Þjóðviljinn - 15.05.1945, Síða 1

Þjóðviljinn - 15.05.1945, Síða 1
VILJINN 10. árgangur. Þriðjudagur 15. maí 1945. 106. tölublað. STÖÐUGT berast nýjar sögur um hryðjuver^, nazista. Okk- ur íslendingum finnst e. t. v. erfitt að trúa þeim, en fólkið í Evrópu þekkir stríðsglæpamennina af eigin raun. Myndin sýnir lík nauðungarvinnumanna í Nordhausen-fangabúðunum. Strflsilæiuuii Mw ekki urlfl oM Efsenhowcr: Hafíd chhi vinsamlegf samncyfí vlö na^isfana í tilkynningn, sem gefin var út í aðalbækistöðvum Eisenhowers í gær segir, að róttækar ráðstafanir hafi verið gerðar til að komið verði í veg fyrir það, að farið verði með þýzka hershöfðingja og nazista sem svokall- aða „vinsamlega óvini^. 500 rísaflagvírkí tóku þátf í árásínní 500 bandarísk risaflugvirki, sem hafa bæki- stöðvar á Marianaseyjum, gerðu í gær mestu loft- árás á Japan sem enn hefur verið gerð. Loftárás- inni er líkt við hörðustu loftárásirnar á Þýzkaland. Flugvirkin vörpuð 3500 smálestum af íkveikju- sprengjum á Nagoja, þriðju stærstu borg Japans, þar sem stærstu flugvélaverksmiðjur Japana eru. Gnnþá óeirðir í Tékkóslóvakíu Brezki lítvarpsjréttaritarirm, Franlc Gillard, segir að Þjóð- verjar í Tékkoslovakíu haldi á- frarn að valda Bandamönnum óþœgindum. Þeir reyna að komast mulan ihersveitum rauða hersins og gef- ast upp fyrir Bandaríkjamönnum, en þeir hafa komið upp þrefaldri varnarlínu, sem enginn Þjóðverji kemst í gegnum og eru þeir jafn- harðan reknir til baka á vígsvæði rauða hersins. Nokkur skemmdarverk halda áfram í Tékkoslovakíu bak við víglínu Bandamanna: Símalínur eru klipptar í sundur, sykur sett- ur í benzíntanka, og jarðsprengj U'm er komið fyrir, en þetta eru aðeins fá tilfelli og engin skipu- lögð hreyfmg stendur að þeim. Nýjar fangabúðir finnast Stöðugt halda áfram að berast fréttir um nýfundnar fangabúðir og pislarstöðvar nazista. Síðustu fangabúðirnar, serii sagt er frá eru í þorpi einu skammt frá Linz í Austurríki. Álitið er að um 500 þús. manns hafi verið drepin í þessum fangabúðum. Fólk ið var myrt á 6 vegu. í fyrsta lagi var það drepið úr hungri. Það var lokað inni án matar og drykkjar, þangað til það dó. í öðru iagi var það drepið með gaseitrun. Það var lokað inn í loftþéttum herbergjum og gasi síðan hleypt inn í þau. 1 þriðja lagi var það skotið. Fangarnir voru látnir stilla sig upp við svo kallaðan „blóðvegg” og skotnir í bakið. í fjórða lagi var það látið frjósa í hel. Fangarnir voru lagð- ir á steingólf um hávetur og látnir frjósa í hel. í fimmta lagi var það drepið með því að spraut að var inn í það steinolíú. Það var einnig gert til þess að líkin brynnu því betur og í síðasta lagi var það rekið fyrir hunda, sem höfðu ver ið sveltir og þeir látnir rífa það á hol lifandi. Hacha og Guderian handteknir Dr. ITacha, erkikvislingurinn tékkneski liefur verið handtekinn. Hann var forseti Tékkoslöva- kíu eftir Múncíhen 1938 og fór þá skömimu síðair til Iíitlers eftir ’boði frá honum og samþvkkti þá að Tékkoslovakía skyldi verða þýzkt varnarsvæði. Heinz Guderian, fyrrv. yfirmað ur þýzka herforingjaráðsins. og síðasti yfirmaður herjanna í Austurvígstöðvunum var tekin höndum í Austurríki í gœr. Enn er ek'ki vitað um, hvar Himmler heldur sig, en talið er lík legt, að hann muni vera einhvers staðar í nánd við Flensborg. Montgomery í London Montgomery marskálkur kom til Londonar í gœr. Mun hann ha/fa viðræður við embættismenn brezka hernaðar- ráðuneytisins. í tilkynningunni segir ’enn- fremur að því miður hafi nokk- uð borið á því að háttsettir bandarískir liðsforingjar hafi komið vinsamlega fram gagn- vart handteknum þýzkum liðs- foringjum og nazistum. Segir Eisenhower, að þetta hafi ver- ið algerlega móti fyrirskipun- um sínum og að þeir liðsfor- ingjar, sem sekir væru um þetta, mundu verða látnir sæta ábyrgð. í tilkynningunni segir ennfremur, að þessi einstöku tilfelli séu engan veginn táka- ræn fyrir her Bandamanna, er fengið hafi strangar fyrirskip- anir um að hafa ekki vinsam- lega samvinnu við Þjóðverja. SAMl HROKINN Það er enn sami hrokinn í þýzku júnkurunum, þótt her þeirra hafi beðið meiri ósigur en nokkur annar her í mann- kynssögunni. Von ■ ^chwerin Krosigk, sem Dönitz skipaði forsætis,- utanríkis- og fjár- málaráðherra á