Þjóðviljinn - 26.02.1946, Page 6
6
ÞJÓÐVILJINN
Jólasvemninn
Nú datt jólasveininum snjallræði 1 hug. Hann
sagði við sjálfan sig: „Eg skipti á einu orði í hvorri
auglýsingu- I>á verður sú fyrri svona: „Eg vil
kaupa Keflavík...“ En sú seinni verður: „Heimili
brúðhjónanna verður í fataskáp“. Ekki trúi ég
öðru en einhverjir rífist fram á miðjan þorra út
af þessu“.
Bandaleysir hélt áfram að lesa auglýsingar. Ein
var svona: „Sjötíu og fimm hænsni til sölu. Upp-
lýsingar í síma 2222222“.
Þá sá Bandaleysir allt í einu frásögn um
skemmtun, sem hafði verið í bænum. Hún var
svona: „Árshátíð Söngvarafélagsins fór fram í gær.
Þar voru ræðuhöld, söngur og leiksýning. Söng-
menn stigu dans til miðnættis“.
„Þessu breyti ég“, hugsaði jólasveinninn. Og
þá varð auðlýsingin svona: „Söngmenn til sölu-
Hringið í síma 2222222“. En frásögninni um
skemmtunina lauk aftur á móti þannig: „Sjötíu og
fimm hænsni stigu dans til miðnættis“.
Bandaleysir iðaði af kæti og hugsaði með sér:
„Það skal ég ábyrgjast að einhverjir verða svo reið-
ir út af þessu, að þeir tala ekki orð saman til sum-
armála“.
Nú heyrði jólasveinninn fótatak og flýtti sér
að fela sig úti í horni-
Daginn eftir var sunnudagur og þá kúrði
Bandaleysir einn úti í hominu, át nesti sitt og
hlakkaði til morgundagsins.
--------Á mánudagsmorgun komu þrír menn
og fóru að vinna. Þeir hétu Þorgeir, Sigurgeir og
Jóhannes V. Jensen:
GUÐRÚN
Brúðkaupsveizlur gerðust |
svo fjölmennar víða í Norð-I
urálfunni á 16. og 17. öld, að'
sutms staðar voru sett lög til
að takmarka gestafjöldann,
eftir efnum og mannvirðing-
um ibrúðhjónanna. Var til
daam's svo ákveðið í Dan-
mörku að errubættismenn og
kaupmenn mættu bjóða 24
fjölskyldum og 12 pipar-
sveinum. Handverksmaður
onátti bjóða 12 fjölskyldum
og sex piparsveinum- Bóndi
mátti bjóða 12 fjölskyldum.
Svipuð lög voru í gildi í
Þýzkalandi.
Lcgunum var framfylgt á
þánn hátt, að boðsmaður var
látinrt fara bæja á milli með
skrá-yfir þá gesti. sem koma
áttu og lesa upp nöfn þeirra.
En yfirvald héraðsins hafði
afrit af þessari skrá og lét
telja út úr kirkjunni. Urðu
•menn óð greiða háar sektir
fýrir að hafa fleiri gesti en
staða og stétt heimilaði. En
höfðlnglyndir menn álitu sér
svo mikinn sóma að f jölmenn
| um veizlum, að þeir voru
I fúsir til að greiða sjálfir fé-
' gjöld fyrir óboðna gesti.
Þegar þetta dugði ekki,
voru sett lög til höfuðs boð-
flenmum og varðaði það 14
daga fangelsisvist við vatn
og brauð að mæta óboðinn í
brúðkaupi.
Stundum virðist það hafa
verið von um gjafir, sem
komu mönnum til að halda
fjölmennar veizlur. Voru
dæmi til þess að 5100 lóð
silfurs og 370 gullpeningar
voru gefnir við aðalsbrúð-
kaup .En það jafngildir 5—6
þús. kr. og var mikið fé þá.
Annars segir þýzkur rit-
'höfundur á þessum tímum:
„— Það er mikill ósiður að
safna að sér hersingu af pip-
arsveinum og piparmeyjum.
Faðir brúðarinnar sýnir gest-
unum lítinn sóma með því að
hlaða fólki þessu eins og
mjölsekkjum við borðið.
