Þjóðviljinn - 22.12.1945, Blaðsíða 8
„ínnrætið óbreytt allt fram í andlátið '
íhaldið vill ekki lækka byggingarkostnaðinn
því þá myndu milliliðirnir tapa — ekki rann-
sóknir á óhæfum íbúðum, þá kæmi óþægi-
legur sannleiki í ljós — ekki tryggja vinnuafl
með samningum þá væri e. t. v. ekki hægt
að afsaka sig með skorti á vinnuafli.
íhaldið var samt við sig á bæjarstjórnarfundin-
um í fyrradag. Það þorði ekki að ganga hreint til
verks og drepa tillögur sósíalista um að taka upp
samvinn'u um innkaup á byggingarefni til að
lækka byggingarkostnaðinn, og að láta frám fara
rannsókn *a öliæfu húsnæði til þess að fá örugga
vitnéskju um ibúðarþörfina í bænum, heldur vís-
aði þeim til bæjarráðs í trausti þess að þar tækist,
eins og oftast endranær, að drepa þessi nauðsynja-
mál án þess að bæjarbúar veittu því fulla athygli.
Þessi eindæma afgreiðsla
íhaldsins á þessum málum
sýnir greinilega að innræti
þess verður óbreytt allt
fram í andlátið. Margur
mundi hafa ætlaö að íhalds
mennirnir hefðu hundskast
til að samþykkja þessar til-
lögur sösíálista, svona rett
fyrir kosningarnar, því hér
eru engar húsabyggingar-
tölur sem þeir þurfa að
skelfast, en nei, ónei, og
sannar það aðeins það sem
áður var vitað, að það er
andstætt eöli auðvalds ■
flokks að skipta um innræti
gagnvart alþýðunni.
íhaldi'ð vill ekki lækka
byggingarkostnaðinn
Ef tillaga Björns Bjarna
sonar um að bærinn tæki
upp samvinnu við stjórnir
verkamannabústaðanna og
byggingarsamvinnufélög í
bænum um innkaup byggr
ingarefnis, væri samþykkt
myndu öll innkaup þess
verða heppilegri og ódýrari
og þar af leiðandi verða tii
þess að lækka byggingar-.
kostnaðinn.
Hvers vegna vilí Bjarni
borgarstjóri og íhaldið hans
með engu móti að slík sam
vinna verði upptekin? Hvers
vegna vill íhaidið ekki
lækkun byggingarkostnaðar
ins?
Blátt áfram vegna þess
að slík samvinna um efnis-
innkaup myndi minnka
gróða milliliðanna, bygging
arefniskaupmanna og ýmiss
konar braskara, og það er
fyrir hagsmunum slíkra sem
íhaldið berst — gegn hags-
munum almennings í bæn
um.
Það gæti leitt í ljós ljót-
an og óþægilegan sánnleika.
Bjarni borgarstjóri og í-
haldið hans vill með engu
móti að fram verði látin
fara rannsókn á því hve
margir búa nú í heilsuspill-
andi íbúðrnn hér í bæ.
Árum saman hefur íhald
ið notað bæjarráö sem mál
efnalíkkistu sína. Þangað
hefur þaö vísað málum, —
sem það af ótta viö fólkiö i
bænum — hefur ekki bein-
línis þoráð að drepa. Og í-
haldið mun halda áfram áð
kistuleggja framfara- og
nauðsynjamál bæjarbúa -<•
allt til þess að bæjarbúar
kistuleggja íhaldið.
Hvers vegna vill Bjami
borgarstjóri og íhaldið hans
ekki láta rannsaka hve mik
ið er af óhæfum íbúöum?
Vegna þess að slík rann-
sókn gæti leitt í ljós að á-
standið í þessum málum sé
enn alvarlegra en bú'zt hef
ur verið við. Það gæti meir
að segja komið á daginn að
þaö væri allt of lítið að
byggja 500 íbúðir á næstu
tveim árum. — Að' rann-
sóknin leiddi í ijós að jafn
vel íhaldinu myndí ekki
fært annað en hefjast
handa með bygg ngar.
Ef íhalcTð á ekki framvegis
að kistuleggja framfáramál
bæjarbúa verða bæjarbúar
að kistuleggja íhaldíð.
Þannig er þá jólaboðskap
ur íhaldsins til húsnæöis-
leysingjanna í bænum: Það
má ekki efna til hagkvæm-
ari byggingarefn'skaupa
vegna þess að þá myndu
kaupmenn í íhaldsflokkn-
um missa spón úr askinum
sínum. Það má ekki rann-
saka hve margir búa í ó-
hæfu húsnæði, því þaö yröi
óþægileg reynsla fyrir íhald
ið. Þaö má ekki semja viö
verkamenn og iðnaðarmenn
um forgangsrétt að vinnu-
afli til íbúðabygginga, þá
gæti svo farið að ekki væri
lengur hægt að bera við
skorti á vinnuafli. Þetta þor
ir íhaldið ekki að segja, sízt
réit fyrir kosningar, þess
vegna vísar þáð til bæjar-
ráðs „að fela bæjarráöi“!!
— þ. e. kistuleggur þessi
mál.
En Reykvíkingar ætla ekki
að láta íhaldinu haldastuppi
að kistuleggja öll nauö-
synlegustu framfaramál
bæjarbúa, þess vegna munu
þe.'r kistuleggja íhaldið i
næstu bæjarstjórnarkosning
um.
Reykvíkingar!
Kaupið Mæðra-
blaðið í dag
í dag kemur Mæðrablaðr ð
út, og veröur selt á götun-
um og við húsdyr bæjarbúa.
