Þjóðviljinn - 06.01.1945, Blaðsíða 8
W. Averell Harriman, sendiherra Bandaríkjanna í Moskva (til hægri) og Josif Stalín
forsætis- og landvamarráðherra Sovétríkjanna, halda á heiðursskjali er Roosevelt
forseti sendi borgnnum Leníngrad og Stalíngrad. — Til vinstri eru E. Page, banda-
rískur sendiráðsritari og Molotoff utanríkisþjóðfulltrúi Sovétríkjanna. — Heiðurs-
skjölin era send sem „vottur um aðdáun Bandaríkjaþjóðarinnar á lietjuvöm þessara
tveggja borga“.
50 ára leikstarfs-
afmæli
Samsæti verður haldið á
morgun, sunnudag, kl. 8-45 e. h.
í Iðnó í tilefni af 50 ára leik-
starfsafmæli frk. Gunnþórunn-
ar Halldórsdóttur.
Þeir, sem hafa þegar tilkynnt
þátttöku sína, vitji aðgöngu-
miða sinna í Iðnó í dag kl. 3
síðdegis. Nokkrir aðgöngumið-
ar að samsætinu eru eftir og
verða þeir seldir á sama tíma.
Hallgrímssókn. Me^sa í Dómkirkj-
unni kl. 2 e. h. á morgun, síra Sig-
urbjörn Einarsson. Kveðjuguðsþjón-
usta. Altarisganga. (Engin messa í
Austurbæj arskóla).
| ... 5
J TJARNAR BIO SYNIR
Sendiför
til Moskvu
/ lcvöld kl. !) hcfur Tjarn-
arbíó frumsýningu á hinni
stórmerhu bandarísku hvik-
mynd Sendiför til Moskvu
(Mission to Moscow), sem er
byggð á bók .1 oseph Davies,
fyrrum sendiherra Bandaríkj-
anna í Moskvu. Þessi bólc
hans vakti óhemju athygli
þegar hún kom, út fyrir 2 ár-
um, en hún fjallar um ýmsa j
merkustu atlmrði síðustu ára, j
séða í Ijósi glöggshyggns og !|
víðföruls stjórnmálamanns, Ij
sem hafði aðstöðu til að í
kynna sér atburðina af eigin 'I
reynd. Ilinn víðkunni banda- j
í ríski rithöfundur, Erskine J<
* Cátdv ell. bjó bókina út fyrir j>
kvikmynd. Ij
í myndinni lcoma fram Ij
ýmsir helztu og frœgustu >J
stjórnmálamenn síðustu ára, 'j
leiknir af kunnum leikurum. jl
ÁlLir þeir, sem kunna vilja J>
slcil á heimsviðburðum síð- J>
ustu ára, ættu að sjá þessa I>
mynd. £
yVWUWMWVWWJWUWuvJ
Stefán Þorleifsson íþróttakennari
Fjölbreytt starfsemi
r
Iþróttafélagsins Þróttar
á Norðfirði
(Fra fréttaritara Þjóðviljans
á Norðfirði).
íþróttafélagið Þróttur hefur ver-
ið at)liafnasamt í vetur. Hafði fé-
lagið leikfimissýningu 28. desem-
her. Sýndu þar tveir flokkar, karl-
»
ar og konur, undir stjórn Stefáns
Þorleifssonar kennara félagsins.
Annan jóladag hafði Karlakór
Þróttar samsöng í kirkjunni, undir
stjórn Magnúsar Guðniundssonar
kennara. Var kór þessi stofnaður
af íþróttafélaginu í haust og eru
í honum mest ungir menn, milli
túttugu og þrjátíu talsins. Hefur
kór þessum nú verið breytt í sjálf-
stæðan kór. sem lieitir Karlakór
Norðfjarðar, en formaður hans er
Henbert Þórðarson og söngstjóri
Magnús Guðmumisson. Sönglíf
hefur sjahlan verið fjörugra hér en
s.l. ár.
