Þjóðviljinn - 06.01.1945, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 06.01.1945, Blaðsíða 1
VILJINN Myndasaga 10. árgangnr. Laugardagur 6. janúar 1945. 4. tölublað. hefst í blaðinu á morg- un. Fylgizt með þess- ari skemmtilegu mynda sögu frá byrjun. st lúroina I snðilsrn har w Fulltrúaráð verklýðsfélaganna í Reykjavík hélt í gærkvöld fyrsta fund sinn eftir síðasta Alþýðusambandsþing. Tilkynnt var opinberlega í Moskva í gær, að sovét- stjórnin hefði viðurkennt bráðabirgðastjórnina 1 Lublin. Sendiherra Sovétríkjanna hjá pólsku bráðabirgða- stjórninni verður Lebedeff, — alkunnur, rússneskur stjórnmálamaður. í tilkynningu sovétstjórnar- innar var sagt, að hún hefði fengið tilkynningu frá bráða- birgðastjóminni í Lublin, þess efnis, að mynduð hefði verið bráðabirgðastjórn hins lýðræð- islega Póllands, og stakk bráða Ljóstrað upp um mútu- þega í indversku verka- lýðshreyfingunni Verklýðsfélagasamband það, sem M. N. Roy stofnaði fyrir þrem ár- um á móti indverska verklýðssam- bandiriu, hefur nú sundrazt. Fyrir ári síðan upplýsti dr. Am- bedkar, einn af meðlimunum í ráði varakonungsins, að samband Roys fengi 13.000 rúpíur á mánuði til að halda uppi áróðri fyrir ríkis- stjórnina innan' verklýðshreyfing- arinnar. Jamnadas Mehta, forseti þessa sambands, neitaði því sa'ax, að sambandið fengi þessa peninga, heldur væru þeir gefnir Roy sjálf- um. Síðar hefur dr. Ambedkar upp- lýst, að féð væri veitt samband- inu, en ekki Roy. ENGIR REIKNINGAR. Ilann sagði, að engir reikningar hefðu verið sýndir stjórninni, en 'hún væri ánægð yfir, að þessi út- gjöld iiefðu borið tiiætlaðan ár- angur. Annar meðlimur í ráði varakon- ungsins hefur játað aðspurður, að ríkisstjórnin hafi styrkt blað Roys með því að kaupa daglega 1500 eintök á einu bretti. Afleiðingin af þessum uppljóstr- unum er sú, að- jafnvel afturhalds- samir verklýðsleiðtogar iiafa sagt skilið við Roy og samband hans. Forsetinn, Mehta, fyrrum for- niaður járnbrautamannasambands ins, og varaforsctinn, sem er sjó- mannafélagsleiðtogi, hafa sagt af sér og: skorað á öll verklýðsfélög ,-ið ganga úr sambandinu. birgðastjórnin upp á, að þær skiptust á sendifulltrúum. Sovétstjórnin varð við þess- um tilmælum, — segir í til- kynningunni, — og er það í samræmi við þá meginreglu í utanríkismálastefnu Sovétríkj- anna að hafa vinsamleg sam- skipti við lýðræðisríkin og þá einnig lýðræðisríkið Pólland. Pólska bráðabirgðastjórnin hef- ur svipt meðlimi pólsku stjórnar- innar í London borgararétti í Pói- landi. — Munu þeir því ekki eiga afturkvæmt til Póllands. Stjórnir Bretlands og Banda- ríkjanna viðurkenna ennþá Lund- únastjórnina, þótt trúlega fari þær að minnka fjárframlög til hennar úr þessu, því að auðsætt er, að það fé vaxtast illa. — Hefur mikl- um hluta þess verið varið til að breiða út óhróður um sovétþjóð- irnar. Heima fyrir er fylgi bráðabirgða- stjórnarinnar orðið mjög mikið meðal verkamanna og bænda, sem það óttast mest af öllu, að þeir missi hinar nýfengnu réttarbætur sínar, ef Lundúnastjórnmálamenn- irnir komist til valda í Póllandi. Bráðabirgðastjórnin á og vax- andi fylgi að fagna meðal mennta- manna, sem margir hverjir voru áður lialdnir fordómum gagnvart róttækum þjóðielagsumbótum og ófúsir til vináttu við Sovétríkin. SirlZl 53 3l. 1. Sidagmt Hittast eftir 28. jan. Roosevelt forseti sagði á blaðamannafundi í gær, að þeir mundu hittast, — hann, Churchill og Stalín, — einhvern tíma skömmu eftir 20. janúar. Hann sagði veðrið ráða miklu um það hvar fundur þeirra yrði. Á fundinum var kosin ný stjórn fyrir Fulltrúaráðið og var hún sjálfkjörin. 