Þjóðviljinn - 12.12.1945, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 12.12.1945, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 12. des. 1945. ÞJOÐVILJINN Ut eru komnar frá ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJU eftirtaldar nýjar bækur: Biblían í myndum Þetta eru hinar frægu b'blíumyndir eftir franska listamanninn Gustave Doré^ en Bjarni Jónsson vígslubiskup hefur séð um útgáfuna og valið texta með myndunum. í formálanum segir Bjarni Jónsson meðal annars: ..Það er alkunnugt, að margir hinir frægustu listamenn hafa verið nákunnugir heilagr; ritn- ingu. Við lestur hennar vaknaði hjá þeim sú þrá. að þeir í heimi listar- innar gætu náð að lýsa því, er snortlð hafði hug þeirra. Þannig eru mörg heimsfræg listaverk til órðin. Frásögurnar kölluðu á listina, og myndirn- ar hafa vakið aðdáun og gleði margra manna um aldaraðir“. Bókaverzlun eftir Helgu Sigurðardóttúl', forstöðukonu Húsmæðrakennaraskóla ís- lands. — Mati’eiðslubækur Helgu Sigurðardóttur erú nú órðnar ' A’iður- kenndar um allt land og aukast vinsæld'r þeirra með hverri nvrri bÓK. Bökun í heimahúsum er nú endurbætt að mjög miklu leýti, én aúk þess er lögð inn í bókina laus örk með nýjustu nýjungum, svo að jólabakst- urinn geti fullnægt fyllstu 'kröfum. Notið því bókina við jólabaksturinn. ljóðasafn Jóns Magnússonar, í 4 bindum. Jón er svo kunnur íslenzku þjóðinni, að ekki þarf að kynna hann nú. Hann er eitt af beztu skáldum okkar, og óx með hverju nýju verki, sem frá honum kom. Hann var spakur að viti og óvenjulegur mannkostamaður, og bera ljóð hans hvoru tveggja vitni. Nú gefst islenzku þjóðinni kostur á að eignast ljóð hans öll í veglegri og smékklegri útgáfu, og er varla kostur á fégurri jólagjöf. Raöla ég við rokkinn minn Hin sérstæða og fagra bók Ófeigs J. Ófeigssonar læknis, ,.Raula ég við rokkinn minn“, er nú að koma í bókaverzlanir. Ófeigur hefur skráð þulur og þjóðkvæði og skreytt útgáfuna með myndum og teikningum. Bókin er öll prentuð með tveltnur litum: rauður fammi um hverja síðu og letrið, sem er stórt skrifletur, sem aldrei fyrri hefur sézt á bók hér á landi, er préntáð með brúnum lit. Framan við bókina er prentuð fjórlit mynd og önnur aftar 1 bókinni. Upplag bókarinnar er lítið, svo að búast má við því að færri fái hana en vilja. Læknir kvennahælisins eftir Charlotte Stefansson. Helgi Valtýsson þýddi. Hinn sænski kvennalæknir dr. med. Em.'l Bovin, prófessór í fæðingarhjálp og kvennasjúkdómum í Stokkhólrr.i, skrifaði um bókina í sænsk blöð. og sagði meðal annars: Undir dulneínmu Charlotte Stefansson hefur hjartagóð kona, með sterkari áhuga fyrir þjóðfélagsmálum, skrifað ágæta bók, ..Gula ki'niken“. Þar tekur hún fyrir og rökræðir hirin háskalega þjóðfelágss'júkdóm, fóstureyðingarnar, sem nú um hríð hefur verið mjög umdeilt málefni með þjóð vorri. Höfundurinn hefur auðsjáanlega riíað bók sína, eftir að hafa kynnt .sér mál'ð rábkiíégá frá .r.:..:núð- , legu, þjóðfélagslegu og heilbrigðislegu sjónarfriiði. fyr:t qg fremst í þeim tilgangi að vekja kynsystur sinar, svo að þær átti sig og geri sér Ijósar hættur fóstureyðinganna, bæði fyrir konurnar sjálfar og fyrir k\mslóðina. hvort sem þær oru framd- ar áf læknum eða skottulaékrium". Þessá bók þarf hver hugsandi kona áð iesa.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.