Þjóðviljinn - 26.09.1944, Page 5

Þjóðviljinn - 26.09.1944, Page 5
I>JÓÐVILJINN — Þriðjudagur 26. september 1944 Útgefancfi: Sameiningarnokkur alþýðu — Sósíatiataflokkurinn. Ritstjóri: Sigurður GuSmundsaon. StjómmálaritstjÓTar: Einar Olgeirsson, Sigfús Sigurhjartarson. Ritstjómarskrifstofa: Austurstrœti 12, sími 2270. Afgreiðsla og auglýsingar: Skótiwörðustig 19, simi 218ý. Áskriftarverð: í Reykjavík og nágrenni: Kr. 6.00 á mánuði. Uti á landi: Kr. 5.00 á mánuði. Prentsmiðja: Víkmgsprent h.f, Garðastræti 17. Hvað gera ná atvinnurekendur? Til hvers erum við að berjast gegn dýrtíðinni? Við erum að berjast gegn dýrtíðinni, til þess að hindra að fram- leiðslukostnaður þeirra vara, sem við þurfum að selja út úr landinu, verði of mikill. Hver er tilgangurinn með þeirri viðleitni? , . ' Tilgangurinn er að geta haldið lífsafkomu sem flestra landsmanna það góðri í krafti mikillar vinnu og góðs kaups að þeir geti lifað virki- legu menningarlífi. Meirihluti þjóðarinnar eru launþegar. Og það eru einmitt launþeg- amir, sem haft hafa lélegasta afkomu hér áður. Laun þau, sem launþegar fá nú, eru aðeins að rúmum þriðjungi grunnlaun. Hitt er dýrtíðaruppbót. Hún lækkar í beinu hlutfalli við dýrtíðina. Það liggur því í augum uppi, að öll lækkun á grunnkaupi væri beinlínis í mótsögn við þann tilgang, sem verið er að vinna að með baráttunni gegn dýrtíðinni: að tryggja og bæta afkomu fjöldans. Hinsvegar hefur Alþýðusambandið boðizt til þess að beita sér fyrir tveggja ára heildarsamningum milli verkamanna og atvinnurekenda á grundvelli núverandi kaups, aðeins með þeim lagfæringum og leiðrétt- ingum, sem nauðsynleg eru fyrir ýms félögin, en engu verulegu myndu orka á vísitöluna. Ef þcssu tilboði Alþýðusambandsins væri tekið, væri hinsvegar öll víxlhækkun stöðvuð, „kaupskrúfan" — eins og atvinnurekendur hafa kallað það. Atvinnurekendur hafa enn ekki sinnt þessu og munu þó margir þeirra fýsandi þess. En nú er að sjá hvað þeir gera næstu daga. Því nú hafa bændur að sínu leyti lagt fram sinn skerf til þess að stöðva dýrtíðina og er það vel gert. Með samþykkt Búnaðarþings eru þjóðarheildinni spöruð ca. 10 vísitölustig, gegn því að greiða útflutningsuppbætur er nema líklega 8—9 milljónum króna. Framkoma Búnaðarþings er þarna í algerri mótsögn við það ábyrgð- arleysi, sem einkenndi vissa svokallaða bændafulltrúa 1942, er þeir beittu vahli sínu gerræðislega og ollu því að vísitalan er nú 30 stigum hærri en hún hefði þurft að vera. — Nú hefur Búnaðarþing hinsvegar afsalað sér rétti og tilkalli til 10 stiga hækkunar, raunverulega lækkað þannig vísitöluna um 10 stig, — að vísu gegn skilyrði um greiðslu út- flutningsuppbóta, en leynslan hafði sýnt, að þær höfðu bændur fengið með samþykkt þingmeirihluta. Samþykkt Búnaðarþings mun því spyrjast vel fyrir, einnig hjá þeim, sem andstæðir eru greiðslu útflutningsuppbóta. En þegar smærri og stærri atvinnurekendur í bændastétt, leggja þetta fram, hvað