Hann hugsar aðeins um gjaf-
irnar, en slíkt er ekki ómaks
-irts vert —
hitt, þangað til þér lærið
réttu handtökin. Við förum
hægt. Haldið þér að 'þetta sé
einhver leyndardómsfull
■kunnátta? Eða hvað?“
Guðrún steig inn í bílinn
vinstra megin og tók við stýr
inu. Hún hafði ekki stýrt
vagni síðan hún var lítil og
Manni smdðaði handa þeim
vagn og var sjálfur vélin í
farartæk'nu- Hollund steig á
bremsurnar og ýtti fótum
Guðrúnar til hliðar. Bíllinn
mjakaðist áfram eins og snig-
ill og gekk í ískyggilegum
hlykkjum milli veganbrún-
anna. Guðrún hafði ekki í-
myndað sér að bessi stóri
vagn væri svona auðveldur
í stjórn. Hollund greip tvisv
ar um stýrið. svo að bíllinn
tók rétta stefnu en það leið
ekki á löngu áður en Guð-
rún gat ekið beint og öruggt
eftir miðjum veginum — og
gleymdi öllu öðru milli him-
ins og jarðar.
Hollund stöðvaði bílinn á
ný, kenndi henni að setja vél-
ina af stað og takmarka hrað
ann. Hann greip um hendur
hennar á víxl og færði þær
eftir því hvað hún átti að
taka til bragðs í hvert
skipti. Þetta endurtók sig
hvað eftir annað. Þau höfðu
bæði hanzka.
Ferðin gekk seint allan
fyrri hluta dagsins. Hann lét
hana æfa sömu 'handtökin
aftur og aftur og hlýddi
henni yfi.r eins og skólabarni.
Guðrún vissi hvað klukkan
sló og lét sér fátt um finnast,
hvað hann þurfti oft að
grípa um hendur hennar. Oll
þessi umhyggja hans gat
verið viðsjárverð, en hún
skeytti því engu og var ráðin
í að læra að aka bíl.
Hann var þolinmóður kenn
ari. Hann unni sjálfum sér
þess að fara hægt yfir, þeg-
ar hörundsbjört og bláeyg
stúlka sat við 'hlið hans.
Brúnu Hindúaaugún hans
glömpuðu af ánægju, einS^og
hann vœri sælasti maður
jarðarinnar, þó að það tæki
hann alla ævina að kenná
henni að aka bíl, ætlaði hann
ekki að telja það eftir sér!
Og hvers' hefði hann átt að
óska sér fremur en að sitja
•hér í sólskininú og horfa út
yfir víðáttumiklar lyngheið-
ar fjarri allri háreysti héims-
ins.
Það var vor í blænum og
grönnu birkitrén voru farin
að skjóta brumi. Stór flutn-
ingabíll kom og dró annan á
eftir sér. Vegurinn skalf,
þegar hann fór fram hjá.
Annars var engin umferð.
Langt í burtu sáu þau lágt
hús og eittlhvað á kviki í
kringum það.— M'klega svart-
ar kindur.
Guðrún sat við stýrið,
kunni nú öll handtök utan
að og ók á fullri ferð. Hol-
lund lét hana aka allan fyrri
hluta dagsins og hún bar sig
eins og vanur bílstjóri. hreyk
in af þessari nýju kunnáttu
isinni. Hann tók ekki við
stjórninni, fyrr en þau nálg-
uðust Bremen. Þá ók hann
sjálfuir í gegnum borgina.
Þau borðuðu hádegisverð í
Hamborg-
„Þér verð.ð að fá ökuskír-
teini óðar og við komum
heim“, sagði hann og leit á
hana yfir borðið. Það verður
á kostnað Fyrirtækisins.
Hver veit nema þér verðið
beðin að aka bíl í ökkar þágu
við og við. Og svo er eitt
enn: Eg tók eftir því að þér
kunnið ekki frönsku. Við höf
um ekki mikil bréfaviðskipti
á frönsku, en mér þætti bezt
ef sami ritari gæti annazt öll
bréfaviðskipti. Þá fara einka-
mál Fyrirtækisins ekki ann-
arra á milli. Ef þér viljið
læra frönsku, verður það á
kostnað Fyrirtækisins og
kennslutímamir skulu verða
taldir með vinnutíma yðar.
