Þjóðviljinn - 29.03.1945, Side 8
BANDARÍKJAHERMENN á Komodienstrasse i Köln, sem þeir tóku 6. marz s.l.
Stjðrnarskipti í stðdentarðði
Afturhaldið í Háskólanum skríður samao
aí ótta við nýjar stútentaráðskosningar
I»au tíðindi gerðust á stúdentaráðsfundi í Háskólanum s. 1.
þriðjudag, að Jón Emilsson bar fram vantraust á stjóm ráðsins,
og var það samþykkt með 5 atkv. gegn 3.
Vökumenn greiddu tillögunni atkvæði ásamt Jóni, en Fram-
sóknarmaðurinn Jóhannes Elíasson sat hjá við atkvæðagreiðsl-
una.
Vantraustinu fylgdi löng
greinargerð, þar sem Jón telur
það höfuðástæðuna fyrir fran -
komu vantraustsins, að forustu-
menn róttækra hefðu gert grín
að sér á almennum stúdenta-
fundi, sem haldinn va s. 1. laug
ardag.
Á þessum fundi, sem var
mjög fjölmennur, var Jón 1 al-
gerðum minnihluta, og var til •
laga frá honum þess efnis að
híta þá menn, er stóðu að
stofnun og starfrækslu skemmti
fél. ,.Árvaks“, kolfelld.
Vökumenn mótmæltu grein-
argerð Jóns fyrir vantrauststil-
lögunni, og lýstu því yfir, að
ástæðan fyrir því, að þeir sam-
þykktu yantraustið. væri það
eina, að þeir væru á móti
„kommúnistum“.
Ekki var Framsóknarmannin-
uim Jóhannesi Elíassyni skota-
skuld úr því að mynda stjórn
með íhaldinu, jafnskjótt og
hann var búinn að svíkja sam-
vinnu þá við Fél. róttækr?
sem hann undirritaði á síðast-
liðnu hausti, og var hann annar
maður á lista þeim sem fulltrú-
ar „Vöku“ báru fram til stjóm
arkosninga í ráðinu.
Jafnvel íhaldið vildi. ekki
nýta Jón Emilsson. Hann er bví
algerlega utanveltu í stúdenta-
ráði, og er svo komið, að eng-
inn stúdent vill láta bendla siCT
við þann mann, svo mjög er
hann fyrirlitinn í Háskólanum,
vegna níðgreina þeirra. sem
hann birti í Alþýðublaðinu um
skólafélaga sína.
Fulltrúar fél. róttækra stud
enta báru á fundinum fram til ■
lögu um að láta fara fram ný-
ar stúdentaráðskosningar, en
fulltrúum hinna félaganna þótti
vænlegra .að fara ekki út í kosn
ingar af ótta við fylgishrun og
var tillagan felld með 5 atkv.
gegn 3.
Eftir þessa síðustu atburði er
þau augljóst, að afturhaldið '
Háskólanum er komjð í eina
flatsæng, en róttækir munu
beita sér af alefli fyrir því, < ð
ráða niðurlögum þess, og verð-
ur þeirri baráttu ekk: lokið,
fyrr en þeir hafa unnið þar
fullnaðarsigur.
Samúðarkveðjur
vegna „Dettifoss64-
slyssins
Auk þeirra samúðarkveðja, sem
áður hafa borizt vegna „Dettifoss“-
slyssins, hafa eftirtaldir menn og
stiofnanir sent Eimskipafélaginu og
framkvæmdastjóra þess, samúðar-
kveðjur í bréfi eða símskeyti:
R. Cairns & Co., Leith, Halldór
Kjartansson stórkaupm., Hannes
Kjartansson stórkaupm., Garðar
Gíslason stórkaupm., Óttarr Möll-
er, allir staddir í New York.
Stjórn Ekknasjóðs Reykjavíkur,
Félag íslenzkra botnvörpuskipa-
eigenda, Erlendur Pétursson f. h.
Sameinaða gufuskipafélagsins, Eld-
ing Trading Company, Landssam-
band íslenzkra útvegsmanna, Sig-
urður Ólafsson rákarameistari,
Hvannbergsbræður, Sláturfélag
Suðurlands, Slysavarnafélag ís-
lands, Viðskiptaráð, Kristján
Bergsson framkvæmdastj., Hrím-
faxi h.f., Sviði h.f., Commander A.