Þetta er 1. tbl. 3. árg
blaösins. Útg. þess er Mæðra
styrksnefndin, ábýrgöarm.
Katrín Pálsdóttir bæjarfull
trú'i.
Efni þessa blaðs er m. a.:
Friður á jörðu (Katrín
Pálsdóttir, Skriftamál,"
kvæði (Arnfríður Sigurgeirs
dóttir), Stétt mæöranna
(Aðalbj örg Si gurðardóttir),
Jólaminningar (Védís Jóns
dóttir), Jólaborðið (Rann-
veig Kristjánsdóttir), Nokk-
ur atriði sem mæður og
mæðraefni verð'a áð muna
(Katrín Thorodds.), Mæðra.
vernd (Sigríður Einars),
Menningar- og minningar-
sjóður kvenna (Laufey
Valdimarsdóttir), Viö þurf-
um menntaöar konur (Kat-
'rín Pálsdóttir),), Gott upp-
eldi glæðir hæfileikana
(býtt), Týndu stjörnurnar,
Jólagjafir handa börnum,
Frá skrifstofu mæðrastyrks-
nefndar (Auður Auöuns).
Börn sem vilja selja
Mæðrablaðið eru beðin að
koma á þessa staði kl. lö—
12 f. h. og 2—5 e. h.: Aust-
urbæj arskólinn (vesturdyr),
Miöbæjarskóinn (stofa 1)
og Laugarnesskólinn.
lólablöð
Frh. af 3. síðu.
á briggskipi áriö 1797; Gils
Guömundsson: Sandgerði;
Jón Kr. ísfeld: Gísli báta-
smiður á Bíldudal; Kaup
skipafloti heimsins; Guð-
mundUr Guðmundsson: Sigi
ingalög og sjómanna-
fræösla; Haraldur Ólafsson:
Vélskipið Haukur; Bækur;
Á frívaktinni; Frá hafi til
hafnar og allmargt smærri
Jólagjöf íhaldsfruarinnar
Ef maðurinn minn færekki
að græða ...
Þegar rætt var á bæjarstjórnarfundi í fyrradag
um uppkast Jóns Axels að samningi milli bæjarins
og verkamanna og iðnaðarmanna um að tryggja
vinnuafl til nauðsynlegra bygginga og yrði því fyrst
og fremst einbeitt að íbúðabyggingum, var rætt um
það senfí opirubert leyndarmál að iðnaðarmenn
myndu tregir til að í'áða sig fyrir gildandi taxta —
þeir myndu vilja fá hærri laun.
Stóð þá upp frú Guðrún Guðlaugsdóttir og mælti
af þjósti miklum:
„Mér þætti það köld jólakveðja að senda
iðnáðarmönnum þá jólagjöf að hefta ein-
staklingsfrelsi þeirra til að vinna þar sem
þeim sýnist og segja þeim að vinna þar
sem einhverjum og einhverjum bæjarfull-
trúa dettur í hug“!
Þessi oið segii' bæjarfulltrúi flokksins sem er að hæla
sér af því aö hann beiti sér fyrir skipulögðum þjóðar-
búskap!!
Ef tryggja á vinnuafl til nauðsynlegra bygginga scgir
þessi liáttvirti fulltrúi nei takk! — Ekki nema maðurinn
minn fái að græða!
Maður frúarinnar er nefnilega byggingameistari, og
frúin þolir ekki þá ósvinnu að liann sé beðinn að sýna
þegnskap.
M. ö. orðum: Ef maðurinn minn fær ekki að byggja
það sem liann græðir mest á þá er ég ekki með — ef
maðurinn minn fær ekki að græða að viíd þá mega bragga-
búarnir drepast fyrir mér!
Úthlutun tíl tón-
ligtarmanna
Úthlutunarnefnd „Félags
íslenzkra tónlistarmanna“ hef
ur nýlega úthlutað eftirstöðv
um af fé því, er Menntamála
ráð veitti til íslenzkrar tón-
listar. Til úthlutunar komu
kr. 1800.00. Þessir hlutu við-
urkenningu:
greina sem enn er óupptal-
iö. Þá er allmargt mynda í
heftinu, og falleg litprentuð
kápumynd.
Þe'r sem ekki eru áskrif-
endur að þessum tveim
tímaritum verklýðssamtak-
anna ættu að kaupa þessi
hefti fyrir jólin.
Kr. 250.00: Bjarni Bjarna-
son, söngstjóri, Brekku í
Hornafirði. Brynjúlfur Sig-
fússon, söngstjóri, Vestmanna
eyjum. Eyþór Stefánsson,
söngstj., Sauðárkróki. Halldór
Jónsson, tónskáld, Reynisvöll
um í Kjós. Jónas Tómasson,
kirkjuorganleikari, ísafirði.
Sigurgeir Jónsson, fyrrv.
kirkjuorganleikari, Akureyri.
150.00: Kjartan Þorkelsson,
fyrrv. kirkjuorganleikári,
Hagaseli Staðarsveit. Þor-
steinn Konráðsson, fyrrv.
kirkjuorganleikari, Reykja-
vik.
I úthlutunarnefndinni áttu
sæti Björgvin Guðmundsson,
Hallgrímur Helgason og Sig-
urður Birkis.
Ljóðabækur jólanna eru:
Sól tér sortna
Jóhannes úr Kötlum
Kvæði
Snorri Hjartarson
Fást í öllum bókaverzlunum
Undir óttunnar himni
Guðmundur Böðvarsson
Íl og Menning
Láúgáveg 19, Sími 50S5