Það er bara sanngjarnt, því
að þér gerið þetta í okkar
þágu“.
Guðrún varð himinglöð, en
óþarflega þótti henni mikill
hiti í angnaráði hans, þegar
hann leit á hana yfir borðið.
En svo beindi hann athygli,
sinni óskiptri að matnurn.
Ekkert var það til á borð-
inu, sem var honum óviðkom
andi.
Þau komu til Kaupmanna-
hafnar um kvöldið.
XIII.
Guðrún fór snemma á fæt-
ur morguninn eftir og gekk
alla leið út að flugvellinum
í Kastrup. Það var hressandi
morgunganga og lævirkjarn-
ir sungu undir heiðum himni.
Ofurldtill fúaþefur barst upp
úr skurðunum, sem voru að
koma undan snjónum. And-
rúmslóftið á Amager var
blandað ilmi af káli og sjáv-
arseltu, eins og vant var.
En hvað var notalegt að
vera komin heim.
Hún fann hjólið sitt, þar
sem hún hatfði skilið það eft-
ir við flugstöðina. Loftið var.
farið úr afturhjólinu. Það var
allt og sumt.
Og þegar klukkan nálgað-
ist 9, var Guðrún komin inn
Þriðjudagur 26. febr. 1946.
í hjólhestastrauminn, sem
stefndi að hjarta borgarinn-
ar. Hún var sjálf hluti af
borginni og borgin var falúti
af henni.
Fjallháir bréfahlaðar biðu
hennar og mikil aukavinna.
Það varð Hollund að sætta
sig við líka. Nú var hann
aftur orðinn áhugasamur
framkvæmdastjóri, talaði í
viðsk'ptatón og vann af
kappi- Þannig liðu tveir dag-
ar án þess að Guðrún hefði
tíma til að sinna neinu, sem
snerti hana sjálfa.
Þá mætti hún Manna.
Hún kom úr bankanum og
rakst á hann á Nýja Kon-
ungstorgi. Hann hafði skóla-
töskuna sína undir hendinni,
vaxdúkstösku með slitnum
homum. Hanrt var á leið í
háskólann og var í ljósgrá-
um, ódýrum fötum, ekki ný-
pressuðum, og skóm, sem oft
höfðu verið sólaðir. Hár hans
var þykkt og úfið. Svona leit
þá Manni út, þegar hann var
orðinn háskólanemi í verk-
fræði. Hann var meðal tötra-
stúdentanna.
knnars var Manni sjálfum
sér líkur, þrekinn um háls
og brjóst og vaggaði í göngu
lagi. En nú var hann ekki
veðurfoitinn lengur. Hörundið
var slétt og rauðleitt. Hann
hafði enn rauða díla á kinn-
beinunum, eins og þegar
hann var. drengur- Hrukkurn
ar yfir augabrúnunum, sem
áður höfðu gert hann syfju-
legan, vöktu nú hugmynd
, um athygligáfu og hyggni.
Svo skammt getur verið á
milli gáfumannsáns og hins
treggáfaða.
Hann var ekki eins glað-
vær o-g einlægnislegur og
fyrrum, heldur fáfróður, dul
ur og hugsandi. En ánægður
var hann og las af feikna
kappi, enda voru það marg-
ar bækur, sem hann varð að
ljúka áður en takmarkinu
væri náð. Og takmarkið var
stórt skip, sem hann hefði
sjáltfur teiknað.
Guðrún flýtti sér á móti
honum, en Manni stóð í sömu
orum og beið. Hann var al-
varlegur. Það vottaði ekki'
fyrir brosi á andMti hans.
Hann var að foíða eftir spor-
vagni.
„Manni!“ sagði Guðrún og
nam staðar.
,,Góðan daginn“, svaraði
hann og stóð grafkyrr.
Guðrún varð óróleg- Henni
hafði dottið það í hug’á heim
l'eiðinni að ekki vildi hún
mæta Manna í bilfmm“-nl’eð