Einnig hefur Þróttur æft sjón-
leikinn „Ráðskona Bakkabræðra"
og byrjuðu sýningar á gamlárs-
dag. Elísabet Vigfúsdóttir leikur
ráðskonuna, en Kristján Imsland,
Guðmundur Jónsson og Asgeir
Lárusson leika Bakkabræður.■ Aðr-
ir leikendúr eru: Anna Jónsdóttir,
Áslaug •Ólafsdóttir, Pálína Páls-
dóttir, Valur Sigurðsson, Valdimar
Eyjólfsson, Sveinbjörn Guðmunds-
son og Stefán Þorleifsson. Leik-
stjóri er Einar Iíilmar. Hefur að-
sókn að leiknum verið injög mikil
Þrjár bækur væntan-
legar frá Sögufélaginu
Þrjú rit eru væntanleg frá Sögu-
félaginu nú á næstunni; eru það
Alþingisbækurnar, upphaf 7. bind-
is, hefur útgáfa þeirra tafizt í
nokkur ár vegna fjarveru hand-
rita, og 5. bindi af Dómasafninu,
dómum Landsyfirréttar og Hæsta-
réttar frá fyrri hluta 19. aldar.
Tímarit Sögufélagsins, Blanda,
kemur út bráðlega. Áðui eru kom-
in út 7 bindi af ritinu.
Sögufélagið hefur látið ljós-
prenta tvö fyrstu bindin af Þjóð-
sögum Jóns Árnasonar og eru þau
til 'sölu hjá félaginu.
Stjórn Sögufélagsins skipa nú
þessir menn: Einar Arnórsson
liæstaréttardómari, forseti, Þor-
steinn Þorsteinsson hagstofustjóri,
gjaldkeri (endurkosinn), Guðni
Jónsson magister, ritari, og Ilall-
grímur Ilallgrímsson bókavörður
og próf. Þorkcll Jóhannesson, með-
stjórnendur.
180 menn bættust við meðlima-
tölu félagsins á árinu og telur það
nú 1100 meðlimi alls.
Bálför Péturs
Ingimundarsonar
Samkvæmt tilkynningu frá bál-
stofunni í Edinborg fór bálför Pét-
urs Ingimundarsonar slökkviliðs-
stjóra fram þann 23. desember.
(Tiíkylining frá Bálfarafélagi íslands).
og þykja leikendur leysa hlutverk
sín vel af hendi og sumir ágætlega.
íþrójfctafélagið Þróttur er rúm-
lega 20 ára og hefur eigi aðeins
látið íþróttamálin til sín taka,
heldur ýms menningarmál. og ]ió
einkum leiklistina. Hefur það hald-
ið uppi frjálsíþrótta- og knatt-
leikjakennslu að surnrinu, en fim-
leika- og nokkurri skíðakqúnslu á
vetrum.
Barnaskólanefndin liefur sýnt
íþróttástarfseminni velvild og allt-
af lánað leikfimissal og áhöld end-
urgjaldslaust. "
Stefán Þorleifsson hefur undan-
farin fimm ár verið fastur íþrótta-
kennari félagsins.
ÞlÓÐVIUINN
Búdapest og Aþena
JJ’TVARPSFRÉTTIRNAR flytja nú daglega fréttir af
hemaðaraðgerðum í tveimur höfuðborgum Evrópu, höf-
uðborg Ungverjalands, Búdapest, og hinni sögufrægu höf-
uðborg Grikklands, Aþenu.
•
J BÚDAPEST sækir fram sovéther, undir stjórn Malín-
ovskís hershöfðingja, og fregnimar eru á eina leið, sov-
étherimir vinna á, en mikilli mótspymu er að mæta.