1 stjórninni eru: Egg- ert Þorbjarnarson, Björn Bjarna- son, Snorri Jónsson, Sigurjón Ól- afsson og Árni Kristjánsson. í varastjórn: Hannes M. Step- liensen, Bergsteinn Guðjónsson og Sigurður Ólafsson. Endurskoðendur: Ilalldór Pét- ursson og Ari Finnsson. Með því að taka sæti í stjórn Fulltrúaráðsins við annan mann, ásarnt þrennur einingarmönnum, hefur Sigurjón Ólafsson og sálu- félagar hans ómerkt að öllu leyti framkomu sína á síðasta Alþýðu- sam'bandsþingi, og verður þetta mál rakið nánar hér í blaðinu. E.F. deltfl stflfnud 3 Bandantenn eru 6 km. frá Laroclte Yfirherstjórn bandamanna hefur tilkynnt að Mont- gomery marskálkur hafi verið skipaður yfirmaður þeirra herja bandamanna á vesturvígstöðvunum sem berjast fyrir norðan Ardennafleyginn þýzka. í sókn sinni gegn norðvesturhlið fleygsins eru bandamenn komnir framhjá borginni Marche og eru um 6 km. frá Laroche við Ourtheána. Þjóðverjar kafa enn unnið noklc- uð á í gagnáhlawpum sínum á syðri bukka Dónár, jyrir norðvest- an Bádapest. — Er nú barizt í um 50 lcm fjarlœgð frá borginni. Þjóðverjar halda áfram að senda skriðdreka á þennan vettvang og beita fleiri flugvélum en þeir hafa gert á austurvígstöðvunum lengi. Rauði herinn hefur fært út kví- arnar í Búdapest. — Nú er % af Búda og Vh af Pest á valdi hans. \ Montgomery marskálkur er þá orðinn yfirforingi 2. brezka hersins, 1. kanadiska hersins og 1. og 9. bandarísku herjanna. Breyting þessi var gerð þann 17. desember með samþykki allra aðila. Bandamenn sækja fram á norðvesturhlið þýzka fleygsins á 40 km. langri víglínu. Sókninni miðar vel áfram víðast hvar- Þjóðverjar gerðu afar mörg gagnáhlaup í gær og var þeim öllum hrundið við mikið tjón í liði þeirra. Þegar Þjóðverjar voru stöðv- aðir á sínum tíma svo skammt frá Meuse, að áin sást greini- lega, voru eyðilagðir fyrir þeim meir en 80 skriðdrekár. ÞJÓÐVERJAlt STEFNA TIL STRASBURG. Það þykir nú sýnt, að Þjóðverj- ar ætli sér að sækja fram til Stras- burg. — Ennþá eiga þeir þó langa leið ófarna þangað. — Saverne- skarðið er á milli, og eru þeir sagð- ir vera á leið þangað. I gær sóttu Þjóðverjar frnm ,um I 3—4 km fvrir suðaustan Bitche. j Á þessum vígstöðvum urðu þeir fyrir stórkostlegu skriðdrekatjóni í gær. Flugveður var ágætt, og létu flugvélar Bandamanna mikið að sér kveða á öllum vigstöðvum og á bak við víglínuna. í -fyrradag var stofnuð Æsku- lýðsjylkingardeild á Norðfirði. — Stofnendur voru 20. 1 stjórn vqtu kosin: Valur Sig- urðsson, formaður, Þórður M. Þórðarson, ritari, Guðmundur H. Sigurjónsson, gjaldkeri, Anna Björgúlfsdóttir og Sigríður Vigfús- dóttir meðstjórnendur. Pólitískir fangar frelsaðir í Danmörku Þann 30. desember drýgðu danskir föðurlandsvinir ein- hverja djörfustu dáð sína með því að frelsa 15 pólitíska fanga úr ríkisfangelsinu í Horsens. Síðari hluta dags, þá er fang arnir voru á göngu í fangelsis- garðinum, komu nokkrir leyni- baráttumenn allt í einu í ljós á múrunum í kring. — Þeir héldu varðmönnunum í skefj- um með skammbyssum sínum, á meðan stigi var látinn síga niður í garðinn. — Og áður en Framhald á 5 síðu. Höfuðbotg eyjarinnar Formósu, sem Bándaríkjamenn eru farnir að gera loftárásir á.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.