gera þá þeir atvinnurekendur og heildsalar, sem mest hafa grætt á stríðinu? Það er vitað að hundruð heildsala, iðjuhölda og stærri sem smærri atvinnurekenda hafa grætt of fjár á undanförnum árum. Það er ennfremur vitað að einmitt gróði þessara manna kemur niður á framleiðslunni, gerir hana dýrari en hún þyrfti að vera. Það hefur verið öruggur gróðavegur að stunda heildsölu eða iðjurekstur í Reykjavík undanfarin ár, Verðlagsnefnd hefur beinlínis hjálpað til að auka þennan gróða, gera hann að föstum álagningarskatti á framleiðsl- una og almenning, en útilokað samkeppni, hlynnt að einokun. Svo langt hefur verið gengið að einu einasta, skattfrjálsu, félagi hefur af hálfu verðlagsnefndar og ríkisstjórnar verið gert mögulegt að græða 23—28 milljónir króna á einu ári á almenningi og auka dýrtíðina um ca. 50 milljónir króna. ITvað gera nú þessir menn, sem flestir eru orðnir ríkir menn — á dýrtíðinni? Hvert verður þeirra framlag til baráttu gegn dýrtíðinni, — til að tryggja lífsafkomu fjöldans, — til að leiðrétta kjör þeirra launþega, — sem enga „leiðréttingu“ fengu á kjörum sínum 1940 og 1941, þcgar bændur gátu þó lagfært hjá sér sjálfir, — þegar auðurinn tók að streyma inn til heildsala og atvinnurekenda? Næstu dagar munu skera úr því. Frelsun Kíeffs Frá ómunatíð hefur Kíeff verið kunn í Austur-Evrópu sem móðir rússneskra borga. Kíeff (eða Kænugarður, eins og norrænir menn kölluðu hana) er höfuðborg lýðveldisins Úkrainu og ein af fegurstu borgum Sovétríkj- anna. — Hún stendur á fögrum hæðum hjá Dnépr-fljóti. — Hið mikla fljót bugðast um jaðar þess- arar fornu borgar, vöggu rúss- neskrar og úkrainskrar menning- ar. — Bæði hið mikla rússneska skáld, Alexander Púskin, og hið mikla úkrainska skáld, Taras Séftsenko, tileinkuðu hin dýriegu Ijóð sín Kíeff, — borginni, sem er jafnkær öllum borgurum hinna víðlendu Sovétríkja. Hin dásamlegu stræti og torg voru hreinasta augnayndi. Innan um raðir af mikilfenglegum ný- tízkubyggingum voru hin fegurstu mannvirki löngu liðinna kynslóða. — Kíeff stcndur í tengslum við clztu tímabil í sögu sovétþjóðanna. Á síðustu áratugum hafa orðið óviðjafnanlegar framfarir í þessu mikla landi, og Kíeff var gott dæmi um hina hröðu þróun í landi ráðstjórnarinnar og hina miklu efnislegu og menningarlegu sigra þess. Árið 1941 brutust þýzku fasist- arnir inn í Kíeff, og borgin huld- ist myrkri. — I meir en tvö ár þjáðust íbúar Kícffs undir hinu óbærilega oki nazista. — Þjóðverj- ar fundu upp á að nota gasbíla eða morðbíla, eins og fólkið kall- aði þá, og myrtu meir en 100.000 saklausra karla, kvenna og barna. — Jafnvel enn meiri fjöldi borg- arbúa var fluttur til Þýzkalands í þrælkunarvinnu. .