W. Watchlin og Commander W.
C. Dolmage, sem báðir störfuðu
Minningarathöfn
í New York
Minningarathöfn vegna „Detti“
foss“-slyssins var haldin á vegum
Eimskipafélagsins í Lúthersku
kirkju Heilagrar þrenningar í
New York, föstudaginn 23. þ. m.
kl. 6 e. h. Pétur; Sigurgeirsson cand.
theol. flutti aðalræðuna í kirkj-
unni, en auk þess töluðu þeir Thor
Thors sendiherra og Jón Guð-
brandsson fulltrúi Eimskipafélags-
ins. Steingrímur Arason flutti
minningarljóð er hann hafði ort af
þessu tilefni. Frú JMaría Markan
Östlund og Gunnar Pálssón sungu
einsöng. Að öðru leyti annaðist
sönginn 15 manna íslenzkur kór.
Viðstaddir voru því nær allir Is-
lendingar í New York og nágrenni,
alls um 300 manns.
Aðalfundur F. í. L.
Félag íslenzkra leikara hélt að-
alfund sinn s.l. laugardag. Stjórn
félagsins var öll endurkosin, en
liana skipa: Þorsteinn Ö. Stephen-
sen formaður, Arndís Björnsdóttir
gjaldkeri og Jón Aðils ritari. A-
samt stjórninni voru þeir Lárus
Pálsson og Valur Gíslason kjörnir
fulltrúar á þing Bandalags ís-
lenzkra listamanna.
Á þessum fundi var gengið frá
skipulagsskrá fyrir utanfararsjóð
leikara, en hann var stofnaður ár-
ið 1942 með fé því, sem félaginu
var úthlutað á fjárlögum það ár.
Sjóður þessi er ætlaður til að
styrkja leikara, sem fara utan til
leiknáms. Dóra Haraldsdóttir gaf
sjóðnum fé það, er henni var út-
hlutað á þessu ári.
Austurvígstöðvarnar
Framhald af 1. síðu.
Austurríkis. Sarvar er 50 km sunn
ar.
Samtals tók rauði herinn um 150
bæi og þorp í Ungverjalandi.
190 skriðdrekar voru eyðilagðir
fyrir Þjóðverjum á austurvíg-
stöðvunum.
hér áður, en eru nú staddir á Ítalíu,
Ölgerðin Egill Skallagrímsson,
Skipstjórafélag tslands, Ólafur
Gíslason & Co. h.f., Sænsk-íslenzka
frystihúsið li.f.
Ijll „rltiðlDoðatélao" slolaað
Þjóðviljanum barst seint í gær skýrsla um stofnun nýt rit
liöfundafélags, sem nefnist „Félags íslenzkra rithöfunda“. Stofn-
endur félagsins eru þeir rithöfundar sem sögðu sig úr .Rithöfunda-
félagi fslands á aðalfundi þess nú fyrir skömmu, ásamt nokkrum
öðrum. Fer skýrslan hér á eftir:
„Hinn 22. marz 1945 var til fulls í
gengið frá stofnun Félags íslenzkra
rithöfunda, og voru stofnendur 18.
Samiþykkt voru á fundinum lög
félagsins og kosin stjórn þess og
endurskoðendur reikninga. Stjórn-
ina skipa: Formaður Guðmundur
Gíslason Ilagalín, ritari Sigurður
Helgason, gjaldkeri Jakob Thorar-
ensen og meðstjórnendur Krist-
mann Guðmundsson og Gunnar
M. Magnúss. Endurskoðendur eru
Elinborg Lárusdóttir og Kjartan
Gíslason.
Samþykkt var að birta eftirfar-
andi tilkynningu í blöðum, sem út
eru gefin í Reykjavík, á Akureyri
og ísafirði:
Þeir stofnendur Félags íslenzki-a
rithöfunda, sem sögðu sig úr Rit-
höfundafélagi íslands á aðalfundi
þess hinn 18. marz s.l., vilja láta
þess getið, sem hér greinir:
Undanfarið hafa risið allmiklar
deilur í Rithöfundafélagi íslands.
Deilt hefur verið um starfshætti,
afstöðu einstakra manna og út-
hlutun rithöfundastyrkja, — rétt
og sjónarmið.
í deilum þessum hefur gengið á
ýmsu og margt verið með þeirn
hætti, að það hefur ekki aðeins
verið okkur pgeðfellt, heldur einn-
ig svo mengað einsýni og hlut-
drægni, að við höfum talið okkur
skylt að rísa til andstöðu, þar eð
vjð teljum ekki íslenzkum rithöf-
undum annað sæma í félagsmálum
sínum en óhlutdræga og frjálslega
starfsemi, án tillits til stjórnmála-
afstöðu eða stefnu í bókmenntum.
