Þjóðviljinn - 06.01.1945, Síða 1
VILJINN
Myndasaga
10. árgangnr.
Laugardagur 6. janúar 1945.
4. tölublað.
hefst í blaðinu á morg-
un. Fylgizt með þess-
ari skemmtilegu mynda
sögu frá byrjun.
st lúroina I
snðilsrn har w
Fulltrúaráð verklýðsfélaganna í Reykjavík hélt í gærkvöld
fyrsta fund sinn eftir síðasta Alþýðusambandsþing.
Tilkynnt var opinberlega í Moskva í gær, að sovét-
stjórnin hefði viðurkennt bráðabirgðastjórnina 1 Lublin.
Sendiherra Sovétríkjanna hjá pólsku bráðabirgða-
stjórninni verður Lebedeff, — alkunnur, rússneskur
stjórnmálamaður.
í tilkynningu sovétstjórnar-
innar var sagt, að hún hefði
fengið tilkynningu frá bráða-
birgðastjóminni í Lublin, þess
efnis, að mynduð hefði verið
bráðabirgðastjórn hins lýðræð-
islega Póllands, og stakk bráða
Ljóstrað upp um mútu-
þega í indversku verka-
lýðshreyfingunni
Verklýðsfélagasamband það, sem
M. N. Roy stofnaði fyrir þrem ár-
um á móti indverska verklýðssam-
bandiriu, hefur nú sundrazt.
Fyrir ári síðan upplýsti dr. Am-
bedkar, einn af meðlimunum í ráði
varakonungsins, að samband Roys
fengi 13.000 rúpíur á mánuði til
að halda uppi áróðri fyrir ríkis-
stjórnina innan' verklýðshreyfing-
arinnar.
Jamnadas Mehta, forseti þessa
sambands, neitaði því sa'ax, að
sambandið fengi þessa peninga,
heldur væru þeir gefnir Roy sjálf-
um.
Síðar hefur dr. Ambedkar upp-
lýst, að féð væri veitt samband-
inu, en ekki Roy.
ENGIR REIKNINGAR.
Ilann sagði, að engir reikningar
hefðu verið sýndir stjórninni, en
'hún væri ánægð yfir, að þessi út-
gjöld iiefðu borið tiiætlaðan ár-
angur.
Annar meðlimur í ráði varakon-
ungsins hefur játað aðspurður, að
ríkisstjórnin hafi styrkt blað Roys
með því að kaupa daglega 1500
eintök á einu bretti.
Afleiðingin af þessum uppljóstr-
unum er sú, að- jafnvel afturhalds-
samir verklýðsleiðtogar iiafa sagt
skilið við Roy og samband hans.
Forsetinn, Mehta, fyrrum for-
niaður járnbrautamannasambands
ins, og varaforsctinn, sem er sjó-
mannafélagsleiðtogi, hafa sagt af
sér og: skorað á öll verklýðsfélög
,-ið ganga úr sambandinu.
birgðastjórnin upp á, að þær
skiptust á sendifulltrúum.
Sovétstjórnin varð við þess-
um tilmælum, — segir í til-
kynningunni, — og er það í
samræmi við þá meginreglu í
utanríkismálastefnu Sovétríkj-
anna að hafa vinsamleg sam-
skipti við lýðræðisríkin og þá
einnig lýðræðisríkið Pólland.
Pólska bráðabirgðastjórnin hef-
ur svipt meðlimi pólsku stjórnar-
innar í London borgararétti í Pói-
landi. — Munu þeir því ekki eiga
afturkvæmt til Póllands.
Stjórnir Bretlands og Banda-
ríkjanna viðurkenna ennþá Lund-
únastjórnina, þótt trúlega fari þær
að minnka fjárframlög til hennar
úr þessu, því að auðsætt er, að
það fé vaxtast illa. — Hefur mikl-
um hluta þess verið varið til að
breiða út óhróður um sovétþjóð-
irnar.
Heima fyrir er fylgi bráðabirgða-
stjórnarinnar orðið mjög mikið
meðal verkamanna og bænda, sem
það óttast mest af öllu, að þeir
missi hinar nýfengnu réttarbætur
sínar, ef Lundúnastjórnmálamenn-
irnir komist til valda í Póllandi.
Bráðabirgðastjórnin á og vax-
andi fylgi að fagna meðal mennta-
manna, sem margir hverjir voru
áður lialdnir fordómum gagnvart
róttækum þjóðielagsumbótum og
ófúsir til vináttu við Sovétríkin.
SirlZl 53 3l. 1.
Sidagmt
Hittast eftir 28. jan.
Roosevelt forseti sagði á
blaðamannafundi í gær, að
þeir mundu hittast, — hann,
Churchill og Stalín, — einhvern
tíma skömmu eftir 20. janúar.