— Þeir, sem eftir voru í Kreff, lifðu í eymd og volæði. Anisia Maiboroda, sem er 70 ára gömul, segir svo frá: Fyrir her- námið lifði hún kyrrlátu lífi. Þjóð- verjarnir eyðilögðu líf liennar. Þeir fluttu dóttur hennar til Þýzka- lands, ráku hana sjálfa af heimili sínu og rændu öllum eignum henn- ar. Gamla konan neyddist til að biðjast ölmusu. Tilvera vísindamanna, prófess- ora, lækna, verkfræðinga. og ann- arra menntamanna var jafn-auð- mýkjandi, og þeir áttu stöðugt yf- ir höfði sér misþyrmingar Gesta- pos. Þjóðverjar eyðilögðu hlífðar- laust allar menningarmiðstöðvar. — Þeir sprengdu Kíeff-háskóla í loft upp með hinni alkunnu þýzku vandvirkni. Bókasafn hans með 1 milljón og 300 þúsundum dýr- mætra bóka, 2 milljónir sýningar- gripa í náttúrufræðisafninu, 20 rannsóknastofur, 18 vísindadeildir og ýmislegt annað, sem safnað hafði verið eða reist á tugum ára, varð eldinum að bráð. Tvennar tölur gefa góða hug- mynd um hinar ógurlegu eyðilegg- ingar þýzlcU morðingjanna og brennuvarganna í Kíeff; raðir bygginga, sem hafa verið gjöreyði- ★ EFTIR ______________________ L. lagðar, ná yfir 120 ekrur með 5—7 km. strætalengd; af 1776 verk- smiðjum og vinnustofum borgarinn ar eru aðeins 278 uppi standandi, og jafnvel þær eru hálfeyðilagðar. Leikhús, skólar, kvikmyndahús, útvarpsstöðin, aðalpósthúsið og margar aðrar stórar ríkis- og borg- arbyggingar fórust í eldinum. Aðalgata Kíeffs, hin fræga Krestsjatik, með liinum mikilfeng- legu byggingum sínum, er 3iú ekk- ert annað en haugar af braki og grjóti. Þýzku ræningjarnir lögðu saur- ugar liendur sínar á hina forn- helgu Sofíu-Dómkirkju og Pets- joraklaustrið. Margar aðrar dóm- kirkjur voru einnig skemmdar og rændar. Rauði herinn feykti nazista- hjörðunum cins og hvirfilbylur út úr Úkrainu. — Hin frelsaða Kíeff er nú að græða hin djúpu sár eftir misþyrmingar hinna villimann- legu, erlendu innrásarseggja. Síðan borgin var frelsuð hafa þúsundir karla og kvenna unnið fórnfúst starf við endurreisnina. — Á öllum sviðum ríkir athafna- semi. 1 skólunum heyrist nú aftur hlegið og talað. — 52 þeirra hafa verið opnaðir aftur. Á fyrstu sex vikunum var gert við um 3000 íbúðarhús. Fólkið í Kíoff, sem var svipt rétti til alls menningarlífs undir stjórn Þjóðverja, á nú aftur kost á að fara í leikhús og kvikmynda- hps, hlýða á tónleika í tónlistar- höllinni og skemmta sér í klúbb- um. Hungur og sjúkdómar herjuðu á Kíeff undir stjórn Þjóðverja. — Á allra fyrstu mánuðunum eftir frelsunina opnaði ríkisstjórnin og ýmis hjálparsamtök um 2000 mat- stofur og J20 matvöruverzlanir. Samtímis voru 16 læknamiðstöðv- ar, 13 heilbrigðiseftirlitsstöðvar og 4 barnaspítalar opnaðir í borginni. Verksmiðjur og vinnustofur tóku aftur til starfa; 49 samvinnu- fyrirtæki hafa aftur tekið til starfa, og framleiddu þau um sex millj- ónir rúblna virði af neyzluvörum á sex mánuðum. Kíeff-búar hor'fa með sorg- mæddu hjarta á hina óskaplegu eyðileggingu, — hinar skuggalegu minjar um nazistana —, sem enn má sjá á báðar hliðar. — Þá dreymir um þá tíma, þegar lokið verður við að endurreisa hina kæru borg þeirra, og þeir spara ickki afl sitt og atorku til að flýta fyrir þessu. Á hverjum degi má sjá þúsund- ir borgarbúá