sýndar tindanfarið. Kaffihúsin eru flest Jfauoúudd á ð. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.