síðustu stundu þriðja ríkisins, átti í gær við- tal við fréttaritara brezka út- varpsins í Þýzkalandi. Hann sagði við fréttaritarann, að Bandamönnum myndi reynast ógerlegt að stjórna Þýzkalandi nema þeir nytu stuðnings síns og félaga sinna. Eina ástæðan fyrir því, að þeir létu ekki af embættum sínum væri sú, að þeir vildu reyna að hjálpa þýzku þjóðinni á þessum erfið- ustu tímum í sögu hennar, og- ef Bandamenn ekki styddu sig og félaga sína mundi það þýða ógurlegan glundroða í Þýzka- landi. „VIÐ VERÐUM AÐ HAFA VAKANDI GÆTUR Á Á ÞÝZKALANDI“ Rússneskur útvarpsfyrirles- ari sagði í útvarpið í gær, að Bandamenn yrðu að hafa vak- andi gætur á Þýzkalandi. Hann sagði, að þegar hefði komið í ljós að þýzku júnkararnir væru að reyna að koma sér undan ábyrgð og skella allri skuldinni á hina dauðu leiðtoga sína, Hitler og aðra. Þeir vissu, að aðeins fullkomin eining og sam starf meðal Bandamanna gæti tryggt heiminum varanl. frið og reyndu þess vegna að spilla samvinnu þeirra. Þeir segðu, að þeir ættu enga sök á styrjöld- inni og ógnum hennar, þeir hefðu aðeins verið að verjast „bolsévikahættunni“. En, lauk útvarpsfyrirlesarinn máli sínu, með fullkomnu samstarfi Banda manna munu allar tilraunir þeirra til að skapa glundroða og búa þannig í haginn fvrir nýtt árásarstríð af hendi Þýzka lands, reynast árangurslausar Árásin stóð yfir í nítján mínút- ur, og á þeim tíma vörpuðu flug- vélarnar rúmlega hálfri milljón íkveikjuspren'gna á 20 fer km. svæði í borginni. Aðeins um mán- uður er liðinn síðan risaflugvirki gerðu stórárás á Nagoja enda þótt hún væri ekki í líkingu við árásina í gær. MEIRI LOFTÁRÁSIR Tokroútvairpið skýrði í gær frá fleiri loftárásuim sem gerðar voru á Japan í gær. Þessar loftárásir voru gerðar af flugvélum, sem 'háfa bækistöðvar sínar á flug- vélaskipum nálægt Japan, en tvær Frakkar vilja ítölsk héruð Npkkra athygli hefur vakið sú frétt, sem komin er frá frétta- riturum i Róm, að franskir hermenn, sem eru í landamæra- héVuðum íta'Hu áð vestan, hafi ihvatt íbúanna til að greiða at- kvæði með innlimun hérað- I anna í Frakklandi Engar opinberar yfirlýsingar hafa verið géfnar um þetta mál. Morrison á Ermarsundseyjum Morrison, innanríkisnáðherra Bretlands, fór í kynnisíför til Ermarsundseyja i gær til að at- huga á hvern hátt bezt væri hægt p.ð lcoma lífi íbúanna þar í venju-- legt horf. Var hann vongóður um að það mundi takast bráðlega. Belsenfangabúðirnar brenndar Fangabúðirnlar i Belsen voru brenndar til kaldra kola í gœr. Ástæðan fyrir því, að fangabúð irnar voru brenndar en ekki eyði- lagðar á ánnan hátt, er fyrst og fremst sú, að með því móti var bezt komið í veg fyrir smithættu frá þeim, en hún hafði verið mjög mikil. öflugar flotadeildir Bandamanna eru í nánd við Japan. Það voru 80 flugvélar sem gerðu þessar loft áhásir, sem aðallega var beint gegn flugvöllum á Kjúsjú, en á þá eyju hafa verið gerðar loftár- ásir svo að segja daglega í 3 vik- ur. FRAMSÓKN Á OKINAVA Á Okinava sóttu Bandaríkja- menn nokkuð á í gær, enda þótt Japanir veittu harða mótspyrnu. Tilraunir Japana til að koma liði á land bak við víglínu Banda ríkjamanna mistókust. Í BURMA í Burma sóttu Bretar niður Irawadidalinn og eru nú þar um 30 km. fyrir norðan Rangoon. Mótspyrna Japana í Burma fer óðum minnkandi. Lykillinn að hernaðargæfu Bandamanna í Burma er fyrst og fremst yfiáburðir þeirra í lofti, því nær allir flutningar til ‘hersins í Bunna fara fram í lofti. í s.I. mánuði voru flutninga’flugvélar Bandamanna í Burma þannig 8400 klst. á lofti. FLUTNINGARNIR TIL . K YRRAH AFSIN S Plutningar hermanna, hergagna og birgða til Kyrrahafsvígstöðv- anna eru þegar 'hafnir í stórum stií). Stór brezk flotadeild úr At- lantsháfi er nú á leið þangað. r---------------------------> Glæsilegur sigur vinstri aflanna í Frakklandi Fullnaðarúrslit í sveitar- stjórnarkosn. í Frakklandi eru enn ekki komin, en þær tölur, sem komnar eru staðfesta greinilega, sem sást af fyrstu tölunum, sem bárust, að vinstri flokkam- ir hafa unnið geysimikið á. Kommúnistar og sósíalist- ar eru langstærstu Hokk- amir og auk þess teljast flestir fulltrúar mótspymu- hreyfingarinnar til þeirra. -___________________________t

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.