hreinsa burt rústir á strætum og torgum. Á síðast liðn- um fjórum mánuðum unnu þessir sjálfboðaliðai' 200.000 dagsverk, eú þeir eiga ennþá mikið ógert. Krestsjatik, aðalstræti Kíeffs, var fyrrum fegursta gata hennar og stolt. Aðeins við hana og næstu Istræti sprengdu og brenndu Þjóð- jverjar 3 milljónir og 600 þúsundir rúmmetra af byggingum. Ekki- er jhægt að gera við nema tæpan helming þeirra, liinar verður að rífa. Fyrir skömmu voru haugar af rústum og braki á Krestsjátik, en nú er búið að ryðja strætin. — I Krestsjatik þarf að gera við um eina milljón rúmmetra af múr- veggjum, gólfum og undirstöðum, hreinsa burt 200.000 smálestir af braki og taka sundur um 10.000 smálestir af málmi. Á meðan borgin er hreinsnð, vinna húsateiknarar og verkfræð- ingar að áætlunum, sem eiga að veita Kíeff aftur fyrri fegurð í ná- inni framtíð. Húsateiknararnir taka með í reikninginn þá ósk úkrainsku þjóð- arinnar, að höfuðborg hennar verði jafnvel ennþá fegurri en hún var fyrii' þýzku innrásina. Þess vegna gera áætlanir þeirra ráð fyrir breið- ari trjágöngum og torgum, skemmtigörðum, breiðum ak- og gangbrautum og blómagörðum. Osk fólksins mun rætast, — hin endurborna Kícff mun verða glæsilegri en nokkurn tíma fyrr. Alþýðusambandið itrekar r tilboö sitt um vinnufrií Ilefteknir þýzlcir hershöfðingjar ganga eftir Rauða torginu í Moskva. Ilitler og heimsafturhaldið er að ta'pa heimsstyrjöldinni, um það virðast allir á eitt sáttir. Þegar þýzku herimir réðust á Sl vétrík- in, var það gert í þeirrí írú, að enn vœrí möguleiki á því a f berja niður aðalvígi heimsalþýóunnar, að þýzka nazismanum mundi tak- ast að safna til þeirrar baráttu öll- um afturhaldsöfhim heimsins. Leiðtogar þýzka nazismans sáu það skýrar en aðrir, að tœkist ekki að ráða niðurlögum alþýðustór- veldisins í austrí, vœri það eilíf- lega of seint fyrir auðvaldið að œtla sér að mola verlcalýðshreyf- inguna á lieimsmœlikvarða og hneppa allar þjóðir í kúgunar- fjötra fasismans. Nú vita allir að þetta var of seint. Styrkur alþýðuhreyfingar- innar um heim allan, og þá fyrst og fremst styrkur hinna sósíalist- ísku Sovétríkja, var svo mikill, að sólcn nazismans var stöðvuð og loks snúið í hrakfarir, sem eiga eftir að þurrlca fasismann út á meginlandi Evrópu.. * Ilér heima eru til öfl, sem vinna að því öllum árum að afturhaldið í landinu sameinist til úrslitaátaka við verkalýðshreyfinguna. Rök þessara manna eru þau sómu og fyrirmyndar þeirra, Ilitlers: Nú eru síðustu forvöð að berja niður verkalý ðshreyfinguna á íslandi. Ef beðið verður eftir því, að al- þýðan þjappi sér saman enn bet- ur en nú er, beðið eftir því, að liún á nœsta Alþýðusambands- þingi og í nœstu kosningum sýni einhug sinn og mátt, er allt orðið um seinan fyrir auðvaldið á ís- landi. Þannig rökstyðja þeir kumpánar Claessen og Hríflu- Jónas „nauðsyrí‘ þess, að aftur- haldið leggi nú til úrslitabaráttu, og það strax í haust, með öllum þeim samtókum og