Þjóðviljinn - 15.05.1945, Page 1
VILJINN
10. árgangur.
Þriðjudagur 15. maí 1945.
106. tölublað.
STÖÐUGT berast nýjar sögur um hryðjuver^, nazista. Okk-
ur íslendingum finnst e. t. v. erfitt að trúa þeim, en fólkið
í Evrópu þekkir stríðsglæpamennina af eigin raun. Myndin
sýnir lík nauðungarvinnumanna í Nordhausen-fangabúðunum.
Strflsilæiuuii Mw ekki urlfl oM
Efsenhowcr: Hafíd chhi vinsamlegf
samncyfí vlö na^isfana
í tilkynningn, sem gefin var út í aðalbækistöðvum
Eisenhowers í gær segir, að róttækar ráðstafanir hafi
verið gerðar til að komið verði í veg fyrir það, að farið
verði með þýzka hershöfðingja og nazista sem svokall-
aða „vinsamlega óvini^.
500 rísaflagvírkí tóku þátf
í árásínní
500 bandarísk risaflugvirki, sem hafa bæki-
stöðvar á Marianaseyjum, gerðu í gær mestu loft-
árás á Japan sem enn hefur verið gerð. Loftárás-
inni er líkt við hörðustu loftárásirnar á Þýzkaland.
Flugvirkin vörpuð 3500 smálestum af íkveikju-
sprengjum á Nagoja, þriðju stærstu borg Japans,
þar sem stærstu flugvélaverksmiðjur Japana eru.
Gnnþá óeirðir í
Tékkóslóvakíu
Brezki lítvarpsjréttaritarirm,
Franlc Gillard, segir að Þjóð-
verjar í Tékkoslovakíu haldi á-
frarn að valda Bandamönnum
óþœgindum.
Þeir reyna að komast mulan
ihersveitum rauða hersins og gef-
ast upp fyrir Bandaríkjamönnum,
en þeir hafa komið upp þrefaldri
varnarlínu, sem enginn Þjóðverji
kemst í gegnum og eru þeir jafn-
harðan reknir til baka á vígsvæði
rauða hersins.
Nokkur skemmdarverk halda
áfram í Tékkoslovakíu bak við
víglínu Bandamanna: Símalínur
eru klipptar í sundur, sykur sett-
ur í benzíntanka, og jarðsprengj
U'm er komið fyrir, en þetta eru
aðeins fá tilfelli og engin skipu-
lögð hreyfmg stendur að þeim.
Nýjar fangabúðir
finnast
Stöðugt halda áfram að berast
fréttir um nýfundnar fangabúðir
og pislarstöðvar nazista.
Síðustu fangabúðirnar, serii
sagt er frá eru í þorpi einu skammt
frá Linz í Austurríki. Álitið er
að um 500 þús. manns hafi verið
drepin í þessum fangabúðum. Fólk
ið var myrt á 6 vegu. í fyrsta
lagi var það drepið úr hungri.
Það var lokað inni án matar og
drykkjar, þangað til það dó. í
öðru iagi var það drepið með
gaseitrun. Það var lokað inn í
loftþéttum herbergjum og gasi
síðan hleypt inn í þau. 1 þriðja
lagi var það skotið. Fangarnir
voru látnir stilla sig upp við svo
kallaðan „blóðvegg” og skotnir í
bakið. í fjórða lagi var það látið
frjósa í hel. Fangarnir voru lagð-
ir á steingólf um hávetur og
látnir frjósa í hel. í fimmta lagi
var það drepið með því að spraut
að var inn í það steinolíú. Það var
einnig gert til þess að líkin brynnu
því betur og í síðasta lagi var það
rekið fyrir hunda, sem höfðu ver
ið sveltir og þeir látnir rífa það
á hol lifandi.
Hacha og Guderian
handteknir
Dr. ITacha, erkikvislingurinn
tékkneski liefur verið handtekinn.