Þýzka herstjórnin hefur sent til Búdapest þýzkar og ung-
verskar úrvalshersveitir, og ekki farið dult með þá fyrir-
ætlun að reyna að gera Búdapest að vamarvirki á við
Stalingrad, berjast um hverja götu, hvert hús, þar til
yfir lýkur. Þessari ákvörðun hafa Þjóðverjar reynt að
framfylgja, en sovétherinn hefur ekki stöðvazt, mikill
hluti borgarinnar er þegar á valdi hans. Vonir þýzku her-
stjómarinnar um að gera Búdapest að Stalíngrad, eru nú
þegar að engu orðnar. Sovétherirnir hafa framkvænit
vetrarsókn sína í Ungverjalandi við hin örðugustu skilyrði,
og má benda á til samanburðar, að á Ítalíuvígstöðvunum
hafa hernaðaraðgerðir verið mjög takmarkaðar mánuðum
saman: Hver sigur sovétherjanna vekur fögnuð meðal al-
þýðu í öllum löndum, glæðir vonirnar um tortímingu
nazistaófreskjunnar.
J AÞENU, höfuðborg Grikklands, er háður ójafnari leik-
ur.Þar berst her, floti og flugher brezka heimsveldis-
ins við vopnlitla ættjarðarvini, og vinnst seint, enda virð-
ist ótvírætt af styrknum í vörn ættjarðarvinanna, að
þjóðin standi nær óskipt að baki þeim. E. A. M., póli-
tísku samtökin, sem stjórna vörn Grikkja gegn hinum
brezka her, er -ekki einn pólitískur flokkur, heldur sam-
fylking allra frjálslyndra og róttækra afla í landinu.
Aþenufréttaritari enska íhaldsblaðsins Times símar 6- des.
s. 1., að „E. A. M. sé myndað af Kommúnistaflokknum,
Sósíalistaflokknum, Sambandi lýðræðissinna, Gríska sósíal-
istasámbandinu, Sósíaldemókrataflokknum, Verkamanna-
og bændaflokknum, vinstra armi Frjálslynda flokksins og
mörgum öðrum samtökum og einstaklingum11. Það er þessi
samfylking, sem stjórnar þjóðfrelsisbaráttu Grikkja.
•
*
yEL MÁ VERA að enn berist nokkrum sinnum fregnir
um að brezki heimsveldisherinn vinni á í Aþenu. En
virðingu Bretlands hrakar og brezka afturhaldið bakar sér
hatur og fyrirlitningu frjálslyndra manna um allan heim
fyrir hvem slíkan sigur, uxminn í baráttu við vopnlitla
ættjarðarvini, sem héldu að hin margþjáða gríska þjóð
væri loksins orðin frjáls.
í
j
skartgripir
Komið hefur í Ijós, að nú fyrir
jólin voru smyglaðir skartgripir til
sölu í skartgripaverzlunum hér í
bænum. Ilafði þeim verið smyglað
inn í landið af farmönnum. Þá
munu hafa verið nokkur brögð að
sölu gamalla gripa, er lengi höfðu
verið í eigu manna hér, en þeir
vilofu nú selja. ,
Nýr þmgmaður
Haraldur Jónasson bóndi á Völl-
um í Skagafirði tók í gœr sœti á
Alþingi, en hann er varaþingmað-
ur Sjálfstœðisflokksins í Slcaga-
fjarðarsyslu.
Smyglaðir
Ungmennafélag Gríms-
staðaholts fær lóð undir
samkomuhús
Nýlega vár sagt hér í blaðinu
frá stofnun ungmennafélags á
Grímsstaðaliolti og byggingu
I bráðabirgðafélagsheimilis í sjálf-
'boðavinnu.
Nú hefur bæjarráð gefið félag-
inu loforð um lóð fyrir samkomu-
hús á Melunum, suðvestur af
væntanlegri Neskirkju, eftir nán-
ari útvísun síðar.
Jón Sigurðsson tilkynnti að hann
gæti ekki mætt á þingi vegna sér-
stakra anna.