tœkjum sem íslenzkt afturhald á yfir að ráða. ir En þeim verður á sama skyssan, þcssum herrum, og fyrirmynd þcirra, Ilitler. Verkalýðshreyfing- in á íslandi er orðin svo sterk, að liún verður ekki slegin niður. Ilún er orðin svo sterk, að vilji liún beita afli sínu getur hún staðizt hverja þá sókn sem afturhaldsöfl- in í landinu gœtu gert, og snúið slíkrí sókn upp í hrakfarír íslenzka auðvaldsins, sem yrðu á sinn liátt engu síður endanlegar en hrakfar- ir skoðanabrœðra Claessens og Hríflu-Jónasar — þýzlcu nazist- anna. 'k Enn cru lílcindi til þess, að hin vitrari öfl íslenzltu borgarastéttar- innar láti elcki etja sér út í þá allsherjarbaráttu gegn alþýðusam- tökunum, sem Claessen og Ilríflu- Jónas eru að rcyna að stofna til. En verkalýðshreyfingin verður að vera við öllu búin, minnug þess, að það er ekkert vald til í land- inu, hvorki afturhaldsflokkar á Al- þingi né vopnuð lögregla, sem get- ur sigrað verkalýðinn þegar hann stendur einhuga saman um mál- stað sinn. í IfÓS l samstaffsvíija sinn J Hvað gera ððvínourekendur? j: Lausn vinnudeilnanna og dýrtíðarvandamálanna er nú mest umrœddá málið mcijal almennings. Atvinnurekendur hafa sem lcunnugt er neitað verkalýðs- félögunum um allar samrœmingar á lcjörum þeirra, og hafa undanfama mánuði stöðvað hverja starfsgreinina á fœtur ann- arri. — Alþýðusambandið hefur hins vegar tjáð sig reiðubúið til samkomulags á þann hátt að samið vœrí á grundvelli núgild- andi samninga með nauðsynlegum samrœmingum. Búnaðarfélag íslands hefur einnig, með samþykkt þeirri sem Þjóðviljinn birti s.l. sunnudag, látið í Ijós samstarfsviljá sinn til þess að leysa þetta tnál. Nú virðist því ekki standa lengur á öðrum aðila til þess að leysa þetta mál en Vinnuveitendafélaginu, scm fram að þessu virðist hafa sett það ofar öllu öðru að efna til stríðs við verklýðshreyfinguna í landinu. Nú, þegar bœði Alþýðusam- bandið og Búnaðarfélag íslands hafa lýst yfir vilja sínum til þess að leysa þessi mál, er beðið eftir því hvað atvinnurekendur gera, hvort þeir œtla einnig að ganga til samkomulags eða livort Vinnuveitendafélagið kýs heldur að leggja út í stríð gegn hagsmunum allrar þjóðarínnar vegna duttlunga fámenns hóps stórgróðamanna. Eftirfarandi yfirlýsing frá Alþýðusambandi íslands barst Þjóðviljanum í gœrkvöld: Til þess að ekki leiki á tveim tungum um afstöðu Al- þýðusambands íslands til veigamikilla atriða í sambandi við umræður um stjómarmyndun, viljum vér upplýsa eft- irfarandi: Rétt fyrir næstliðin mánaðamót barst oss fyr- irspum frá nefndum flokkanna og samþykktum vér á fundi sambandsstjómar 1. sept. eftirfarandi svar: „Vegna fyrirspurna þeirra Haralds Guðmundssonar og Brynjólfs Bjarnasonar, sem fulltrúa nefnda flokkanna, er viðræður hafa átt um stjómarmyndun, vill stjóm Al- þýðusambands íslands taka það fram, að hún er fyrir sitt leyti meðmælt því að gerðir verði heildarsamningar um kaup og kjör til tveggja ára, í meginatriðum á gmnd- velli