Hann var forseti Tékkoslöva-
kíu eftir Múncíhen 1938 og fór þá
skömimu síðair til Iíitlers eftir
’boði frá honum og samþvkkti þá
að Tékkoslovakía skyldi verða
þýzkt varnarsvæði.
Heinz Guderian, fyrrv. yfirmað
ur þýzka herforingjaráðsins. og
síðasti yfirmaður herjanna í
Austurvígstöðvunum var tekin
höndum í Austurríki í gœr.
Enn er ek'ki vitað um, hvar
Himmler heldur sig, en talið er lík
legt, að hann muni vera einhvers
staðar í nánd við Flensborg.
Montgomery í
London
Montgomery marskálkur kom
til Londonar í gœr.
Mun hann ha/fa viðræður við
embættismenn brezka hernaðar-
ráðuneytisins.
í tilkynningunni segir ’enn-
fremur að því miður hafi nokk-
uð borið á því að háttsettir
bandarískir liðsforingjar hafi
komið vinsamlega fram gagn-
vart handteknum þýzkum liðs-
foringjum og nazistum. Segir
Eisenhower, að þetta hafi ver-
ið algerlega móti fyrirskipun-
um sínum og að þeir liðsfor-
ingjar, sem sekir væru um
þetta, mundu verða látnir sæta
ábyrgð. í tilkynningunni segir
ennfremur, að þessi einstöku
tilfelli séu engan veginn táka-
ræn fyrir her Bandamanna, er
fengið hafi strangar fyrirskip-
anir um að hafa ekki vinsam-
lega samvinnu við Þjóðverja.
SAMl HROKINN
Það er enn sami hrokinn í
þýzku júnkurunum, þótt her
þeirra hafi beðið meiri ósigur
en nokkur annar her í mann-
kynssögunni. Von ■ ^chwerin
Krosigk, sem Dönitz skipaði
forsætis,- utanríkis- og fjár-
málaráðherra á síðustu stundu
þriðja ríkisins, átti í gær við-
tal við fréttaritara brezka út-
varpsins í Þýzkalandi. Hann
sagði við fréttaritarann, að
Bandamönnum myndi reynast
ógerlegt að stjórna Þýzkalandi
nema þeir nytu stuðnings síns
og félaga sinna. Eina ástæðan
fyrir því, að þeir létu ekki af
embættum sínum væri sú, að
þeir vildu reyna að hjálpa
þýzku þjóðinni á þessum erfið-
ustu tímum í sögu hennar, og-
ef Bandamenn ekki styddu sig
og félaga sína mundi það þýða
ógurlegan glundroða í Þýzka-
landi.
„VIÐ VERÐUM AÐ HAFA
VAKANDI GÆTUR Á
Á ÞÝZKALANDI“
Rússneskur útvarpsfyrirles-
ari sagði í útvarpið í gær, að
Bandamenn yrðu að hafa vak-
andi gætur á Þýzkalandi. Hann
sagði, að þegar hefði komið í
ljós að þýzku júnkararnir væru
að reyna að koma sér undan
ábyrgð og skella allri skuldinni
á hina dauðu leiðtoga sína,
Hitler og aðra. Þeir vissu, að
aðeins fullkomin eining og sam
starf meðal Bandamanna gæti
tryggt heiminum varanl. frið
og reyndu þess vegna að spilla
samvinnu þeirra. Þeir segðu, að
þeir ættu enga sök á styrjöld-
inni og ógnum hennar, þeir
hefðu aðeins verið að verjast
„bolsévikahættunni“. En, lauk
útvarpsfyrirlesarinn máli sínu,
með fullkomnu samstarfi Banda
manna munu allar tilraunir
þeirra til að skapa glundroða
og búa þannig í haginn fvrir
nýtt árásarstríð af hendi Þýzka
lands, reynast árangurslausar
Árásin stóð yfir í nítján mínút-
ur, og á þeim tíma vörpuðu flug-
vélarnar rúmlega hálfri milljón
íkveikjuspren'gna á 20 fer km.
svæði í borginni. Aðeins um mán-
uður er liðinn síðan risaflugvirki
gerðu stórárás á Nagoja enda
þótt hún væri ekki í líkingu við
árásina í gær.