Hann sagði veðrið ráða miklu
um það hvar fundur þeirra
yrði.
Á fundinum var kosin ný stjórn
fyrir Fulltrúaráðið og var hún
sjálfkjörin. 1 stjórninni eru: Egg-
ert Þorbjarnarson, Björn Bjarna-
son, Snorri Jónsson, Sigurjón Ól-
afsson og Árni Kristjánsson.
í varastjórn: Hannes M. Step-
liensen, Bergsteinn Guðjónsson og
Sigurður Ólafsson.
Endurskoðendur: Ilalldór Pét-
ursson og Ari Finnsson.
Með því að taka sæti í stjórn
Fulltrúaráðsins við annan mann,
ásarnt þrennur einingarmönnum,
hefur Sigurjón Ólafsson og sálu-
félagar hans ómerkt að öllu leyti
framkomu sína á síðasta Alþýðu-
sam'bandsþingi, og verður þetta
mál rakið nánar hér í blaðinu.
E.F. deltfl stflfnud
3
Bandantenn eru 6 km. frá Laroclte
Yfirherstjórn bandamanna hefur tilkynnt að Mont-
gomery marskálkur hafi verið skipaður yfirmaður
þeirra herja bandamanna á vesturvígstöðvunum sem
berjast fyrir norðan Ardennafleyginn þýzka.
í sókn sinni gegn norðvesturhlið fleygsins eru
bandamenn komnir framhjá borginni Marche og eru
um 6 km. frá Laroche við Ourtheána.
Þjóðverjar kafa enn unnið noklc-
uð á í gagnáhlawpum sínum á
syðri bukka Dónár, jyrir norðvest-
an Bádapest. — Er nú barizt í
um 50 lcm fjarlœgð frá borginni.
Þjóðverjar halda áfram að senda
skriðdreka á þennan vettvang og
beita fleiri flugvélum en þeir hafa
gert á austurvígstöðvunum lengi.
Rauði herinn hefur fært út kví-
arnar í Búdapest. — Nú er % af
Búda og Vh af Pest á valdi hans.
\
Montgomery marskálkur er
þá orðinn yfirforingi 2. brezka
hersins, 1. kanadiska hersins og
1. og 9. bandarísku herjanna.
Breyting þessi var gerð þann
17. desember með samþykki
allra aðila.
Bandamenn sækja fram á
norðvesturhlið þýzka fleygsins
á 40 km. langri víglínu.
Sókninni miðar vel áfram
víðast hvar-
Þjóðverjar gerðu afar mörg
gagnáhlaup í gær og var þeim
öllum hrundið við mikið tjón
í liði þeirra.
Þegar Þjóðverjar voru stöðv-
aðir á sínum tíma svo skammt
frá Meuse, að áin sást greini-
lega, voru eyðilagðir fyrir þeim
meir en 80 skriðdrekár.
ÞJÓÐVERJAlt STEFNA
TIL STRASBURG.
Það þykir nú sýnt, að Þjóðverj-
ar ætli sér að sækja fram til Stras-
burg. — Ennþá eiga þeir þó langa
leið ófarna þangað. — Saverne-
skarðið er á milli, og eru þeir sagð-
ir vera á leið þangað.
I gær sóttu Þjóðverjar frnm ,um I
3—4 km fvrir suðaustan Bitche. j
Á þessum vígstöðvum urðu þeir
fyrir stórkostlegu skriðdrekatjóni
í gær.
Flugveður var ágætt, og létu
flugvélar Bandamanna mikið að
sér kveða á öllum vigstöðvum og
á bak við víglínuna.
í -fyrradag var stofnuð Æsku-
lýðsjylkingardeild á Norðfirði. —
Stofnendur voru 20.
1 stjórn vqtu kosin: Valur Sig-
urðsson, formaður, Þórður M.
Þórðarson, ritari, Guðmundur H.
Sigurjónsson, gjaldkeri, Anna
Björgúlfsdóttir og Sigríður Vigfús-
dóttir meðstjórnendur.
Pólitískir fangar
frelsaðir í Danmörku
Þann 30. desember drýgðu
danskir föðurlandsvinir ein-
hverja djörfustu dáð sína með
því að frelsa 15 pólitíska fanga
úr ríkisfangelsinu í Horsens.
Síðari hluta dags, þá er fang
arnir voru á göngu í fangelsis-
garðinum, komu nokkrir leyni-
baráttumenn allt í einu í ljós á
múrunum í kring. — Þeir
héldu varðmönnunum í skefj-
um með skammbyssum sínum,
á meðan stigi var látinn síga
niður í garðinn. — Og áður en
Framhald á 5 síðu.
Höfuðbotg eyjarinnar Formósu, sem Bándaríkjamenn eru
farnir að gera loftárásir á.