núverandi samninga stéttarfélaganna, með nauðsyn- legum lagfæringum kaups og kjara á hinum ýmsu stöð- um og starfsgreinum, og er reiðubúin til að hefja við- ræður við fulltrúa atvinnurekenda um þetta efni og leita umboðs sambandsfélaganna til samninga, ef líkur em til að samkomulag náist, enda verði um leið samkomulag um verð landbúnaðarafurða í sanngjömu hlutfalli við almenn launakjör, á grundvelli þess sem verið hefur und- anfarið, og gerðar verði ráðstafanir til að tryggja stöðuga atvinnu og fyrirbyggja atvinnuleysi með öllu, eftir nán- ara samkomulagi um þessi atriði o. fl.“ Með þessu teljum vér að Alþýðusambandið hafi, fyr- ir sitt leyti, sýnt fulla viðleitni til að leysa friðsamlega eitt af helztu úrlausnarefnum flokkanna í sambandi við stjómarmyndun og tryggja vinnufrið í landinu um langt £ skeið. Hinsvegar hefur stjóm Vinnuveitendafélagsins ekki í fallizt á að leysa málið með heildarsamningum á grund- ;S velli þeim, sem lýst er í svari vom til flokkanna eða \\ skiptast á gagntillögum við oss til umræðna — né held- ;1 ur leyft liinum einstöku félögum Vinnuveitendafélagsins S; að taka upp samninga við sambandsfélög vor, sem nú ;S eiga í deilum hér í Reykjavík, og mun Alþýðusambandið S; standa við hlið þessara sambandsfélaga shma þar til deil- S ur þessar em að fullu leystar. í ^A^V^WWVWVWWSATWVVVVVWVVWWVVVWWWWWWWVWV Froavarp um skípua fiupála Ríkisstjórnin hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um við- auka við Iög nr. 32 14. júní 1929, um loftferðir, svohljóðandi: * 1. gr. Ríkisstjórninni heimilast að leggjá' fram fé úr ríkissjóði til aukningar á lilutafé Flugfélags ís- ladns h.f., þannig að ríkissjóður eigi 50% af öllu hlutafénu. Fé það, er rikissjóður leggur fram, er rík- isstjórninni heimilt að taka að láni. 2. gr. Á hluthafafundum Flug- félags íslands li.f. skulu takmark- anir vera á atkvæðisrétti, að því er hlutafé ríkissjóðs snertir. 3. gr. Þegar Flugfélag íslands h.f. hefur breytt samþykktum sín- um í samræmi við ákvæði 1. gr. og 2. gr. og ríkissjóður er orðinn eigandi að helmingi hlutafjár fé- lagsins, getur atvinnumálaráðu- neytið veitt Flugfélagi íslands h.f. einkarétt til flugferða hér á landi og til útlanda með farþega, póst og farangur. 4. gr. Þegar ríkissjóður hefur eignazt helming hlutafjár Flugfé- lags Islands h.f., skal það vera und- anþegið tekju- og eignarskatti svo og því að greiða útsvar eftir efn- um og ástæðum. 5. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi. Frumvarpinu fylgir svohljóð- andi greinargerð: „Flugsamgöngurnar eru nú orðnar svo verulegur þáttur í sam- göngumálum vorum, að nauðsyn ber til, að ríkisvaldið hafi veruleg afskipti af rekstri þeirra og styrki þær eftir því, sem föng eru á. í þessu augnamiði er lagt til í frum- varpi þessu, að ríkissjóður efli Flugfélag íslands h.f. með veru- legum fjárframlögum. Hlutafé Flugfélagsins er nú um 1000000 kr., en heimilt er samkvæmt sam- þykktum