MEIRI LOFTÁRÁSIR
Tokroútvairpið skýrði í gær frá
fleiri loftárásuim sem gerðar voru
á Japan í gær. Þessar loftárásir
voru gerðar af flugvélum, sem
'háfa bækistöðvar sínar á flug-
vélaskipum nálægt Japan, en tvær
Frakkar vilja
ítölsk héruð
Npkkra athygli hefur vakið sú
frétt, sem komin er frá frétta-
riturum i Róm, að franskir
hermenn, sem eru í landamæra-
héVuðum íta'Hu áð vestan, hafi
ihvatt íbúanna til að greiða at-
kvæði með innlimun hérað-
I anna í Frakklandi
Engar opinberar yfirlýsingar
hafa verið géfnar um þetta mál.
Morrison á
Ermarsundseyjum
Morrison, innanríkisnáðherra
Bretlands, fór í kynnisíför til
Ermarsundseyja i gær til að at-
huga á hvern hátt bezt væri hægt
p.ð lcoma lífi íbúanna þar í venju--
legt horf.
Var hann vongóður um að það
mundi takast bráðlega.
Belsenfangabúðirnar
brenndar
Fangabúðirnlar i Belsen voru
brenndar til kaldra kola í gœr.
Ástæðan fyrir því, að fangabúð
irnar voru brenndar en ekki eyði-
lagðar á ánnan hátt, er fyrst og
fremst sú, að með því móti var
bezt komið í veg fyrir smithættu
frá þeim, en hún hafði verið mjög
mikil.
öflugar flotadeildir Bandamanna
eru í nánd við Japan. Það voru
80 flugvélar sem gerðu þessar loft
áhásir, sem aðallega var beint
gegn flugvöllum á Kjúsjú, en á
þá eyju hafa verið gerðar loftár-
ásir svo að segja daglega í 3 vik-
ur.
FRAMSÓKN Á OKINAVA
Á Okinava sóttu Bandaríkja-
menn nokkuð á í gær, enda þótt
Japanir veittu harða mótspyrnu.
Tilraunir Japana til að koma
liði á land bak við víglínu Banda
ríkjamanna mistókust.
Í BURMA
í Burma sóttu Bretar niður
Irawadidalinn og eru nú þar um
30 km. fyrir norðan Rangoon.
Mótspyrna Japana í Burma fer
óðum minnkandi.
Lykillinn að hernaðargæfu
Bandamanna í Burma er fyrst og
fremst yfiáburðir þeirra í lofti, því
nær allir flutningar til ‘hersins í
Bunna fara fram í lofti. í s.I.
mánuði voru flutninga’flugvélar
Bandamanna í Burma þannig
8400 klst. á lofti.
FLUTNINGARNIR TIL .
K YRRAH AFSIN S
Plutningar hermanna, hergagna
og birgða til Kyrrahafsvígstöðv-
anna eru þegar 'hafnir í stórum
stií). Stór brezk flotadeild úr At-
lantsháfi er nú á leið þangað.
r--------------------------->
Glæsilegur sigur
vinstri aflanna í
Frakklandi
Fullnaðarúrslit í sveitar-
stjórnarkosn. í Frakklandi
eru enn ekki komin, en
þær tölur, sem komnar eru
staðfesta greinilega, sem
sást af fyrstu tölunum, sem
bárust, að vinstri flokkam-
ir hafa unnið geysimikið á.
Kommúnistar og sósíalist-
ar eru langstærstu Hokk-
amir og auk þess teljast
flestir fulltrúar mótspymu-
hreyfingarinnar til þeirra.
-___________________________t