Fyrir síðasta aðalfund Rithöf-
undafélags íslands bárust því all-
margar (11) umsóknir um félags-
réttindi. • Flestar þessar umsóknir
voru frá mönnum, sem hafa mjög
vafasaman rétt til að gerast félagar
og leggja alls ekki stund á þau
ritstörf, sem ætlast er til að laun-
uð séu af frjárveitingu Alþingis til
skálda og rithöfunda. Hins vegar
mundu þessir nýliðar hafa hlotið
úrslitávald um val á mönnum í
útlhlutunarnefnd félagsins, en með-
an það hefur veg og vanda af lit-
hlutun rithöfundastyrkja, er eðli-
legast, að þeir menn, sem styrk-
hæfir gætu talizt, ráði sem mestu
um val nefndarinnar.
Þá var það augljóst mál, að
flestum þeirra, sem báðust félags-
réttinda, mundi vera ætlað að
tryggja sigur þeiiTar stefnu í starfs-
háttum félagsins, sem við teljum
lítt samboðna íslenzkum rithöf-
undum.
Smölun nýliðanna og einhliða
kosning í félagsstjórn, sýndi það
glögglega, að þcir, sem höfðu vald-
ið mestum erfiðleikum á starfsemi
félagsins, héldu enn uppteknum
hætti, og töldurn við nú með öllu
vonlaust, að stefna og starfshættir
rnættu breytast þannig, að við gæt-
um við unað.
Okkur virtist því, að sá einn
kostur væri fyrir hendi að stofna
nýtt félag, þar sem við gætum ó-
háðir unnið að nauðsynjamálum
íslenzkra rithöfunda á þann hátt,
sem okkur þykir sæmandi þeim
mönnum, sem eiga aðstöðu sína til
starfa og árangurs fyrst og fremst
undir því, að fullt frelsi sé ríkjandi
um starfsað.ferðir, viðhorf og við-
fangsefni.
Stjórn F. 1. R.“.
Er blaðið átti tal við formann
Rithöfundafélags íslands, Halldór
Stefánsson, í gærkvöld, varðandi
greinargerð þessa, sagði hann að
vænta mætti svars frá Rithöíunda-
félaginu þegar við fyrsta tækifæri,
og væri ekki annað um þetta að
segja að sinni.
En þar sem blöð koma ekki lit
fyrr en eftir páská þvkir Þjóðvilj-
anunji rétt að víkja nokkrum orð-
um að þessari greinargerð.
í raun og veru má segja, að
ekkert það komi fram í þessari
greinargerð, sem réttlæti úrsögn
hinna 12 rithöfunda úr Rithöf-
undafélaginu.
Meginástæðan, sem fram er færð,
er sú, að 11 umsóknir um félags-
réttindi hafi borizt félaginu fyrir
síðasta aðalfund og mikil hætta
hafi verið á því, að þeir 11 menn,
sem sóttu um inntöku í félagið,
fengju „úrslitavald“ í úthlutun á
rithöfundastyrk. En frá því er ekki
skýrt, að umsóknum allra þessara
manna var vísað frá í einu hljóði;
né hinu, að þeim 12 mönnum, sem
sögðu sig úr félaginu, var innan
handar að koma í veg fyrir sam-
þykkt umsóknanna jafnvel þó
aðrir fundarmenn hefðu verið
því fylgjandi, þar eð % atkvæða
þurfti til samþykktarinnar. En
samt sögðu þeir sig úr félaginu,
eftir að þessum umsóknum, sem
þeri voru á móti og töldu hættu-
legar, hafði verið vísað frá í einu
hljóði!
Blaðið sér ekki ástæðu til að
ræða þessa „greinargerð“ frekar,
þar eð mótsagnir liennar ættu að
vera hverjum manni augljósar.
Aðalfundur F. í. T.
S.l. sunnudag hélt Félag ís-
lenzkra tónlistarmanna aðalfund
sinn. Stjórn félagsins var endur-
kosin, en hana skipa: Árni Kristj-
ánsson formaður, Hallgrimur
Ilelgason ritari og Björn Ólafsson
gjaldkeri. Ásamt stjórninni voru
þeir Páll ísólfsson og Guðmundur
Matthíasson kosnir á þing Banda-
lags íslenzkra listamanna. I rit-
nefnd að blaði félagsins „Tónlist-
inni“ voru kosnir: Hallgrímur
Helgason, sem er ritstjóri blaðsins,
Páll ísólfsson, Guðmundur Matt-
híasson og Árni Kristjánsson.
Á fundinum gaf Páll ísólfsson
félaginu styrk þann er honum var
úthlutað af úthlutunarnefnd fé-
lagsins, en stýrkurinn nam 1800 kr.