þess að auka það upp í 1500000 kr. Framlag ríkissjóðs gæti þá orðið samkvæmt frum- varpinu um 1500000 kr. Ef þessi leið yrði farin, verður að teljast eðlilegt, að Flugfélagi íslands h.f. yrði veittur einkarétt- ur til flugferða hér á landi og til útlanda með farþega, póst og far- angur. Með þessu fyrirkomulagi yrði stjórn þessara mála einfald- ari, reksturinn öruggari og ódýrari. Skipulag það, sem frumvarpið gerir ráð fyrir, er sniðið eftir því fyrirkomulagi, sem haft var á flug- samgöngum flestra Evrópulanda fyrir núverandi styrjöld“. Við fyrstu umr. frv. í gær á- taldi Jóhann Jósefsson að ekki væri tekið tillit til annarra flug- félaga en Flugfélags íslands. Um- ræðunni var frestað. Þriðjudagur 26. september 1944 — ÞJÓÐVILJINN Skipstjóra- og stýrimannafélagið „GRÓTTA“. Félagsfundur verður haldinn næstk. miðvikudag 27. september kl. 8 e. h. í Verzlunarmannafélagshúsinu, Vonar- stræti 4. Mörg mál á dagskrá m. a. þessi: 1. Þing Farmanna- og fiskimannasamhands ís- lands. 2 Samningar félagsins. 3. Breytingar á lögum um atvinnu við siglingar, er nú liggja fyrir Alþingi. Þess er fastlega vænst að félagsmenn mæti. Sýnið félagsskírteini við innganginn. STJÓRNIN. HMM Email. búsáhöld, Drykkjarbikarar úr leir, Toilet-pappír, Stangasápa „Sunlight“, Þvottasódi, Þvottablámi, Línsterkja, Tannburstar, Slípólar, Trésmíðablýantar, Te „Liptons“, , Súpuefni „Liptons“ Matarlím, Möndlur, Súputeningar, Borðsalt. Friðrik Mspðsson 6 Co Heildverzlun. Sími 3144. Tökum að okkur veizlur og samkvæmi. Tökum einnig á móti dvalargestum um lengri og skemmri tíma. VEITINGAIIÚ$IÐ KOIVIMRHÓLL Framhald af 2. síðu. þannig útlítandi að þau eru til skammar. Virðast fremur vera grið- arstaður fyllirafta og göturóna, en samastaður friðsamra borgara. Stærsta hótel bæjarins, Hótel Borg, sem hvað húsakynnin snertir hefur skilyrði til að fullnægja ítrustu kröf um sem gerðar eru hér á landi til stofnunar þeirrar tegundar, hefur um langan tíma verið hljómsveitar- laust vegna fjandskapar eigandans í garð verklýðssamtakanna. Reykvíkingar eiga engan skemmti stað íyrir almenning sem beri það nafn með réttu. Það verður að vinda bráðan bug að því að úr þessu verði bætt. Auglýsingar sem birtast eiga í Þjóðvilj- anum, þurfa að hafa bor- izt blaðinu fyrir kl. 7 dag- Ínn áður en þær eiga að birtast. AuglýsingaskriJ- stofan er í Austurstræti lí, sími 2184. ÞjéðviljhUk Kennsla - herbergi Reglusamur stúdent óskar eftir herbergi 1. okt. Getur kennt í staðinn. Upplýsingar í síma 2506 og 4790 kl..9—17 og í síma 1612 eftir kl. 19. T I L liggur leiðin Nýkomið Hattar. Karlmannaföt Verð: 345,00. Karlmannafrakkar stórt úrval. Drengjafrakkar Verð: 195,00. Smokingföt einhn. og tvíhn. Skinnblússur margar teg. AUGLYSIÐ I ÞJÖÐVHJANUM Aki Jakobsson héraðsdómslögmaður Jakob J. Jakobsson Skrifstofa: Lækjargötu 10B Sími 1453. / Málfærsla — innheimta Reikningshald, Endurskoðun

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.